Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Qupperneq 4
4 Fréttir 10. desember 2012 Mánudagur
Stjórnlagastríðinu hvergi lokið
n Ríkisstjórnin að brenna inni á tíma n Dregst væntanlega á langinn
E
nn er deilt um endurskoðun
stjórnarskrár Íslands og ætla má
að málið verði eitt helsta þrætu-
epli þingflokkanna fram að
næstu kosningum. Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra hefur lýst því
yfir við fréttastofu Ríkisútvarpsins að
frumvarpið um stjórnarskrána verði
fyrsta mál á dagskrá þingsins að loknu
jólaleyfi.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
hafa ítrekað brugðið fæti fyrir endur-
skoðun stjórnarskrárinnar og skemmst
er að minnast þess þegar Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sendi flokksmönnum bréf og hvatti
þá til að kjósa gegn „fúski“ stjórn-
laganefndar. Pétur Blöndal, flokks-
bróðir Bjarna, hefur nálgast stjórnar-
skrármálið á yfirvegaðri hátt og meðal
annars lagt fram lagafrumvarp þess
efnis að 79. grein stjórnar skrárinnar
verði breytt. Ákvæðið lýtur að því
hvernig breyta má stjórnar skránni og
felur frumvarp Péturs í sér að hægt
verði að breyta stjórnarskránni með
einföldum meirihluta í þinginu og
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þingmenn
stjórnarflokkanna hafa ítrekað verið
sakaðir um óðagot í stjórnarskrár-
málinu og líkti Salvör Nordal, fyrrver-
andi formaður stjórnlagaráðs, ferlinu
óbeint við einkavæðingu bankanna.
Þessum gagnrýnisröddum hefur þó
verið svarað af hörku og í fréttatíma
Ríkisútvarpsins um helgina fullyrti
Jóhanna Sigurðardóttir að stjórnar-
skráin hefði verið rædd ítarlega næst-
um allt kjörtímabilið, sérstaklega
auðlindaákvæðið og þjóðaratkvæða-
greiðslur. Margrét Tryggvadóttir tók
í sama streng í Silfri Egils og skaut
föstum skotum að Salvöru Nordal.
Sagði hún að málið hefði verið rætt
fram og aftur í þingnefnd og stjórn-
lagaráð hefði verið boðað á fund síð-
asta vor en Salvör, þá formaður stjórn-
laganefndar, ekki látið sjá sig.
Treglega hefur gengið að afgreiða
fjárlögin vegna mikilla ræðuhalda
stjórnarandstöðunnar. Miðað við þá
andstöðu sem birst hefur í málflutn-
ingi stjórnarandstöðuþingmanna um
endurskoðun stjórnarskrárinnar er
ekki útilokað að umræður um hana
dragist á langinn.
johannp@dv.is
n KS tekur við eignum eftir viðskipti með hlutabréf í FISK Seafood
Ú
tgerðarfélag Kaupfélags Skag-
firðinga, FISK Seafood, eign-
aðist ríflega 550 milljónir króna
í beinhörðum peningum í
lok síðasta árs þegar eignir
eignarhaldsfélags framkvæmdastjóra
útgerðarinnar runnu inni dótturfélag
þess. Félag framkvæmdastjórans,
Jóns Eðvalds Friðrikssonar, hét Síðasti
dropinn ehf. og var í eigu eignarhalds-
félags hans Háuhlíðar 7.
Í lok síðasta árs eignaðist útgerðar-
félagið Farsæll í Grundarfirði, sem
FISK keypti sumarið 2011, allt hlutafé
í Síðasta dropanum ehf. Síðasti drop-
inn var í kjölfarið afskráð sem sérstak-
ur lögaðili.
Ekki liggur fyrir, samkvæmt sam-
runaáætlunum félaganna, hvernig
Farsæll eignaðist allt hlutafé í Síðasta
dropanum ehf. en þar kemur fram að
Síðasti dropinn ehf. sé dótturfélag Far-
sæls ehf. Miðað við ársreikning Síðasta
dropans ehf. fyrir árið 2010 var félagið
í eigu Háuhlíðar 7. ehf. í lok þess árs.
Út frá opinberum gögnum um Háu-
hlíð 7 og Síðasta dropann ehf. sést ekki
hvernig eigendaskiptin á rúmlega 550
milljóna eignum Síðasta dropans fóru
fram. Ársreikningur Síðasta dropans
ehf. fyrir árið 2011 er óendurskoðaður.
Síðastliðið sumar rann útgerðar-
félagið Farsæll ehf. svo inn í FISK
Seafood og var afskráð sem sérstakur
lögaðili. Þannig voru eignir Síðasta
dropans ehf., rúmlega 550 milljónir
króna, komnar inn í FISK Seafood.
