Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Page 21
Yngsti dansarinn 14 ára
n Íslenski dansflokkurinn frumsýndi Hel haldi sínu
Á
föstudag frumsýndi Íslenski
dansflokkurinn verkin Hel
haldi sínu og It is not a
metaphor á stóra sviði Borgar-
leikhússins.
Hel haldi sínu er eftir franska
danshöfundinn Jérôme Delbey.
Jérôme leitar innblásturs í nor-
ræna goðafræði og fjallar verkið
um sköpun og endalok heimsins
út frá gömlu norrænu trúarbrögð-
unum.
It is not a metaphor er eftir
Cameron Corbett en hann er einn
reyndasti dansari Íslenska dans-
flokksins og hefur starfað hjá flokkn-
um síðan 1997. It is not a metaphor
mun færa áhorfandann til fortíðar og
sækja innblástur í hin ólíku þemu og
listabylgjur sem komu fram á tuttug-
ustu öldinni.
Dansflokkurinn er skipaður
tíu dönsurum, fimm konum og
fimm körlum. Auk þess dansa tveir
gestadansarar í Hel haldi sínu og
einn þeirra er aðeins fjórtán ára að
aldri. Næsta sýning verður þann 11.
október en aðeins sex sýningar verða
á verkunum. n
Menning 21Mánudagur 8. október 2012
Innblástur úr norrænni
goðafræði Tólf dansarar dansa
í verkinu Hel haldi sínu, sá yngsti er
aðeins 14 ára.
Þ
að muna allir eftir sögunni
af því þegar hinn frægi
trommari Bítlanna, Ringo
Starr, steig úr flugvélinni. Var
nýlentur á Íslandi þegar blaðamað-
ur spurði hann: How do you like
Iceland?
Síðan þá hefur þessi frasi orðið
táknrænn fyrir þjóðarstolt Ís-
lendinga,“ segir Ólafur Karl Helga-
son, einn stofnenda vefsíðunnar:
howdoyoulikeiceland.com.
Á síðunni er kynnt hönnun og
list eftir marga fremstu hönnuði og
listamenn þjóðarinnar og oft á mjög
hagstæðu verði, að því er Ólafur
Karl segir.
„Það eru ekki síst Íslendingar
sem panta hjá okkur enda er kostn-
aður við innanlandsflutninga afar
lítill og verðin oft hagstæðari en í
verslunum.“
Á síðunni eru ekki eingöngu vör-
ur til sölu, þar er einnig fróðleikur
um land og þjóð á sérstöku bloggi.
„Okkur fannst ágæt hugmynd að
blanda saman verslun og bloggi,“
segir Ólafur Karl en meðal hönnuða
sem selja vörur sínar á síðunni eru
Hafsteinn Júlíusson, Kormákur og
Skjöldur, Mundi og Gyðja Collect-
ion sem hefur slegið í gegn með
ilmvötnum sínum Eyjafjallajökli og
Vatnajökli.
n Vefverslun á howdoyoulikeiceland.com
Íslensk hönnun til sölu
Fróðleikur og varningur Strákarnir í How do you like Iceland reka bæði blogg og
vefverslun með íslenska hönnun og list.
Innsýn í líf
frumkvöðla
V
ala Halldórsdóttir og Sesselja
Vilhjálmsdóttir eru íslenskir
frumkvöðlar. Árið 2009 slógu
þær í gegn með borðspilinu
Heilaspuna. Í framhaldinu vildu þær
stofna sitt eigið sprotafyrirtæki svo
þær ákváðu að ferðast um Bandaríkin
og Evrópu og spyrja aðra frumkvöðla
um hvað þyrfti til að stofna farsælt
fyrirtæki. Þær stöllur sýndu afrakstur-
inn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð en
heimildamyndin The Startup Kids
fjallar um unga frumkvöðla sem
hafa stofnað vef- eða tæknifyrirtæki í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Myndin gefur innsýn í líf og hugs-
unarhátt ungu frumkvöðlanna, sem
flestir byrjuðu með aðeins hugmynd
en reka stórfyrirtæki í dag. Meðal
viðmælenda eru stofnendur Vimeo,
Soundcloud, Dropbox sem allt eru
vinsæl netfyrirtæki.
Valgerður og Sesselja hafa aldrei
áður reynt fyrir sér í kvikmynda-
gerð og lærðu sjálfar á tökuvélina.
Þá renndu þær blint í sjóinn á ferða-
lögum sínum og segjast einfaldlega
hafa haft samband og beðið um að fá
að koma í heimsókn og þá hafi ekki
skemmt fyrir sú staðreynd að um var
að ræða ungar konur frá Íslandi.
n Hittu forsvarsmenn Vimeo og Dropbox
Ferðuðust víða Valgerður Halldórs
dóttir og Sesselja Vilhjálmsdóttir lögðu í
mikið ferðalag til þess að kynnast hugs
unarhætti frumkvöðla.
S
teikhúsið Argentína á Bar-
ónsstíg er orðið eitt af eldri
veitingahúsum Reykjavíkur
– opnað 1989. Mörg ný og
góð veitingahús hafa skotið
upp kollinum í Reykjavík á liðnum
árum og vilja þau eldri því stundum
gleymast í nýjabrumi hinna. Ný-
verið áttaði ég mig á því að ég hafði
ekki farið á Argentínu um árabil
og ákvað því að prófa staðinn aftur
ásamt spúsu minni góðu í tilefni af
afmælisdeginum mínum. Mig lang-
aði sannast sagna í góða steik.
