Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Page 16
4 Bækur 5. desember 2012 Miðvikudagur
Aftur til fortíðar
F
ootball Manager-leikirnir hafa
í gegnum tíðina verið þekktir
fyrir að vera algjörir tímaþjófar
og það breytist lítið með til-
komu Football Manager 2013 (FM
2013) sem er sá nýjasti í röðinni.
Football Manager gefur draumóra-
kenndum meðalmanninum tæki-
færi til stýra sínu uppáhaldsliði;
kaupa leikmenn, selja leikmenn og
spila gegn bestu liðunum. Óhætt er
að fullyrða að leikurinn sé sá lang-
besti sinnar tegundar á markaðnum.
Football Manager-leikirnir hafa
í gegnum árin byggt á klassískri
formúlu þó þeir hafi tekið misgóðum
breytingum á undanförnum árum.
Með tímanum hafa þeir orðið tölu-
vert stærri og hafa möguleikarnir í
spiluninni aukist sem hefur hægt
töluvert á leiknum. Hér áður fyrr var
hægt að rúlla í gegnum heilt tímabil
á einum góðum degi en í undanförn-
um leikjum hefur það orðið sífellt
erfiðara og nánast ómögulegt.
Ég tók því hins vegar fagnandi
þegar ég komst að því að í Football
Manager 2013 væri möguleiki sem
kallast Classic Mode. Sá hluti leiks-
ins er tilvalinn fyrir þá sem vilja
sleppa við allt aukaruglið sem fylgir
því að stýra knattspyrnuliði. Leik-
urinn gengur miklu hraðar fyrir sig
sem er einkar jákvætt og minnir
þessi möguleiki um margt á gömlu
Championship Manager-leikina.
Þó að nýjungarnar í FM 2013 séu
ekki ýkja margar stendur leikurinn al-
gjörlega fyrir sínu. Það kemur manni
alltaf á óvart hversu stór leikmanna-
gagnagrunnurinn er og hversu mörg-
um liðum er hægt að stýra. FM 2013
er tilvalin jólagjöf handa ungum
knattspyrnuunnendum og án efa upp-
byggilegri en margir af þeim leikj-
um sem eru á markaðnum. Hafið þó
í huga að leikurinn er ávanabindandi.
Boxarinn sem særði
fjölskyldu sína
B
ókin Boxarinn er ljúfur
lestur um harðneskju. Þetta
er augljóst uppgjör höfund-
ar við sársaukafulla þætti
æsku sinnar. Þarna er um
að ræða eins konar lífssögu ungs
drengs og samspil hans við föður
sinn. Undirliggjandi í sögunni er
mikill sársauki vegna þess að pabb-
inn var djarftækur til kvenna og hélt
framhjá móður piltsins. Hér verð-
ur ekki dæmt um það hve stór hluti
bókarinnar er skáldaður eða færður
í stílinn. Það skiptir heldur ekki máli.
Bókin er einfaldlega uppgjör. Hún er
skrifuð eins og ógnarlangt sendibréf
til pabbans sem stöðugt var í basli
með sjálfan sig og tilveruna. Samt
er sársaukinn einhvern veginn svo
ljúfur og sagan rennur áfram eins og
glitrandi lækur í sumarsól.
Satt að segja man ég ekki eftir að
hafa lesið af meiri athygli og áhuga
bók af þessum toga. Textinn er ljóð-
rænn og þaulhugsaður. Útgangs-
punkturinn er sá að pabbinn var
boxari og hann var kvennaljómi. „Þú
boxaðir en barðir engan utan hrings-
ins,“ segir drengurinn. En þótt box-
arinn berði ekki fólk utan hringsins
særði hann sína nánustu. Þótt hann
ætti eiginkonu sem ól honum þrjú
börn eignaðist hann börn með fleir-
um og það inni í miðju hjónabandi.
