Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Qupperneq 23
Þá fékk ég
alveg nóg
Ég óska
engum þess
Auður Haralds segir iðnaðarfyrirtæki hafa svikið sig. – DVJack Hrafnkell Daníelsson missti son sinn í síðasta mánuði. – DV
G
uðlaugur Þór Þórðarson, þing
maður Sjálfstæðisflokksins,
neitar að svara því hvort hann
hafi komið gögnum um for
stjóra Fjármálaeftirlitsins, Gunnar
Andersen, í Kastljós Ríkisútvarps
ins. DV hefur gert árangurslausar
tilraunir til að fá Guðlaug Þór til að
svara þessari spurningu. Hann hefur
ekki viljað það, líkt og neðangreind
tölvupóstsamskipti bera með sér.
Frá því að Fréttablaðið birti for
síðufrétt í mars síðastliðnum um að
Gunnar segði Guðlaug Þór hafa kom
ið gögnum um störf sín fyrir aflands
félög Landsbankans í Kastljósið hef
ur þingmaðurinn ekki séð tilefni til
að neita þessu né játa. Í samtali við
Fréttablaðið í mars tók hann ekki af
öll tvímæli um að ávirðingar Gunnars
væru réttar. Hið eina sem Guðlaugur
Þór sagði var: ,,Það er bara ekki svo
gott að ég stýri Kastljósi enda myndu
menn sjá öðruvísi efnistök ef svo
væri. Þetta er örvæntingarfull tilraun
manns með slæma samvisku og hann
verður að svara sjálfur fyrir sínar
gjörðir.“
Í svari Guðlaugs Þór fólst því
hvorki neitun né játning. Aðrir fjöl
miðlar en Fréttablaðið hafa ekki séð
tilefni til að taka málið upp eða spyrja
spurninga um það. DV hefur hins
vegar afar öruggar heimildir fyrir því
að Guðlaugur Þór hafi komið gögn
um um um störf Gunnars Andersen
í Kastljósið; svo traustar eru þær að
undirritaður leyfir sér að fullyrða
að það er ekki að ástæðulausu sem
þingmaðurinn neitar að ræða málið.
Tekið skal fram að eftirgrennslan
um málið snýst ekki að neinu leyti
um aðkomu Kastljóssins að því að
taka við gögnum frá Guðlaugi Þór,
eða öðrum sem kunna að hafa látið
fjölmiðilinn eða aðra miðla fá gögn,
heldur um það af hverju þingmaður
inn vildi grafa undan forstjóra Fjár
málaeftirlitsins.
Spurningin sem myndi óhjá
kvæmilega fylgja í kjölfar svars Guð
laugs Þórs er af hverju hann hafi gert
þetta? Erinda hverra var Guðlaugur
Þór að ganga? Af hverju vildi hann
koma höggi á forstjóra Fjármála
eftirlitsins? Hver hefur hagsmuni af
því að láta stofnunina sjálfa líta út
eins syndasel? Hvaðan fékk þing
maðurinn þessi gögn um aflands
félög Landsbankans? Líkt og komið
hefur fram í fjölmiðlum voru tengsl
Guðlaugs Þór við fjársterka aðila í ís
lensku viðskiptalífi umtalsverð fyrir
hrun. Hann fékk hæstu prófkjörs
styrki allra þingmanna, hann var
milliliður í því fyrir hönd Sjálfstæðis
flokksins að afla styrkja frá Lands
bankanum og FL Group upp á tugi
milljóna, Baugur beitti sér gegn Birni
Bjarnasyni, og þar með með Guð
laugi Þór í prófkjörsslag í Reykja
vík, hann seldi Sigurjóni Árnasyni
Landsbankastjóra tryggingaumboð
sem hann hafði keypt af Búnaðar
bankanum, hann var einn af helstu
gerendunum í REImálinu svokall
aða auk þess sem hann mun hafa
verið eins og ,,grár köttur“ í Lands
bankanum í miðbæ Reykjavíkur á
árunum fyrir hrun, samkvæmt heim
ildum DV.
Guðlaugur Þór hefur hins vegar
ekki gefið færi á því að ræða þessi
mál þar sem hann neitar að svara
þeirri spurningu hvort hann hafi
komið gögnum um Gunnar And
ersen í Kastljósið. Þar af leiðandi veit
íslenskur almenningur – og kjósend
ur Sjálfstæðisflokksins – ekki hvar
hann hefur Guðlaug Þór. Er hægt að
treysta slíkum manni? Guðlaugur
Þór býður sig fram í annað sætið á
lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í
komandi prófkjöri hjá flokknum um
helgina. Þingmaðurinn ætti að stíga
fram og svara spurningum um mál
Gunnars Andersen fyrir þann tíma.
