Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Page 4
4 Fréttir 5. desember 2012 Miðvikudagur
440 milljónir afskrifaðar
n Magnús Bjarnason er fyrrverandi yfirmaður alþjóðasviðs Glitnis
M
agnús Bjarnason, sem ráð
inn var forstjóri sjávarút
vegsfyrirtækisins Icelandic
Group nú á mánudaginn,
fékk 440 milljónir króna afskrifaðar
hjá Íslandsbanka í fyrra en hann er
fyrrverandi starfmaður hjá bank
anum. Félagið IDA ehf. sem alfar
ið er í eigu Magnúsar fékk umrædda
afskrift í fyrra.
Skuldin er til komin vegna kúlu
láns sem Magnús fékk til hluta
bréfakaupa meðan hann starfaði
sem framkvæmdastjóri alþjóðasviðs
Glitnis. Hann fékk kúlulánið í mars
2007, sama dag og Birna Einarsdóttir,
en líkt og frægt er orðið urðu „tækni
leg mistök“ til þess að kúlulánakaup
Birnu gengu ekki eftir.
Samkvæmt ársreikningi IDA ehf.
skuldaði félagið Glitni um 700 millj
ónir króna árið 2010. Var félagið með
neikvætt eigið fé upp á 460 milljónir
króna árið 2010. Í ársreikningi félags
ins fyrir árið 2011 kemur fram að það
hafi fengið eftirgjöf skulda sinna við
bankann upp á 440 milljónir króna.
Auk þess átti félagið fasteign sem
metin var á 230 milljónir króna sem
það seldi árið 2011 með 30 milljóna
króna hagnaði. Félag Magnúsar virð
ist þannig vera orðið skuldlaust við
Íslandsbanka.
Árið 2010 gaf Friðrik Sophusson,
stjórnarformaður Íslandsbanka, það
út að kúlulán til starfsmanna vegna
hlutabréfakaupa í Glitni fyrir hrun
yrðu afskrifuð. Óskaði stjórn Íslands
banka eftir því að umræddir starfs
menn gæfu eignarhaldsfélög sín upp
til gjaldþrotaskipta. Þar með sluppu
starfsmennirnir við að borga millj
arða króna kröfur sem bankinn átti á
hendur þeim. Félag Magnúsar virð
ist hins vegar ekki hafa verið tekið til
gjaldþrotaskipta líkt og eignarhalds
félög margra fyrrverandi samstarfs
manna hans hjá bankanum. n
Aðferðin í lagi
Aganefnd Félags tamningamanna
gerir ekki athugasemdir við að
ferðir ungrar tamningakonu sem
sökuð var um grófa meðferð á
hesti. Þetta kom fram á Eyjunni á
þriðjudag. Í úrskurði aganefndar
kemur fram að umdeilda mynd
bandið sem þótti sýna afar slæma
meðferð á hesti var tekið úr sam
hengi og aðeins til þess gert að
koma höggi á ungu konuna sem
var að temja hestinn. Konunni
var sagt upp störfum í kjölfarið
og á netinu var henni hótað öllu
illu meðal annars nauðgunum og
morði. Í myndbandinu sést konan
temja hestinn og þótti hún beita
afar harkalegum aðferðum. Þótti
hesturinn of innbundinn og Dýra
verndarsamband Íslands tilkynnti
málið til lögreglunnar. Sambandið
fordæmir þessar aðferðir og
segir það engu skipta að hestur
inn hafi þótt erfiður, en hesturinn
var felldur stuttu síðar. Á Eyjunni
kemur fram að aganefndin hafi
þegar fundað og að þegar mynd
bandið sé skoðað óklippt sé ekki
ástæða til að gera athugasemdir
við aðferðir konurnar.
Fundað um
hryðjuverk
Sture Vang, frá norska ríkislög
reglustjóranum, er staddur hér á
landi þar sem hann fundar með
lögreglustjórum, yfirlögregluþjón
um og aðstoðaryfirlögregluþjón
um um hryðjuverkin í Noregi 22.
júlí 2011, hvað hafi gerst og hver
sé áunnin lærdómur norsku lög
reglunnar vegna voðaverkanna,
viðbúnað hennar til þess að fyrir
byggja og takast á við slíka at
burði. Vang er stjórnandi þeirrar
deildar sem annast gerð neyðar
áætlana og skipulag viðbúnaðar
vegna öryggismála. Á námstefnu
félags yfirlögregluþjóna á mánu
dag fjallaði Vang um þau verkefni
sem unnið er að innan norsku lög
reglunnar um eflingu viðbúnaðar
og framþróun í lögreglunni til
þess að gera hana hæfari til þess
að takast á við slík verkefni. Jón F.
Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá
ríkislögreglustjóra, fór í framhaldi
af umfjöllun Sture Vang yfir við
búnað íslensku lögreglunnar í dag
og getu hennar til þess að takast á
við slík verkefni.
Afskriftir Magnús fékk 440 milljónir króna
afskrifaðar hjá Íslandsbanka í fyrra.
Þ
orlákur Ómar Einarsson
fasteignasali hefur fjár
fest í mörgum eignum
í gegnum fyrirtæki sitt,
þrátt fyrir að vera gjald
þrota, það sem af er árinu. Fyrir
tæki hans, StakfellStóreign, hef
ur eignast 180 fermetra raðhús að
Móaflöt 25 í Garðabæ, tæplega 100
fermetra sumarbústað í EfstaDal í
Bláskógabyggð og rúmlega 120 fer
metra íbúð í Fiskakvísl í Reykjavík.
Þá eru tvær bifreiðar, svartur Range
Rover og BMW, einnig skráðar á
fyrirtæki hans.
Skiptum lauk á þrotabúi Þorláks
síðastliðið sumar og fékkst ekki
neitt upp í 479 milljóna króna kröf
ur sem lýst var í bú fasteignasal
ans. Skiptastjóri bús Þorláks, Birgir
Tjörvi Pétursson, hefur ekki viljað
veita DV upplýsingar um búið.
Þrátt fyrir þessa stöðu Þorláks, líkt
og DV greindi frá á mánudaginn,
lánaði Sameinaði lífeyrissjóður
inn fyrirtæki hans rúmlega 25 millj
ónir króna sem hvíla nú á raðhúsi
hans í Garðabæ. DV hefur nú feng
ið ábendingar um að lánið frá Sam
einaða lífeyrissjóðnum hafi verið
hærra en þetta eða um 100 milljónir
en þetta hefur ekki fengist staðfest.
Virðing lánaði líka
Á veðbandayfirliti fasteignarinnar
að Fiskakvísl kemur fram að verð
bréfafyrirtækið Virðing hafi einnig
lánað StakfelliStóreign. Veðskulda
bréf frá Virðingu upp á rúmlega 14
milljónir króna hvílir á þeirri íbúð.
Fyrirtæki Þorláks Ómars keypti
íbúðina í september á þessu ári en
veðskuldabréfið er gefið út í maí síð
astliðinn. Sú íbúð var skráð á Þor
lák Ómar persónulega þar til í fyrra
þegar Arion banki tók hana af hon
um. Í maí á þessu ári keypti Stakfell
Stóreign íbúðina aftur af bankanum.
Sumarbústaðurinn í Bláskóga
byggð er óveðsettur ef undan er
skilið nokkur hundruð þúsund
króna fjárnám frá Glitni frá árinu
2004.
Fyrirtæki Þorláks Ómars virðist
því ekki eiga í erfiðleikum með að fá
lán víðs vegar í fjármálakerfinu þrátt
fyrir að hann hafi farið í gjaldþrot
upp á nærri hálfan milljarð króna.
Framkvæmdastjórinn
neitar að svara
DV hefur síðustu daga gert
ítrekaðar tilraunir til að fá svör frá
Kristjáni Erni Sigurðssyni, fram
kvæmdastjóra Sameinaða lífeyris
sjóðsins, um lánveitingar sjóðsins til
Þorláks Ómars og eins til að spyrja
hvort sjóðurinn hafi í reynd lán
að honum 100 milljónir en ekki 25.
Blaðið hefur hringt ítrekað í Kristján
Örn til að spyrja hann um þetta en
framkvæmdastjórinn hefur ekki vilj
að tala við blaðamann og hefur bor
ið því í tölvupósti að hann muni að
eins svara spurningum ef þær berast
í tölvupósti. „Getur þú sent mér þær
spurningar sem þú er með í tölvu
pósti?,“ segir Kristján Örn.
Blaðamaður vill hins vegar fá að
ræða við Kristján Örn. Svör fram
kvæmdastjórans þurfa því að bíða
betri tíma. n
Gjaldþrota
fasteiGnasali
sópar til
sín eiGnum
Fær lán og
kaupir eignir
Þorlákur Ómar
Einarsson hefur
keypt þrjár fast-
eignir það sem
af er árinu. Nærri
hálfur milljarður af
skuldum hans var
afskrifaður fyrr á
árinu.
n Framkvæmdastjóri Sameinaða neitar að ræða við blaðamann
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
3. desember 2012 19. nóvember 2012