Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Qupperneq 12
drónahernaður
12 Erlent
McAfee
ennþá laus
Fréttir af handtöku vírusvarnar-
frömuðarins John McAfee voru
stórlega ýktar. „Ég er öruggur og
með tveimur blaðamönnum frá
Vice Magazine. … Við erum ekki í
Belís en ekki alveg sloppnir enn-
þá,“ skrifaði hann á vefsíðu sína.
Hann baðst afsökunar á því að
hafa ekki uppfært heimasíðu sína
en hann hefur haldið úti dagbók
allt frá því að hann lagði á flótta
undan lögreglunni. Yfirvöld leita
hans í tengslum við rannsókn
morðs á bandarískum kaupsýslu-
manni sem fannst látinn á heimili
sínu. Fjölmiðlar greindu frá því á
sunnudag að McAfee hefði hand-
tekinn á landamærum Belís og
Mexíkó. Á vefsíðu hans segir að
„tvífari“ sem McAfee var með á
sínum snærum hafi verið hand-
tekinn á landamærunum með
norðurkóreskt vegabréf með nafni
McAfee. Sá hafi verið látinn laus.
Romney aftur í
stjórn Marriott
Um það bil mánuði eftir að hafa
tapað forsetakosningunum í
Bandaríkjunum hefur Mitt Rom-
ney snúið sér aftur að fyrirtækja-
rekstri. Bandaríska sjónvarpsstöð-
in CNN greindi frá því á þriðjudag
að hann væri aftur kominn í stjórn
Marriott International en hann
lét af stjórnarsetu þar í janúar
árið 2011. „Það er heiður að vera
aftur kominn í stjórn fyrirtækis
sem stjórnað er af fólki eins og Bill
Marriott og Arne Sorenson,“ sagði
Romney í tilkynningu vega máls-
ins. Tengsl Romneys, sem bauð sig
fram fyrir hönd Repúblikanaflokks-
ins í kosningunum í haust, voru
meðal þess sem stuðningsmenn
Baracks Obama Bandaríkjaforseta
notuðu gegn honum í kosninga-
baráttunni. Marriott- hótelkeðjan
kom fúlgum fjár undan skatti á tí-
unda áratugnum, á sama tíma og
Romney sat þar í stjórn.
Hrint í veg
fyrir lest
Manni um sextugt var hrint í veg
fyrir neðanjarðarlest í New York í
Bandaríkjunum á mánudag. Vitni
að atburðinum segja að mannin-
um hafi verið ýtt út á lestarteinana
eftir að hafa átt í orðaskiptum við
annan mann á brautarpallinum.
Ökumaður lestarinnar náði ekki
að stoppa í tæka tíð og fór lestin
yfir manninn. „Hann stóð aftur
upp,“ sagði heimildarmaður innan
lögreglunnar við bandaríska blað-
ið New York Daily News. „Hann
veifaði til lestarstjórans og sagði
honum að stoppa. Hann reyndi
að klifra aftur upp á brautarpall-
inn en lestin keyrði á hann.“ Lög-
reglan leitar enn mannsins sem
grunaður er um verknaðinn. Vitni
sem voru á brautarpallinum fengu
áfallahjálp.
E
kkert lát virðist vera á hernaði
Bandaríkjanna með fjarstýrð-
um árásarvélum (e. drone) í
Pakistan, Jemen og Sómalíu
en eftir að Barack Obama var
endurkjörinn forseti Bandaríkjanna
hafa að að minnsta kosti þrjár slík-
ar árásir verið gerðar í löndunum.
Drone er enska hugtakið yfir fjar-
stýrð mannlaus tæki sem notuð eru
til árása, en Bandaríkjaher hefur not-
að slík tæki frá árinu 2004 til að aflífa
menn sem grunaðir eru um tengsl
við hryðjuverkasamtök. Í stjórnartíð
Baracks Obama hefur aukin harka
færst í vélmennastríðin og árásum
fjölgað til muna. Áætlað er að þrjú
til fjögur þúsund manns hafi fallið í
árásunum, en á meðal þeirra er fjöldi
óbreyttra borgara og barna.
Aftökur án dóms og laga
Sama dag og Barack Obama var
endurkjörinn forseti Bandaríkjanna
fyrirskipaði hann árás fjarstýrðrar
drápsflugvélar í Jemen. Hún beindist
gegn manni, Adnan al-Qadhi, sem
grunaður var um að hafa starfað
með al-Kaída-samtökunum. Bifreið
hans var sprengd í loft upp og féll
hann ásamt tveimur lífvörðum sín-
um. Fjölskylda al-Quadhi er harmi
slegin og krefst skýringa á því hvers
vegna hann var tekinn af lífi án dóms
og laga en ekki dreginn fyrir dóm.
