Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2012, Side 27
Fólk 19Miðvikudagur 5. desember 2012
Femínistar berjast
ekki gegn bröndurum
n Saga segir sína fyndnustu vini stolta femínista
U
ppistandarinn Saga Garðars-
dóttir spurði á Facebook-síðu
sinni um síðustu helgi hvað
sé fyndið við brandara sem
meiðir fleiri en hann hlægir? Hún
sagðist gjarnan heyra því fleygt að
femínista skorti húmor og þeir væru
andstæðingar tjáningarfrelsis. Sjálf
myndi hún þó ekki eftir neinu dæmi
þar sem femínistar hefðu gagnrýnt
gott grín eða meinað einhverjum að
tjá sig.
„Hins vegar veit ég fjöldamörg til-
vik þess að femínistum hefur verið
hótað ofbeldi og jafnvel lífláti fyrir að
opinbera skoðanir sínar og viðhorf.
Ofan á þetta bætist svo að allir
mínir fyndnustu vinir eru yfirlýst-
ir og stoltir femínistar. Femínistar
hafa aldrei barist gegn bröndurum.
Við berjumst gegn mannhatri í öll-
um eyðileggjandi birtingarmyndum.
Stundum eru það brandarar,“ skrif-
aði Saga. n
L
ýður fæddist í Kópavogi og
dvaldi þar fyrstu mánuði æv-
innar en er annars alinn upp
í Hafnarfirði og í Fossvoginum
þar sem hann brallaði ýmis-
legt en helgaði sig samt helst fótbolta
og hestum.
„Það var auðvitað mikið um að
vera í fótboltanum og mikið fjör.
Móðir mín var dönsk þannig að
nokkur sumur dvaldi ég á Fjóni hjá
frændfólki mínu. Þar reis stjarna
mín einna hæst í fótboltanum en ég
var jafn vígur á báða fætur og hafði
æft mikið hér heima, frændur mínir
þarna úti áttu því ekki roð í mig. Þar
kynntist ég líka hestamennskunni
sem varð mér áhugamál til áratuga.“
Vildi verða dýralæknir
Strax sem barn hafði Lýður mikinn
áhuga á dýrum og hefur sá áhugi fylgt
honum alla tíð, daglega má sjá hann
viðra hundinn sinn og fleiri úr fjöl-
skyldunni. „Þegar ég var lítill ætlaði
ég að verða dýralæknir en náði ekki
nógu góðum árangri í stærðfræði og
varð því að láta duga að lækna fólk,“
segir þessi þekkti sveitalæknir sem
nú læknar í Kópavogi.
Hann hefur upplifað marga stóra
daga og skemmtilega á lífsleiðinni
enda aldrei ládeyða á hans akri. „Það
eru margir dagar búnir að vera mér
minnisstæðir, af nýlegu má nefna
þegar við í stjórnlagaráði, kláruðum
nýju stjórnaskrána 25–0. Svo nú síð-
ast þegar nýja skáldsagan mín kom
út fyrir fáum dögum. Ég vil endi-
lega minna fólk á að vera duglegt að
kaupa hana í jólagjafir. Það á alltaf
að gefa fólki eitthvað fallegt,“ segir
hann.
Bókin er fyrsta skáldsaga hans og
ber frjóum huga gott vitni. Hún fjall-
ar um ungt fólk sem lífið leikur við
þar til þau ætla að leika á lífið. Sagan
sýnir alla strengi mannlegra tilfinn-
inga, ást og ágirnd. Hatur og hefnd.
Allt er þetta í líflegri frásögn af fólki
sem valdi stuttu leiðina að lífsins
lystisemdum og skora því örlögin á
hólm í hverju spori.
Gefur út disk
Lýður er sannkallaður fjöllista-
maður, hann hefur áður gefið út
smásögur, gert margar sjónvarps-
og bíómyndir auk þess að vera
búinn að gera 13 plötur rétt eins og
sjálfir Bítlarnir. En nýr diskur en nú
fullkláraður og mun koma út á þess-
um kosningavetri enda efnið á hon-
um rammpólitískt.
Þessi kraftmikli lífskúnstner hefur
nýlokið við að gera handrit að sjón-
varpsþáttaröð um ævi og verk Sig-
valda Kaldalóns, læknis og lista-
manns.
„Það er alltaf nóg að sýsla, nú er
ég líka byrjaður á nýrri skáldsögu
sem verður mjög ólík þeirri sem kom
út núna á dögunum, nýja skáldsagan
verður um ósanna atburði. Svo er
ég að fást við að stofna nýjan stjórn-
málaflokk. Dögun mun bjóða fram í
öllum kjördæmum í vor, líka í Norð-
vestri,“ segir þessi verðandi þing-
maður og helsti talsmaður hinnar
nýju hreyfingar.
