Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Side 12
n Lyfjaprófanir gerðar á fátækum Indverjum án vitneskju þeirra n Margir hafa dáið
S
tórir lyfjaframleiðendur eru
undir vaxandi þrýstingi um
að rannsaka ásakanir þess
efnis að ný lyf séu prófuð
á mjög fátæku fólki á Ind-
landi án vitundar þess. Breska rík-
isútvarpið, BBC, fjallaði ítarlega um
málið á dögunum og virðist víða
pottur brotinn í þessum efnum.
Óvenjulegar móttökur
„Þetta kom okkur dálítið á óvart,“
segir Indverjinn Nitu Sodey í sam-
tali við BBC. Í maí árið 2009 fór
hann með tengdamóður sína á
Maharaja Yeshwantrao-sjúkra-
húsið í Indore eftir að hún fór að
finna fyrir brjóstverkjum. Sodey
hafði í nokkur skipti þurft að leita
á sjúkrahúsið en heimsóknin að
þessu sinni var öðruvísi en hinar.
„Við erum lágstéttarfólk og vana-
lega þegar við förum á sjúkrahúsið
fáum við miða sem jafngildir fimm
rúpíum,“ segir Sodey en miðann
er hægt að nota til að greiða fyrir
lyf og læknisþjónustu. „Læknirinn
tjáði okkur hins vegar að hann
ætlaði að láta okkur hafa erlent
lyf sem kostaði 125 þúsund rúpí-
ur,“ segir hann en það er upphæð
sem samsvarar 285 þúsund krón-
um. Nitu Sodey og tengdamóð-
ir hans eru stéttleysingjar, Dalítar,
og tilheyra hópi sem áður var kall-
aður „hinir ósnertanlegu“. Vegna
stöðu sinnar í þjóðfélaginu máttu
þau búast við að fara aftast í röð-
ina þegar þau komu á sjúkrahús-
ið og bíða í fleiri, fleiri klukkutíma
eftir læknisþjónustu. En annað var
uppi á teningnum að þessu sinni.
Var í raun tilraunadýr
„Læknirinn tók miðann og sagði
að restin af lyfjakostnaðinum yrði
greidd úr sérstökum sjóði sem er
ætlaður fátækum,“ segir Sodey.
„Þetta var mjög dýr meðferð fyrir
fólk eins og okkur,“ bætir hann við.
Það sem Sodey segist ekki hafa vit-
að er að tengdamóðir hans var í
raun tilraunadýr fyrir lyfið Tona-
pofylline sem var í prófunum hjá
lyfjaframleiðandanum Biogen
Idec. Tengdamóðir hans, Chand-
rakala Bai, fékk hjartsláttartrufl-
anir eftir að hafa fengið lyfið og var
tekin af því eftir nokkra daga. Tæp-
um mánuði síðar fékk hún hjarta-
áfall og lést. Hún var 45 ára.
Ákveðið var að hætta lyfjapróf-
ununum vegna fjölda hjartaáfalla
hjá þátttakendum, að sögn Biogen
Idec. Þrátt fyrir það fékk fyrirtækið
engar fregnir af andláti Bai.
Eðlileg lömun
Fleiri dæmi eins og þetta hafa kom-
ið upp á Indlandi á undanförnum
árum. Narayan Survaiya segir að
hvorki hann né móðir hans hafi
vitað að verið væri að prófa ný lyf
þegar hún kenndi sér meins í fót-
leggjum og leitaði til læknis. Líkt
og í tilfelli Sodey og tengdamóður
hans hafi þau fengið þau skilaboð
að greitt væri fyrir lyfin úr sérstök-
um fátækrasjóði. Narayan segir að
heilsu móður hans hafi hrakað eft-
ir að hún tók inn lyfið og að lokum
hafi hún hætt að geta gengið. „Ég
talaði við lækninn en hann sagði
okkur að halda áfram að nota lyfið.
