Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Síða 8
8 Fréttir 7. nóvember 2012 Miðvikudagur
Vill heimila hægri beygju á rauðu ljósi
n Árni Johnsen leggur fram sama frumvarpið í sjötta sinn
Þ
ingmaðurinn Árni Johnsen,
sem situr á þingi fyrir Sjálf
stæðisflokkinn, hefur lagt
fram frumvarp á Alþingi sem
heimilar ökumönnum að beygja til
hægri við gatnamót á á móti rauðu
ljósi nema sérstaklega sé tekið fram
að það sé óheimilt. Þetta er í sjötta
skipti sem Árni leggur frumvarpið
fram á þingi en það hefur aldrei feng
ið afgreiðslu.
Frumvarpið er stutt og felur það
í sér viðbót við núgildandi ákvæði
umferðarlaga. Í því kemur fram að
þrátt fyrir að ökumanni leyfist að
beygja til hægri á móti rauðu ljósi
þurfi hann alltaf að stöðva ökutæki
sitt eins og við stöðvunarskyldu og
veita umferð sem kemur úr öðrum
áttum forgang. Ásamt Árna eru þeir
Björgvin G. Sigurðsson, þingmað
ur Samfylkingarinnar, Jón Gunnars
son, Kristján Þór Júlíusson og Pétur
H. Blöndal, þingmenn Sjálfstæðis
flokksins, flutningsmenn tillögunn
ar.
Í greinargerð frumvarpsins segir
að flutningsmenn frumvarpsins telji
að með því að heimila hægri beygju
geti það greitt fyrir umferð á ákveðn
um stöðum en jafnframt vakið
athygli á þeirri ábyrgð að aka gegn
rauðu ljósi og að ökumenn sem nýti
sér þennan rétt til hagræðis verði að
gæta fyllstu varúðar, meta aðstæður
og virða almennar umferðarreglur.
Sigurður Helgason, sérfræðingur
hjá Umferðarstofu, segir að heim
ild eins og þessi geti aukið hættuna í
umferðinni. „Þar sem því verður við
komið hafa verið gerð framhjáhlaup
á gatnamótum, þannig að þetta eru
mjög fáir staðir og þar eru einhverj
ar aðstæður í umhverfinu þannig
að menn hafi talið þetta varasamt,“
segir hann og bendir á að fyrir tutt
ugu árum hafi Norðurlandaþjóðirn
ar tekið sameiginlega afstöðu um að
heimila þetta ekki eftir að hafa kann
að málið ítarlega. n
Ekki af baki dottinn Árni Johnsen þingmaður ætlar ekki að gefast upp við að reyna að fá
heimild fyrir hægri beygju á móti rauðu ljósi. Mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSon
F
jölmiðlanefnd ríkisins, sem
skipuð var í fyrra, hefur ekki
haft frumkvæði að neinni
athugun á brotum á lög
um um viðskiptaboð í fjöl
miðlum. Málið er þó á forgangs
lista nefndarinnar en þau svör fást
frá starfsmönnum hennar að enn
sé unnið í forgangsröðuninni og að
ekki sé enn komið að því að fjalla um
dulin viðskiptaboð. Nefndinni hafa
engu að síður borist ábendingar frá
neytendum fjölmiðla og blaðamönn
um en þær ábendingar hafa ekki leitt
til þess að nefndin taki ákvörðun um
hvort um ólögleg viðskiptaboð hafi
verið að ræða eða ekki.
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmda
stjóri nefndarinnar, segir að
ábendingarnar hafi heldur ekki
borist með formlegum hætti.
Hún segir að fámenni á skrifstofu
nefndarinnar hamli henni að sinna
forgangsmálum af fullum krafti en
nefndin hefur alls þrjá starfsmenn,
samkvæmt heimasíðu hennar, en eitt
starfsgildið er tímabundið.
Eiga að fylgjast með
viðskiptaboðum
Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórn
sýslunefnd sem á að hafa eftirlit með
fjölmiðlum. Meðal þess er að fylgjast
með hvort fjölmiðlar brjóti lög um
viðskiptaboð eða auglýsingar, en fjöl
miðlalög banna fjölmiðlum að selja
umfjöllun. Slíkt þekkist þó víða í fjöl
miðlum og hefur Fréttablaðið með
al annars sætt gagnrýni vegna auka
blaða og umfjöllunar sem þar til
nýverið var ekki tilgreind sem kynn
ingarefni þrátt fyrir að umfjöllunin
væri seld til auglýsenda. Samkvæmt
fjölmiðlalögunum frá árinu 2011 eru
dulin viðskiptaboð skilgreind sem
kynning í máli eða myndum á vör
um, þjónustu, heiti, vörumerki eða
starfsemi aðila sem framleiðir vöru
eða veitir þjónustu í dagskrárliðum
þegar slík kynning er til þess ætluð af
hálfu fjölmiðlaveitu að þjóna auglýs
ingamarkmiðum og gæti villt um fyrir
neytendum hvað eðli hennar varðar.
