Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Síða 19
Lífsstíll 19Mánudagur 10. desember 2012
Mjúkt, safaríkt og bragðmilt
Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera
viss um að allt sé eins og það á að vera. Þess vegna velja
tugþúsundir Íslendinga SS birkireykta hangikjötið á
jólaborðið, því það er mjúkt, safaríkt og bragðmilt.
Gleðileg jól!
www.ss.is
Fí
to
n
/
SÍ
A
Reykingar gera
þynnkuna verri
Þeir sem reykja meðan á
drykkju stendur þjást alla jafna
af verri timburmönnum en
þeir sem sleppa því að reykja,
samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar sem birtust í tímaritinu
Journal of Studies on Alcohol
and Drugs.
Rannsóknin fór þannig fram
að 113 bandarískir háskólanem-
endur voru beðnir um að halda
dagbók í átta vikur og var þeim
falið að skrá niður áfengis-
drykkju sína og reykingar með-
an á drykkju stóð. Sumir þeirra
sem tóku þátt slepptu því algjör-
lega að reykja meðan á drykkju
stóð en aðrir reyktu.
Niðurstöðurnar voru á eina
leið: þeir sem reykja meðan á
drykkju stendur þjást af
verri timburmönnum
daginn eftir en þeir
sem ekki reykja.
Talsmaður sam-
takanna Action
on Addiction,
sem berjast
gegn fíkni-
efnum af öllu
tagi, fagnar
rannsókninni
en segir þó að
frekari rannsókna
sé þörf. „Við get-
um nýtt okkur þetta í
herferðum gegn drykkju
og reykingum,“ segir tals-
maðurinn í viðtali við BBC.
Nemendurnir sem tóku þátt
í rannsókninni voru látnir skrá
niður fjölda drykkja sem þeir
drukku og fjölda sígaretta sem
þeir reyktu. Loks áttu þeir að
lýsa einkennum sínum daginn
eftir, meðal annars hvort þeir
væru þreyttari en venjulega,
þjáðust af höfuðverk eða ógleði
og hvort þeir ættu erfiðara með
að einbeita sér.
Í umfjöllun BBC um rann-
sóknina kemur fram að ekki
sé vitað hvers vegna áfengi
og reykingar hafi þau áhrif að
þynnkan verður meiri. Leiða
vísindamennirnir sem stóðu
fyrir rannsókninni líkur að því
að það hafi hugsanlega eitthvað
með áhrif nikótíns á tauga kerfið
að gera.
Andrew McNeill, fram-
kvæmdastjóri Institute of
Alcohol Studies í Bretlandi, seg-
ir að engin ein leið sé fær til
að koma í veg fyrir þynnku
daginn eftir áfengisneyslu.
Hann hefur þó eitt sígilt ráð
handa fólki: „Ekki drekka of
mikið og reyndu að inn-
byrða vatn eða annan
óáfengan vökva á milli
áfengra drykkja.“
Viðhaltu ástríðu í sambandinu
n Þrjár góðar reglur sem pör ættu að tileinka sér
L
ykilinn að hamingjuríku sam-
bandi er að viðhalda ástríðunni
og ekki gleyma að gera eitt-
hvað saman í amstri dagsins.
Að viðhalda ástríðunni þarf alls ekki
að vera flókið né kosta peninga. Þú
þarft ekki að bjóða makanum fínt út
að borða eða kaupa dýra hluti til að
sanna ást þína eða sýna þakklæti.
Máttur orða er mikill og þau ein og sér
geta glatt, sýnt þakklæti og hjálpað til
að viðhalda ástríðu í sambandi.
Hér eru þrjár einfaldar reglur sem
gott er að tileinka sér í ástarsambandi
eða hjónabandi.
Þakkaðu maka þínum fyrir eitt-
hvað þrennt á hverjum degi og
láttu hann vita að þú kunnir að meta
það sem hann gerir. Þetta getur ver-
ið eitthvað af venjum hans, eitthvað
sem hann gerir alltaf fyrir þig eða þú
kannt að meta í fari hans. Þú getur
líka þakkað honum fyrir eitthvað sem
hann gerir öðruvísi og þú kannt að
meta. Mundu bara að segja það upp-
hátt og gættu þessu að hann heyri vel
í þér.
Skipuleggið tíma fyrir ykkur
saman, tvisvar í viku að minnsta kosti
korter í senn. Gætið þess að hafa ekki
sjónvarp eða tölvur í gangi sem geta
truflað. Hlustið saman á góða tónlist,
kúrið saman og spjallið án þess að það
leiði til kynlífs.
Kynlífið er þó nauðsynlegt líka
og gott er að pör geri samkomulag sín
á milli um að stunda kynlíf að minnsta
kosti einu sinni í viku. Tvisvar í viku er
betra. Gætið þess að það líði ekki alls
ekki meira en tvær vikur á milli þess
sem þið stundið kynlíf. Ef kynlífið er
gott eru meiri líkur á að sambandið
gangi upp. Þetta er oft spurning um
að segja feimninni stríð á hendur og
opna sig fyrir makanum. Vera ófeimin
við að prófa nýja hluti saman í svefn-
herberginu.
Tími fyrir ykkur
Takið frá tíma í hverri
viku til að spjalla og
kúra, án truflana frá
tölvum og sjónvarpi.
1
2
3