Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Blaðsíða 3
Hvaða máli skiptir
milestone-lánið?
Fréttir 3Mánudagur 10. desember 2012
n Skýrslutökurnar í Vafningsmálinu hafa að miklu leyti snúist um aukaatriði
í febrúar 2008. Í ákærunni kemur
fram að með lánveitingunni hafi
Milestone farið út fyrir hámarkslán-
veitingar sem Glitnir mátti veita til
einstakra aðila, úr tæplega 14,4 pró-
sentum af eigin fé bankans og upp
í 18,8 prósent. Lárus og Guðmund-
ur, sem voru í áhættunefnd Glitnis,
höfðu hins vegar einungis heim-
ild til að lána Milestone fjármuni
sem námu 17 prósentum af eigin
fé bankans. Með lánveitingunni
til Milestone fóru lán félagsins hjá
Glitni úr 32,4 milljörðum króna og
upp í 42,4 milljarða króna.
Á annarri blaðsíðu ákærunnar
segir að Glitnir hafi ekki endur-
heimt meira en 50 milljónir evra,
meira en fimm milljarða króna af
lánveitingunni til Milestone sem
notuð var til að greiða upp lán-
ið hjá Morgan Stanley. Þá seg-
ir að þessari fjártjónsáhættu hafi
ekki verið afstýrt með því að færa
lánið yfir á Vafning þann 12. febrú-
ar. „Þeirri stórfelldu fjártjónshættu
sem ákærðu sköpuðu Glitni banka
með lánveitingunni 8. febrúar var
því ekki afstýrt með þeirri ráðstöf-
un að færa skuldbindinguna yfir á
Vafning ehf. 12. febrúar 2008.“ Í lok
ákærunnar segir svo enn frekar að
sú ákvörðun að lána Milestone þess-
ar rúmlega 100 milljónir evra þann
8. hafi leitt til „gríðarlegs fjártjóns“
fyrir bankann.
Aðalatriði málsins
Ef marka má ákæruna, og þegar
horft er á þær staðreyndir um gjald-
þol Milestone sem ákærðu hlaut að
vera kunnugt sem háttsettir stjórn-
endur helsta viðskiptabanka þeirra,
þá skiptir í raun litlu máli, eða jafn-
vel engu, hvort tíu milljarða lánið
hafi runnið beint til Milestone eða
til Vafnings og þaðan til Morgan
Stanley. Niðurstaðan hefði orðið
sú sama þó að Vafningur hefði
tekið við láninu á föstudeginum
og miðlað því til Morgan Stanley
til að bjarga Glitnisbréfum Þáttar
International. Það er að segja, fjár-
tjón Glitnis, sem er helsta röksemd-
in fyrir ákærunni, hefði orðið það
sama, meira en fimm milljarðar.
Með því að skilgreina ákæru-
efnið svona þröngt, það er að
segja að einblína á Milestone-lán-
veitinguna, snérust skýrslutökurnar
í Vafningsmálinu að miklu leyti um
aukaatriði málsins en ekki aðal-
atriðið, það er segja fjártjónið sem
Glitnir varð fyrir vegna uppgreiðslu
lánsins hjá Morgan Stanley, sama
hvort lánið fór í gegnum Mile stone
eða Vafning, og þaðan til banda-
ríska bankans.
Ákæruvaldið getur hins
vegar einblínt betur á þetta að-
alatriði fyrir dómi nú á mánu-
daginn þegar málflutningurinn
fer fram í málinu. Hugsanlegt er,
og kannski eðlilega, að verjend-
ur þeirra Lárusar og Guðmund-
ar muni vilja einblína á Milesto-
ne-lánveitinguna og reyna að
stýra umræðunum fyrir dómi í þá
átt. Vitanlega er þetta ekki óeðli-
legt þegar ákært er fyrir þessa til-
teknu lánveitingu. Kannski mun
þessi þrönga skilgreining á ákæru-
atriðinu koma sér illa fyrir ákæru-
valdið í málinu en vel fyrir hina
ákærðu. Hingað til hefur það verið
raunin að mínu mati. n
n Saklaus bak við lás og slá n Dæmdur fyrir morð
H
æstiréttur hefur leiðrétt
dóm yfir Sigurþóri Arnars-
syni sem sat í fangelsi í eitt
og hálft ár fyrir morð sem
framið var á skemmtistaðn-
um Vegas árið 1997. Sigurþór var
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur
á sínum tíma en sakfelldur í Hæsta-
rétti árið 1998 án þess þó að vitni
væru leidd fram eða skýrsla tekin af
honum. Var hann dæmdur í tveggja
ára og þriggja mánaða fangelsi og sat
inni í átján mánuði.
Sigurþór fór með málið fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu sem
komst að þeirri niðurstöðu árið
2003 að reglur um réttláta málsmeð-
ferð hefðu verið brotnar. Á fimmtu-
daginn síðastliðinn var dæmt í mál-
inu í Hæstarétti sem kvað upp þann
úrskurð að hinn upprunalegi dómur
héraðsdóms skyldi standa óraskaður.
Sigurþór hefur því verið lýstur sak-
laus af morðinu og lögmaður hans
telur líklegt að Sigurþór fari fram á
bætur vegna fangelsisvistarinnar.
