Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Qupperneq 14
Sandkorn F ólkið sem starfar við umönnun sjúkra og þeirra sem eru minni­ máttar í samfélaginu er niðurlægt þegar kemur að launagreiðslum. Á sama tíma eru ákveðnir hópar heilbrigðisstarfsmanna á launum sem eru allt að milljónum mánaðarlega. Himinn og haf eru á milli launa þeirra lægstu og hæstu í heilbrigðisgeiranum. Það er í þessu andrúmslofti sem hjúkr­ unarfræðingar á Landspítalanum hafa unnvörpum sagt upp störfum sínum. Allt frá hruni hefur verið þegjandi samkomulag um að launum sé haldið niðri á meðan samfélagið klöngrast upp úr hyldýpi skuldanna. Eins konar þegj­ andi þjóðarsátt hefur verið um að sækja ekki kjarabætur við þessar aðstæður. Sáttin var rofin þegar Guðbjartur Hannes son velferðarráðherra samdi við Björn Zoëga, forstjóra Landspítal­ ans, um að hann fengi launahækkun sem samsvaraði 500 þúsund krónum á mánuði. Þessi aðgerð setti allt í bál og brand á spítalanum og aðrir vildu sitt. Ráðherrann og forstjórinn gerðu síð­ ar nýtt samkomulag um að hækkun­ in gengi til baka. En stríðshanskanum hafði verið kastað. Sáttin var rofin og nú krefjast hjúkrunarfræðingar launabóta. Íslenskt samfélag er í miðjum undirbúningi þess að byggja hátækni­ sjúkrahús þar sem oflátungsháttur ræð­ ur för. Upphafið má rekja til hugarflugs stjórnmálamanns sem á sök á mörgu því versta sem á síðari tímum hefur dunið á íslensku samfélagi. Spítalinn mun kosta offjár og meiningar eru uppi um að allt skili sér til baka vegna gríðar­ legrar hagræðingar. Það má hverjum manni vera ljóst að tæknin skiptir litlu máli þegar gott starfsfólk er flúið. Til þess að góður árangur náist þarf að fara saman hugur og hönd. Starfsfólkið þarf að vera sátt. Lýður Árnason, læknir og sam­ félagsrýnir, lýsir ástandinu vel á bloggi sínu á DV. „Fjöldauppsagnir hjúkrunar­ fræðinga afhjúpa vel lesblindu stjórn­ málamanna. Á meðan þeir eru upp­ teknir af nýrri sjúkrahúsbyggingu hefur gjörsamlega farið framhjá þeim hvað er að gerast innanveggja í þeirri gömlu,“ bloggar læknirinn. Þetta eru orð að sönnu. Stjórnmálamenn sem kenna sig við jöfnuð og mannúð ættu að taka saman höndum um að endurskoða há­ tækniruglið og endurskoða laun þeirra stétta sem fórna sér í því að hlúa að samborgurum sínum. Þessi vandi nær langt út fyrir Landspítalann. Hann snýr að flestu því góða fólk sem starfar við umönnun. Ráðherrann Guðbjartur Hannesson ætti að bæta fyrir mistökin með forstjór­ ann með því að gefa því góða fólki gaum sem vinnur fulla vinnu á launum sem rétt ná upp fyrir atvinnuleysis bætur. Stefnubreytingin þarf aðeins að vera sú að hverfa frá oflátungshættinum sem birtist í hátæknisjúkrahúsinu og lagfæra laun þeirra sem mest leggja af mörkum til mannúðar. Fiskeldi lögmanns n Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson hefur fengist við sitthvað í gegnum tíðina. Meðal annars kom hann upp fiskeldi á æskuslóðum sínum í Dýrafirði. Vel þykir hafa tekist til með það allt saman og eru mikil umsvif á Flateyri við slátrun og verk­ un á eldisfiski. Sjálfur seldi Sigurður fyrirtækið pólskum fiskeldiskóngi fyrir nokkru en eftir stendur að Vest­ firðingar þakka honum að tugir starfa eru komin til að vera. Milljónir Magnúsar n Stórmerkilegt mál er fyrir dómi þar sem sextugur maður er sakaður um að hafa stolið 40 milljónum út af kreditkorti auðmannsins Magnúsar Ármann. Þetta er sagt hafa gerst á nokkrum mánuðum. Venjulegt fólk er að basla við að borga hundraðþúsundkalla af kortum sínum. Augljóst er að Magnús hefur mikið fé milli handanna þegar litið er til þess