Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2012, Síða 22
Vertu viss
Komdu í veg fyrir vandræða-
legar uppákomur og misskilning með
því að ganga úr skugga um það sem
fyrir liggur – stað og stund. Það skað-
ar heldur ekki að vera með varaáætl-
un ef plan A fer einhverra hluta vegna
í súginn.
Komdu niður á jörðina
Eftirvæntingarnar geta verið
gríðarlegar og nánast óraunhæfar
fyrir fyrsta stefnumót. Hentu öllum
væntingum út um gluggann og sættu
þig við og fagnaðu að þetta stefnumót
verði öðruvísi en þú bjóst við.
Gerðu teygjur
Losaðu um stress með góðum
teygjuæfingum.
Straujaðu skyrtuna
Þú lítur betur út í straujaðri
skyrtu auk þess sem endurteknar
hreyfingar, líkt og að strauja, geta
haft jákvæð áhrif á heilann, líkt og
um hugleiðslu væri að ræða.
Taktu þig til
Konur kunna vel að meta
þegar þær sjá að þú hefur lagt eitt-
hvað á þig til að koma vel fyrir.
Farðu í sturtu, settu gel í hárið, rak-
aðu þig og plokkaðu hárin úr nös-
unum. Settu á þig örlítið af ilm og
mundu eftir svitalyktareyðinum.
Fáðu þér snarl
Það er erfitt að vera heillandi
og hress þegar maður er að drepast
úr hungri.
Brostu
Það virkar kjánalegt
að brosa í einrúmi en
samkvæmt rannsóknum
hefur bros og hlátur já-
kvæð áhrif á heilann. Líka
þótt við pínum okkur til
þess.
Lyftu lóðum
Smá lyftingaræfing
stuttu fyrir stefnumótið verður
til þess að vellíðunarhorm-
ón flæða um líkamann
og auka sjálfstraust
þitt. n
S
vona nám er mjög góður
undirbúningur; hvort sem
það er fyrir lífið sjálft, ferða-
lög og ekki síst störf í fram-
andi löndum. Námið er fyrir alla
og margir sem útskrifast eru hér
heima í hjálparstarfi og okkar
fyrsta nemanda erum við að senda
til Senegal um þessar mundir, seg-
ir Guðrún Margrét Pálsdóttir, for-
maður ABC barnahjálpar, en þessa
dagana stendur yfir innritun í ABC
skólann. Hægt er að skrá sig á
námskeið í þróunarhjálp auk þess
sem boðið er upp á nýjung sem
kallast „Tvöfalt gagn“.
„Þetta eru til að mynda nám-
skeið í frönsku, spænsku, efl-
ingu samskipta og bragfræði. Við
höfum fengið hæfa kennara til
að halda námskeið frítt en nám-
skeiðsgjöldin eru notuð til að
borga laun kennara á starfsvæðum
okkar úti í heimi,“ segir Guðrún
Margrét en hægt er að lesa meira
um námskeiðin á vefsíðu skólans,
abcskolinn.is.
Hugsjón fæddist í hnattferð
Önnur nýjung hjá ABC heitir Líf
fyrir líf en ný miðstöð ABC verður
opnuð 12. október. „ Miðstöðin
verður á Laugavegi 103 og ber
heitið Líf fyrir líf – lista- og minn-
ingarmiðstöð. Fólki gefst kostur á
að styrkja barn í minningu látins
ástvinar. Þarna verður líka sýn-
ingarsalur þar sem listamönnum
býðst að gefa málverk eða önnur
listaverk sem við seljum til styrktar
starfinu úti. Fyrsta sýningin verð-
ur opnuð 12. október en það eru
13 listamenn frá Art 67 galleríi sem
hafa gefið verk til að hafa á þessari
fyrstu sýningu.“
Samtökin ABC barnahjálp eru
byggð á kristnum gildum og eru
24 ára um þessar mundir. Hug-
sjónin varð til þegar Guðrún Mar-
grét ferðaðist um heiminn í hnatt-
ferð árið 1985. „Ég tók mér ár til að
ferðast og kynntist raunverulegri
fátækt í fyrsta sinn. Ég fór upp-
haflega út til að sjá heiminn en á
leiðinni breyttist ferðin í tilgang.
Ég hugsaði sem svo að svona fá-
tækt fólk gæti aldrei keypt sér bók
og notaði því mínar fáu krónur til
að gefa fólki í fátækustu hverfun-
um bækur en komst að því að það
er til fullt af fólki sem kann ekki
að lesa. Það fannst mér alveg slá-
andi; ég hafði aldrei pælt í því að
fullorðið fólk gæti verið ólæst. Þess
vegna ákvað ég að klára ferðina,
fara heim og safna fé og fara svo
aftur út og kenna fólki að lesa,“
segir Guðrún en bætir við að hún
hafi ekki verið nema í viku á Ís-
landi þegar hún hitti væntanlegan
eiginmann sinn.