Málið snýst nefnilega ekki síður um
Guðlaug Þór, fortíð hans, samvisku
og tengsl við þekkta viðskiptamenn,
en Gunnar Andersen sjálfan, sem
nú býður dóms fyrir brot í opinberu
starfi; dóms þar sem hann verður lík
lega sakfelldur.
Tölvupóstsamskipti blaðamanns
og Guðlaugs Þórs fylgja hér að neðan:
„Sæll Guðlaugur,
Ingi Vilhjálmsson hér á DV.
Ég var að reyna að hringja í þig
áðan. 5127028. Það er mikill áhugi
fyrir því hjá einum helsta stuðnings
manni þínum, Sveini Andra Sveins
syni, að þú verðir hreinsaður af þeim
áburði að hafa komið gögnum um
Gunnar Andersen í Kastljósið. Við
Sveinn Andri ræddum þetta mál á
Facebook í gær. Þú þarft að svara
þessari spurningu.
Hringdu í mig sem fyrst. Þú hlýt
ur líka að vilja hreinsa þig af þessum
áburði, ef hann er rangur það er að
segja.
Bestu, Ingi“
„Það stendur það sem ég sagði við
þig í gær. Leiðréttu rangfærslurnar og
þá getum við talað saman.
Góðar stundir.“
„Skil ég þögn þína sem svo að þú
viljir ekki svara spurningunni? Þetta
er einföld spurning, já eða nei spurn
ing, sem þú ættir að getað svarað
með einu litlu orði ef samviskan er
hrein.
Bestu, Ingi“
„Þessi ósk þín ætti ekki að hafa
nein áhrif á svar þitt við þessari ein
földu spurningu. Ég ítreka spurn
inguna. Ef samviska þín er hrein þá
ættir þú að geta svarað henni. Finnst
þér ekkert óþægilegt að hafa þetta
mál hangandi svona yfir þér? Svaraðu
spurningunni.
Bestu, Ingi“
„Ingi það skiptir engu máli hvaða
spurningu þú kemur með eða hvenær
ef þú/þið leiðréttið ekki rangfærslurn-
ar þá tala ég ekki við ykkur.
Kær kveðja
GÞÞ“
Spurningin
„Mig minnir að það hafi bara
verið Batman-myndin.“
Bjarni Halldór Janusson
17 ára nemi
„Það var Skyfall.“
Alfreð Jóhann Eiríksson
19 ára nemi
„Ég fór síðast á Batman.“
Íris Ögn Geirdal
32 ára stuðningsfulltrúi
„Ég sá Bond-myndina.“
Eva Björk Davíðsdóttir
18 ára nemi
„Skyfall.“
Ásdís Guttormsdóttir
19 ára nemi
Hvaða mynd
sástu síðast
í bíó?
1 „Það er algjörlega óhæft að skepnan skuli vera hýdd
svona“ Starfsmaður Dýrverndar-
sambandsins fordæmir meðferð á
hesti.
2 Hjónabandið riðar til falls Hjónaband Kris og Bruce Jenner, for-
eldra Kardashian-systranna, stendur á
brauðfótum.
3 Hundur pissaði yfir Leu Brúnkumeðferð breyttist í sebrahesta-
mynstur.
4 Hélt að gjafabréfið frá séra Sigurði væri persónuleg
gjöf Tengdasonur Sigurðar Helga
Guðmundssonar, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Eirar, vissi ekki að
gjafabréf sem Sigurður afhenti honum
væri greitt af Eir.
5 Magnús fær milljónir frá ríkinu Ákæra sérstaks saksóknara
sögð óskýr og vanreifuð.
6 Ekki útséð að aukavinnan borgi sig Boðið upp á reiknivél
sem sýnir hvað þú hagnast í raun á
aukavinnu.
7 Hvernig eldar maður lax í upp-þvottavél? Heilræði um sparnað og
hvernig við getum einfaldað lífið.
Mest lesið á DV.is
Samstaða Talið er að ríflega eitt þúsund manns hafi komið saman á mótmælafundi við bandaríska sendiráðið á Laufásvegi á mánudag til þess að mótmæla árásum Ísraela á
Gaza-svæðið í Palestínu. Skorað var á Obama Bandaríkjaforseta að beita sér í málinu. Þegar fundurinn var haldinn höfðu rétt um eitt hundrað manns beðið bana á Gaza, þar af
þrjú börn undir tveggja ára aldri. Mynd Sigtryggur ari
Myndin
Umræða 23Miðvikudagur 21. nóvember 2012
Kjallari
Ingi Freyr
Vilhjálmsson
fréttastjóri DV
Þögn Guðlaugur Þór neitar að svara því hvort hann kom gögnum um forstjóra Fjármálaeftirlits-
ins í fjölmiðla.
Svört samviska
Þá líður manni
helvíti vel
Fréttamaðurinn Gunnar Hrafn fær adrenalínkikk út úr uppistandi. – DV