Merkileg saga
Saga Síðasta dropans ehf. síðastliðin
ár er nokkuð merkileg. Jón Eðvald
Friðriksson eignaðist eignarhalds-
félagið að fullu árið 2008 í gegnum
eignarhaldsfélag sitt. Þá átti félag-
ið ríflega hálfan milljarð í eignum.
Síðasti dropinn ehf. hafði árið ver-
ið sameiginlega í eigu eignarhaldsfé-
laganna Háuhlíðar 7. ehf., Háuhlíð-
ar 2. ehf. og Háuhlíðar 3. ehf. Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga, á Háuhlíð 2. og Sigurjón
Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélags-
stjóri á Háuhlíð 3. ehf.
Fjármunir Síðasta dropans ehf.
komu úr eignarhaldsfélaginu Fiskileið-
um ehf. sem var í eigu þess. DV hef-
ur áður greint frá hvernig Þórólfur og
Sigurjón högnuðust persónulega um
100 milljónir á viðskiptum með hluta-
bréf í FISK Seafood á árunum 2005
og 2006 í gegnum Fiskileiðir. Arð-
greiðslurnar sem Þórólfur Gíslason
tók út úr eignarhaldsfélagi sínu námu
rúmum 150 milljónum króna á árun-
um 2007 og 2008 og heildararðgreiðsl-
ur til Sigurjóns Rúnars út úr félagi sem
hann á voru 183 milljónir króna á
árunum 2006 til 2010.
Stjórnendur KS áttu því sjálfir í við-
skiptum með hlutabréf í útgerð sem
sem kaupfélagið átti og högnuðust vel.
Í ársreikningi Fiskileiða ehf. fyrir
árið 2005 kemur fram að fyrirtækið
hafi á því ári keypt rúmlega þriggja
prósenta hlut í FISK Seafood fyrir
nærri 149 milljónir króna. Viðskiptin
voru fjármögnuð með láni frá
lánastofnun, samkvæmt ársreikn-
ingnum. Ekki er tekið fram af hverjum
bréfin voru keypt.
Seldu kaupfélaginu bréfin
Í byrjun febrúar 2006 sameinuðu
FISK Seafood, Fiskiðja Sauðárkróks og
FISK eignarhaldsfélag starfsemi sína
undir nafninu FISK Seafood hf. og
átti Kaupfélag Skagfirðinga 98,8 pró-
senta hlut í útgerðarfyrirtækinu eftir
þetta. Þetta kemur fram í ársreikningi
FISK Seafood árið 2006. Hluthafi FISK
Seafood og Fiskiðju Sauðárkróks,
Kaupfélag Skagfirðinga, eignaðist 92
prósent hlutafjár í FISK Seafood með
samrunanum. Eftir stóðu átta pró-
sent sem voru í eigu annarra aðila,
sem voru svo seld til Kaupfélags Skag-
firðinga að mestu.
Í ársreikningi Fiskileiða fyrir árið
2006 kemur fram að á því ári hafi
Fiskileiðir selt rúmlega þriggja pró-
senta eignarhlut sinn í FISK Seafood
fyrir rúmlega 252 milljónir króna.
Ekki er tekið fram í ársreikningnum
hver það var sem keypti bréfin. Bréfin
hækkuðu því í vedrði um 70 prósent
frá því Fiskileiðir keyptu bréfin í FISK
Seafood og þar til bréfin voru seld en í
millitíðinni átti áðurnefndur samruni
sér stað en eigendur Fiskileiða voru
aðalmennirnir á bak við samrunann
Langtímalán félagsins voru greidd
upp með söluverði hlutabréfanna,
lán sem tekið hafði verið til að kaupa
þau árið áður, og hluthafar félagsins
greiddu 75 milljónir króna í arð niður
til móðurfélaganna þriggja sem öll
bera nafnið Háahlíð og vísa til heimila
Þórólfs, Jóns Eðvalds og Sigurjóns
Rúnars við samnefnda götu á Sauðár-
króki.
Miðað við ársreikninga þessara fé-
laga er ekki annað að sjá en að hlut-
hafar Fiskileiða, sparisjóðsstjórinn
Þórólfur, aðstoðarsparisjóðsstjórinn
Sigurjón Rúnar og framkvæmdastjóri
hins sameinaða félags, Jón Eðvald,
hafi hagnast um að minnsta kosti tugi
milljóna króna með viðskipti sín með
hlutabréfin í FISK Seafood, fyrir og
eftir sameiningu félagsins við fyrir-
tæki sem voru í eigu Kaupfélags Skag-
firðinga.
