Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Blaðsíða 15
Þú ert með
krabbamein
Ég ákvað að líf mitt yrði
betra ef ég snerti ekki áfengi
Ég gat ekki
hætt að brosa
Kristín Hlín greindist með krabbamein í skjaldkirtli. – DVGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra er bindindismaður. – DV Eva Gunnarsdóttir, systir Brynjars Mettinissonar, þegar hún sá hann koma út úr flugvélinni. – DV
Fyrir opnum tjöldum
Spurningin
„Það er best að vera í Reykjavík.“
Emilie Birch
25 ára læknanemi í skiptinámi.
„Hvar sem er í náttúrunni.“
Ellee Ancheim
39 ára sálfræðingur.
„101 Reykjavík.“
Jón Gunnar Sveinsson
53 ára skrifstofumaður.
„Hjá fjölskyldu og vinum.“
Guðrún Halla Daníelsdóttir
28 ára lögmaður.
„Á næturlífinu.“
Unnar Helgi Daníelsson
22 ára eigandi Reykjavík Rocks.
Hvar er best
að vera?
1 „Ég hef gert fleiri en ein mistök“ Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra í viðtali við
helgarblað DV.
2 Lýsir blindafylleríi í Hörpu Áhorfendur voru mjög ölvaðir á tónleik-
um Stuðmanna.
3 Stökk nakinn út með frum-skógarsveðju Fékk nóg af ölvuðu
fólki að kasta af sér vatni.
4 Mikilvægt að hlusta á innsæið Kristín Hlín Pétursdóttir Bernhöft
greindist með krabbamein í skjaldkirtli.
5 Bannað að ráða tóbaksneyt-endur Delray Beach í Flórída bannar
að ráðið sé starfsfólk sem neytir
tóbaks.
6 Íslensk heimili fengu tólf sinnum meiri afskriftir en
bandarísk Stefán Ólafsson ber
saman Ísland og Bandaríkin.
7 Bryti páfa dæmdur í fangelsi Stal trúnaðargögnum sem voru notuð
í bók.
Mest lesið á DV.is
S
tjórnlagaráð ákvað að bjóða fólk-
inu í landinu að hjálpa til við
smíði stjórnarskrárfrumvarpsins
á netinu, og vakti sú aðferð tals-
verða athygli í erlendum fjölmiðlum
(sjá t.d. Guardian, 9. júní 2011). Þessi
ákvörðun reyndist vel, og ekki fylgdu
henni nein vandkvæði. Vitað var, að
venjulegt fólk víðs vegar um samfélag-
ið hafði mikinn áhuga á endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Annars hefðu varla
522 Íslendingar boðið sig fram til stjórn-
lagaþings. Þjóðfundinn 2010 sóttu 950
manns valin af handahófi úr þjóðskrá.
Allir Íslendingar 18 ára og eldri höfðu
sama tækifæri til að veljast til setu á
þjóðfundinum.
Þrír áfangar, einróma samþykkt
Vinna stjórnlagaráðs fór fram í þrem
áföngum. Fyrst setti ráðið á vef sinn
ýmsar bráðabirgðatillögur, sem verið
var að vinna að. Eftir að hafa þegið fjöl-
margar uppástungur og athugasemdir
utan úr samfélaginu birti ráðið nýja gerð
tillagnanna tveim til þrem vikum síðar.
Að lokum voru frumvarpsdrögin í heild
rædd fram og aftur, og var þá sett saman
lokagerð, sem stjórnlagaráð greiddi at-
kvæði um. Sérhver grein var samþykkt
með miklum meirihluta atkvæða og
oft mótatkvæðalaust. Eftir að greinar
um kosningakerfi og náttúruauðlindir
höfðu verið samþykktar, brauzt út lófa-
klapp. Frumvarpið í heild var samþykkt
einum rómi með 25 atkvæðum gegn
engu.
Aðkoma almennings
Umferðin um vefsetur stjórnlagaráðs
vitnar um áhuga almennings. Ráðinu
bárust 323 formleg erindi og ráðsfull-
trúar ræddu þau öll og svöruðu þeim.
