Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Side 21
K
ólumbíski herinn gerði
sprengjuárás á herbúðir
meðlima skæruliðahreyf-
ingarinnar Farc með þeim
afleiðingum að tuttugu meðlimir
hreyfingarinnar féllu. Árásin, sem
var gerð á laugardag, er ein sú um-
fangsmesta síðan friðarviðræð-
ur við skæruliðasamtökin hófust í
október síðastliðnum.
Búðirnar sem ráðist var á eru í
Narino-héraði sem er skammt frá
landamærunum að Ekvador. Juan
Manuel Santos, forseti Kólumbíu,
sagði fyrir skömmu að skæru-
liðarnir hefðu minna en eitt ár til
að leggja vopn sín niður og er talið
að árásin hafi verið áminning frá
yfirvöldum um að full alvara lægi á
bak við þau orð. Santos hefur hvatt
Farc-samtökin til að leggja niður
vopn og segir að yfirvöld muni gefa
samtökunum tækifæri til að verða
lögleg. Þannig geti þau til dæmis
tekið þátt í stjórnmálum en fyrst
þurfi þau að leggja niður vopn sín.
„Þetta þarf að gerast á nokkrum
mánuðum, ekki árum,“ sagði hann
í samtali við AFP-fréttaveituna.
Farc-samtökin eru stærsta
skæruliðahreyfing Kólumbíu
en þau voru stofnuð af Manuel
Marul anda árið 1964. Á undan-
förnum árum hafa þau fjármagnað
starfsemi sína með mannránum,
kúgunum og þátttöku í eiturlyfja-
viðskiptum en í kjölfar stofnun-
ar þeirra voru þau fjármögnuð að
nokkru leyti frá Sovétríkjunum
þegar kalda stríðið stóð sem hæst.
Í febrúar síðastliðnum lýstu
samtökin því yfir að þau myndu
hætta mannránum. Þrátt fyrir fög-
ur fyrirheit hafa þau þó ekki hætt.
Friðarviðræður við samtökin
standa enn yfir og er óvíst hvort
sættir náist. Talið er að meðlimir
Farc hafi verið 16 þúsund árið 2001
en nú er talið að fjöldi þeirra sé
kominn niður í 8 þúsund. n
Erlent 13Miðvikudagur 5. desember 2012
Ráðist á meðlimi Farc
n Meðlimum hefur fækkað úr 16 þúsund í 8 þúsund á tíu árum
Öngþveiti
í Rússlandi
Mikið umferðaröngþveiti mynd-
aðist víða í Rússlandi um helgina
vegna mikillar ofankomu. Rúss-
neskir fjölmiðlar greindu frá því
að þúsundir bifreiða hefðu setið
fastar á fjölförnum vegum í Tver-
héraði norður af Moskvu og um-
ferðarhnútar hafi teygt sig svo
langt sem augað eygði.
Umferðaröngþveitið var það
mikið að ákveðið var að koma
matarbirgðum til þeirra sem
sátu fastir í bifreiðum sínum á
M-10-hraðbrautinni. „Ökumenn
reyna að hjálpa hver öðrum. Málið
er að yfirvöld gera það ekki. Hér
eru engir eldsneytisbílar, ekkert
vatn, ekkert. Við sitjum bara fastir
hérna,“ sagði flutningabílstjórinn
Sergei í samtali við Rossiya
24-sjónvarpsstöðina, ósáttur
vegna stöðu mála.
Fór í verkfall en
endaði í fangelsi
Dómstóll í Singapúr hefur dæmt
kínverskan rútubílstjóra í sex
vikna fangelsi fyrir að skipuleggja
verkfall. Þá ákvað dómstólinn
að vísa 29 öðrum kínverskum
rútubílstjórum úr landi. Rútubíl-
stjórarnir voru óánægðir með kjör
sín í Singapúr og gripu því til þess
ráðs að fara í verkfall til að þrýsta
á um kjarabætur. Verkföll eru afar
fátíð í Singapúr og til marks um
það voru 26 ár síðan það gerðist
síðast.
Yfirvöld í Peking hafa lýst yfir
áhyggjum af handtökunum en
ætla þó ekki að bregðast við.
HIV-smituð-
um fjölgar
HIV-smituðum í Rússlandi fjölgaði
um 12 prósent á fyrstu sex mánuð-
um ársins miðað við sama tímabil
árið 2011. Samkvæmt opinberum
tölum rússneskra heilbrigðisyfir-
valda eru nú 703 þúsund manns
smitaðir af HIV í landinu. Flestir
þeirra sem smituðust á fyrstu sex
mánuðum ársins, eða 60 prósent,
fengu veiruna eftir að hafa notað
óhreinar sprautunálar. Þrátt fyrir
þessa fjölgun HIV-sýktra í
Rússlandi hefur hlutfall þeirra
staðið nokkurn veginn í stað á
heimsvísu undanfarin misseri.