að milljónir króna láku út af korti hans mánuð­ um saman, án þess að hann fyndi fyrir því. Ólína á kústi n Ólína Þorvarðardóttir, al­ þingismaður Samfylkingar, hefur komið sér upp mörg­ um fjendum með því að tala máli hómópata í þinginu og vilja efla rétt þeirra. Sál­ fræðingar, læknar og fleiri hafa uppi alvarlegar athugasemdir við málflutning þingmannsins. Og enn bætist í fjandvina­ hóp hennar því Friðbjörn Orri Ketilsson, ritstjóri verðlauna­ vefjarins amx.is setur ofan í við Ólínu sem hann telur að ætti að ferðast eins og norn. „Er ekki óþarfi að treysta á vísindin og taka bara kúst­ inn heim?“ spyr Friðbjörn. Eygló ráðherraefni n Eygló Harðardóttir, al­ þingismaður Framsóknar­ flokksins í Suðurkjördæmi, vann sigur þegar hún lagði þjálfar­ ann Willum Þór Þórsson í hörðum slag um fyrsta sætið í Krag­ anum. Eygló fyllir þar með skarð Sivjar Friðleifsdóttur, sem hverfur til annarra starfa eftir að hafa verið í fremstu víglínu íslenskra stjórnmála lengur en flestir þingmenn. Eygló hefur vakið athygli fyrir hófsam­ an málflutning og stefnu­ festu. Hún er væntanlega ráðherraefni ef Framsókn kemst í ríkisstjórn. Ég brotna aldrei Ég verð sextugur Snjóbrettakappinn Halldór Helgason hefur aldrei brotið bein. – DV Egill Ólafsson blæs til afmælistónleika. – DV Hættum við hátæknisjúkrahús„Tæknin skiptir litlu máli þegar gott starfsfólk er flúið Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 10. desember 2012 Mánudagur Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is R ÚV greindi frá því á föstudag að Huang Núbó hefði sagt í viðtali við breska stórblað­ ið Financial Times að á Ís­ landi væri hann fórnarlamb kynþáttafordóma. Ástæðan fyrir því að hann hefði verið meðhöndlaður eins og raun ber vitni væri sú að hann væri kínverskur. Þá er haft eft­ ir honum að hann hafi aldrei verið beðinn um nein viðbótargögn en hann muni krefja íslensk stjórnvöld skýrra og afdráttarlausra svara. Þetta eru undarlegar staðhæf­ ingar. Fyrir það fyrsta eru viðbrögð íslenskra stjórnvalda skýr og afdráttar laus. Beiðni hans um landakaup eða um að öðlast ráðstöf­ unarrétt yfir Grímsstöðum á Fjöllum hefur verið hafnað og veit ég ekki hve skýrt þurfi að segja þetta svo maðurinn skilji. Beiðni hafnað Leyfi ég mér að vitna orðrétt í skrif mín á heimasíðu minni hinn 3. des­ ember sl: „Haft er eftir kínverska auðmann­ inum Huang Núbó að hann sé ekki af baki dottinn að komast yfir land á Grímsstöðum á Fjöllum. Þá sé hann reiður íslenskum stjórnvöld­ um, sem hafi beðið sig um að fjár­ festa á Íslandi. Hér er það ég sem kem af fjöllum. Sem innanríkisráð­ herra fékk ég á sínum tíma umsókn frá fjárfestingarsamsteypu Huangs Núbó um landakaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Vel kann að vera að eitt­ hvert íslenskt stjórnvald hafi verið áhugasamt um þessa fjárfestingu en niðurstaðan varð engu að síður sú að umsókn Núbós var hafnað. Þetta var haustið 2011. Núbó reyndi þá fyrir sér með nýrri aðkomu að málinu – nokkuð umdeildri – og var nú skipuð nefnd ráðherra og embættismanna til að fara yfir málið. Í síðustu viku komst sú nefnd að þeirri niðurstöðu að umsókn kínversku fjárfestingar­ samsteypunnar skyldi hafnað. Sú niðurstaða var afdráttar laus og hefur verið kynnt í ríkisstjórn. Það var gert í vikunni sem leið. Það þarf greini­ lega að tala skýrt í þessu máli enda full efni til. En svo enginn þurfi að velkjast í vafa um niðurstöðu ráð­ herranefndarinnar, þá var því ekki slegið á frest að taka afstöðu til beiðni fyrirtækjasamsteypu Huangs Núbó. Beiðninni var hafnað.