Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Blaðsíða 18
18 Lífsstíll 10. desember 2012 Mánudagur
Stærðin skiptir víst máli
n Konur sem fá leggangafullnægingu vilja stór typpi
S
amkvæmt nýlegri rannsókn
skiptir stærð limsins máli, en
aðeins fyrir konur og aðeins
fyrir sérstakar tegundir af full-
nægingu.
Fram kemur að konur sem fá leg-
gangafullnægingu eru líklegri en aðr-
ar til þess að fá það þegar þær hafa
samfarir með karlmanni með stóran
lim og í grein í The Journal of Sexual
Medicine kemur fram að konur sem
velja samfarir (e. penetration) fram
yfir aðrar tegundir ástarleikja hafa
sömu sögu að segja.
Stuart Brody, sem kom að rann-
sókninni, sagði við vefritið LiveSci-
ence að margir karlmenn hafi áhyggj-
ur af typpastærð sinni. Nú sé komið í
ljós að þessar áhyggjur séu réttmæt-
ar, á sama hátt og áhyggjur karla yfir
greind sinni, húmor, vinnu, hæð,
ríkidæmi og öðrum viðurkennd-
um breytum, þegar menn stunda
stefnumótamarkaðinn.
En aðrir vísindamenn eru ekki
jafn sannfærðir. „Það er svo mik-
ill breytileiki á því sem konur hafa
dálæti á,“ segir Barry Komisaruk kyn-
lífsfræðingur við Rutgers-háskólann
sem segir vel geta verið að konur sem
fái helst fullnægingu með samför-
um vilji frekar stór typpi en lítil. Hins
vegar fái ekki allar konur fullnægingu
þannig.
Brody og félagar spurðu 323 konur
persónulegra spurninga um síðustu
kynmök, stellingar og hvort lima-
stærð skipti máli. Þeir ákváðu meðal-
limalengdina sem 14,9 sentimetra en
allt yfir 15,5 sem stóra limi.
Í ljós kom að 160 af konunum
höfðu fengið leggangafullnægingu
og höfðu átt nægilega marga ból-
félaga til að geta gert samanburð á
stærð. Af þeim sögðust 33,8 prósent
kjósa stærri typpi, 60 prósent sögðu
stærðina ekki skipta máli og 6,3 pró-
sent vildu frekar njóta ásta með karl-
mönnum með lítil typpi.
indiana@dv.is
Offita greind
við fæðingu
Vísindamenn við Imperial
College í London segja að ef
marka megi niðurstöður nýrra
rannsókna þeirra þá sé hægt að
greina við fæðingu hvort börn hafi
tilhneigingu til að glíma við offitu
síðar á lífsleiðinni. Þeir benda á
að offita barna sé vaxandi vanda-
mál á Vesturlöndum og geti leitt
til ýmissa alvarlegra kvilla eins og
sykursýki 2 og hjartasjúkdóma.
Það sé því nauðsynlegt að koma
auga á vandann nógu snemma til
að hægt sé að fyrirbyggja hann.
Vísindamennirnir segja í raun
mjög auðvelt að greina hvort ung-
börn séu í áhættuhópi hvað offitu
varðar. Fæðingarþyngd barnsins
og hvort móðirin reykti á með-
göngunni getur til að mynda haft
mikið að segja. Fram að þessu hef-
ur verið talið að áhrif erfða væru
mikil varðandi offitu en miðað við
niðurstöður rannsóknarinnar á
það aðeins við í einu af hverju tíu
tilfella.
Foreldrarnir
mikilvægastir
Samkvæmt rannsókn ríkishá-
skólans í Norður-Karólínu, Brig-
ham Young-háskóla og ríkishá-
skólans í Pennsylvaníu er aðild
foreldra mikilvægari þáttur en
skóla umhverfi þegar kemur að
forvörnum vegna áfengis- og
vímuefnanotkunar barna.
Foreldrar hafa afar mikilvægu
hlutverki að gegna þegar kemur
að ákvarðanatöku barna þeirra
varðandi áfengi og kannabisnotk-
un. Þetta segir dr. Toby Parcel,
prófessor í sálfræði, sem tók þátt í
rannsókninni. „Að sjálfsögðu leika
námsfög sem taka á áfengis- og
vímuefnanotkun mikilvægt hlut-
verk, en tengsl foreldra við börnin
eru mikilvægari. Sem betur fer er
hægt að hafa hvort tveggja.“
Vita meira
um bíla en
líkama sinn
Flestir karlmenn vita meira um
bílana sína en eigin líkama, sam-
kvæmt könnun sem gerð var í
Bretlandi á dögunum. Þannig
sögðust 90 prósent karlmanna
geta bent á olíukvarðann und-
ir húddinu á bílnum sínum og
89 prósent hvar vatnskassann
er að finna. Að sama skapi gátu
einungis sex prósent karlmanna
nefnt algengustu ástæður ris-
vandamála hjá karlmönnum. Til
marks um það nefndi þriðjungur
að helsta ástæðan væri að karl-
menn gengju í of þröngum bux-
um. Þá gátu einungis 52 prósent
þeirra sem spurðir voru bent á
hvar mikilvæg líffæri manns-
líkamans væri að finna.
n Nokkur atriði sem pör ættu að hafa í huga til að bæta sambandið
Þ
ú getur ekki farið aftur í
tímann og lagað allt sem
misfarist hefur í ástar-
samböndum þínum hing-
að til. En þú getur forðast
að endurtaka sömu mistökin. Ekki
láta þrjósku eyðileggja góða hluti.