Því er lýst þegar ung kona bankar
upp á hjá fjölskyldunni sem þá bjó
í Höfðaborg. „Þú hafðir komið þér
í vanda, þriggja barna faðir,“ skrifar
Úlfar til föðurins. Hann komst að því
seinna að konan var tvítug og barns-
hafandi.
Pabbinn var um tíma leigubíl-
stjóri sem átti sér þann draum að
öðlast sjálfstæði. Tækifærið kom og
fjölskyldan flutti út í Málmey á Skaga-
firði ásamt annarri fjölskyldu. Þar átti
að lifa af fiskveiðum og vitavörslu,
„tveir staurblankir menn“. Frásögn-
in ber með sér að dvölin í Málmey
hafi að mörgu leyti verið ánægjuleg
og feðgarnir áttu samleið í leik og
starfi. En búsetan þar endaði í þeirri
skelfingu að íbúðarhús fjölskyldunn-
ar brann til grunna. Draumurinn
var úti. Safnað var fyrir fjölskylduna
sem stóð eftir snauð. „Þú varst stríðs-
maður, síðasti bóndinn í eyjunni. Þar
fór fram þín lokatilraun til þess að
stunda búskap.“
Bókin er skrifuð af næmni og
virðingu þannig að manni líður vel
eftir lesturinn. Svona á uppgjör að
vera. Þrátt fyrir allan sársaukann er
fegurðin í fyrirrúmi. Á endanum fær
maður á tilfinninguna að drengurinn
hafi náð að skrifa sig frá reiðinni og
sorginni vegna þess gallagrips sem
faðir hans var.
Bókin er öll hin ásjálegasta og
umbrot hennar fallegt. Ekki skemmir
fyrir að kápa bókarinnar er frábær-
lega hönnuð, sannkölluð klassík.
Þarna fara saman gæði í útliti og
innihaldi. Þetta er bók sem er vel
þess virði að lesa á jólanótt eða
hvenær sem er. Ég ætla að lesa hana
aftur, seinna. Boxarinn fær fjórar og
hálfa stjörnu.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Bækur Boxarinn
Höfundur: Úlfar Þormóðsson
Útgefandi: Veröld
213 blaðsíður
M
y
n
d
s
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i
Öll börn eiga rétt á
Gleðilegum Jólum
www.hvitjol.is
Alkóhólismi
í bókmenntum
Fimmtudagskvöldið 13. desember,
í húsnæði SÁÁ, Von, verður fjallað
um alkóhólisma í bókmenntum.
Höfundar koma og lesa úr og ræða
um nýútkomnar bækur sínar þar
sem alkóhólismi kemur við sögu.
Rithöfundarnir eru Auður
Jónsdóttir, sem kynnir Ósjálfrátt,
Einar Már Guðmundsson, sem
kynnir Íslenska kónga, Kristín
Eiríksdóttir, sem kynnir Hvítfeld,
og Úlfar Þormóðsson, sem kynnir
Boxarann. Það er formaður SÁÁ,
Gunnar Smári Egilsson, sem held-
ur viðburðinn.
Bók fyrir
yngstu börnin
Eva Þengilsdóttir hefur skrifað bók
fyrir yngstu börnin sem virkjar
þau til að hreyfa sig meira og eyk-
ur hreyfiþroska.
Eva hefur skrifað barnaefni
fyrir sjónvarp, kirkjustarf og leik-
skóla, og þróaði efnið um Hvata
hvolp í samstarfi við Æfingastöð
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Bergrún Íris Sævarsdóttir er ný-
útskrifaður teiknari frá Myndlista-
skólanum í Reykjavík. Gerðu eins
og ég er fyrsta barnabók þeirra
beggja.
Football Manager 2013
gamerankings 85% Metacritic 87
Framleiðandi: Sega, Sports Interactive.
stýrikerfi: Windows, Mac OSX
Tölvuleikur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Klassískt en gott Classic Mode í FM 2013
er skemmtileg nýjung og minnir um margt á
gömlu góðu Championship Manager-leikina.