Í tilefni dagsins verður slegið
upp veglegri gleði á laugardaginn
þar sem farið verður yfir liðna tíð í
myndum og máli, tónum og tralli.
„Það verður skoðað hvernig til hef-
ur tekist þessa hálfu öld, nú er verið
að klippa saman myndbönd og æfa
hljómsveit kvöldsins þannig að það
verður gaman. Það mun bætast eftir-
minnilegur dagur í sarpinn.“ n
n Lýður Árnason fimmtugur n Veisla á laugardag
Klúðraði
stærðfræðinni
og varð læknir
Rokkari Lýður læknir með gítarinn að hefja tón-
leika í Rokkrútu Dögunar með Þóri Baldurssyni
þar sem spilað var fyrir ameríska sjónvarpsmenn
sem áttu ekki orð yfir þennan merkilega lækni
sem ekkert virtist óviðkomandi.
Mynd AnnA KARitAs BjARnAdóttiR S
vala Björgvinsdóttir, söng-
kona hljómsveitarinnar
Steed Lord, ætlar að halda
fatamarkað í miðbæ Reykja-
víkur sunnudaginn 16. desember
næstkomandi. Hún lofar að vera
með fullt af flottum fötum til sölu á
verðbilinu 1.000 til 5.000 krónur.
Svala, sem búsett hefur verið
í Los Angeles um árabil, er þekkt
fyrir sinn glæsilega og persónulega
stíl. Margar ungar konur hefur ef-
laust klæjað í fingurna að komast
í fataskápinn hjá henni, og nú er
tækifærið loksins komið. Hún hefur
ekki enn auglýst staðsetningu á
markaðnum en það mun varla fara
á milli mála þegar þar að kemur. n
Svala selur
fötin sín
n Verður með fatamarkað 16. desember
Í
slenski tónlistarmaðurinn
Daníel Óliver gerir það áfram
gott í Svíþjóð. Lag Daníels, DJ
Blow My Speakers, situr í efsta
sæti á sænska iTunes-topplistanum
og skýtur þar listamönnum á borð
við M.I.A. og Daft Punk ref fyrir
rass. Daníel nýtur greinilega lífsins
en hann býr í Svíþjóð og er á föstu
með nafna sínum, Nyback. n
Á sænska
toppnum
n Daníel í stuði
n Heldur styrktarsýningu fyrir litla hetju
Þ
essi stelpa er bara svo yndis-
leg. Ég bara verð að hjálpa
henni. Ekki gerir ríkið það,“
segir töframaðurinn Einar
Mikael sem ætlar að halda töfra-
sýningu til styrktar Sunnu Valdísi
Sigurðardóttur, 6 ára, sem glímir við
alvarlegan ólæknandi sjúkdóm sem
kallast AHC. Sjúkdómurinn lýsir
sér í hættulegum köstum sem valda
lömun sem getur varað frá klukku-
stund upp í þrjár vikur.
Einar Mikael hitti Sunnu Valdísi á
jólabasar Svalanna sem haldinn var
henni til styrktar. „Ég átti erfitt með
að vita að það væri svo lítið hægt
að gera fyrir hana. Sunna Valdís er
lítill sólargeisli sem verður að fá að
vera með okkur eins lengi og hægt
er. Þetta er svo lífsglöð og yndisleg
stelpa.“
Einar Mikael hefur þegar haldið
þrjár styrktarsýningar á þessu ári þar
sem allur ágóði rennur til góðgerða-
samtaka. „Ég gef auðvitað mína
vinnu og eftir sýninguna verður
töfradót, diskar og bók um einstök
börn til sölu. Allur ágóði mun renna
beint til styrktar Sunnu Valdísi,“
segir Einar Mikael sem viðurkennir
að foreldrar hennar hafi orðið hissa
þegar hann tilkynnti þeim að hann
langaði að hjálpa Sunnu Valdísi.
Um fjölskylduvæna töfrasýningu
verður að ræða þar sem meðal
annars verða heimsfrægar sjón-
hverfingar og lifandi dýr. „Ég mun
saga konu í sundur en það er fræg-
asta sjónhverfing allra tíma. Svo
mun einn heppinn áhorfandi úr sal
verða valinn og látinn fljúga í lausu
lofti. Það er ekkert hættulegt en al-
veg mögnuð upplifun. Svo eftir sýn-
inguna gefst þeim sem vilja kostur á
að fá mynd af sér með mér og alvöru
Hogward-töfradúfum.“
Sýningin verður haldin 12. des-
ember í Háskólabíói og verður frítt
inn en Einar Mikael ítrekar að áhuga-
samir tryggi sér miða á midi.is. n
indiana@dv.is
„Ég bara verð
að hjálpa henni“
Með sunnu Valdísi Einar segir að
Sunna Valdís sé lítill sólargeisli sem sé
lífsglöð og yndisleg stelpa.