Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Qupperneq 8
8 Fréttir 10. desember 2012 Mánudagur
Frásögn um andsetin börn:
Prestafélagið
kemur af
fjöllum
„Það hefur ekkert komið til okkar,
ekki neitt svoleiðis,“ segir Guðbjörg
Jóhannesdóttir, formaður Presta
félags Íslands, aðspurð hvort
hún þekki dæmi þess að prestar
á Íslandi hafi fengið inn á borð
til sín ábendingar um andsetin
börn. Af viðbrögðum hennar má
ráða að henni þyki spurningin
fremur fáránleg. Í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins var viðtal við karl
mann sem lýsti því hvernig barna
börn hans hefðu verið andsetin.
„Ég get alveg svarað því skýrt að
prestafélag Íslands kannast ekki
við neitt slíkt,“ sagði Guðbjörg í við
tali við DV.is á laugardagskvöld en
tók þó fram að hún hefði ekki lesið
viðtalið.
Viðtalið hefur vakið athygli af
ýmsum ástæðum en það verð
ur að teljast óalgengt að fólk lýsi
reynslu sinni af andsetnum börn
um í viðtölum á Íslandi í dag —
árið 2012. Frásögn mannsins, sem
kemur fram undir dulnefni, þyk
ir mjög hrollvekjandi en þar lýsir
hann því hvernig dótturdóttir hans,
þá fimm ára, hafi verið andsetin
af tveimur illum öndum. Þá segir
hann dótturson sinn einnig hafa
verið andsetinn fyrir tveimur árum
þegar hann var þriggja ára. Í um
fjöllun Morgunblaðsins segir með
al annars: „Andsetningin lýsti sér
með ýmsum hætti en áberandi var
að börnin komust úr jafnvægi við
hlý orð og bænir. Máttu ekki heyra
Jesú Krist nefndan á nafn. Þegar
mest gekk á létu þau öllum illum
látum, hræktu á og formæltu fólki.“
Maðurinn lýsir því þannig að
hann hafi farið utan til þess að að
stoða dóttur sína, einstæða tveggja
barna móður, við að flytja á milli
staða. Börnin hennar tvö, stúlka og
drengur, eiga að hafa verið fimm
og þriggja ára þegar atvikið átti
sér stað. Maðurinn segir að fyrstu
teikn um að undarlegir hlutir væru
að gerast á heimilinu hafi verið
þegar hann veitti því eftirtekt að
dóttir hans var með hvítt bitfar á
líkamanum. Segir hann að það
hafi verið líkt og einhver skepna
hefði glefsað í hana.
Í kjölfarið fóru börnin að um
breytast, segir maðurinn. Stúlkan
hafi farið að vakna grátandi á
næturnar og ómögulegt að hugga
hana.
Maðurinn, sem er sagður vera
kristinnar trúar í viðtalinu, segir
ástandið hafa stigmagnast þar til
svo var komið að stúlkan brást illa
við tilraunum hans til að fara með
bænir. Hún hafi skipað honum að
halda kjafti þegar hann fór með
Faðir vorið í hljóði nálægt henni.
Þá segir hann svefnvenjur barn
anna hafa breyst algjörlega. Þau
sváfu í örfáar klukkustundir en
sátu þess utan hljóð í rúmum sín
um. Þá lýsir hann augum þeirra
þannig að sjáöldrin hafi verið út
þanin og augun gulleit.
Þegar fjölskyldan kom aftur til
Íslands fór maðurinn með stúlk
urnar til særingamanns en sá er
sagður hafa mikla reynslu af því að
takast á við „slíkar óværur.“ Sær
ingamaðurinn segist í viðtali við
Morgunblaðið hafa rekið tvo illa
anda úr stúlkunni með bænum.
Þá segir hann tilfellið alls ekki
það fyrsta né það versta. Ekkert er
rætt við móður stúlkunnar en sagt
að eftir meðferð særingamanns
ins séu börnin við góða heilsu,
og að þau hafi ekki orðið meint af
þessari reynslu.