Þá voru 3.600 athugasemdir gerð-
ar við ýmis ákvæði á vefsetrinu. Nær
allar tillögur og athugasemdir komu
að einhverju gagni. Ef enginn gerði
athugasemd, var það einnig á sinn hátt
gagnlegt, því þá hlutum við að álykta,
að við værum e.t.v. á réttri leið. All-
ur ótti um, að vefsetur stjórnlagaráðs
myndi drukkna í lítilsverðu þrefi og
stappi reyndist ástæðulaus. Allt þetta
stangaðist á við þær venjur, sem marka
íslenzka stjórnmálamenningu og geta
varla talizt sitja í háum söðli. Af hverju
slapp stjórnlagaráð við þá pytti alla? Ein
ástæðan kann að vera sú, að umræður
í stjórnlagaráði einkenndust af gagn-
kvæmri kurteisi og virðingu. Stjórnlaga-
ráðsmenn báru djúpa virðingu fyrir því
verkefni, sem þeim hafði verið falið af
þjóð og þingi. Sjónvarpað var beint á
netinu frá fundum ráðsins og yfirleitt
horfðu 150–450 manns á útsendingarn-
ar. Meira en 50 viðtöl við ráðsfulltrúa og
aðra, sem við sögu komu, voru settar
á YouTube, og í lok árs 2011 hafði ver-
ið horft á þau 5.000 sinnum. Á vefsetri
stjórnlagaráðs má enn finna mikið af
upplýsingum um starf ráðsins. Þá voru
símanúmer og netföng stjórnlagaráðs-
manna birt opinberlega, og allir gátu
haft samband við þá. Stjórnlagaþing
Bandaríkjanna kom saman fyrir luktum
dyrum í Fíladelfíu 1787.
Sérfræðingar og sérhagsmunir
En þótt stjórnlagaráð hafi lagt mikið upp
úr samvinnu við almenning, var einnig
stöðugt leitað ráða hjá sérfræðingum.
Skýrsla stjórnlaganefndar var sneisa-
full af góðum hugmyndum. Margir sér-
fræðingar, bæði lögfræðingar og aðrir,
komu fyrir ráðið eða skiluðu skriflegum
greinargerðum. Ráðið gat að sjálfsögðu
ekki leitað til allra sérfræðinga, sem til
greina komu, en allir, sem vildu leggja
eitthvað til málanna, gátu gert það.
Ákveðið var að fylgja ekki þeirri reglu
nefnda Alþingis að bjóða til fundar full-
trúum hagsmunaaðila, en þeir höfðu
þó sama aðgang að ráðinu og aðrir, gátu
sótt fundi þess og lagt fram óskir, fyrir-
spurnir og ábendingar. Þetta var mikil-
vægt til að tryggja, að allir sætu við sama
borð, en sérhagsmunahópar á Íslandi
hafa ekki vanizt því. Fulltrúar þeirra
gáfu sig ekki fram við stjórnlagaráð.
Enn heyrast ábendingar um einstök
efnisatriði frumvarpsins frá fólki, sem
hirti ekki um að gefa sig fram, með-
an vinnan stóð yfir. Þær eru of seint
fram komnar. Frumvarpinu var lokað,
þegar það var afhent forseta Alþingis
29. júlí 2011. Þjóðin kýs um frumvarpið
20. október. Aldrei fyrr hefur kjósend-
um gefizt færi á að slá fleiri keilur í einu
kasti: jafnt vægi atkvæða, auðlindir í
þjóðareigu, frjáls aðgangur að opinber-
um upplýsingum, beint lýðræði, óspillt-
ar embættaveitingar, traust valdmörk
og mótvægi – allt þetta á einu bretti og
meira til. Kjósum. Spúlum dekkið.
Gengið til góðs Rauði krossinn stóð fyrir söfnunarátakinu Gengið til góðs nú um helgina. Stöllurnar Hekla og Valgerður voru á Lækjartorgi að vekja athygli á söfnuninni og
sýndu meðal annars búnað og dæmigerða matarskammta úr flóttamannabúðum. Mynd SiGtryGGur AriMyndin
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason
Umræða 15Mánudagur 8. október 2012
„En þótt stjórnlaga-
ráð hafi lagt mikið
upp úr samvinnu við al-
menning, var einnig stöðugt
leitað ráða hjá sérfræðing-
um. Skýrsla stjórnlaga-
nefndar var sneisafull af
góðum hugmyndum.