Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Side 10
Þ
etta var viðskiptamódel sem
gekk ekki upp. Það lá undir
rekstraráætlun sem átti að
vera í lagi en var það bara
ekki,“ segir Sigurður Rúnar
Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
hjúkrunarheimilisins Eirar, aðspurður
um slæma stöðu félagsins sem bæði
heldur utan um rekstur á hjúkr-
unarheimili og byggingu íbúða sem
seldar eru til eldri borgara. Rekstur
Eirar er tvískiptur. Annars vegar er um
að ræða rekstur á hjúkrunarheimili,
sem er í ágætu lagi, og svo hins vegar
fasteignafjárfestingar sem eru inni í
svokölluðum húsrekstrarsjóði. Síðar-
nefnda rekstrareiningin er við það að
sliga Eir en hún sér um byggingu og
sölu á búseturétti í fasteignum Eirar.
Íbúðirnar eru seldar þannig að
kaupendurnir greiða eingreiðslu fyrir
búseturétt í þeim og svo eru mánað-
arlegur greiðslur sem hlaupa yfirleitt á
tugum þúsunda. Íbúarnir sem fjárfesta
í búseturétti í íbúðunum með þessum
hætti hafa rétt á því að búa í þeim til
æviloka. Við brottflutning eða andlát
þeirra sem fjárfestu í húsnæðinu eiga
eingreiðslurnar fyrir búseturéttinn að
renna aftur til íbúanna eða aðstand-
enda þeirra.
Eirhamrar dýrkeyptir
Rekstur Eirar hefur verið slælegur um
árabil. Fyrir hrun var ráðist í byggingu
110 öryggisíbúða í Eirhömrum í Graf-
arvogi sem ekki hefur náðst að selja
nema að hluta til. Sigurður Rúnar seg-
ir að um þrjátíu íbúðir séu óseldar í
dag. Íbúðirnar hafa því staðið auðar
um árabil en Eir þarf að greiða af lán-
unum sem hvíla á þeim, auk trygginga,
rafmagns, hita og annarra gjalda án
þess að tekjumöguleikar íbúðanna séu
nýttir til fulls. „Það eru Eirhamrarnir
sem eru að fara með þetta allt til … æ,
ég ætla að sleppa þessu síðasta orði,“
segir Sigurður Rúnar.
Stöð 2 hefur síðustu daga greint frá
rekstrarerfiðleikum hjúkrunarheim-
ilisins Eirar og tæknilegu gjaldþroti
félagsins. Eir skuldar um 8 milljarða
króna og er með neikvæða eiginfjár-
stöðu. Um tveir milljarðar af skuld-
um Eirar eru við íbúa í íbúðum Eirar
sem eiga að fá endurgreiðslu á búsetu-
réttinum í fasteignunum að leigu-
tíma loknum. Þetta þýðir í reynd að
Eir getur ekki í dag staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart viðskipta-
vinum sínum, eldri borgurunum sem
fjárfest hafa í búseturétti í íbúðum Eir-
ar. Eitt af því sem komið hefur fram
í fréttum Stöðvar 2 er að fráfarandi
framkvæmdastjóri og stjórnarformað-
ur Eirar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
hafi leynt stjórn félagsins upplýsing-
um um slæma fjárhagsstöðu hjúkr-
unarheimilisins í fyrra.
Vilhjálmur Þ. sver slíkt hins vegar af
sér í viðtali við hann sem birt er hér á
opnunni: „Ég hef ekki vísvitandi leynt
upplýsingum, þvert á móti lagði ég
áherslu á það þá mánuði sem ég var
framkvæmdastjóri að upplýsa stjórn-
ina um rekstur félagsins, meðal annars
viðamiklar hagræðingaraðgerðir og
ráðstöfun íbúða. En ég var ekki að
leyna neinu.“
Skuldir jukust um milljarð 2008
Vilhjálmur tók tímabundið við sem
framkvæmdastjóri Eirar í maí í fyrra
eftir að þáverandi framkvæmdastjóri,
séra Sigurður Helgi Guðmundsson,
hafði hætt snögglega „með miklum
látum“, eins og einn heimildarmaður
DV orðar það. Sigurður Helgi hafði
þá verið framkvæmdastjóri Eirar frá
stofnun félagsins árið 1993, í tæp tutt-
ugu ár. Sigurður Rúnar tók svo við
af Vilhjálmi sem framkvæmdastjóri
hjúkrunarheimilanna í byrjun þessa
árs en Vilhjálmur stýrði húsrekstrar-
sjóði félagsins þar til 1. ágúst síðast-
liðinn.
„Lætin“ sem vísað er til við starfslok
Sigurðar Helga er meðal annars það
að framkvæmdastjórinn fyrrverandi
vildi starfa áfram hjá Eir og setti fram
milljóna króna launakröfu vegna van-
goldins orlofs sem hann taldi sig eiga
inni hjá félaginu. Stjórn félagsins neit-
aði hins vegar að greiða honum um-
beðna upphæð.