„Það má segja að vernd barna
og þessi ákvæði í viðskiptaboða
kaflanum, þar á meðal það sem þú
ert að nefna, sé á forgangslista fjöl
miðlanefndarinnar. Menn verða að
forgangsraða eins og gefur að skilja,
þetta er mjög viðamikið, stórt svið
og mörg fyrirtæki og mörg ákvæði
í lögunum,“ segir Elfa og ítrekar að
þetta sé forgangsmál. „Það er verið
að vinna í þessum atriðum sem eru á
forgangslistanum en það hafa engar
ákvarðanir verið teknar ennþá. Ekk
ert formlegt,“ segir hún.
Engar formlegar kvartanir
„Nei, það hafa ekki verið teknar slíkar
ákvarðanir,“ segir Elfa aðspurð hvort
fjölmiðlanefndin hafi haft málið til
skoðunar eða fengið ábendingar um
dulin viðskiptaboð. „Við höfum feng
ið ábendingar en þær hafa ekki leitt
til neinna ákvarðana.“ Hún segir að
ábendingar ekki hafa verið margar.
„Þær hafa í engum tilfellum verið
formlegar og þetta hefur í raun og
veru bara verið fólk og blaðamenn
jafnvel,“ segir hún aðspurð hversu
margar tilkynningar nefndinni
hafi borist. Elfa leggur áherslu á að
nauðsynlegt sé að skoða hvert dæmi
fyrir sig þegar það komi upp. „Eins
og gefur að skilja þarf náttúrulega að
skoða hvert mál fyrir sig og það þarf
náttúrulega að færa sönnur á að það
hafi verið gert,“ segir hún.
Aðspurð hvort nefndin hefði ein
hver mál í gangi varðandi viðskipta
boð til skoðunar segir Elfa svo ekki
vera. „Sko eins og ég segi þá er það
þannig að það er bara verið að vinna í
þessari forgangsröðun og það er ekki
alveg komið að þessu máli,“ segir
hún. „Nei, ekki af eigin frumkvæði en
nefndin hefur fjallað um óformlegar
ábendingar en ekki tekið ákvörðun
um hefja frumkvæðismál.“ n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Fylgjast lítið með
Földum auglýsingum
n Málið samt sem áður á forgangslista fjölmiðlanefndarinnar
Ekkert gert Fjöl-
miðlanefnd ríkisins
hefur ekki rannsakað
hvort í fjölmiðlum
finnist dulin viðskipta-
boð þrátt fyrir að
ábendingar hafi borist.
Mynd Sigtryggur Ari
„Það er ekki alveg
komið að þessu máli
Kannabis–
plöntur í
Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu stöðvaði kannabisræktun í
húsi í Hafnarfirði á mánudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá lögreglunni sem segir 25
kannabisplöntur, auk græðlinga,
hafa fundist við húsleit. Hús
ráðandi, karl um tvítugt, viður
kenndi aðild sína að málinu.
Í tilkynningunni minnir lög
reglan á fíkniefnasímann 800
5005. „Í hann má hringja nafn
laust til að koma á framfæri
upplýsingum um fíkniefnamál.
Fíkniefnasíminn er samvinnu
verkefni lögreglu og tollyfirvalda
og er liður í baráttunni við fíkni
efnavandann.“
Með kókaín
í hárkollu
Héraðsdómur Reykjaness
dæmdi á þriðjudag erlenda konu
til fimmtán mánaða fangelsis
vistar fyrir að flytja kókaín til
landsins. Kókaínið hafði hún
falið í pakkningu undir hárkollu
sem saumuð var við hár hennar.
Var hún handtekin í ágúst
síðastliðnum við komu til
Keflavíkurflugvallar frá Spáni en
hún var með 670 grömm af kóka
íni undir hárkollunni. Er áætlað
að unnt hefði verið að framleiða
1.980 grömm af efni úr því miðað
við 22 prósenta styrkleika.
Konan játaði brot sitt skýlaust
fyrir dóminum eins og því er lýst
í ákæru.
Frá refsingu hennar dregst
gæsluvarðhald sem hún hefur
sætt frá 2. ágúst.
Hún þarf að greiða 586 þús
und krónur í sakarkostnað.
Vildi ekki fara
á slysadeild
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fékk tilkynningu á mánudags
kvöld um slys við Umferðarmið
stöðina. Um var að ræða ferða
mann, erlend konu sem hafði
dottið þegar hún var að fara út
úr rútu. Konan kenndi eymsla í
hægri fæti og var flutt á slysa
deild. Þá var ekið á gangandi veg
faranda, konu, á Herjólfsgötu í
Hafnarfirði á mánudagskvöld.
Konan afþakkaði sjúkrabifreið og
sagðist ekki vera slösuð, þrátt fyr
ir að hafa fengið kúlu á höfuðið.