Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Síða 16
16 Neytendur 10. desember 2012 Mánudagur
Algengt verð 246,8 kr. 256,6 kr.
Algengt verð 246,6 kr. 256,4 kr.
Höfuðborgarsvæðið 246,5 kr. 256,3 kr.
Algengt verð 246,8 kr. 256,6 kr.
Algengt verð 249,6 kr. 256,6 kr.
Melabraut 246,6 kr. 256,4 kr.
Eldsneytisverð dd. mmm
Bensín Dísilolía
Frábær
þjónusta
n Starfsfólk Toys‘R‘Us fær lofið fyrir
frábæra þjónustu og samstarfsvilja.
„Ég fór í búðina á Smáratorgi til
að finna jólagjafir fyrir drengi sem
Mæðrastyrksnefnd myndi út-
deila. Starfsfólkið hjálpaði mér að
velja gjafirnar, pakka þeim inn og
notuðu starfsmannaafslátt sinn
svo að meira fengist fyrir
peninginn sem var
ætlaður í þetta. Starfs-
fólkið var hjálpsemin
uppmáluð og svo-
leiðis framkomu
ber að fagna
og hrósa,“ segir
mjög sáttur við-
skiptavinur.
Álagið of
mikið
n Lastið fær Domino‘s en við-
skiptavinur sendi eftirfarandi: „Ég
ætlaði að panta pítsu hjá Dom-
ino‘s á fimmdaginn en þá var 50
prósenta afsláttur á þeim. Það var
bara hægt að panta á netinu en
það var hins vegar ógjörningur því
álagið var greinilega of mikið. Ég
reyndi nokkrum sinnum en eftir
töluverða bið fékk ég þau skilaboð
að heimasíðan virkaði ekki. Ég brá
því á það ráð að hringja og spurði
hvort ég gæti ekki pantað í gegnum
síma þar sem netið annaði ekki
álaginu. Starfsmaður sagði fyrst nei
en spurði svo yfirmann. Það voru
þó enn sömu svörin, einungis var
hægt að panta á netinu. Ég þakkaði
pent fyrir og sagðist myndu panta
mér pítsu hjá öðru fyrirtæki. Þegar
svona vinsælt fyrirtæki býður upp
á tilboð sem vitað er að margir
munu nýta sér þá finnst mér að það
þurfi að standa betur að þessu og
gera aðrar ráðstafanir.“
Magnús Hafliðason, rekstrar- og
markaðsstjóri Domino‘s varð fyrir
svörum: „Okkur þykir mjög mið-
ur að heyra að þetta hafi valdið
óþægindum fyrir okkar viðskipta-
vini. Viðbrögðin við tilboðinu voru
slík að vefurinn okkar réð ekki við
álagið. Því miður tók það okkur
nokkrar mínútur að átta okkur á
vandamálinu og koma þeim skila-
boðum til okkar starfsmanna í
þjónustuveri að veita ætti sama
afslátt í gegnum síma á meðan
ástandið varði. Þetta olli því að röng
svör voru gefin fyrst um sinn en í
framhaldinu afgreiddum við fjöld-
ann allan af pöntun-
um með afslætti í
gegnum síma eins
og kemur fram á
Facebook-síðu
okkar. Hvetjum við
alla þá sem lentu
í sambærilegu að
hafa samband við okk-
ur í síma 58-12345 en við
viljum endilega bæta við-
skiptavinum þetta upp.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Iceland er best
n Fékk 8,7 af 10 mögulegum n Húsavíkurhangikjötið í öðru sæti
D
ómnefnd valdi nýliðann sem
besta hangikjötið fyrir þessi
jól en verslunin Iceland sel-
ur nú hangikjöt undir sínu
merki. Iceland-hangikjötið,
sem er framleitt af Kjarnafæði, fékk
8,7 í meðaleinkunn en í öðru sæti
varð Tvíreykt Húsavíkurhangikjöt
með 8,25 í einkunn. Fjallalambið frá
Hólsfjalla hreppti þriðja sætið.
Dómnefnd
Fenginn var góður hópur af mat-
reiðslumönnum til að smakka og
meta hangikjötið í ár. Í dómnefndinni
sátu Björgvin Mýrdal, yfirmatreiðslu-
maður á Hótel Búðum, Eiríkur Ingi
Friðgeirsson, Gallery Restaurant,
Hótel Holti, Gissur Guðmundsson,
forseti Heimssamtaka matreiðslu-
manna, Jakob H. Magnússon, mat-
reiðslumeistari á veitingahúsinu
Horninu, Hrefna Rósa Sætran, mat-
reiðslumaður og veitingahúseig-
andi, og Þráinn Freyr Vigfússon, yfir-
matreiðslumaður á Kolabrautinni í
Hörpu.