Obama hefur legið undir ámæli
fyrir að brjóta með þessu þær regl-
ur sem Bandaríkjastjórn setti sér
um „drone“-hernað, en samkvæmt
útlistun John Brennan, ráðgjafa
Obama í málefnum er varða hryðju-
verk, skal honum aðeins beitt þegar
veruleg hætta stafar af hátt settum
mönnum innan al-Kaída-samtak-
anna eða samtaka þeim tengdum.
Um síðustu helgi gerðu Banda-
ríkin tvær sambærilegar árásir í
Pakistan þar sem níu menn féllu.
Voru þeir grunaðir um að tilheyra
skæruliðasamtökum sem eru óvin-
veitt Bandaríkjunum.
Engin stefnubreyting
Margir af stuðningsmönnum
Baracks Obama bundu vonir um að
hann myndi endurskoða ýmislegt í
stefnu sinni á öðru kjörtímabilinu,
meðal annars áherslur sínar í utan-
ríkismálum. Þær árásir sem hafa átt
sér stað upp á síðkastið, svo ekki sé
minnst á yfirlýsingar Obama um
að Ísraelsríki eigi rétt á að verja sig,
benda þó ekki til þess að úr því ræt-
ist. Skoðanakannanir sýna að 83
prósent Bandaríkjamanna styðja
þennan hernað Obama og því væri
það varla vænlegt til vinsælda að
draga úr honum.
Einn þeirra sem gagnrýnt hafa
árásirnar harðlega er fjölmiðlamað-
urinn Tom Hartmann. Hefur hann
bent á að árásirnar ali á Banda-
ríkjahatri og til langs tíma séu þær
líklegar til að kynda undir hryðju-
verkum. „Faraldurinn sem braust
út eftir 11. september gerði Bush
og Cheney kleift að endurskapa
Bandaríkin,“ skrifar Hartmann á vef-
síðu sína og bætir við: „Þetta gerð-
ist hér heima með auknu eftirliti og
skerðingu borgaralegra réttinda og
í útlöndum birtist þetta í stríðinu
sem verður einstaka hryðjuverka-
manni að bana en skapar líklega
þúsundir nýrra hryðjuverkamanna.
Í þjóðfélögum sem við eigum ekki
einu sinni í formlegu stríði við lif-
ir fólk í stöðugum ótta við að fjar-
stýrðar árásarvélar steypi sér niður
af himninum. Fólk horfir upp á þær
valda dauða og eyðileggingu í sam-
félögum sínum.“
Yfirvöld í Pakistan ósátt
Fræðimaðurinn Noam Chomsky
hélt uppi svipuðum málflutningi
þegar hann flutti fyrirlestur hér á
landi í fyrra. Fullyrti hann að helsta
breytingin sem orðið hefði á stríðinu
gegn hryðjuverkum eftir að Obama
komst til valda væri sú að nú væru
þeir sem grunaðir eru um hryðjuverk
ekki fangelsaðir og pyntaðir, heldur
drepnir.
Utanríkisráðherra Pakistan, Hina
Rabbani Khar, gagnrýndi vélmenna-
hernað Bandaríkjanna í Pakistan
harðlega á ráðstefnu sem haldin var
í New York fyrir mánuði. Hún fullyrti
að aðgerðirnar stönguðust á við al-
þjóðalög og væru aðför að fullveldi
þjóðarinnar. Þegar hún var spurð
hvers vegna þorri íbúa í Pakistan
hefði óbeit á Bandaríkjunum svaraði
hún með einu orði: „Drones.“ n
n Fjarstýrðar árásarflugvélar notaðar í hryðjuverkastríðinu
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
„ Í þjóðfélögum sem
við eigum ekki einu
sinni í formlegu stríði við
lifir fólk í stöðugum ótta
við að fjarstýrðar árásar-
vélar steypi sér niður af
himninum. Fólk horfir
upp á þær valda dauða
og eyðileggingu í samfé-
lögum sínum.
Mannfall vegna „drone“-
hernaðar Bandaríkjanna
Pakistan Jemen Sómalía
Fjöldi árása 351 48 6
Óbreyttir borgarar fallnir 679 112 34
Börn fallin 176 29 2
Aðrir 2.128 566 8
Alls fallnir 2.983 707 114
Hér má sjá gróflega áætlaðan fjölda þeirra sem talið er að hafi fallið í „drone“-árásum
Bandaríkjahers á árunum 2004–2012. Taka verður töflunni með fyrirvara enda ber ekki
öllum gögnum saman um mannfall. Tölurnar eru fengnar úr gagnsafni The Bureau of
Investigative Journalism sem síðast var uppfært 4. desember 2012.
5. desember 2012 Miðvikudagur
Kátur forseti Í stjórnartíð Obama hefur „drone“-hernaður færst í aukana.
Barnamorð 176 börn hafa fallið fyrir mannlausum drápsflugvélum í Pakistan.
Drápsflugvél Ómönnuð
MQ-1 Predator frá banda-
ríska flughernum flýgur hér
í lofthelgi Tyrklands.
BandarÍKJanna