Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Qupperneq 16
Dýrara með kreditkorti
n Norwegian og EaysJet taka aukalega 1.000 krónur fyrir
Þ
egar keyptir eru flugmiðar
á síðum Norwegian og Ea-
syJet bætast við 1.000 krónur
ef greitt er með kreditkorti.
Íslenskir korthafar komast ekki
hjá þessum aukagjöldum því hér-
lend debetkort eru ekki gjaldgeng
í netviðskiptum. Frá þessu er sagt á
túristi.is.
Þar var einnig nýlega sagt frá því
að Norwegian muni halda Íslands-
flugi sínu áfram. „Flugið milli Ósló-
ar og Reykjavíkur hefur verið mjög
vel lukkað. Í sumar flugum við oft
með fullar vélar milli höfuðborg-
anna tveggja og þess vegna munum
við halda áfram allt árið. Við trúum
því að það sé pláss fyrir Norweg-
ian á þessari flugleið, ekki bara á
sumrin, heldur allt árið,“ segir Lasse
Sandaker-Nielsen fjölmiðlafulltrúi
Norwegian í samtali við Túrista.
Hann segir einnig mögulegt að fé-
lagið muni fljúga hingað til lands frá
fleiri borgum en það hafi ekki verið
endanlega ákveðið.
Norwegian hefur flogið hingað
frá Osló þrisvar í viku frá því í byrj-
un sumars. Icelandair og SAS fljúga
þess leið oftar og næsta sumar ætl-
ar Iceland Express líka að fljúga til
höfuðborgar Noregs. n
gunnhildur@dv.is
16 Neytendur 8. október 2012 Mánudagur
Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr.
Skeifunni 257,2 kr. 260,4 kr.
Dalvegi 257,1 kr. 260,3 kr.
Algengt verð 257,4 kr. 260,6 kr.
Algengt verð 259,6 kr. 260,6 kr.
Fjarðakaupum 257,2 kr. 260,4 kr.
Eldsneytisverð 7. október
BENsíN Dísilolía
Hugað að
börnunum
n Lofið fær sveitasetrið Gauksmýri
í Húnaþingi vestra. „Við fórum
að Gauksmýri í sumar þar sem
er bæði gisting og matsölustað-
ur. Við vorum fjögur fullorðin og
þrír drengir, 6, 9 og 10 ára og þegar
við komum var búið að dúka borð
og við settumst. Drengjunum var
boðið að koma og skoða matinn
áður en við borðuðum. Þetta var
allt mjög huggulegt og afskaplega
gott. Þegar drengirnir voru búnir að
borða þá vildu þeir fara
aftur af stað en þá kom
starfsmaður og bauð
þeim að skoða húsið.
Slík framkoma
gagnvart börn-
um er nánast al-
gjört einsdæmi
og til mikillar
fyrirmyndar.“
Rangt verð
n Lastið fær Skómeistarinn í
Smáralind en kona ein fór með
háhælaða skó til hans sem þurftu
nýja tappa í hælana. Þegar hún
spurði hvað þetta mundi kosta
var henni sagt að verðið væri um
það bil 2.000 krónur og hún skildi
skóna eftir til viðgerðar. Nokkrum
dögum síðar fór maður hennar að
sækja skóna án þess að vita hvaða
verð konan hafði fengið uppgefið
og greiddi 2.850 krónur fyrir við-
gerðina. Konan hafði því samband
við skósmiðinn sem sagði að verðið
væri mismunandi eftir skóm. Hún
undrar sig á þessu þar sem skó-
smiðurinn sá skóna þegar hún kom
með þá og finnst að hann hefði því
átt að geta gefið upp rétt verð.
DV hafði sambandi við Skómeist-
arann og fékk þau svör að um tvö
verð sé að ræða, annars vegar 1.980
krónur fyrir pinnahæla og hins
vegar fyrir 2.890 krónur ef skórn-
ir eru með hælplötur sem þarf að
negla upp í og skera. Þá vilja þau
endilega að konan komi með skóna
og leyfi þeim að sjá þá til að athuga
hvort að hún hafi verið afgreidd
rangt. Þeim þykir þetta miður en
geta ekki svarað fyrir þetta nema sjá
skóna. Aðspurð af hverju ekki hefði
verið hægt að gefa upp rétt verð
þegar skórnir voru af-
hentir skósmiðnum
segir viðmælandi að
alltaf sé möguleiki
á að einhver hafi
óvart merkt þá vit-
laust. Þá er ítrek-
að að konan komi
með skóna til að þeir geti
leiðrétt ef um mistök hafi
verið að ræða.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
B
örkur appelsínunnar og hýði
lauksins eru jafn holl, ef ekki
hollari en þeir hlutar græn-
metisins sem við erum vön að
nota. Það er því tilvalið að nýta allt
grænmetið og fá sem mest af nær-
ingarefnum úr því. Þetta á við um
fleiri tegundir grænmetis. Á vefnum
oprah.com eru taldar upp nokkrar
tegundir sem við eigum til að van-
nýta. Þar eru einnig ráð um hvern-
ig við getum notað þessa hluta sem
venjulega enda í ruslinu.