Skoðaðu þessi fimm ráð sem eru
fengin á vefsíðu spjallþáttadrottn-
ingarinnar Opruh Winfrey.
Fáðu hlutina á hreint
Ef gaurinn sem þú ert spennt
fyrir hættir við stefnumót ykkar á
síðustu stundu skaltu spyrja hann
hreint út hvað hann meini. Biddu
hann vingjarnlega um að útskýra
af hverju hann komist ekki svo þú
vitir nákvæmlega hvar þú stendur.
Ef hann hefur ekki áhuga á að
hitta þig aftur kemst hann ekki
hjá því að koma hreint fram. En
ef hann er einfaldlega upptekinn
kemur sannleikurinn í veg fyrir að
viðbrögð þín skemmi sambandið.
Mundu að svarið þarf ekkert endi-
lega að verða þér að skapi; en það
heitir að „lifa í raunveruleikanum“.
Horfðu á þöglu myndina
hans
Það er ekki alltaf það sem hann
segir heldur hvað hann gerir sem
skiptir máli. Kærasti þinn til sjö ára
hefur kannski oft minnst á hjóna-
band en gjörðir hans segja eitt-
hvað allt annað. Reyndu að horfa
á hann eins og þú horfir á þögla,
svarthvíta kvikmynd frá 1920 þar
sem látbragð og svipir gefa þér
vísbendingu um það sem hann
hugsar.
Þessi aðferð virkar best þegar
hann sjálfur gerir sér ekki grein
fyrir bilinu á yfirlýsingum sín-
um og lífi ykkar saman. Ef svitinn
sprettur fram á andliti hans í hvert
skipti sem einhver spyr hvenær þið
ætlið eiginlega að láta pússa ykkur
saman er það ekkert endilega góðs
viti.
Horfðu á þína þöglu
mynd
Þið elskið bæði gamanmyndir. Þið
starfið bæði í bankageiranum. Þið
elskið bæði að ferðast. Þegar hann
færir þér nýbakað brauð í rúmið
og segist elska þig svarar þú að þú
elskir hann. Af því að þú gerir það,
ekki satt? Þú ert líka dugleg að til-
kynna öllum sem vilja heyra hvað
þið eigið vel saman, hvað þið séuð
góðir vinir og þar fram eftir götum.
Ef þú staldrar örlítið við sérðu
þá eitthvað skrítið við heildar-
myndina? Eins og að geyma að
borða brauðið sem hann bakaði
þar til það er of hart svo þú getir
hent því í ruslið? Eða gengið fram
hjá fágæta bjórnum í ríkinu sem er
í algjöru uppáhaldi hjá honum og
þú veist hversu ánægður hann yrði
ef bjórinn biði hans í ísskápnum
eftir vinnu?
Það er ekki hvað þér finnst um
svona lítil atriði heldur hvort þú
framkvæmir þau. Það er alveg jafn
mikilvægt að horfa á eigið líf sem
svarthvíta, þögla kvikmynd eins og
hans. Að blekkja sjálfan sig er enn
sársaukafyllra en að blekkja aðra.
4 Ekki afsaka lélegt kynlífÞað koma tímabil í lífinu þar
sem kynlífið er einfaldlega slæmt –
og það geta legið margar ástæður
að baki. Til að mynda vandræða-
legt fyrsta skipti, of mikil þreyta
til að njótast og kynlíf eftir rifrildi
sem þið vonið að muni laga allt en
vitið að mun ekki ganga ekki eftir
því þið eruð bæði ennþá of reið, og
jafnvel kynlíf inni á heimili tengda-
foreldranna sem þið vitið að á eftir
að leiða til vandræðalegs morgun-
verðar. Svo ekki sé minnst á klúð-
urslegan sturtuástarleik, mis-
skildar fantasíur eða truflun vegna
barna. Líklega myndi enginn með
réttu ráði segja þessar aðstæður
bjóða upp á fullkomið kynlíf.
En sem betur fer eru slíkar að-
stæður sjaldgæfar. Þær koma ekki
upp í hverri viku, ekki á hverj-
um degi. Þær afsaka ekki þetta
eina skipti í mánuði sem er svo
óspennandi að þú hættir smám
saman að hafa áhuga. Alveg sama
hversu fyndinn, kynþokkafullur
eða klár makinn er þá þarftu ekki
að sætta þig við glatað kynlíf. Lag-
aðu það eða hugsaðu þér til hreyf-
ings.
Viðurkenndu þín
0,000000167395%
Þegar þú talar við sjálfa þig eða
vinkonu þína um virkni ástar-
sambandsins sérðu það fyrir þér
kristaltært; þetta er allt honum að
kenna. Þú eldar matinn, þú þrífur,
hjálpar börnunum að læra og kem-
ur þeim í baðið. Hann borðar mat-
inn! Það er það eina sem hann ger-
ir. Og kannski les sögu fyrir börnin
og slekkur ljósið inni hjá þeim.
Með öðrum orðum; þú gefur, hann
þiggur.
Nema hvað sannleikurinn
er aldrei nákvæmlega þannig.
Kannski er þetta allt honum að
kenna upp að 98% (vegna fram-
hjáhaldsins) eða 77% (vegna
rifrildisins um daginn) eða 2%
(vegna vasksins sem hann hafði
lofað að laga) en þú verður að
taka á þig allavega 20–30% (og
jafnvel þótt það væri ekki nema
0,000000167395%).
Ef hlutföllin væru virkilega
100% á móti 0% myndu engin pör
haldast saman. Viðurkenndu þína
ábyrgð og ræðið hreinskilið um
vandann. n
Fimm nauðsynlegar
lexíur um ástina
1
2
3
5