Þegar Vilhjálmur tók við sem fram-
kvæmdastjóri Eirar í maí í fyrra sagði
hann í útvarpsviðtali að rekstur félags-
ins væri góður. „Það hefur bara geng-
ið mjög vel og reksturinn hefur ver-
ið mjög farsæll í gegnum árin … Við
vorum nýlega að ljúka við byggingu
á rúmlega hundrað öryggis- og þjón-
ustuíbúðum uppi í Grafarvogi og nú
er komið að borginni að byggja þjón-
ustumiðstöð fyrir eldri borgara. Það
hefur nú reyndar dregist úr hófi en
núna sem sé liggur það fyrir að það
verður gert … þetta gengur bara mjög
vel. Við höfum á frábæru fólki að skipa
og ég ætla að láta gott af mér leiða í
þessa örfáu mánuði og vona bara að
mér gangi vel.“
Ljóst er út frá lestri á ársreikningum
Eirar að þessar staðhæfingar Vilhjálms
standast ekki skoðun. Vandamál fé-
lagsins má rekja aftur um nokkur ár,
að minnsta kosti til ársins 2008, þegar
verulega byrjaði að harðna á dalnum í
rekstrinum. Árið 2008 var tap Eirar 555
milljónir króna miðað við rúmlega 100
milljónir árið áður. Þá hækkuðu skuld-
ir félagsins um milljarð króna á milli
ára, fóru úr 2,5 milljörðum árið 2007
og upp í 3,5 milljarða 2008. Vaxtagjöld
fóru þá úr tæpum hundrað milljónum
króna og upp í tæplega 300. Eir hefur
svo tapað háum fjárhæðum á hverju
ári síðan þetta var og fór tapið hæst í
600 milljónir króna í fyrra. Samanlagt
tap síðustu fjögurra ára nemur um
tveimur milljörðum króna.
Fortíðarvandi
Sigurður Rúnar segist mjög fljót-
lega hafa áttað sig á slæmri stöðu Eir-
ar eftir að hann tók við rekstri hús-
rekstrarsjóðsins af Vilhjálmi og hafi
þá gripið inn í: „Ég tek við sem fram-
kvæmdastjóri hjúkrunarheimilanna
um áramótin. Vilhjálmur stýrði hins
vegar húsrekstrarsjóðnum til 1. ágúst.
Þá tók ég við þar sem hjúkrunarheim-
ilin og húsrekstrarsjóðurinn voru á
sömu kennitölu. Síðan, nokkrum dög-
um seinna eftir að ég hafði áttað mig
á því hversu slæm staðan var, setti ég
mig í samband við kröfuhafa og stöðv-
aði afborganir lána og annað slíkt. Eftir
að hafa skoðað stöðuna með þessum
aðilum þá var þetta það eina sem ég
gat lagt til að gert yrði,“ segir Sigurður.
Endurskoðendaskrifstofan KPMG og
lögmannsstofan Lex vinna nú að því
að tryggja rekstur Eirar til framtíðar og
verja hagsmuni þeirra íbúa Eirar sem
eiga fjármuni inni hjá félaginu.
Þeir stjórnendur Eirar sem DV
hefur rætt við vilja því alls ekki skella
skuldinni af slæmri stöðu hjúkr-
unarheimilisins alfarið á Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson þó vitanlega hefði mátt
grípa fyrr inn í reksturinn, líkt og Sig-
urður Rúnar gerði eftir að hann tók
við. Einn stjórnandinn, sem ekki vill
láta nafns síns getið, segir að „þetta sé
fortíðarvandi sem komið hafi í bakið
á rosalega mörgum“. „Mér finnst alls
ekki maklegt að hengja þennan vanda
á Vilhjálm. Ég get ekki kannast við
þetta. Ég myndi frekar vísa á stjórn
séra Sigurðar.“ Sigurður Rúnar segir
um þetta: „Það er ljóst að staðan var
orðin mjög slæm þegar Sigurður Helgi
fór út.“
Segist hafa séð til lands
Sigurður Helgi segist aðspurður ekki
geta sagt til um af hverju staða Eirar er
eins og hún er. „Ég get voðalega lítið
sagt þér um hana. Ég hef ekkert fylgst
með þessu í tvö ár, ég hætti í byrjun árs
2011. Ég get því engu svarað um þetta.
Það hefur enginn látið mig vita um eitt
né neitt, þannig að ég veit ekki neitt.“
Spurður um hvernig staða Eirar
hafi verið þegar hann lét af störfum
sem framkvæmdastjóri segir Sigurð-
ur Helgi að hann hafi „séð til lands“.
„Við sáum vel til lands. Það þýðir að
við sáum fram úr vandanum,“ segir
framkvæmdastjórinn fyrrverandi. Tap
ársins 2010, síðasta rekstrarárið sem
Sigurður Helgi, stýrði félaginu nam
hins vegar um 300 milljónum króna.