Gáfu einkunn frá 0 til 10
Bragðkönnunin fór fram með þeim
hætti að DV fór í verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu og keypti 13 tegundir
af hangikjöti. Kjötið var eldað daginn
fyrir smökkunina og borið fram kalt á
númeruðum bökkum þannig að dóm-
nefnd vissi ekki um hvaða framleið-
anda var að ræða. Með þessu fengu
dómararnir laufabrauð, malt og app-
elsín, auk þess sem vatn var á boðstól-
um. Dómararnir gáfu hverri tegund
einkunn á bilinu 0 til 10.
Ákvörðun var tekin um að setja ekki
fram þyngd á kjöti fyrir og eftir eldun
þar sem um óverulega rýrnun var að
ræða.
Munurinn liggur í reykbragðinu
Meðlimir dómnefndar höfðu á orð
á því, líkt og hvað varðaði ham-
borgarhrygginn, að kjötið væri á
heildina litið mjög gott og kæmi vel út.
Þá væru gæði kjötsins mjög svipuð en
mesti munurinn lægi þó í reykbragð-
inu. Þau voru sammála um að yfir
heildina þá vantaði meira reykbragð í
kjötið. Aðspurð hvað fólk þyrfti að hafa
í huga sögðu þau að betra væri að velja
fitusprengt kjöt heldur en margurt og
að eldunin skipti alltaf miklu máli. n
1 Iceland hangikjöt
Meðaleinkunn: 8,7
Björgvin Mýrdal: „Fínt reykbragð. Mikil fita.
Mjög gott.“
eiríkur: „Ágætisbragð. Áferð góð. Milt
reykbragð.“
Gissur: „Vel af fitu í kjöti. Gott reykbragð.“
Jakob: „Gott reykbragð. Gott útlit. Mátuleg
fita. Mátulegt salt.“
Hrefna: „Gott reykbragð og frekar feitt kjöt.
Þetta mundi ég vilja í tartaletturnar mínar
sem er uppáhaldsjólamaturinn minn.“
Þráinn: „Vel af góðri fitu sem gefur gott
bragð.“
2 Tvíreykt
Húsavíkurhangikjöt
Meðaleinkunn: 8,25
Björgvin Mýrdal: „Mjög gott.“
eiríkur: „Gott bragð. Safaríkt. Fínt reyk-
bragð. Mátulega salt.“
Gissur: „Mjög gott reykjarbragð. Góð fitu-
samsetning. Gott útlit.“
Jakob: „Ágætt reykbragð. Mátulega salt.
Útlit í lagi. Smá fita.“
Hrefna: „Fitulítið og alveg ágætiskjöt. Held
að þetta geti virkað ofan í stóra fjölskyldu
með mismunandi skoðanir.“
Þráinn: „Gott reykt bragð.“
3-4 Hólsfjalla -
Fjallalamb
Meðaleinkunn: 7,7
Björgvin Mýrdal: „Milt og gott bragð. Fínn
en sérstakur reykur. Djúsí.“
eiríkur: „Fínt bragð. Ekki of þurrt. Gott
samhengi á milli reyks og salts.“
Gissur: „Fallegt. Gott bragð. Gott hlutfall
fitu.“
Jakob: „Vantar reykbragð. Mátulega salt.
Frekar þurrt.“
Hrefna: „Góð lyktin af þessu. Kjötið fallegt.
Mjög salt sem mér finnst ókostur.“
Þráinn: „Bragðgott.“
3-4 Kofareykt frá
Kjarnafæði
Meðaleinkunn: 7,7
Björgvin Mýrdal: „Reykbragð. Fitulítið.
Gúmmí. Flottur litur.“
eiríkur: „Mjög gott bragð. Safaríkt. Fínn
reykur og mátulegt salt.“
Gissur: „Mjög gott hangibragð en of lítil
fita.“
Jakob: „Ágætt bragð. Útlit sæmilegt.
Mátulega saltað.“
Hrefna: „Saltmikið. Kjötið sjálft fannst mér
ekki líta nógu vel út en bragðið var betra.“
Þráinn: „Bragðgott. Fínt saltmagn.“
5 Sambands-
hangikjöt
Meðaleinkunn: 7,5
Björgvin Mýrdal: „Reykt og salt. Mjög
bragðgott og djúsí.“
eiríkur: „Fínt bragð. Safaríkt. Fín áferð.“
Gissur: „Gott bragð en of mikil gúmmíáferð
af kjöti og engin fita.“
Jakob: „Frekar gott reykbragð. Mátulega
salt. Útlit ágætt. Ekki þurrt.“
Hrefna: „Fitulítið og alveg ágætis kjöt. Held
að þetta gæti virkað ofan í stóra fjölskyldu
með mismunandi skoðanir.“
Þráinn: „Fínt. Flottur vöðvi.“
6-8 Fjarðarkaup
Meðaleinkunn: 7
Björgvin Mýrdal: „Frábært bragð. Djúsí.