Það væri bara um tímabundna
lömun að ræða og lyfið myndi skila
árangri.“ Móðir hans lést nokkrum
vikum síðar.
Samkvæmt umfjöllun BBC var
lyfið, sem var kostað af bresku
og þýsku lyfjafyrirtæki, prófað á
53 einstaklingum og þar af létust
8. Engar sannanir liggja fyrir um
beint orsakasamhengi milli lyfsins
og dauðsfallanna, en þess ber að
geta að engin krufning var fram-
kvæmd á þeim sem létust.
Mýmörg dæmi
Á undanförnum sjö árum 73 lyf-
japrófanir farið fram á 3.300 sjúk-
lingum, þar af 1.833 börnum, á
Maharaja Yeshwantrao-sjúkra-
húsinu í Indore. Tugir hafa látist
í kjölfar þessara prófana en engar
bætur hafa verið greiddar út til
fjölskyldna þeirra sem létust. Eitt
þessara barna er Naresh Jatav sem
nú er fjögurra ára. Faðir hans, As-
hish Jatav, segir að sonur sinn hafi
verið mjög heilbrigður þriggja ára
drengur þegar læknar tjáðu hon-
um að sonurinn þyrfti bóluefni við
mænusótt. Ashish segir að hann
hafi ekki haft hugmynd um að lyfið
væri í prófun þegar syni hans var
gefið það. Þau hafi skrifað undir
skjal sem var á ensku og í raun ekki
haft hugmynd um hvað þau væru
að skrifa undir. Drengurinn veikt-
ist mikið eftir að hafa fengið lyfið
og á nú í erfiðleikum með andar-
drátt og nærist auk þess illa. Sam-
kvæmt umfjöllun BBC eru dæmin
mun fleiri.
Kom upp um hneykslið
Svo virðist vera sem einn læknir,
Anil Bahrani, hafi séð um flestar
þessara lyfjaprófana á Maharaja
Yeshwantrao-sjúkrahúsinu. Hann
hefur nú verið ákærður fyrir að
þiggja ólöglegar greiðslur, þiggja
boðsferðir erlendra lyfjafyrirtækja
og fyrir að framkvæma lyfjapróf-
anir á einstaklingum án vitneskju
þeirra.
Anand Rai er læknir á umræddu
sjúkrahúsi og án hans er óvíst hvort
nokkurn tíma hefði komist upp um
þessar ólöglegu lyfjaprófanir. Hann
segir við BBC að lyfjaprófanirn-
ar hafi vakið grunsemdir hans og
í kjölfarið hafi hann farið að rann-
saka þær. „Þeir völdu bara bláfá-
tækt fólk. Þeir völdu ómenntað fólk
sem gat ekki lesið eða skrifað – fólk
sem skilur ekki klínískar lyfjarann-
sóknir,“ segir hann.
Eftirgrennslan hans virðist
hafa farið í skapið á yfirmönnum
sjúkrahússins og var hann rekinn
úr starfi. Hann lét það ekki á sig fá
og hélt rannsóknunum áfram.
„Skyndilega voru komnir miklir
peningar í spilið og það var allt
of mikið í gangi á sama tíma. Já,
hugsanlega misstum við tök-
in á þessu,“ segir K.D. Bhargava,
yfirmaður siðanefndar spítalans.
Hjartaáfall eftir lyfjaprófun
Það er ekki bara í borginni Indore
sem ólöglegar lyfjaprófanir hafa
farið fram. Borgina Bhopal í Mad-
hya Pradesh-héraði þekkja eflaust
margir eftir hörmulegt gasslys sem
varð í borginni árið 1984. Sprenging
varð í verksmiðju Union Carbide
sem dró allt að 25 þúsund manns til
bana. Í kjölfar slyssins var byggður
spítali í borginni sem Union Carb-
ide greiddi fyrir en þar hafa einnig
farið fram vafasamar lyfjaprófan-
ir á fátæku fólki án vitneskju þess.
