Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 4
Svava Johansen NTC ætlaði að klára skuldaviðræður við Landsbankann fyrir áramót. Ekki liggur fyrir hvort félagið hafi klárað það en hundruð milljóna eru í húfi. 4 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað Poppari ákærður í dópmáli n Ákært vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls R íkissaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur tveimur mönnum, á fimmtugs- og sex- tugsaldri, sem handteknir voru í október vegna gruns um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Sam- kvæmt upplýsingum frá ríkissaksókn- ara hefur annar mannanna nú þegar hafið afplánun vegna aðildar að öðru máli en gæsluvarðhald yfir hinum hef- ur verið framlengt til loka janúar. Sá hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn þann 10. október síðastliðinn. Fíkniefnin fundust í gámi merktum innflutningsfyrirtæki í Reykjavík sem hann starfaði hjá, en gámurinn kom hingað með gámaflutningaskipi frá Hollandi. Um var að ræða tæplega 10 kíló af amfetamíni, 8.100 e-töflur, mörg þúsund steratöflur, steralyf í vökva- formi og 200 grömm af kókaíni. Fram kom á blaðamannafundi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu um miðjan nóvember að götuvirði efn- anna væri mörg hundruð milljónir króna. Um var að ræða mjög sterk efni sem hefði mátt drýgja töluvert. DV hefur greint frá því að eldri maðurinn sem flæktur er í málið sé þekktur poppari sem einnig hef- ur starfað sem umboðsmaður. Sam- kvæmt heimildum DV var hann ný- orðinn afi þegar hann var handtekinn vegna málsins. Maðurinn hefur sjálf- ur haldið því fram að hann hafi verið svikinn í málinu. Hann hafi einungis átt að flytja inn stera. Hann hafði aldrei komið við sögu lögreglu áður. Hinn maðurinn sem flæktur er í málið hefur komið við sögu lögreglu áður og hlotið dóma í fíkniefnamál- um. Á blaðamannafundi lögreglunnar kom fram að hann væri talinn höfuð- paur í málinu. Samkvæmt upplýsingunum frá rík- issaksóknara hafa ákærurnar ekki ver- ið birtar mönnunum. iess járnsmíði Dalvegi 24 • 544 4884 • iess@iess.is E nn er allt á huldu varð- andi samningaviðræður um skuldaniðurfellingu tísku- verslanaveldisins NTC, sem er í eigu Svövu Johansen, við Landsbankann. Hins vegar má búast við því að erlendar skuldir félagsins lækki um mörg hundruð milljónir króna þegar útreikningur á leiðrétt- ingu ólöglegra lána hefur farið fram. NTC, sem rekur margar af vinsæl- ustu tískuverslunum landsins, hef- ur verið að sligast undan erlendum skuldum undanfarin ár. Í nýjasta ársreikningi félagsins er gerður fyrirvari um að vafi leiki á framtíðarrekstrarhæfi félagsins nema stjórnendur NTC nái sam- komulagi um nýja fjármögnun félagsins við Landsbankann. Tekið er fram í ársreikningnum að stjórnend- ur hafi stefnt að því að ljúka viðræð- um við bankann undir lok síðasta árs. Félagið skuldaði alls um 1.733 milljónir króna og þar af um 1.361 milljón í erlendum gjaldmiðlum. Talsmaður Landsbankans vill ekki tjá sig um það hvort skuldauppgjörinu sé lokið því bankinn tjáir sig ekki um einstök mál en segir að í tilfellum þar sem aðilar tóku erlend myntkörfu lán fyrir hrun, geti þeir búist við að fá að meðaltali um 40 prósenta niðurfell- ingu af lánunum. Það myndi þýða að erlendar skuldir verslanaveldis- ins myndu lækka um 544 milljónir króna. Tók erlent lán vegna skilnaðar Í skýringum í nýjasta ársreikningi NTC segir: „Á árinu 2011 er fyrir- hugað að samningsaðilar geri sam- komulag um nýja fjármögnun félagsins, þar sem útreikningur á leiðréttingu ólöglegra lána fari fram, endurgreiðslutími lána verði lengdur og lánum breytt úr erlendum gjald- miðlum í íslenskar krónur. Hlutafé félagsins verður aukið í tengslum við þetta samkomulag við bankann.“ Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir hefur Svava Johansen forstjóri NTC ekki látið DV ná í sig. Því liggur ekki fyrir hvort skuldauppgjöri NTC við Landsbankann sé lokið og hversu mik- ið af skuldum félagsins verður fellt nið- ur. Þá er heldur ekki ljóst hver kemur með nýtt hlutafé inn í NTC. Svava hefur áður sagt að erlendu skuldirnar séu tilkomnar vegna skilnaðar hennar við Bolla Kristins- son árið 2005. Hún keypti hlut hans í fyrirtækinu og tók fyrir kaupunum lán í erlendri mynt. NTC gerði síðan gjaldeyrisskiptasamning við Lands- bankann árið 2008, rétt fyrir hrun. Allt að 70 prósenta niðurfelling Sem fyrr segir er ekki ljóst nákvæm- lega hversu mikið skuldir NTC munu lækka eftir samninga við Landsbank- ann, en ef fyrirtæki hafa ekki tekjur í erlendri mynt geta þau breytt lánum sínum í íslenskar krónur. Þeir sem tóku erlend lán, sérstaklega í jap- önskum jenum, árið 2008, fá jafnan mestu skuldaniðurfellinguna, enda stökkbreyttust slík lán mest af öll- um. Dæmi eru um að einstaklingar hafi fengið allt að 70 prósent af lán- um sínum felld niður í slíkum til- fellum. Hins vegar er um að ræða myntkörfu lán í nokkrum ólíkum gjaldmiðlum hjá NTC og slík lán lækka ekki jafn mikið. Reka fataverslun á annarri kennitölu Þó að NTC berjist við gífurlegar skuldir reka Svava og Björn K. Svein- björnsson, maður hennar, annað fé- lag sem heitir BS-trading ehf. Það fyrirtæki var stofnað utan um rekst- ur tískuvöruverslananna. Félagið er í mjög góðum rekstri og var hagnaður þess um 32 milljónir króna árið 2010. Félagið kaupir gömul föt af tísku- verslunum NTC og selur í Outlet- verslun í Faxafeni. n Erlendar skuldir sliga NTC n Ætluðu að ljúka viðræðum við Landsbankann fyrir áramót n Að meðaltali 40% skuldalækkun n Mynda þýða 544 milljónir hjá NTC„Á árinu 2011 er fyr- irhugað að samn- ingsaðilar geri samkomu- lag um nýja fjármögnun félagsins, þar sem út- reikningur á leiðréttingu ólöglegra lána fari fram. Svava semur um skuldalækkun Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Ákært Ríkissaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur tveimur mönnum vegna gruns um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hross aflífað eftir óhapp Umferðaróhapp varð um hálf sex leytið að morgni fimmtudags á Laugarvatnsvegi við Brúará á móts við bæina Efri-Reyki og Syðri- Reyki er hross varð fyrir pallbif- reið. Hrossið slasaðist það mikið að ekki var hjá því komist að aflífa það.  Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi kemur fram að hrossastóð hafi verið á og við veginn og er talið að það hafi fyrr um nóttina eða kvöldið fælst vegna notkunar skot- elda í sumarhúsabyggð við Syðri- Reyki og ruðst í gegnum girðingu við veginn.  Lögreglan á Selfossi biður þá sem kannast við eða geta veitt upplýsingar um skoteldanotkun á umræddu svæði á miðvikudags- kvöld eða aðfaranótt fimmtudags að hafa samband í síma lögreglu 480 1010. Um leið vill lögreglan koma því á framfæri við almenn- ing að fylgja eftir lögum og reglum um skotelda og taka sérstakt tillit til dýra. Þess skal getið að notkun skotelda er bönnuð við gripahús og meðferð þeirra er alltaf bönnuð frá miðnætti til klukkan 09.00 að und- anskilinni nýársnótt.  Héraðsdómur Reykjaness: Dæmdur fyrir að ræna úrum Karlmaður á átjánda aldursári hef- ur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í héraðs- dómi fyrir mörg afbrot. Maðurinn játaði meðal annars að hafa þriðju- daginn 7. desember 2010 farið inn í verslun Leonard í Kringlunni og spennt upp læstan glerskáp með kúbeini. Tók hann sex Breitling- armbandsúr úr skápnum og komst undan á hlaupum. Áætlað verð- mæti úranna er rúmar 4,6 millj- ónir króna. Aðeins tvö úr komust til skila. Þá var maðurinn dæmdur fyrir að aka bifreið án ökuréttinda, framvísa við lögreglu ökuskírteini annars aðila í blekkingarskyni. Þá var maðurinn loks dæmdur fyrir líkamsárás fyrir að sparka í konu í Grindavík og slá lögregluþjón í andlitið í júní í sumar. Ungi mað- urinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi en hann á talsverðan sakafer- il að baki. Dómari tók tillit til ungs aldurs mannsins og þess að breyt- ingar hafi orðið á lífi hans. Hann stundi nú nám og íþróttir og hafi tekið sig á. Þótti dómara því rétt að skilorðsbinda refsinguna til þriggja ára. Þá var honum gert að greiða 141 þúsund krónur í sakarkostnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.