Ágætur litur. Áleggslegt.“
eiríkur: „Bragðgott. Fínt reykbragð. Flott
áferð.“
Gissur: „Of saltað.“
Jakob: „Bragðlítið. Vantar alveg hangikjöts-
fíling. Smá eftirbragð samt.“
Hrefna: „Bragðmikið kjöt og frekar þungt.
Samt ágætt.“
Þráinn: „Mjúkt og bragðsterkt.“
6-8 KEA
Meðaleinkunn: 7
Björgvin Mýrdal: „Lítið reykbragð. Karakt-
erlaust. Fallegt.“
eiríkur: „Milt og fínt bragð. Mátulega salt
og reykt.“
Gissur: „Gott.“
Jakob: „Þurrt. Sæmilegt bragð en samt
dauft.“
Hrefna: „Mjög gott kjöt. Finnst það svona
eins og í gamla daga. Áferð og bragð flott.“
Þráinn: „Gott.“
6-8 SS Fjarðarkostur
Meðaleinkunn: 7
Björgvin Mýrdal: „Þurrt og leiðinlegt. Lítill
karakter. Lítill reykur.“
eiríkur: „Milt og gott bragð. Áferð ágæt.“
Gissur: „Bragðgott. Vantar salt.“
Jakob: „Þurrt. Þokkalegt reykbragð. Mátu-
lega salt.“
Hrefna: „Mjög gott. Þetta er mitt uppáhalds
sem máltíð. Fallegt kjöt og gott jafnvægi.“
Þráinn: „Þurrt en bragðið í lagi.“
9 Birkireykt
hangikjöt frá SS
Meðaleinkunn: 6,8
Björgvin Mýrdal: „Lítið reykbragð. Líti fita.
Flottur litur.“
eiríkur: „Bragðgott. Mátulega reykt. Góð
áferð.“
Gissur: „Lítið reykjarbragð. Svolítið gúmmí-
legt kjöt.“
Jakob: „Vantar meira reykbragð. Sæmilegt
eftirbragð. Nokkuð gott.“
Hrefna: „Salt í meira lagi.“
Þráinn: „Bragðmikið. Svolítið í saltari
kantinum.“
10 Húsavíkur
hangikjöt
Meðaleinkunn: 6,5
Björgvin Mýrdal: „Þurrt og leiðinlegt. Lítill
karakter. Lítill reykur. Smá sæta.“
eiríkur: „Milt og gott. Aðeins of þurrt. Gott
bragð.“
Gissur: „Fallegt. Bragðlítið.“
Jakob: „Dauft. Frekar þurrt. Sæmilegt
bragð.“
Hrefna: „Ágætis hangikjöt. Mikið reyk-
bragð.“
Þráinn: „Fínt reykbragð.“
11 Tað- og birkireykt
Íslandslamb
Meðaleinkunn: 6
Björgvin Mýrdal: „Spaðkjöt? Þurrt og
leiðinlegt. Lítill reykur.“
eiríkur: „Gott bragð. Ágæt áferð. Fínt
reykbragð.“
Gissur: „Bragðgott. Vantar örlítið salt. Góð
fitusamsetning.“
Jakob: „Þurrt. Vantar reykbragð. Vantar
salt.“
Hrefna: „Þurrt og frekar óspennandi kjöt.“
Þráinn: „Þurrt og bragðlítið.“
12 Kjötbúðin
Meðaleinkunn: 5,5
Björgvin Mýrdal: „Enginn karakter. Þurrt.“
eiríkur: „Ekki gott bragð.“
Gissur: „Skrítið bragð. Eins og það sé farið
að súrna.“
Jakob: „Vantar reykbragð en sæmilegt þó.“
Hrefna: „Lítið salt en mikið reykbragð.“
Þráinn: „Gróft. Eftirbragð sem er rammt.“
13 Taðreykt frá
Kjarnafæði
Meðaleinkunn: 5,2
Björgvin Mýrdal: „Sérstakt reykbragð. Ekki
gott.“
eiríkur: „Bragðmikið. Ekki að mínu skapi.“
Gissur: „Skrítið bragð. Eins og það sé farið
að súrna.“
Jakob: „Ekki gott bragð. Vantar alveg hangi-
kjötsbragð.“
Hrefna: „Það er eitthvað sem mér mislíkar
við þetta. Of sterkt bragð.“
Þráinn: „Ekki góð áferð á kjötinu.“
Hangikjötið frá
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hangikjötið Kjötið
frá Iceland fékk hæstu
meðaleinkunn