Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Side 10
10 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
RÚV útskýrði brandarann
n Atriði í skaupinu fór fyrir brjóstið á sumum
V
ið tókum þessu ekki eins og
það væri verið að gera grín
af fjöldamorðunum“ segir
sendiherra Noregs á Íslandi,
Dag Wernø Holter, en í einum af
bröndurunum í áramótaskaupi
Sjónvarpsins 2011 var skírskotað til
fjöldamorða Anders Breivik, sem
áttu sér stað í Noregi síðastliðið
sumar.
Atriðið sem um ræðir sneri að
fólksflótta Íslendinga til Noregs.
Brandarinn fór fyrir brjóstið á mörg-
um en í atriðinu lýsti kona, sem
kynnti búsetu og störf í Noregi fyrir
Íslendingum, því hversu gott væri
að búa í Noregi. Því næst setur sam-
starfsmaður hennar fyrirvara: „Við
tökum þó ekki ábyrgð á innfædd-
um, sinnissjúkum karlmönnum á
miðjum aldri, sem skjóta þig, og
eða sprengja húsið þitt í tætlur með
áburðarsprengju.“
Dag Wernø Holter segist hafa
heyrt að mörgum Íslendingum
hafi blöskrað grínið, en sendiráð-
ið hefur ekki fengið kvartanir frá
Norðmönnum. Skiljanlegt sé þó að
sumir telji þetta óviðeigandi því at-
burðirnir veki sterkar tilfinningar í
brjósti Norðmanna. „En á hinn bóg-
inn teljum við þetta ekki vera at-
riði sem tengist hryðjuverkunum
og það er ekki sanngjarnt að segja
þetta vera brandara um þau. Við
höfum því ekki brugðist við á neinn
hátt vegna þessa,“ segir Dag en RÚV
hafði engu að síður samband til að
árétta að þetta væri ekki brandari
um fjöldamorðin. „Við fengum sím-
tal frá RÚV þar sem það var útskýrt
að atriðið var ekki sett fram af ljót-
um ásetningi og við tókum mið af
því,“ segir hann.
astasigrun@dv.is
Útsala
30 - 70%
Falleg olíumálverk í úrvali
á einstökum verðum
Allt orginal málverk
Þ
etta er mikil tækni og við
erum afar ánægð með þetta.
Farþegar eru greinilega
ánægðir með þetta líka, því
síðan lagðist á hliðina fyrsta
daginn,“ segir Einar Kristjánsson, hjá
Skipulags- og þróunarsviði Strætós,
um nýja rauntímakortið sem sett
hefur verið á laggirnar.
Rauntímakortið virkar á þann
hátt að hægt er að fylgjast með ferð-
um strætisvagna í rauntíma. Þannig
geta strætófarþegar með hjálp nýj-
ustu tækni séð hvar vagninn sem þeir
ætla að taka sér far með er staddur á
hverjum tíma.
Fyrsta skref af nokkrum
Settur hefur verið GPS-búnaður í alla
vagnana sem gerir farþegum kleift að
fylgjast með ferðum þeirra en stað-
setning þeirra uppfærist á um það
bil 10 sekúndna fresti. „Þetta er fyrsta
skrefið hjá okkur af nokkrum. Næsta
skref er að á þessum kortum munu
vagnarnir birtast með litakóða. Þá
mun liturinn segja til um hvort bíll-
inn aki samkvæmt áætlun. Ef hann
er orðinn aðeins of seinn gæti litur-
inn til dæmis verið gulur. Ef hann er
á undan áætlun, sem hann á alls ekki
að vera, gæti liturinn verið blár.“
Skrefið þar á eftir sé að koma með
sérstakt forrit fyrir farsíma. Einar seg-
ist vonast til þess að það verði komið
í notkun í mars en með því geti fólk
farið inn á snjallsímann sinn og séð
hvaða biðstöðvar eru nálægt og hve-
nær vagninn kemur þangað. Þetta sé
hægt þar sem allir snjallsímar séu út-
búnir GPS-tengingum.