Vadim Pokrovsky, yfirmaður
samtaka HIV-smitaðra í Rússlandi,
hefur lýst yfir áhyggjum af
þróuninni og hefur hann biðlað til
stjórnvalda um að grípa til
ráðstafana til að stemma stigu við
nýjum smitum – að óbreyttu muni
fjöldi HIV-smitaðra í Rússlandi
tvöfaldast á næstu fimm árum.
Tónlistarmenn
græða milljarða
n Fimm tekjuhæstu með 50 milljarða n Þeir allra ríkustu eru karlar
L
aunahæstu tónlistarmenn
í heimi hala inn milljarða á
hverju einasta ári. Launahæsti
tónlistarmaðurinn á síðasta
ári var Dr. Dre sem þénaði 110
milljónir dala, jafnvirði 13,9 millj-
arða króna, á tólf mánaða tímabili
frá maí 2011 til maí 2012. Þetta er
niðurstaða bandaríska tímaritsins
Forbes sem reglulega tekur saman
lista yfir tekjuhæstu einstaklingana í
ákveðnum hópum. Á listanum er að
finna hljómsveitir á borð við U2 og
tónlistar menn á borð við Elton John.
Það virðist gefa mjög vel af sér að
vera tónlistarmaður, í það minnsta
hjá þeim allra vinsælustu. Í efstu
fimm sætum lista Forbes eru tón-
listarmenn sem samtals þénuðu vel
rúmlega fimmtíu milljarða íslenskra
króna. Það er þó ekki svo að tekjurn-
ar séu allar tilkomnar vegna tónlistar
eða sölu geisladiska. Margir þekktu-
stu tónlistarmenn heims hafa tekjur
af sölu ýmiss konar varnings eða
tengslum við ýmis fyrirtæki sem vilja
fá að tengja sig við jákvæða ímynd
tónlistarmannanna.
Athygli vekur á listanum að allir
þeir sem hafna í efstu sætum list-
ans eru karlmenn. Fyrsta kona á lista
Forbes yfir þá tónlistarmenn sem
högnuðust mest er Britney Spears.
Hún hafnaði í sjöunda sæti list-
ans, á eftir Bon Jovi, og er hagnaður
hennar metinn á 7,3 millj-
arða króna.
2 Roger Waters 11.103 milljónir
Einn af stofnmeðlim-
um hljómsveitarinn-
ar Pink Floyd rakar inn peningum í
tengslum við tónleikaferðalagið The
Wall Live Tour. Á tónleikunum spil-
ar hann alla The Wall-plötu sveitar-
innar út í gegn. Samkvæmt Billbo-
ard Boxscore hagnaðist hann um
131 milljón dala á tónleikunum á
tímabilinu nóvember 2011 til maí
2012.
3 Elton John 10.094 milljónir
Breski tónlistarmaður-
inn Elton John er enn
mjög virkur í vinnunni. Á
tímabilinu sem Forbes
kannaði hélt hann meðal annars
yfir hundrað tónleika en á tímabil-
inu tróð hann margsinnis upp í
spilavítaborginni Las Vegas. Kvik-
myndin hans Gnomeo og
Júlía skilaði 200 millj-
ónum dala í tekjur.
4 U2 9.841 millj-ónir Írska rokk-
sveitin U2 halaði inn 736 milljón-
um dala á tónleikaferðalagi sínu
360 Tour sem lauk í ágúst árið 2011.
Hljómsveitin er meðal vinsælustu
hljómsveita í heimi og seljast plötur
hennar nokkuð vel.
5 Take That 8.706 millj-
ónir Breska popp-
grúppan Take That
tók saman að nýju
fyrir nokkru og fór í
tónleikaferðalag. Á átta tónleikum
á Wembley-leikvanginum í Bret-
landi höluðu þeir inn sem nemur
61 milljón dala. Með þeim árangri
slógu þeir met hvað varðar tekju-
hæstu tónleikasyrpuna á einum og
sama leikvanginum. Þetta voru þó
aðeins nokkrir af þeim tónleikum
sem þeir héldu um alla Evrópu og
voru tekjur þeirra talsvert hærri en
áðurnefnd upphæð. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
20 féllu Árásin á
laugardag var ein
sú umfangsmesta í
langan tíma.
1 Dr. Dre 13.879 milljónir Tónlistar-maðurinn Dr. Dre halar inn háar fjár-
hæðir vegna þeirra platna sem hann hefur
sent frá sér í gegnum tíðina. Það er ekki bara
nýjasta platan hans, Detox, sem skilar öllum
þessum hagnaði heldur seljast eldri plötur
kappans enn nokkuð vel. Dr. Dre byggir
tekjur sínar ekki bara á plötusölu heldur
hefur hann líka umtalsverðar tekjur af sölu
heyrnartóla sem kennd eru við hann. Tækni-
fyrirtækið HTC keypti 51 prósents hlut í
heyrnartólafyrirtæki hans fyrir um 300 millj-
ónir dala á síðasta ári. Síðan þá hefur hann
reyndar keypt stóran hluta til baka af HTC.