Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Blaðsíða 15
Þú ert með krabbamein Ég ákvað að líf mitt yrði betra ef ég snerti ekki áfengi Ég gat ekki hætt að brosa Kristín Hlín greindist með krabbamein í skjaldkirtli. – DVGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra er bindindismaður. – DV Eva Gunnarsdóttir, systir Brynjars Mettinissonar, þegar hún sá hann koma út úr flugvélinni. – DV Fyrir opnum tjöldum Spurningin „Það er best að vera í Reykjavík.“ Emilie Birch 25 ára læknanemi í skiptinámi. „Hvar sem er í náttúrunni.“ Ellee Ancheim 39 ára sálfræðingur. „101 Reykjavík.“ Jón Gunnar Sveinsson 53 ára skrifstofumaður. „Hjá fjölskyldu og vinum.“ Guðrún Halla Daníelsdóttir 28 ára lögmaður. „Á næturlífinu.“ Unnar Helgi Daníelsson 22 ára eigandi Reykjavík Rocks. Hvar er best að vera? 1 „Ég hef gert fleiri en ein mistök“ Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra í viðtali við helgarblað DV. 2 Lýsir blindafylleríi í Hörpu Áhorfendur voru mjög ölvaðir á tónleik- um Stuðmanna. 3 Stökk nakinn út með frum-skógarsveðju Fékk nóg af ölvuðu fólki að kasta af sér vatni. 4 Mikilvægt að hlusta á innsæið Kristín Hlín Pétursdóttir Bernhöft greindist með krabbamein í skjaldkirtli. 5 Bannað að ráða tóbaksneyt-endur Delray Beach í Flórída bannar að ráðið sé starfsfólk sem neytir tóbaks. 6 Íslensk heimili fengu tólf sinnum meiri afskriftir en bandarísk Stefán Ólafsson ber saman Ísland og Bandaríkin. 7 Bryti páfa dæmdur í fangelsi Stal trúnaðargögnum sem voru notuð í bók. Mest lesið á DV.is S tjórnlagaráð ákvað að bjóða fólk- inu í landinu að hjálpa til við smíði stjórnarskrárfrumvarpsins á netinu, og vakti sú aðferð tals- verða athygli í erlendum fjölmiðlum (sjá t.d. Guardian, 9. júní 2011). Þessi ákvörðun reyndist vel, og ekki fylgdu henni nein vandkvæði. Vitað var, að venjulegt fólk víðs vegar um samfélag- ið hafði mikinn áhuga á endurskoðun stjórnarskrárinnar. Annars hefðu varla 522 Íslendingar boðið sig fram til stjórn- lagaþings. Þjóðfundinn 2010 sóttu 950 manns valin af handahófi úr þjóðskrá. Allir Íslendingar 18 ára og eldri höfðu sama tækifæri til að veljast til setu á þjóðfundinum. Þrír áfangar, einróma samþykkt Vinna stjórnlagaráðs fór fram í þrem áföngum. Fyrst setti ráðið á vef sinn ýmsar bráðabirgðatillögur, sem verið var að vinna að. Eftir að hafa þegið fjöl- margar uppástungur og athugasemdir utan úr samfélaginu birti ráðið nýja gerð tillagnanna tveim til þrem vikum síðar. Að lokum voru frumvarpsdrögin í heild rædd fram og aftur, og var þá sett saman lokagerð, sem stjórnlagaráð greiddi at- kvæði um. Sérhver grein var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða og oft mótatkvæðalaust. Eftir að greinar um kosningakerfi og náttúruauðlindir höfðu verið samþykktar, brauzt út lófa- klapp. Frumvarpið í heild var samþykkt einum rómi með 25 atkvæðum gegn engu. Aðkoma almennings Umferðin um vefsetur stjórnlagaráðs vitnar um áhuga almennings. Ráðinu bárust 323 formleg erindi og ráðsfull- trúar ræddu þau öll og svöruðu þeim. Þá voru 3.600 athugasemdir gerð- ar við ýmis ákvæði á vefsetrinu. Nær allar tillögur og athugasemdir komu að einhverju gagni. Ef