320 milljarða tap
á þremur hópum
n Lífeyrissjóðirnir töpuðu miklu á Bakkabræðrum, Baugi og Björgólfsfeðgum
S
amkvæmt skýrslu úttektar
nefndar Landssamtaka líf
eyrissjóðanna sem kynnt
var í febrúar á þessu ári töp
uðu íslensku lífeyrissjóð
irnir nærri 320 milljörðum króna á
þremur fyrirtækjahópum sem tengj
ast Bakkavararbræðrunum Ágústi
og Lýði Guðmundssyni, Baugi og
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og síð
an feðgunum Björgólfi Guðmunds
syni og Björgólfi Thor. 180 milljarðar
króna töpuðust vegna hlutabréfa
tengdum umræddum aðilum og 140
milljarðar króna vegna skuldabréfa
sem félög þeim tengd gáfu út fyrir
bankahrunið. 70 prósent af tapi ís
lensku lífeyrissjóðanna má því rekja
til félaga tengdum þessum þremur
fyrirtækjahópum. Það gæti þó lík
lega verið töluvert meira þar sem líf
eyrissjóðirnir töpuðu um 40 millj
örðum króna á fjárfestingum sínum
í hluta og skuldabréfasjóðum sem
líka áttu eignir sem tengjast þessum
þremur fyrirtækjahópum.
Plötuðu lífeyrissjóðina
Góðæri íslenska fjármálakerfis
ins náði hámarki í júlí árið 2007
þegar úrvalsvísitalan rauf 9.000
stiga múrinn. Eftir fréttir af vand
ræðum vegna svokallaðra undir
málslána í ágúst árið 2007 fór að
síga á ógæfuhliðina og hóf úrvals
vísitalan niðurleið í kjölfarið. Um
haustið 2007 fóru íslensk fjármála
fyrirtæki síðan að lenda í erfið
leikum með fjármögnun á erlend
um mörkuðum. Vegna þessa gripu
mörg íslensk fjármálafyrirtæki og
bankar til þess ráðs að fara í aukna
skuldabréfa og víxlaútgáfu innan
lands.
Segja má að útgáfan á umrædd
um skuldabréfum og víxlum hafi
oft og tíðum verið vafasöm eftir
á að hyggja. Þannig má benda á
að nokkuð algengt var að bankar
sæju um útboðsmál fyrir stóra við
skiptavini sína. Í útboðslýsingum
var upplýsingagjöf, um raunveru
lega fjárhagsstöðu þeirra sem voru
að sækja sér fjármuna með því að
gefa út skuldabréf eða víxla, oft
ábótavant.
Þannig má benda á að
tryggingafyrirtækið Sjóvá fór í
skuldabréfaútgáfu í byrjun mars
árið 2008 sem Glitnir hafði umsjón
með. Nokkrum dögum áður hafði
Glitnir lánað félaginu Svartháfi
ehf. 190 milljónir evra eða um 35
milljarða íslenskra króna. Umrætt
lán var notað til endurfjármögn
unar á skuldum Milestone sem á
þessum tíma var aðaleigandi Sjó
vár. Rúmum þremur vikum áður
hafði Glitnir síðan lánað félaginu
Vafningi 100 milljónir evra eða um
16 milljarða íslenskra króna þar
sem Milestone var komið í vand
ræði vegna lækkunar á hlutabréf
um sínum í Glitni í gegnum félagið
Þátt International.
Þá gaf Glitnir út víkjandi skulda
bréf upp á 15 milljarða króna um
miðjan mars árið 2008. Stærstu
kaupendur voru íslenskir lífeyris
sjóðir sem fjárfestu fyrir tíu millj
arða króna í umræddu skuldabréfi.
Þeir fjármunir eru að fullu tapað
ir. Telja lífeyrissjóðirnir að þeir hafi
verið blekktir í umræddu útboði
og Glitnir hafi gefið villandi mynd
af fjárhagsstöðu sinni. Um málið
er nú deilt fyrir dómstólum.
Þetta eru einungis örfá dæmi
um skuldabréfakaup sem íslensk
ir lífeyrissjóðir tóku þátt í eft
ir að íslensk fjármálafyrirtæki og
bankar fóru að lenda í fjármögn
unarvandræðum. Eins og kunn
ugt er var líka algengt að skulda
bréfa og peningamarkaðssjóðir
hjá bönkunum fjárfestu í skulda
bréfum og víxlum sem tengdust
fyrirtækjum stærstu eigendanna.
Glitnir framlengdi líf Baugs
„Í september 2008 fjárfesti Sjóð
ur 9 áfram í víxlum útgefnum af
Baugi þrátt fyrir að félagið hefði
skömmu áður ekki getað staðið í
skilum með skuldbindingar sín
ar við sjóðinn. Í lok ágúst 2008 var
skráð markaðsvirði Baugsbréfa í
sjóðnum 11,5 milljarðar króna.
Í lok septembermánaðar hafði
staða sjóðsins í Baugsbréfum
aukist um rúman milljarð króna
í 12,5 milljarða,“ segir í skýr
slu rannsóknarnefndar Alþingis.