Styttir biðtíma
Slík tækni hefur verið notuð í strætis-
vögnum erlendis og hefur reynst
vel, að sögn Einars. Aðspurður hvort
hann telji að þetta muni leiða til þess
að fleiri Íslendingar noti strætó segist
hann ekki viss um að einungis þessi
breyting verði til þess. „Þetta auð-
veldar hins vegar notkunina og gef-
ur miklu betri upplýsingar til okkar
notenda. Kosturinn hér innanbæjar
er að fólk sér hvar vagninn er stað-
settur. Þetta mun einnig vera hentugt
fyrir þá sem taka vagninn sem keyrir
um Suðurlandið. Segjum svo að þú
sért staddur á bóndabæ milli Hellu
og Hvolsvallar. Þá getur þú séð hvar
vagninn er nákvæmlega á netinu í far-
símanum í stað þess að labba niður
að afleggjara og bíða þar. Þetta styttir
væntanlega biðtíma hjá fólki þar.“
Einar segir enga byrjunarörðug-
leika eða hnökra hafa komið upp,
fyrir utan að hin gríðarlega notkun
á vefnum fyrsta daginn hafi komið
þeim á óvart og sett vefinn úr skorð-
um um tíma. „Það ætti að vera búið
að leysa það núna,“ segir Einar.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Hægt að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í símanum
Ný tækni styttir
biðtíma farþega
„Næsta skref er að
á þessum kortum
munu vagnarnir birtast
með litakóða. Þá mun
liturinn segja til um hvort
bíllinn aki samkvæmt
áætlun.
Einar Kristjánsson Er ánægður með
þessa nýju tækni.
Rauntímakort Mun segja
til um hvar vagninn er stað-
settur hverju sinni.
Fór fyrir brjóstið á sumum Sendiherrann
hefur ekki fengið kvartanir frá Norðmönnum.
Hætta á vatnstjónum:
Varað við
asahláku
Ef veðurspár fyrir helgina ganga
eftir má búast við mikilli hláku
um allt land, þá sérstaklega á
sunnudag. Á vef tryggingafélags-
ins VÍS má finna góð ráð til að
fyrirbyggja tjón af völdum vatns-
skemmda en talsverður snjór er
nú um allt land og víða mikill
klaki. Töluverð hætta er á vatns-
tjónum þegar hlýnar og rignir
og því beinir VÍS þeim tilmælum
til fólks að vera meðvitað um þá
hættu sem kann að skapast.
Mest hætta er á að leki inn í
kjallara og frá þökum og svölum.
Nauðsynlegt er tryggja að vatn
eigi greiða leið. Meðal þeirra
ráða sem VÍS bendir á er að
hreinsa frá öllum niðurföllum
sem eru nærri húsinu, hreinsa
snjó frá anddyrum kjallara og
niðurföllum þar, hreinsa frá
rennum og niðurföllum þaka,
sér í lagi flatra þaka. Það verður
þó að gera með mikilli varúð og
tryggja öryggi viðkomandi. Þá
bendir VÍS á að mikilvægt sé að
moka rásir meðfram húsum
til að vatn eigi greiða leið burt en
safnist ekki í tjarnir. Oft bráðn-
ar snjórinn fyrst upp við hús-
veggi og leitar þá inn í húsið eftir
sprungum í veggjum ef það á
ekki greiða leið burt. Þá er gott
að hreinsa allan snjó af svölum
og tryggja að niðurfall virki. Ef
svo er ekki er hægt að hella heitu
vatni ofan í niðurfallið. Ef vatn
safnast fyrir á svölum er hætta á
að það fari inn með plötuskilum
og leki síðan niður á næstu hæð.
Slíkt tjón getur verið erfitt að
laga því oft kemst talsvert vatn
inn í sprunguna.
Tryggingafélögum er ekki
skylt að bæta öll vatnstjón, til
dæmis ekki vegna vatns sem
kemur inn frá þökum, þakrenn-
um eða frárennslisleiðslum
þeirra eða frá svölum. Þá er
þeim ekki skylt að tryggja tjón
vegna vatns sem þrýstist upp um
frárennslislagnir nema ef leiðsl-
an stíflast eða springur innan
húss.
Jafnframt er mikilvægt að átta
sig á því að við þessar aðstæður
sem verða um helgina þá verður
mun meiri þungi í snjónum. Þá
er hætta á að þök og þakkantar
gefi sig ef snjór er ekki hreinsað-
ur af þökum og nú þegar hefur
verið tilkynnt um slík tjón til VÍS.