Appelsínubörkur
Börkurinn inni-
heldur rúmlega
fjórum sinn-
um meira af
trefjum en
ávöxturinn
sjálfur. Auk
þess er meira
af andoxunar-
efninu flavonoid
sem vinnur gegn myndun eða fjölg-
un krabbameinsfrumna. Rannsókn
frá árin 2004 sýnir að efnið geti jafn-
vel minnkað hið skaðlega LDL-kól-
esteról betur en lyf.
Hvernig skal nota: Rífið efsta lagið af
berkinum með þar til gerðu áhaldi og stráið
yfir grænar baunir og aspas. Í eftirrétt er
gott að sjóða börkinn í sírópi og hella dökku
bræddu súkkulaði yfir.
Stilkar blaðbeðjunnar
Rannsókn sem var
gerð við Institute of
Food Technology
í Þýskalandi
sýnir að stilk-
ur blaðbeðju
er stútfullur af
glútamíni en það
er amínósýra sem
styrkir ónæmiskerfið og hjálpar lík-
amanum að ná sér eftir meiðsli eða
skurðaðgerðir.
Hvernig skal nota: Gott er að binda nokkra
stöngla saman og steikja þá, við vægan
hita í lokaðri pönnu, upp úr blöndu af
grænmetis soði, rauðvínsediki, hunangi og
hvítlauk í 20 til 30 mínútur.
Selleríblöð
Blöð sellerí-
plöntunn-
ar innihalda
fimm sinnum
meira magnesí-
um og kalsíum
en stilkarnir. Þar
er einnig að finna
mikið af C-vítamíni og phenolics en
það er flokkur efna sem inniheldur
flavonoids sem hafa sterka andox-
unarvirkni og bólgueyðandi áhrif.
Hvernig skal nota: Skerið blöðin smátt
niður með steinselju og hrærið í salsa eða
notið sem skraut á fisk- eða kjúklingarétt.
Lauf spergilkáls
Úr 28 grömmum
færðu 90 prósent
af ráðlögðum
dagskammti
A-vítamíns á
meðan blóm-
knúpparnir
innihalda
einungis þrjú pró-
sent.
Hvernig skal nota: Eldið laufin eins og
spínat. Sjóðið í vatni og snöggsteikið svo í
ólífuolíu, hvítlauk og salti.
Ysta lag vatnsmelónu
Bandarísk rannsókn
sýndi fram á að ysta
lag melónunnar,
hvíta lagið und-
ir hýðinu, inni-
heldur mikið
af citrulline en
það er amínósýra
sem aðstoðar við að
víkka æðar og hjálpar á þann hátt
við að bæta blóðrásina.
Hvernig skal nota: Setjið ysta lagið í
blandara með sítrónu og vatnsmelónukjöti.
Úr verður það sem er kallað Aqua Fresca
sem er sætur ávaxta drykkur. Einnig má
bæta út í rommi, gini eða vodka, ef svo ber
undir.
Hýði lauksins
Blaðkennt hýði
lauksins inni-
heldur meira
af andoxun-
arefnum en
laukurinn
sjálfur. Sér-
staklega er
mikið af efn-
inu quercetin
sem getur aðstoðað við að lækka
blóðþrýsting og koma í veg fyrir
þrengsli í æðum.
Hvernig skal nota: Sjóðið í krafti, súpum
og kássum til að fá bragð. Fjarlægið hýðið
úr réttinum áður en hann er snæddur.
n Hýði, blöð og stönglar geta verið hollari en það sem við notum af grænmetinu
Nýttu allt grænmetið
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hollusta Við hendum alltaf einhverj-
um hluta grænmetisins. MyND sigtryggur ari
Norwegian Mun halda áfram að fljúga til Íslands.