Orð Sigurðar Helga er ekki hægt
að skilja með öðrum hætti en að hann
telji að staða Eirar hafi versnað eftir að
hann lét af störfum þar sem hann hafi
„séð til lands“ þegar hann hætti. Land-
sýnin hjá Eir virðist því hafa minnk-
að talsvert síðastliðin tvö ár ef marka
má orð Sigurðar Rúnars. Þegar árs-
reikningar félagsins eru skoðaðir virð-
ist brotthvarf Sigurðar Helga ekki hafa
valdið neinum straumhvörfum til
hans verra: Tap var á rekstrinum fyrir
brotthvarf hans sem og eftir.
Líkt og kom fram í máli Vilhjálms Þ.
hér að ofan taldi hann hins vegar, í maí
í fyrra eftir að hann tók við sem fram-
kvæmdastjóri Eirar, að staða félagsins
væri góð. Vilhjálmur virðist því, líkt og
Sigurður Helgi, hafa „séð til lands“ um
mitt ár í fyrra.
Mismunandi fjármálalæsi
Sigurður Rúnar segist hafa komið með
ábendingar um hvernig mætti leit-
ast við að laga stöðuna eftir að hann
tók við sem framkvæmdastjóri hjúkr-
unarheimilanna og áður en hann tók
við húsrekstrarsjóðnum af Vilhjálmi.
„Það lá hins vegar alltaf til grundvall-
ar einhver áætlun sem bara gekk ekki
upp,“ segir hann og bætir því við að
ábendingar hans hafi meðal annars
gengið út á að aðgreina rekstur hjúkr-
unarheimilanna frá húsrekstrarsjóðn-
um sem hélt utan um byggingu á íbúð-
um Eirar, meðal annars í Eirhömrum.
Aðspurður hverja hann telji ástæð-
una fyrir því að Vilhjálmur hafi ekki
brugðist við og tekið upp viðræður við
kröfuhafa Eirar til að reyna að afstýra
gjaldþroti félagsins, líkt og hann gerði
eftir að hann tók við húsrekstrarsjóðn-
um, segir Sigurður Rúnar. „Þetta er
„Við sáum til lands“
10 Fréttir 7. nóvember 2012 Miðvikudagur
n Fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar fríar sig ábyrgð n Vilhjálmur Þ. sver af sér aðgerðarleysi
V
ið bjuggum áður í Fossvogi
í fimm herbergja íbúð þar
og seldum hana. Við létum
allt okkar til þess að fá
þessa íbúð hérna. Hann Halldór
minn var í stjórn Blindra félagsins
svo að okkur bauðst strax góð
íbúð hérna þegar byrjað var að
selja,“ segir Þorbjörg Rafnar, en
hún flutti ásamt eiginmanni sín-
um, Halldóri Rafnar, fyrrverandi
formanni og framkvæmdastjóra
Blindrafélagsins, í öryggisíbúð á
vegum Eirar árið 2001 og en þau
voru með fyrstu íbúum á staðn-
um. Halldór lést árið 2009 og býr
Þorbjörg nú ein í íbúðinni.
Þorbjörg og eiginmaður henn-
ar borguðu um 11 milljónir árið
2001 fyrir búseturétt í öryggisíbúð
á vegum Eirar. Búseturéttur þýð-
ir að einstaklingar greiða ákveðna
upphæð og eiga þá rétt á að búa
í íbúðinni til lífstíðar. Rétturinn
fellur úr gildi meðal annars við
andlát og upphæðin sem greidd
var fyrir búseturéttinn erfist þá til
afkomenda.
Óvíst er hvað verður um það
fé sem þau hjónin borguðu fyrir
búseturéttinn. Upphæðin sem
borguð var er tengd vísitölu og
ætti því að hafa tvöfaldast frá
þeim tíma sem búseturétturinn
var keyptur eða um 20 milljónir.
Þorbjörg hefur áhyggjur af
stöðu mála og segir mikla óvissu
ríkja á meðal íbúa. „Ég hef þær al-
veg heilmiklar eins og allt fólkið í
húsinu held ég. Þetta er allt orðið
svo fullorðið fólk. Manni líður að
öðru leyti vel hérna en þetta er
voðalega mikill skellur.“
Í gær var haldinn fundur með
íbúum öryggisíbúðanna og að-
standendum þeirra þar sem farið
var yfir stöðuna og í hvaða far-
vegi málið er. „Þetta var nú bara
svona byrjunarfundur, að koma
fólki saman,“ segir Þorbjörg og
bætir við að það sé nú kominn
lögmaður í málið sem vinni fyrir
þeirra hönd. „Mér líst afskaplega
vel á þennan lögmann og vona að
þetta leysist allt á farsælan hátt.
Það er voðalegt að svona komi
fyrir, maður er orðinn svo full-
orðinn.“ n
hanna@dv.is
„Þetta er allt orðið svo fullorðið fólk“
Milljónir útistandandi Þorbjörg Rafnar
er einn af íbúunum á Eir sem á peninga
inni hjá fyrirtækinu, meira en 20 milljónir,
sem hún greiddi í búseturétt fyrir meira en
tíu árum. Hún hefur enga tryggingu fyrir
endurgreiðslu á þessum peningum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ég held að menn hafi kannski
bara mismunandi fjármálalæsi