enginn gerði athugasemd, var það einnig á sinn hátt gagnlegt, því þá hlutum við að álykta, að við værum e.t.v. á réttri leið. All- ur ótti um, að vefsetur stjórnlagaráðs myndi drukkna í lítilsverðu þrefi og stappi reyndist ástæðulaus. Allt þetta stangaðist á við þær venjur, sem marka íslenzka stjórnmálamenningu og geta varla talizt sitja í háum söðli. Af hverju slapp stjórnlagaráð við þá pytti alla? Ein ástæðan kann að vera sú, að umræður í stjórnlagaráði einkenndust af gagn- kvæmri kurteisi og virðingu. Stjórnlaga- ráðsmenn báru djúpa virðingu fyrir því verkefni, sem þeim hafði verið falið af þjóð og þingi. Sjónvarpað var beint á netinu frá fundum ráðsins og yfirleitt horfðu 150–450 manns á útsendingarn- ar. Meira en 50 viðtöl við ráðsfulltrúa og aðra, sem við sögu komu, voru settar á YouTube, og í lok árs 2011 hafði ver- ið horft á þau 5.000 sinnum. Á vefsetri stjórnlagaráðs má enn finna mikið af upplýsingum um starf ráðsins. Þá voru símanúmer og netföng stjórnlagaráðs- manna birt opinberlega, og allir gátu haft samband við þá. Stjórnlagaþing Bandaríkjanna kom saman fyrir luktum dyrum í Fíladelfíu 1787. Sérfræðingar og sérhagsmunir En þótt stjórnlagaráð hafi lagt mikið upp úr samvinnu við almenning, var einnig stöðugt leitað ráða hjá sérfræðingum. Skýrsla stjórnlaganefndar var sneisa- full af góðum hugmyndum. Margir sér- fræðingar, bæði lögfræðingar og aðrir, komu fyrir ráðið eða skiluðu skriflegum greinargerðum. Ráðið gat að sjálfsögðu ekki leitað til allra sérfræðinga, sem til greina komu, en allir, sem vildu leggja eitthvað til málanna, gátu gert það. Ákveðið var að fylgja ekki þeirri reglu nefnda Alþingis að bjóða til fundar full- trúum hagsmunaaðila, en þeir höfðu þó sama aðgang að ráðinu og aðrir, gátu sótt fundi þess og lagt fram óskir, fyrir- spurnir og ábendingar. Þetta var mikil- vægt til að tryggja, að allir sætu við sama borð, en sérhagsmunahópar á Íslandi hafa ekki vanizt því. Fulltrúar þeirra gáfu sig ekki fram við stjórnlagaráð. Enn heyrast ábendingar um einstök efnisatriði frumvarpsins frá fólki, sem hirti ekki um að gefa sig fram, með- an vinnan stóð yfir. Þær eru of seint fram komnar. Frumvarpinu var lokað, þegar það var afhent forseta Alþingis 29. júlí 2011. Þjóðin kýs um frumvarpið 20. október. Aldrei fyrr hefur kjósend- um gefizt færi á að slá fleiri keilur í einu kasti: jafnt vægi atkvæða, auðlindir í þjóðareigu, frjáls aðgangur að opinber- um upplýsingum, beint lýðræði, óspillt- ar embættaveitingar, traust valdmörk og mótvægi – allt þetta á einu bretti og meira til. Kjósum. Spúlum dekkið. Gengið til góðs Rauði krossinn stóð fyrir söfnunarátakinu Gengið til góðs nú um helgina. Stöllurnar Hekla og Valgerður voru á Lækjartorgi að vekja athygli á söfnuninni og sýndu meðal annars búnað og dæmigerða matarskammta úr flóttamannabúðum. Mynd SiGtryGGur AriMyndin Kjallari Þorvaldur Gylfason Umræða 15Mánudagur 8. október 2012 „En þótt stjórnlaga- ráð hafi lagt mikið upp úr samvinnu við al- menning, var einnig stöðugt leitað ráða hjá sérfræðing- um. Skýrsla stjórnlaga- nefndar var sneisafull af góðum hugmyndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.