Ákvað að hlýða
„Ég var ákveðin að fara aftur út eft-
ir þrjá, fjóra mánuði og þarna varð
ég að ákveða hvort ég myndi gifta
mig eða fara út aftur. Ég bað Guð
um að gefa mér skýrt svar og tók
sex peninga í lófann, lokaði aug-
unum, hristi lófann og kastaði
þeim upp. Ég hafði ákveðið að ef
fiskurinn kæmi upp þá myndi ég
fara út. Það kom enginn fiskur. Ég
sá þetta sem mjög skýrt svar en
fyrsta hugsun var að segja eng-
um frá og fara samt. Þó ákvað ég
að opna Biblíuna með lokuð aug-
un og setja fingurinn einhvers
staðar. Þar fékk ég ennþá skýrari
neitun. Ég benti með fingrinum á
textann: „Farið ekki.“ Þarna var ég
komin með tvöfalt nei og ég ákvað
að hlýða. Það var svo ekki fyrr en
ári seinna sem bróðir minn og vin-
ur hans fengu hugmynd að því að
koma á laggirnar hjálparstarfi. Þeir
báru hugmyndina undir mig og
nafnið ABC kom strax upp í hug-
ann því við vildum kenna fólki að
lesa og skrifa; gefa fólki tækifæri til
að mennta sig.“
Guðrún Margrét segir umfang
samtakanna orðið meira en hún
hafi búist við í byrjun. „Við viss-
um lítið hvað við vorum að fara út
í þegar við byrjuðum en í dag sé
ég þetta sem byrjun á enn stærra
starfi.“ n
indiana@dv.is
22 Lífsstíll 8. október 2012 Mánudagur
Styrkur í minningu
látinS áStvinar
Formaður ABC barnahjálpar Þann 12. október verður opnuð ný miðstöð sem heitir Líf fyrir líf – lista- og minningarmiðstöð.
Guðrún Margrét Pálsdóttir fór í hnattferð fyrir 24 árum. Guðrún ætlaði upphaflega að ferðast um
heiminn en ferðalagið breyttist í ferð með sérstakan tilgang. Það er margt spennandi framundan hjá
ABC barnahjálp.
„Ég sá þetta
sem mjög
skýrt svar en
fyrsta hugsun var
að segja engum
frá og fara samt
8
7
6
5
4
3
2
1
n 8 ráð handa karlmönnum fyrir fyrsta stefnumótið
Vertu við öllu búinn
Ekkert stress Vertu vel
undirbúinn og stefnumótið
gengur betur.
Táningar eiga
að fá að sofa
Táningar sem vilja fá að sofa
út hafa fengið liðsinni vísind-
anna. Táningar sem fá ekki
nægan svefn eru líklegri en aðr-
ir til að þjást af hjartakvillum en
aðrir seinna á æviskeiði sínu.
Þetta eru niðurstöður nýlegra
kanadískra rannsókna. Í rann-
sókninni var fylgst með fjögur
þúsund ungmennum. Þriðjung-
ur táninganna þjáðist af svefn-
truflunum og þeir hinir sömu
voru líklegri til þess að vera í of-
þyngd, með háan blóðþrýsting
og hærra magn kólesteróls en
gengur og gerist. Svefntruflanir
voru skilgreindar sem vandi við
að sofna og halda svefni, eirðar-
leysi um nætur og martraðir
ásamt fleiri vandamálum.
Skyndibitafæði veldur lægri
greindarvísitölu hjá börnum:
Hollur matur
eykur gáfur
Börn sem borða mikið af
skyndibitafæði eru með lægri
greindarvísitölu en jafnaldrar
þeirra sem fá ferskt og fjölbreytt
fæði. Þetta eru niðurstöður
nýrrar rannsóknar vísinda-
manna við Goldsmiths-háskól-
ann í London.
Næringarinnihald fæðu sem
fólk lætur ofan í sig á æskuár-
unum getur jafnvel haft lang-
tímaáhrif á greindarvísitöluna.
Leiddu niðurstöðurnar þetta í
ljós og virtust aðrir þættir, eins
og almenn þekking, auður og
félagsleg staða ekki hafa áhrif
á þær. Fylgst var með fjögur
þúsund skoskum börn á aldr-
inum þriggja til fimm ára sem
borðuðu hollan og ferskan mat
annars vegar og skyndibitafæði
hins vegar sem helstu máltíð
dagsins. Rannsakað var hvaða
áhrif mataræðið hafði á vits-
munalegan þroska þeirra.
Rannsóknin leiddi enn frem-
ur í ljós að efnameiri foreldr-
ar í góðri félagslegri stöðu gáfu
börnunum sínum oftar hollan
og ferskan mat heldur en for-
eldrar með lægri tekjur í verri
félagslegri stöðu.
Dr. Sophie von Stumm, sem
fór fyrir rannsókninni, segir það
vissulega lengi hafa verið vit-
að að það sem við látum ofan í
okkur hafi áhrif á heilann. Í fyrri
rannsóknum hafi þó aðallega
verið einblínt á áhrif ákveðinna
matvæla á greindarvísitöluna en
ekki samsettra máltíða.