Ramadhar Shrivastav er í þeim
hópi en hann missti sjón að hluta
til í sprengingunni árið 1984. Hann
fékk hjartaáfall fyrir fimm árum
eftir að hafa tekið þátt í lyfjapróf-
unum lyfjarisans Astra Zeneca.
Blaðamaður BBC náði tali af
N.P. Mishra, lækni sem var yfir-
maður siðanefndar spítalans um
langt skeið, og spurði hann út í
nokkur álitaefni. Meðal annars
hvort íbúar Bhopal hafi ekki þjáðst
nóg og hvort ekki væri óþarfi að
stofna fólki þar í óþarfa hættu.
„Ef farið yrði eftir því sem þú seg-
ir, hefðu lyf aldrei verið þróuð,“ var
svarið sem hann gaf. n
Tilraunadýr
lyfjafyrirTækja
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Tímabundin lömun Narayan
Survaiya syrgir móður sína sem
lést eftir að hafa tekið þátt í lyfja-
prófun. Hún lamaðist eftir að hafa
tekið lyfið inn og lést í kjölfarið.
Fékk bóluefni Naresh Jatav, litli drengurinn í hvítu skyrtunni, glímir við eftirköst bóluefnis
sem hann fékk gegn mænusótt.
„Þeir völdu
bara blá-
fátækt fólk. Þeir
völdu ómenntað
fólk sem gat ekki
lesið eða skrifað.
12 Erlent 7. nóvember 2012 Miðvikudagur
Vilja leyfa
systkinum að
stunda kynlíf
Stjórnmálaflokkur í Danmörku
hefur lagt það til að banni á
kynlífi systkina verði aflétt. Til-
lagan hefur vakið mikil og hörð
viðbrögð í landinu og um mál-
ið hefur verið fjallað í flestum
miðlum. Kynlíf systkina er
ólöglegt en viðurlög við broti á
reglunni varða allt að tveggja
ára fangelsi.
Það er Einingarlistinn sem
viðraði tillöguna með þeim rök-
um að það væri ekki hlutverk
ríkisins að skipta sér af því með
hverjum fullorðnir einstaklingar
stundi kynlíf. Engum tilgangi
þjóni að banna systkinum að
stunda kynlíf á þeirri forsendu
að hætta sé á vansköpuðum af-
kvæmum. Fólki með alvarlega
litningagalla sé þegar heimilt að
eignast börn.
Bent hefur verið á að í Sví-
þjóð, og raunar fleiri Evrópu-
löndum, megi systkini stunda
kynlíf saman en samkvæmt
dönskum fjölmiðlum er ekki
loku fyrir það skotið að flokkar
á borð við Venstre og Sósíalde-
mókrataflokkinn muni styðja til-
lögu Einingarlistans.
„Ég óska þér
dauða á
hverjum degi“
Bandarísk kona, Brie Lybrand,
opinberar á myndbandavefn-
um Youtube að faðir hennar
hafi nauðgað henni. Lybrand
heldur úti Youtube-rás þar sem
hún ráðleggur fólki um tísku og
förðun en tilefni myndbandsins
er að faðir hennar gerðist áskrif-
andi að myndböndunum henn-
ar. Því ákvað hún að segja frá.
Hún segir föður sinn hafa áreitt
sig frá fjögurra ára aldri til þrett-
án ára aldurs og lýsir því hvern-
ig hann beitti hana og móður
hennar hrottalegu ofbeldi um
margra ára skeið.
Í myndbandinu dregur
hún fram þrjár skammbyssur
og greinir föður sínum frá því
hvernig hún hefði undirbúið sig
fyrir hann. „Leyfðu mér að sýna
þér vini mína,“ segir hún áður
en hún dregur fram byssurnar.
„Þrátt fyrir að ég sé sködduð
til frambúðar vegna þín þá ert
þú ekki með yfirhöndina.“ Hún
segir föður sinn skrímsli og
morðingja. „Ég óska þér dauða á
hverjum degi.“