Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Side 13
Erlent 13Mánudagur 10. desember 2012 T ímaritið Forbes kynnti á dögunum lista yfir valda- mestu menn heimsins. Alls er 71 á listanum, en sú tala er fengin frá fjölda jarðarbúa, sem er um 7,1 milljarð- ur. Við mat á vali þeirra sem fá sæti á listanum var tekið mið af fjölda fólks sem þeir geta haft áhrif á og auðlindum sem þeir yfirráð yfir, þar með talið fjármagn. Líkt og fyrri ár eru langflestir á listanum karlmenn og flestir eru á sextugs- og sjötugsaldri. Meðalaldur á hon- um er 60 ár – en þó prýða nokkrir yngri menn hann. Hér eru þeir tólf yngstu af lista Forbes. Einræðisherra með kjarn- orkuvopn Arftaki „ástkæra leiðtogans“ Kim Jong-il er næstyngsti maður list- ans. Hinn 29 ára Kim Jong-un er einræðisherra Norður-Kóreu og hefur því örlög 24 milljóna manna í hendi sér. Hinn „afburðasnjalli félagi“, eins og Kim Jong-un er jafnan kallaður, hefur að því er virðist al- gjör yfirráð yfir löndum sínum. Landið er afskekkt og hefur fjórða stærsta her heims – alls 1,21 millj- ón manna gegna herþjónustu þar. Að auki býr landið yfir kjarnorku- vopnum. Tæknimógúlar í broddi fylkingar Larry Page (t.v.) og Sergey Brin (t.h.) eru stofnendur netrisans Google. Þeir eru báðir 39 ára en Page er forstjóri fyrirtækis- ins og Brin fer fyrir nýsköpunar- verkefnum þess. Brin segist verja meirihlutanum af tíma sínum í Glass-verkefnið; byltingarkennd gleraugu sem stefnt er á að setja á markað árið 2014. Google er mest sótta vefsíða heims ásamt því að vera eitt dýr- mætasta tæknifyrirtæki veraldar. Það er í fararbroddi í ýmsum tækninýjungum og hefur til að mynda nú þegar hannað algjör- lega sjálfstýrðan bíl. Fyrirtæk- ið skilaði rúmlega 1.200 milljarða króna hagnaði á síðasta ári, en Brin og Page eiga sameiginlega 16 prósent í því. Í fararbroddi í rafbílavæðingunni Elon Musk er 41 árs. Hann er einn valdamesti maður heims – en það má segja að geimurinn sé hans vígi. Hann er forstjóri fyrir- tækisins SpaceX sem er í farar- broddi í einkageiranum í hönnun og rekstri geimfara. Bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur gert samning við fyrirtækið um að það annist allan flutning til og frá Alþjóðlegu geimstöðinni – fyrstu heppnuðu birgðaflutningarnir fóru fram í maí síðastliðnum. Musk er einnig einn stofnenda greiðsluþjónustunnar PayPal, heildartekjur fyrirtækisins voru tæpir 552 milljarðar króna í fyrra. Hann er einnig forstjóri og einn stofnenda Tesla Motors sem hannar og smíðar rafbíla. Stofnaði stærstu leitarvél Kína Hinn 44 ára Robin Li er stofn- andi og forstjóri fyrirtækisins Bai- du, sem mætti segja að sé hið kín- verska Google. Google ákvað árið 2010 að hætta að ritskoða leitar- niðurstöður í samræmi við óskir kínverskra stjórnvalda og var því bannað þar í landi. Baidu hefur hins vegar skapað sér sess sem hin eiginlega leitar- vél í Kína, markaðshlutdeild þess í leit á netinu í Kína er 56,6 prósent, tekjur fyrirtækisins voru um 291 milljarður króna. Auður Li sjálfs er metinn á 877 milljarða króna. Tengslajötunn í kísildalnum Reid Hoffman er 45 ára og stofn- andi tengslasíðunnar LinkedIn og gerði sú fjárfesting hann að millj- arðamæringi. Síðan gerir fólki kleift að mynda ýmisleg sambönd, fyrst og fremst hvað varðar við- skipti og atvinnurekstur. Að sögn Forbes er hann tengd- asti maðurinn í kísildalnum í Kali- forníu – þar sem langmest tækni- þróun fer fram í Bandaríkjunum – og getur því haft gífurleg áhrif á nýstofnuð fyrirtæki í tæknigeiran- um. Í krafti þess hefur hann mót- andi áhrif á tækni í framtíðinni. Yngsti forsætisráðherrann í langan tíma David Cameron er 46 ára forsætis- ráðherra Bretlands. Þótt hann sé varla á flæðiskeri staddur fjárhags- lega, þá liggja völd hans fyrst og fremst í stjórnmálunum. Cameron er formaður breska íhaldsflokksins sem myndar