Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Page 26
18 Sport 5. desember 2012 Miðvikudagur
Svekkjandi tap á EM
n Sautján mínútna kafli þar sem íslenska liðið skoraði ekki varð stúlkunum að falli
Í
slenska kvennalandsliðið í hand-
bolta mátti þola heldur stórt tap
fyrir sterku liði Svartfjallalands í
fyrsta leik sínum í úrslitakeppni
EM í Serbíu á mánudagskvöld, 26–
16. Sautján mínútna kafli hvor sínum
megin við hálfleik varð íslenska liðinu
að falli, en þá skoraði íslenska liðið
ekki eitt einasta mark.
Flest benti til þess að leikurinn yrði
jafn og spennandi og var staðan jöfn,
3–3, þegar níu mínútur voru liðnar. Þá
tókst Svartfellingum að slíta sig frá ís-
lenska liðinu og var staðan um miðj-
an fyrri hálfleik 8–5. Þá tók við ágæt-
ur kafli hjá íslensku stelpunum sem
tókst að minnka muninn í 8–7 þegar
22 mínútur voru liðnar af leiknum.
Eftir það var eins og allt færi í lás og
var staðan í hálfleik 10–7 Svartfjalla-
landi í vil.
Síðari hálfleikurinn hófst eins og sá
fyrri endaði. Íslenska liðinu gekk illa
að brjóta á bak aftur vörn Svartfjalla-
lands og þegar 38 mínútur voru liðn-
ar var staðan orðin 15–7. Í næstu sókn
tókst íslensku stelpunum að skora
sitt áttunda mark og þá tók við ágætis
kafli þar sem íslenska liðinu tókst að
minnka muninn í 16–11. Munurinn
reyndist hins vegar óyfirstíganlegur
og sigldu Svartfellingar fram úr og
unnu sannfærandi sigur.
Íslensku stelpurnar mættu Svart-
fellingum einmitt á HM í Brasilíu á
síðasta ári og þá fór íslenska liðið
með sigur af hólmi í æsispennandi
leik, 22–21, þar sem nánast var jafnt
á öllum tölum. Í ljósi þess eru úr-
slitin svekkjandi en líta verður til þess
að lið Svartfjallalands er talið eitt
það sterkasta á mótinu. Rakel Dögg
Bragadóttir var markahæst í íslenska
liðinu með 5 mörk.
Ísland mætir sterku liði Rúmena
klukkan 19.15 í kvöld, miðvikudag,
en lokaleikur Íslands í riðlinum verð-
ur gegn ekki síður sterkum and-
stæðingi, Rússlandi, á föstudag
klukkan 17.05. n
Lukaku áfram
hjá WBA
Belgíski framherjinn Romelu
Lukaku mun að öllum líkindum
klára tímabilið í ensku úrvals-
deildinni með WBA. Lukaku, sem
er 19 ára, var lánaður til félagsins
frá Chelsea í sumar. Hann hefur
komið við sögu í þrettán leikjum á
tímabilinu og skorað fimm mörk.
Þar sem Fernando Torres hefur
ekki fundið skotskóna á tímabil-
inu var jafnvel búist við því að
Chelsea kallaði leikmanninn til
baka í janúar.
Rafael Benitez, stjóri Chelsea,
segir að það sé þó ólíklegt. „Við
vitum að Romelu hefur staðið sig
vel hjá WBA. En líklega er best
fyrir hann að vera þar áfram þar
sem hann fær að spila og þróa
sinn leik.“
Ekkert tilboð
í Lewandowski
Forráðamenn þýska félags-
ins Borussia Dortmund segja
að ekkert sé hæft í sögusögnum
þess efnis að póski framherjinn
Robert Lewandowski gangi í raðir
Manchester United í sumar. Þýsk-
ir fjölmiðlar hafa greint frá því að
United hafi komist að samkomu-
lagi við Dortmund um kaup á leik-
manninum sem myndi ganga í
raðir United næsta sumar. Jurgen
Klopp, stjóri Dortmund, segir hins
vegar að leikmaðurinn sé ánægð-
ur innan vébanda Dortmund og
ekkert samkomulag sé í höfn um
að hann yfirgefi félagið.
Klopp útilokar þó ekki að hlust-
að verði á tilboð í Lewandowski
næsta sumar.
Demba Ba eða
Huntelaar
Arsenal virðist ætla að bæta við
sig framherja á næstunni ef marka
má bresku slúðurpressuna. Klaas-
Jan Huntelaar, framherji Schal-
ke, hefur verið orðaður við liðið
en samningur hans við Schalke
rennur út næsta sumar. Talið er að
Arsenal geti fengið leikmanninn
á sex milljónir punda. Þá hefur
Demba Ba, framherji Newcastle,
einnig verið nefndur til sögunn-
ar, en hann hefur verið funheitur í
annars frekar köldu liði Newcastle.
Í samningi Ba við Newcastle er
klásúla þess efnis að hann geti far-
ið komi tilboð upp á 7,5 milljónir
punda, eða 1,5 milljarða króna. Er
Wenger sagður ætla að nýta sér
það jafnvel strax í janúar.