“ Í góðum félagsskap Nú bregður svo við að allt þetta á að vera runnið undan rifjum kynþátta­ hatara. Og ekki annað að skilja en ég sé þar með talinn. Þessu mót­ mæli ég harðlega enda í góðum samhljómi við fólk sem seint verð­ ur kennt við kynþáttafordóma. Um 150 landsmenn úr öllum þjóðfé­ lagsstéttum, úr öllu hinu pólitíska litrófi sendu nýlega frá sér áskor­ un til íslenskra stjórnvalda um að gengið yrði til samninga við eigend­ ur Grímsstaða á Fjöllum með það að markmiði að ríkið eignaðist jörðina. Læknir, verktaki og leigu­ bílstjóri, fyrrverandi forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir, Megas, Ólafur Stefánsson handboltakappi, for­ maður Sambands ungra bænda og margir fleiri sameinuðust í áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar í heil­ síðuauglýsingu þar að lútandi. Skorað á Alþingi og ríkisstjórn Í yfirlýsingunni segir: „Stjórnvöldum ber að standa vörð um eignarhald og umráð landsmanna yfir óbyggðum Íslands og þar með bújörðum sem teygja sig inn á hálendið eða hafa sérstöðu í huga þjóðarinnar af land­ fræðilegum, sögulegum og menn­ ingarlegum ástæðum. Þessa skoðun staðfestum við með undirskrift okk­ ar. Við skorum á Alþingi og ríkis­ stjórn að marka skýra stefnu í þessa veru og ákveða hvaða jarðir í eigu ríkisins skuli aldrei selja og að ríkið muni kaupa hliðstæðar jarðir til að tryggja að þær haldist í þjóðareign.“ Augljóslega eru hér að baki áhyggjur yfir því að Grímsstaðir á Fjöllum, sem liggja á mörkum byggðar og öræfa, verði bitbein á markaðstorgi. Nær sé að ríkið kaupi Grímsstaði. Þess má geta að ríkið á þegar tæpan fjórðung í Grímsstöð­ um á Fjöllum og jarðirnar þar suður af, Víðidalur og Möðrudalur eru í ríkiseign. Auður og völd En aftur að þeirri staðhæfingu Nú­ bós að honum sé hafnað vegna kyn­ þáttafordóma. Það er af og frá. En skiptir máli að hann er frá Kína en ekki einhverju öðru landi? Reynd­ ar skiptir það máli að því marki að vegna hins samevrópska reglu­ verks gilda mjög ólíkar reglur um fólk innan EES annars vegar og utan þess hins vegar. Að mínu mati hef­ ur verið gengið alltof skammt í að gæta hagsmuna Íslands innan þess regluverks varðandi eignarhald á landi. En vissulega er það líka svo að menn spyrja um tengsl auðmanna og stjórnvalda í ríki eins og Kína. Þá fara fjárfestingar Kínverja í landi víða um álfur ekki framhjá neinum og auðvitað spyrja menn í því sam­ hengi um stórveldahagsmuni. Allt eru þetta eðlilegar og málefnalegar spurningar og hafa ekkert með kyn­ þáttafordóma að gera. Hefðum við selt Rockefeller? Hefðum við gert athugasemd við það að bandaríski auðkýfingurinn og repúblikaninn Rockefeller hefði keypt Miðnesheiðina á sínum tíma? Þar var jú bandarísk herstöð og ef­ laust fín fjárfesting að leigja löndum sínum land. Ég hefði haldið að hljóð hefði heyrst úr horni. Hefði það ver­ ið vegna kynþáttafordóma? Það er af og frá. Hvað sjálfan mig áhrærir og mína afstöðu þá er hún sem áður segir samhljóða áskorun 150 menning­ anna. Vil ég reyndar ganga lengra og tryggja í lögum og regluverki að tryggt sé að eignarhald og ráðstöf­ unarréttur á íslensku landi sé jafn­ an í íslensku samfélagi og gangi ekki út fyrir landsteinana. Að þessu er nú unnið. En sú vinna hefur ekkert með kynþátt að gera heldur hags­ muni okkar samfélags, þess fólks sem Ísland byggir, sama hvaðan það kemur. Af því að hann er Kínverji?„Þessu mótmæli ég harðlega enda í góðum samhljómi við fólk sem seint verður kennt við kynþáttafordóma. Kjallari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skrifar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.