Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Qupperneq 12
12 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
ÚTSALA
allt að 50% afsláttur
www.lindesign.is
T
alið er að Eiður Smári Guð-
johnsen hafi þénað í kringum
sex milljarða króna á glæsileg-
um ferli sínum sem atvinnu-
maður í knattspyrnu. Þetta
kemur fram í samantekt áramótablaðs
Viðskiptablaðsins um tekjur knatt-
spyrnumannsins á ferlinum.
Trúlega hafa fáir Íslendingar þén-
að jafn ríkulega síðustu 10 ár og Eiður
Smári. Viðskiptablaðið rekur hvern-
ig laun hans tuttugufölduðust frá því
hann fékk sinn fyrsta samning hjá
Bolton með 30 milljónir króna á ári
og þar til hann skrifað undir hjá stór-
liðinu Chelsea árið 2000 með 600
milljónir króna í árslaun. Í millitíð-
inni hafði hann reyndar hækkað um
helming í launum hjá Bolton, upp í 60
milljónir á ári.
Eftir sex farsæl ár hjá Chelsea var
Eiður smári seldur til Barcelona árið
2006. Þar hækkaði hann enn meira í
launum og er hann sagður hafa þén-
að 750 milljónir króna á ári. Hann
lék með Barcelona í þrjú ár og miðað
við þær forsendur þénaði hann 2.250
milljónir króna á meðan hann lék
með liðinu.
Malaði gull
Eftir dvölina hjá Barcelona fór hann
til AS Monaco í Frakklandi haustið
2009, þar sem hann lækkaði heldur í
launum, en þó ekki svo mikið að hann
þyrfti að sýna ráðdeild við matarinn-
kaup til heimilisins. Hjá Monaco fékk
hann um 540 milljónir króna í árs-
laun. Hann entist þó ekki nema hálft
ár þar áður en hann var lánaður til
enska úrvalsdeildarliðsins Totten-
ham Hotspur.
Haustið 2010 gekk hann til liðs við
Stoke City á Englandi. Þar mun hann
hafa fengið um 286 milljónir króna í
árslaun og hélt þeim launum á með-
an hann var í láni hjá Fulham í sömu
deild.
Hann leikur nú með AEK í Grikk-
landi og fær um það bil 100 milljónir
króna í árslaun.
Háar skuldir
Á ferli sínum hefur Eiður Smári tapað
háum upphæðum í fjárhættuspilum.
Hann viðurkenndi árið 2003, þá 24
ára leikmaður Chelsea, að hann hefði
tapað um það bil 76 milljónum króna
í fjárhættuspilum. Hann byrjaði að
spila aðallega vegna þess að honum
leiddist.
Árið 2009 sagði DV frá því að Eið-
ur Smári skuldaði rúmar 1.200 millj-
ónir króna á móti rúmlega 800 millj-
óna króna eigum. Stærsti lánveitandi
Eiðs var Banque Haviland í Lúxem-
borg, áður Kaupþing í Lúxemborg, en
Eiður skuldaði bankanum tæpar 830
milljónir króna. Þá skuldaði hann Ís-
landsbanka um 385 milljónir króna á
sama tíma.
Ástæðan fyrir skuldum Eiðs
Smára var að hann hafði skuldsett sig
með fjárfestingum sem höfðu ekki
skilað honum miklu. Þeirra á meðal
voru fasteignaverkefni í Hong Kong
og Tyrklandi, auk fjárfestinga hér á
landi.
Knattspyrnumanninum líkaði
hins vegar ekki þessi umfjöllun og
stefndi ritstjórum og blaðamanni DV
fyrir að fjalla um fjármál hans. Hann
gerði ekki efnislegar athugasemdir
við fréttirnar en taldi að þarna væri
með ólöglegum hætti fjallað um hans
einkafjármál. Héraðsdómur Reykja-
víkur tók undir með Eiði Smára og
dæmdi DV til að greiða honum skaða-
bætur. Hæstiréttur Íslands snéri hins
vegar dómnum við og sýknaði DV og
starfsmenn þess af öllum kröfum Eiðs
Smára. Með því má líta svo á að um-
fjöllun um fjármál hans sé ekki refsi-
vert brot, eins og hann vildi meina.
Hefur haft það gott Eiður Smári hefur þénað meira en flestir Íslendingar síðustu 10 ár, en
hefur þrátt fyrir það skuldað bönkum háar fjárhæðir.
„Þar hækkaði
hann enn meira
í launum og er hann
sagður hafa þénað
750 milljónir króna á ári.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
n Eiður Smári Guðjohnsen hefur malað gull n Sagður hafa verið með
750 milljónir á ári hjá Barcelona n Illa við að fjallað sé um fjármál hans
Talinn hafa
þénað um
6 milljarða
Fjáröflunartónleikar:
Hinsegin kór
safnar fyrir
Færeyjaferð
„Við þurfum ekki að óttast for-
dóma, því Færeyingar eru gott
fólk, en það er mikilvægt að við
sýnum Færeyingum stuðning í
þessum málum,“ segir Ásta Ósk
Hlöðversdóttir, formaður Hin-
segin kórsins. Kórinn heldur
tónleika í Norræna húsinu á
laugardaginn klukkan 16.00. All-
ur ágóði af tónleikunum rennur í
ferðasjóð vegna ferðar kórsins á
Gay Pride í Færeyjum 2012. Rétt-
indabarátta Færeyinga er ef til
vill ekki eins langt á veg komin
og Íslendinga en því til stuðn-
ings má nefna að Jenis av Rana,
formaður Miðjuflokksins í Fær-
eyjum, taldi heimsókn Jóhönnu
Sigurðardóttur og sambýliskonu
hennar til Færeyja haustið 2010
vera ögrun.
Ásta Ósk segir að ný og öflug
hreyfing hafi sprottið upp í Fær-
eyjum og sé í mikilli sókn. Gam-
an sé að geta lagt þeirra baráttu
lið.
Ásta Ósk var í skiptinámi í
Þýskalandi þar sem hún kynnt-
ist sams konar kórstarfi. Hún
ákvað, þegar hún kom aftur
heim, að láta reyna á að stofna
hinsegin kór á Íslandi og fékk
strax góðar viðtökur. „Við byrj-
uðum strax að æfa í sumar en í
október fengum við kórstjóra til
liðs við okkur, Helgu Margréti
Marzellíusardóttur. Síðan höfum
við æft af krafti,“ segir hún og
bætir aðspurð við að þau séu
orðin nokkuð góð. Kórinn sam-
anstendur ekki bara af homm-
um og lesbíum heldur eru þar
einnig tvíkynhneigðir, transfólk
og gagnkynhneigðir, jafnt karlar
sem konur. Ásta Ósk tekur fram
að allir sem haldið geta lagi séu
velkomnir í kórinn, en kórinn
æfi í húsnæði Samtakanna 78 á
mánudagskvöldum klukkan átta.
Dagskráin á tónleikunum í
Norræna húsinu verður fjöl-
breytt að sögn Ástu Óskar, um sé
að ræða eins konar þrettánda-
tónleika þó tónleikarnir verði
haldnir fjórtánda janúar. „Þetta
verður blanda af ýmsum kórlög-
um; nýárslögum og jafnvel jóla-
lögum,“ segir hún glaðbeitt.
baldur@dv.is