Stórt tap Íslenska liðið tapaði 26–16 fyrir Svartfjallalandi í sínum fyrsta leik á EM. Ágúst
Jóhannsson er þjálfari liðsins.
Benitez gæti unnið
titil með Chelsea
n HM félagsliða hefst á fimmtudag n Chelsea mætir beint í undanúrslitin
H
eimsmeistarakeppni fé-
lagsliða í knattspyrnu hefst
með formlegum hætti í Jap-
an á fimmtudag þegar leik-
ið verður um laust sæti í
átta liða úrslitum keppninnar. Þessi
um margt einkennilega keppni var
haldin fyrst árið 2000 en í kjölfarið var
gert fimm ára hlé og var keppnin ræst
að nýju árið 2005 og hefur hún ver-
ið haldin æ síðan. Í keppninni mæt-
ast bestu lið hverrar heimsálfu fyrir
sig og fá lið sem bera sigur úr býtum
í álfukeppnum þátttökurétt á mótinu.
Þannig verður enska liðið Chelsea,
sem vann Meistaradeild Evrópu í vor,
fulltrúi Evrópu í mótinu.
Fimm sigrar Evrópu í röð
Evrópsku liðin hafa borið höfuð og
herðar yfir önnur lið í keppninni á
undanförnum árum og hafa unnið
mótið fimm ár í röð, eða frá árinu
2007. Chelsea, með Rafael Benitez
í brúnni, verður því að teljast sig-
urstranglegt þrátt fyrir ófarir liðsins á
undanförnum vikum.
Mótið hefst sem fyrr segir næst-
komandi fimmtudag þegar gestgjaf-
arnir í Sanfrecce Hiroshima mæta
Eyjaálfumeisturunum í Auckland City
frá Nýja-Sjálandi. Um er að ræða úr-
slitaleik um það hvort liðið fær þátt-
tökurétt í átta liða úrslitum keppninnar.
Sérstakar reglur
Reglurnar í keppninni eru um margt
sérstakar. Þannig mun sigurvegarinn
úr viðureign Sanfrecce Hiroshima og
Auckland City mæta Afríkumeistur-
um Al-Ahly í átta liða úrslitum. Í hinni
viðureigninni mætast Asíumeistarar
Ulsan Hyundai Mið-Ameríkumeistur-
um Monterrey frá Mexíkó. Tvö lið
hefja hins vegar leik í undanúrslitum
keppninnar en það eru Suður-Am-
eríkumeistarar Corinthians og
Evrópumeistarar Chelsea. Chelsea
mætir sigurvegaranum úr leik Ulsan
Hyundai og Monterrey á meðan Cor-
inthians mætir að öllum líkindum
Al-Ahly í undanúrslitum. Miðað við
styrkleika Chelsea og Corinthians eru
allar líkur á þau mætist í úrslitum. n
Leikstaðir
JAPAN
Yokohama
Toyota
Afríka
Al-Ahly
(Egyptaland)
Asía
Ulsan
Hyundai
(S. Kórea)
Evrópa
Chelsea
(England)
Norður & Mið
Ameríka
Monterrey
(Mexíko)
Eyjaálfa
Auckland
City
(N. Sjáland)
S. Ameríka
Corinthians
(Brasilía)
Gestgjafar
Sanfrecce
Hiroshima
(Japan)
Liðin í ár
Umspil fyrir átta
liða úrslitin
Átta liða úrslit Fimmta sæti
6. des
Sanfrecce
Hiroshima
v
Auckland City
1
9. des
Ulsan Hyundai
v
Monterrey
29. des
Sigurlið 1
v
Al-Ahly
3 12. des
Taplið 2
v
Taplið 3
4
Undanúrslit
13. des
Sigurlið 2
v
Chelsea
612. des
Sigurlið 3
v
Corinthians
5
Úrslit
16. des
Sigurlið 5
v
Sigurlið 6
8
Þriðja sæti
16. des
Taplið 5
v
Taplið 6
8
HM félagsliða 2012
Bestu félagslið hverrar heimsálfu mætast á HM félagsliða sem
haldið verður í Japan. Mótið hefst formlega á fimmudag.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Úrslit síðustu ára
Sigurvegari Annað sæti
2000
Corinthians (BRA) Vasco da Gama (BRA)
2005
Sao Paulo (BRA) Liverpool (ENG)
2006
Internacional (BRA) Barcelona (SPÁ)
2007
Milan (ÍTA) Boca Juniors (ARG)
2008
Man. United (ENG) LDU Quito (EKV)
2009
Barcelona (SPÁ) Estudientes (ARG)
2010
Internazionale (ÍTA) Mazembe (KON)
2011
Barcelona (SPÁ) Santos (BRA)
Pressa á stjóra Chelsea
Rafael Benitez getur þaggað
niður í gagnrýnisröddum með
góðum árangri á HM félagsliða.
Mynd REutERS