Þannig sést að starfsmenn bank
anna héldu lífi í fyrirtækjum sem
tengdust eigendum sínum beint.
Þess skal getið að íslensku lífeyris
sjóðirnir töpuðu fimm milljörðum
króna vegna fjárfestinga í skulda
bréfum Baugs eins og sést í töflu
með frétt.
Björgólfsfeðgar með aðgang að
sjóðum Landsvaka
Sjóðir Landsvaka voru duglegir að
kaupa skuldabréf og víxla af félög
um sem tengdust Björgólfsfeðgum.
Má þar nefna í Landsbankanum,
StraumiBurðarási og Samson. Ef
ekki hefði komið til þeirra fjárfestinga
hjá sjóðum Landsvaka má telja nær
öruggt að verðbréf umræddra fé
laga hefðu ekki þótt jafn fýsilegur
fjárfestingarkostur fyrir lífeyrissjóð
ina. Lífeyrissjóðirnir töpuðu 40 millj
örðum króna á skuldabréfum sem
StraumurBurðarás, Landsbankinn,
Samson og Eimskip gáfu út. Í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis kem
ur meðal annars fram að peninga
markaðssjóður Landsvaka hafi keypt
alla útgáfu á skuldabréfum Samson í
september og október árið 2007 fyrir
alls tíu milljarða króna. „Því má segja
að Samson hafi átt vísan aðgang að
endurfjármögnun að hluta hjá sjóðn
um,“ segir í skýrslu rannsóknarnefnd
ar Alþingis. Lífeyrissjóðirnir töpuðu
9,4 milljörðum króna á fjárfestingum
í skuldabréfum útgefnum af Samson.
40 milljarða tap á
Bakkabræðrum
Líkt og fram kemur í töflu töpuðu
íslenskir lífeyrissjóðir langmest
á fjárfestingum sem tengdust
félögum Bakkabræðra. Þannig
tapaði Lífeyrissjóður verzlun
armanna nærri 40 milljörðum
króna á fjárfestingum í hlutabréf
um og skuldabréfum Kaupþings,
Bakkavarar og Exista ef miðað
er við stöðu á hlutabréfaeign líf
eyrissjóðsins í upphafi árs 2008
líkt og úttektarnefnd Landssam
taka lífeyrissjóða gerir. Það virð
ist þó hafa verið minna af því
innan Kaupþings að fjárfestinga
sjóðir þeim tengdir væru að fjár
festa jafn mikið í skuldabréfum
og víxlum sem tengdust helstu
eigendum bankans. „Hæst fór
hlutfall eigna í Kaupþingi og
tengdum félögum í 63 prósent af
heildareignum sjóðsins í lok jan
úar 2007,“ segir í skýrslu rann
sóknarnefndar Alþingis um fjár
festingar peningamarkaðssjóðs
Kaupþings. n
80 milljarðar Lífeyrissjóðirnir töpuðu um
80 milljörðum á félögum tengdum Baugi og
Jóni Ásgeiri.
Björgólfsfeðgar 70 prósent af
tapi íslensku lífeyrissjóðanna má
rekja til félaga tengdum þremur
fyrirtækjahópum. Tapið vegna
félaga Björgólfsfeðga nam tæpum
70 milljörðum.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Félög tengd Björgólfsfeðgum
Skuldabréf Hlutabréf Alls
Straumur-Burðarás 18.766 6.813
Landsbankinn 3.347 21.779
Samson 9.375
Eimskip 8.744
Alls 40.232 28.592 68.824
*TöLur í MiLLjörðuM krónA.
Félög tengd Baugi og Jóni Ásgeiri
Skuldabréf Hlutabréf Alls
Glitnir 26.870 20.696
Landic Property 12.220
Baugur 4.818
Stoðir/FL Group 6.408
Alls 56.486 20.696 77.182
*HeiLdAruPPHæð er AF öLLuM FéLöGuM TenGduM uMrædduM AðiLuM.
YFirLiTið sýnir BArA FjöGur sTærsTu FéLöG þeiM TenGd. TöLur í MiLLjörðuM krónA.
Félög tengd Bakkabræðrum
Skuldabréf Hlutabréf Alls
Kaupþing 16.253 78.500
Bakkavör 10.590 28.027
Exista 14.045 22.558
Skipti/Síminn 908
Alls 41.847 129.085 170.932
*HeiLdAruPPHæð er AF öLLuM FéLöGuM TenGduM uMrædduM AðiLuM.
YFirLiTið sýnir BArA FjöGur sTærsTu FéLöG þeiM TenGd. TöLur í MiLLjörðuM krónA.