Nú hafa eignir Fiskileiða ehf.
runnið inn í dótturfélag Kaupfélags
Skagfirðinga með viðkomu í Síðasta
dropanum ehf. og Farsælum ehf. og
eftir að hafa verið persónulega í eigu
framkvæmdastjóra FISK Seafood ehf. í
gegnum eignarhaldsfélag hans. Í milli-
tíðinni hafa stjórnendur Kaupfélags
Skagfirðinga hins vegar hagnast vel á
viðskiptunum með hlutabréf í FISK
Seafood.
DV hefur reynt að ræða um málefni
Fiskileiða og Síðasta dropans við Jón
Eðvald en hann hefur neitað að ræða
við blaðið. n
Viðskipti með hlutabréf í FISK Stjórnendur KS á Sauðárkróki högnuðust á viðskiptum
með hlutabréf útgerðarfélags kaupfélagsins. Arðgreiðslur til Þórólfs Gíslasonar námu rúm-
um 150 milljónum króna á árunum 2007 og 2008. Heildararðgreiðslur til Sigurjóns Rúnars
voru 183 milljónir króna á árunum 2006 til 2010.
Stjórnendur urðu
ríkir á braskinu
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Jón Eðvald
þagði
DV reyndi að ræða málefni Fiskileiða
og síðasta dropans við Jón Eðvald í
desember í fyrra. Það gekk illa.
Blaðamaður: Árið 2008 eignast þú
félag sem heitir Síðasti dropinn ehf.
Félagið hafði áður verið í eigu þriggja
félaga sem öll hétu Háahlíð …
Jón Eðvald: „Ég svara engu um þetta.“
Blaðamaður: „Getur þú ekki sagt mér
hvaðan þeir peningar sem voru inni í
félaginu komu?“
Jón Eðvald: „Ég er með mann hérna
hjá mér.“
Blaðamaður: „Viltu ekki ræða þetta?“
Jón Eðvald: „Nei.“
Blaðamaður: „Af hverju ekki?“
Jón Eðvald: „Ég vil það bara ekki.“
Blaðamaður: „Viltu ekki segja mér af
hverju?“
Jón Eðvald: „Nei. Þakka þér fyrir.“
Blaðamaður: „Takk.“
„Ég svara engu
um þetta
Umferðareftirlit lögreglu:
125 stöðvaðir
– einn var
ölvaður
Umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu var með
eftirlit með umferð á Nýbýlavegi
aðfaranótt sunnudags. Stöðv-
aðir voru 125 ökumenn og að
því er fram kemur í tilkynningu
frá lögreglu var ástand þeirra
nokkuð gott. Einn af þessum
125 ökumönnum er grunaður
um ölvun við akstur og annar
reyndist vera án ökuréttinda.
Lögreglan hafði annars í
nógu að snúast og fór meðal
annars í útköll vegna hávaða
í heimahúsum. Hér að neðan
gefur að líta helstu verkefni lög-
reglu aðfaranótt sunnudags.
02.32 Bifreið stöðvuð á Hverfis-
götu. Ökumaðurinn handtekinn
grunaður um akstur undir áhrif-
um áfengis og/eða fíkniefna.
Maðurinn var látinn laus að lok-
inni sýna- og upplýsingatöku.
03.25 Tilkynnt um ölvaðan
ökumann á Breiðholtsbraut.
Ökumaðurinn var handtek-
inn skömmu síðar og vistaður
í fangageymslu fyrir rannsókn
máls.
03.28 Bifreið stöðvuð á
Tryggvagötu. Ökumaðurinn var
handtekinn grunaður um akstur
undir áhrifum áfengis og/eða
fíkniefna. Látinn laus að lokinni
sýna- og upplýsingatöku.
04.14 Bifreið stöðvuð við
Straum, ökumaðurinn hand-
tekinn grunaður um ölvun við
akstur. Sleppt að lokinni sýna- og
upplýsingatöku.
Talsverður erill var hjá lög-
reglu í nótt, tilkynningar tengd-
ust ölvun, hávaða o.fl.
Guðbjartur
á Beinni línu
Guðbjartur Hannesson, vel-
ferðarráðherra og þingmaður
Samfylkingarinnar, verður á
Beinni línu DV.is á miðviku-
dag klukkan 14. Guðbjartur
tilkynnti framboð sitt til for-
manns Samfylkingarinnar
á dögunum og mun þar etja
kappi við Árna Pál Árnason. Þá
hefur Guðbjartur að sjálfsögðu
staðið í eldlínunni á Alþingi að
undanförnu þar sem nóg hefur
verið um að vera.