ríkis- stjórn landsins ásamt frjálslyndum demókrötum. Hann fer með fram- kvæmdavald breska ríkisins og rík- isstjórn hans fer einnig með al- gjört löggjafarvald, hún er með meirihluta í bresku fulltrúa- deildinni, þar sem stjórnarandstað- an er nánast algjörlega máttvana. Cameron er einn af þeim yngstu sem setið hefur í forsætisráðherra- stólnum – síðasti forveri hans sem tók við valdasprotanum yngri að aldri var uppi fyrir tæpum 200 árum. Í valdastól stórveldis Enrique Peña Nieto er 46 ára for- seti Mexíkó. Hann tók við valda- taumum landsins í desember, en landið er eiginlegt stórveldi í spænskumælandi Ameríku. Nieto situr á valdastóli í umboði vinstrisinnaða Byltingarflokksins. Í krafti embættis síns getur hann gert ýmislegt – hann getur skipað hæstaréttardómara, lýst yfir stríði fyrir hönd landsins með sam- þykki þingsins og er yfirmaður mexíkóska land-, sjó- og flug- hersins. Mexíkó er fjölmennasta spænskumælandi ríki heims – alls búa þar um 113 milljónir manna. Það er 11. fjölmennasta ríki heims. Herlið Mexíkó telur um 250 þús- und manns. Frankvæmir vilja forsetans Dimitry Medvedev er 47 ára for- sætisráðherra Rússlands. Á árun- um 2008–2012 var hann forseti landsins, þá sá yngsti í sögu lands- ins. Hann er náinn vinur núver- andi forseta landsins, Vladimírs Putín, sem skipaði hann sem for- sætisráðherra í ríkisstjórn sinni. Medvedev er undirmaður Putíns en fer með framkvæmd flestra stefnumála forsetans. Rúss- land er 9. fjölmennasta land heims, rúmlega 143 milljónir manna búa þar, og rúm milljón manns gegnir herþjónustu að jafnaði. Fer fyrir smásölurisa Jeff Bezos, 48 ára, er forstjóri og stofnandi Amazon – stærstu smá- söluverslunar internetsins. Fyrir- tækið er helsta markaðsógn risa á borð við Wal-Mart og Netflix, ásamt því að auka stöðugt hlut- deild sína á rafbókamarkaði. Til marks um það má nefna að nýjasta lestölva fyrirtækisins – Kindle Fire – var næstsöluhæsta spjaldtölva heims í október. Það var nýjasta iPad-tölvan sem hafði vinninginn þar. Auður Bezos er metinn á rúmlega 2.900 milljarða króna. Víðtæk áhrif á olíuverð Hinn 48 ára Rostam Ghasemi er olíumálaráðherra Írans, ásamt því að vera forseti OPEC, samtaka olíuútflytjenda. Ghasemi var áður yfirmaður í byltingarvarðsveit Írans, sem er deild innan íranska hersins og viðheldur sess islams- trúar í landinu. Eitt af markmiðum varðsveit- arinnar, sem telur um 125 þúsund manns, er að bæla niður innlent andóf í Íran ásamt því að koma í veg fyrir uppreisnir innan hersins. Mahmoud Ahmadinejad, forseti landsins, er náinn bandamaður Ghasemis – sem tók við forsetastól OPEC í sumar. Í krafti þess að vera forseti sam- bandsins getur Ghasemi haft mik- il áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu, sem hefur um leið áhrif á efnahag valdamestu ríkja heims, líkt og Bandaríkjanna, Kína, Indlands og Þýskalands. Íran er þriðji stærsti útflytjandi olíu í heiminum. n n Listi yfir þá sem ráða yfir mestu auðlindunum og hafa áhrif á flesta fólkið Ungir og valdamiklir Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is Internet- auðkýfingur trekkir að Mark Zuckerberg, 28 ára stofnandi samskiptasíðunnar Facebook, er yngsti maður á lista. Hann er sam- kvæmt tímaritinu 25. valdamesti maður heims. Þrátt fyrir áfall fyr- irtækisins á hlutabréfamarkaði – það var sett á markað í maí síð- astliðnum – þá eru auðæfi Zucker- bergs gífurleg. Áður en Facebook fór á hluta- bréfamarkað var auður hans met- inn á tæpa 2.200 milljarða króna. Í kjölfar verðfalls á hlutabréfum fé- lagsins hefur hann minnkað, er nú rúmir 1.755 milljarðar króna – en það er þó eitthvað. Að auki held- ur Facebook áfram að trekkja að – í október voru notendur síðunnar orðnir einn milljarður. n Áströlsku útvarpsmennirnir gætu verið framseldir til Bretlands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.