Á rétt á bótum
„Þetta er afskaplega einfalt mál. Ég
tel að hann eigi rétt á bótum,“ sagði
Sigurður Líndal lagaprófessor þegar
blaðamaður ræddi við hann um mál
Sigurþórs. „Þetta verður ekki aftur
tekið. Hversu háar bæturnar verða,
það er svo annað mál.“
Sigurður segir að ekki séu mörg
fordæmi fyrir því á Íslandi að menn
sitji saklausir í fangelsi fyrir jafn
alvarlega glæpi og þennan. „ Dæmin
eru ekki mörg en þau eru til. Og
menn hafa auðvitað fengið bætur
fyrir varðhaldsvist. Annars er megin-
reglan sú að menn eigi rétt á bótum
ef þeir sitja saklausir í gæsluvarð-
haldi eða fangelsi.“ Sigurður segir að
með úrskurði Mannréttindadóm-
stólsins og sýknu Hæstaréttar hafi
fengist staðfesting á því að gerð hafi
verið mistök á sínum tíma.
Ósamræmi í frásögnum
Sem fyrr segir var málið fyrst tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur árið
1997. Þá voru þeir Sigurþór Arnars-
son og Sverrir Þór Gunnarsson
ákærðir fyrir stórfellda líkamsárás
á Vegas sem leiddi til dauða. Sverri
Þór var gefið að sök að hafa veitt
manni þungt höfuðhögg sem olli
því að hann féll meðvitundarlaus á
gólfið og átti Sigurþór að hafa spark-
að í höfuð hans. Í úrskurði héraðs-
dóms kom fram að ekki hefði ver-
ið sýnt fram á með óyggjandi hætti
að Sigur þór bæri ábyrgð á dauða
mannsins. Sverrir Þór bar vitni gegn
Sigurþóri og sagði hann hafa spark-
að fast í manninn þar sem hann var
á fjórum fótum að reyna að rísa á
fætur. Eitt vitni í málinu sagði Sverri
hafa sparkað í höfuð mannsins en
lýsti því þó með allt öðrum hætti en
Sverrir. Taldi héraðsdómur að frá-
sagnir mannanna stönguðust á og
væru þar að auki ekki í samræmi við
neitt annað sem fram hefði komið í
málinu. Ítarleg rannsókn sem gerð
var á skóm Sigurþórs studdi heldur
ekki þær ásakanir sem bornar voru á
hann. Niðurstaða héraðsdóms var sú
að sýkna bæri Sigurþór en hins vegar
taldist sannað að Sverrir hefði valdið
dauða mannsins.
Rangur dómur leiðréttur
Þegar málið var tekið fyrir í Hæsta-
rétti árið 1998 að ósk Sverris Þórs
var alfarið stuðst við vitnisburð og
skýrslur frá árinu áður. Hæstiréttur
komst að annarri niðurstöðu en hér-
aðsdómur og taldi sannað að bæði
Sverrir Þór og Sigurþór hefðu veitt
manninum áverka sem drógu hann
til dauða. Í málinu dæmdu Pétur
Kr. Hafstein, Gunnlaugur Claessen,
Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfa-
son og Hrafn Bragason og vísuðu
þeir meðal annars til þess í úrskurði
sínum að Sigurþór hefði átt upptökin
að átökunum. Þá kom fram að Sigur-
þór hefði áður gerst sekur um lög-
brot, meðal annars þjófnað, fjársvik
og líkamsárásir. Skilaði Gunnlaugur
sératkvæði en hann taldi að sýkna
bæri Sigurþór.
Málsmeðferð Hæstaréttar var
gagnrýnd harðlega í úrskurði Mann-
réttindadómstólsins árið 2003, en
þar segir að vegna þess hversu flók-
ið sakamálið er hafi Hæstarétti bor-
ið skylda til að hlýða milliliðalaust á
skýrslur málsaðila og vitna.
Í dómsúrskurði Hæstaréttar frá
því í síðustu viku er fullyrt að ákæru-
valdið hafi ekki sýnt fram á sekt
Sigur þórs með fullnægjandi hætti
á sínum tíma og sýknudómurinn í
héraði því staðfestur. Þannig er búið
að „leiðrétta rangan dóm sem féll á
sínum tíma“ eins og Bjarni Hauks-
son, lögmaður Sigurþórs orðaði það
í fréttatíma Stöðvar 2 á föstudaginn.
„Hann er búinn að vera með þetta
á bakinu allan þennan tíma,“ sagði
hann en Sigurþór sjálfur hefur ekki
viljað tjá sig við fjölmiðla.
Ekki einsdæmi
Meira en 20 mál hafa verið höfðuð
gegn íslenska ríkinu fyrir Mann-
réttindadómstól Evrópu og hafa
mörg þeirra snúist um óréttláta
málsmeðferð í Hæstarétti. Dæmi um
þetta er mál Súsönnu Rósar West-
lund en hún hafði sigur í máli sínu
gegn íslenska ríkinu árið 2007 eftir
að henni hafði verið neitað um að
flytja mál sitt munnlega eða skrif-
lega í Hæstarétti. Sama ár dæmdi
Mannréttindadómstóllinn í máli
Söru Lindar Eggertsdóttur og komst
einnig að þeirri niðurstöðu að Hæsti-
réttur hefði brotið á rétti hennar til
óvilhallrar og réttlátrar málsmeð-
ferðar. Mál Sigurþórs fyrir Mann-
réttindadómstólnum og lyktir þess
eru því ekkert einsdæmi. n
Dómsmorðið
á Sigurþóri
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Leitar réttar síns
Þessi mynd birtist í
DV árið 2004 þegar
greint var frá því
að Sigurþór hefði
áfrýjað máli sínu
til Mannréttinda
dómstóls Evrópu.
Í héraðsdómi
Myndin var tekin
eftir að Sigurþór
hafði verið sýknaður.
„Hann er búinn að
vera með þetta á
bakinu allan þennan tíma.
Sigurður Líndal Lagaprófessor telur
fullvíst að Sigurþór eigi rétt á bótum.
Stóra Vegasmálið Fluttar voru ótal fréttir af morðinu á Vegas við lok síðustu aldar.