Argentína er auðvitað fyrst og
fremst rómuð fyrir nautakjötið sem
þar er boðið upp á. Við hjónakorn-
in vorum ekki svikin af því: Ég fékk
mér blóðrauða T-bone steik og kon-
an fékk sér hægmeyrnað entrecóte
sem var vægast sagt vel heppnað
og sérstætt á bragðið eftir að hafa
hangið í meira en 35 daga. Fram-
reiðslan var klassísk og hefðbund-
in, með fylgdi bökuð kartafla og sal-
at, auk þess sem með fylgdi sterk
chimichurri-sósa sem fór vel með
nautinu. Kjötið á Argentínu er í
fáum orðum sagt frábært og er vel
þess virði að fara þangað eingöngu
vegna þess þó svo að það verði að
teljast allt of dýrt – 6.000 til 7.000
krónur fyrir steikina. Vandamál
Argentínu koma hins vegar fram
þegar ketinu sleppir.
Forréttir staðarins og eftirréttir
standast engan samanburð við
gæði kjötsins. Í forrétt fékk ég tík-
arlega sneið af bleikjuflaki sem
var ekki spennandi framreitt eða
frumlega. Rétturinn var í reynd svo
ómerkilegur að ég var búinn að
gleyma bragðinu af honum áður
en ég lauk við réttinn. Verðið á for-
réttinum var sömuleiðis allt of hátt
miðað við útkomuna, 2.500 krónur
fyrir slíka lufsu.
Sömu sögu má segja um eftirrétt-
inn, Tapas Pavlovu, með rabarbara-
og jarðarberjasósu sem átti lítið
sem ekkert skylt við vel heppnaða
útgáfu af þessari dýrindis köku.
Pavlovur eiga að vera mjúkar undir
tönn og léttar í sér; þær eiga nánast
að bráðna uppi í manni. Argentínu-
pavlovan var hins vegar þung í sér,
seig undir tönn og alltof sæt. Hún
smakkaðist eins og bakaður sykur-
púði með sultu. Auk þess var hún
allt of dýr: Kostaði 2.000 krónur.
Staðurinn sjálfur, húsgögn,
skreytingar, salerni og annað, er
komið til ára sinna og er orðið
nokkuð lúið og „sjabbí“. Málverk –
kópíur af frönskum hellamálverk-
um – og stærðarinnar kertastjakar
inni í veitingasalnum eru „kitschað-
ir“ og verka eins og gömul fjölda-
framleidd stofulist frá níunda ára-
tugnum. Á baðherberginu stóð
hægt deyjandi pottaplanta ofan á
klósettinu við hliðina á myndum
af eitís-hetjum eins og Bill Cosby
og Whoopi Goldberg, sem voru úr
fókus í gylltum römmum. Staður-
inn sjálfur þarf í fáum orðum á yfir-
halningu að halda svo umhverfið sé
ekki í svo hrópandi ósamræmi við
verðin á matseðlinum. Argentína er
allt of dýr staður miðað við heildar-
upplifunina við að borða þar –
reikningurinn okkar var 30 þúsund
krónur fyrir þriggja rétta máltíð,
tvo kokteila og tvö vínglös. Þetta er
svipað verð og á nýrri eðalstöðum
eins og Fiskfélaginu og Fiskmark-
aðnum en heildargæðin á matnum
eru mikli minni.
Það er eins og tíminn hafi staðið
í stað á Argentínu hvað varðar um-
hverfi og frumleika og metnað við
meðferð á öðru hráefni en kjötinu
sem er vissulega klassískt. Á þessu
ættu aðstandendur staðarins að
skerpa. n
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Veitingahús
Argentína
Þegar ketinu
sleppir
H
aldið verður partí í tilefni
Skyfall, nýjustu myndar-
innar um njósnara henn-
ar hátignar Bretadrottn-
ingar, James Bond. Partíið verður
haldið á Austri þann 19. október,
frumsýningardegi myndarinn-
ar, og þar munu prúðbúnir gest-
ir, klæddir í kjól og hvítt, skála í
kampavíni. „Partíin eru endur-
vakin, þau voru vinsæl fyrir hrun
en lögðust af í kreppunni. Þá þótti
ekki viðeigandi að skála í kampa-
víni. Nú gleðjumst við á ný yfir
þessari glæsilegu mynd,“ segir Jón
Gunnar Geirdal hjá Yslandi.
Aðdáendur James Bond bíða
iðulega spenntir eftir öllu sem
snýr að njósnaranum og eru
Bond-lögin þar ekki undanskil-
in. Í myndinni verður það leikar-
inn Daniel Craig sem tekur að sér
hlutverk Bond, í þriðja sinn. Tit-
illagið er í flutningi söngkonunnar
Adele, en hún hefur átt gríðarleg-
um vinsældum að fagna undan-
farið og þykir einn besti tónlistar-
maður Breta um þessar mundir.
Hún segir mikla ábyrgð fylgja því
að syngja Bond-lagið, en hún
hafi þó haft gaman af því. Lag-
ið er hugarsmíð hennar og Pauls
Epworth. Það kom fljótt í ljós að
um smell var að ræða en lagið fór
á topp vinsældarlista í Bretlandi á
aðeins 10 klukkustundum.
Bond-partí endur-
vakin á Íslandi
n Skyfall-partí á Austri 19. október
Glaðst á ný Bondpartíin glæstu eru
endurvakin eftir hrun.
„Argentína er allt of
dýr staður miðað
við heildarupplifunina