Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 16
V
ið kynntum kröfuhöfunum
þá tímalínu sem við telj-
um okkur geta klárað þetta
á. Og við teljum okkur geta
gert það á tólf til átján mán-
uðum,“ segir Steinunn Guðbjarts-
dóttir, formaður slitastjórnar Glitn-
is, sem á kröfuhafafundi í desember
síðastliðnum skýrði kröfuhöfum frá
þeim áformum slitastjórnarinnar
að klára vinnu við nauðasamninga
bankans á þessu ári. Þegar bankinn
fer í nauðasamninga lýkur slitastjórn
þeim störfum sem hún hóf árið 2009
og kröfuhafar taka við bankanum
sem féll haustið 2008.
Frá bankahruni hafa skilanefndir
og slitastjórnir stóru bankanna ver-
ið mikið í sviðsljósinu. Hefur þeirri
umræðu jafnan fylgt umfjöllun um
ofurlaun nefndar- og stjórnarmanna
og gagnrýni á hversu langan tíma
þetta slitaferli hefur tekið. Nú sér
loks að einhverju leyti fyrir endann á
þeirri vinnu hjá Glitni og margmillj-
óna króna mánaðarlaunaveislu slita-
stjórnarmanna. Þó gæti slitastjórnin
þurft að fylgja eftir útistandandi
dómsmálum og öðrum verkefnum
fyrir Glitni. Eftir nauðasamninga og
þá fjárhagslegu endurskipulagningu
sem þeim fylgir verður skipuð ný
stjórn Glitnis og bankinn verður á ný
eins og hvert annað fyrirtæki.
Kröfuhafar setja ekki tímamörk
Í samtali við DV segir Steinunn verk-
efnið við Glitni gríðarflókið og að í
mörg horn sé að líta. „Þetta er gríð-
arlega stórt, eitt stærsta gjaldþrot
í heimi, og þessu verður ekki hent
upp á viku.“ Þrátt fyrir að Steinunn
hafi kynnt tólf mánaða tímalínu fyr-
ir kröfuhöfum segir hún enn margt
geta komið upp á, vonandi taki loka-
hnykkurinn styttri tíma, en hann gæti
líka tekið lengri. Aðspurð segir hún
kröfuhafana ekkert hafa um það að
segja hversu langan tíma slitastjórn-
in telji sig þurfa til að ljúka verkefn-
um sínum. „Auðvitað vilja kröfuhaf-
arnir alltaf að þetta gangi hraðar fyrir
sig og við látum þetta ganga eins hratt
og við getum. En þeir hafa haft mik-
inn skilning á því við hvað sé verið að
fást og eru sammála því uppleggi okk-
ar að það sé betra að gera þetta vel og
tryggja að hlutirnir gangi upp í stað
þess að kasta til þess höndunum.“
Þrátt fyrir að þeir níu þúsund
kröfuhafar, sem lýst hafa 3.600 millj-
arða króna kröfum í þrotabú Glitnis,
geti ekki sett tímamörk segir Steinunn
það af og frá að slitastjórnin sitji og
starfi án aðhalds. „Þetta er hópur sem
hefur mikilla hagsmuna að gæta. Við
erum meðvituð um að við erum að
vinna að því að koma þessum eignum
og peningum til þeirra.“
„Veiðiferðin“ kostaði sitt
Ein af opinberustu orrustunum sem
slitastjórn Glitnis hefur háð er mál-
sóknin í New York gegn Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni,
Hannesi Smárasyni og fjórum öðrum
úr eigenda- og stjórnendahópi bank-
ans. Slitastjórnin hugðist þar sækja
umtalsverðar bætur frá sjömenning-
unum sem gefið var að sök að hafa
með glæpsamlegum hætti náð hundr-
uð milljörðum úr Glitni á góðæristím-
anum. Á miðvikudag var greint frá því
að málið hefði verið látið niður falla.
Samdægurs sagði Jón Ásgeir á DV.is að
hann ætlaði að krefjast skaðabóta frá
þrotabúi Glitnis vegna aðfaranna sem
hefðu kostað hann margar milljónir
á mánuði í lögfræðikostnað. „Stein-
unn hefur eytt 18 milljónum dala af
fé kröfuhafa Glitnis en ekki ein króna
hefur komið í kassann í þessari ótrú-
legu veiðiferð,“ sagði Jón Ásgeir.
„Sú tala er algjörlega „gripin upp
úr hatti“. Ég hef aldrei séð þá tölu áður.
Ég veit ekki hvaðan hann fær hana en
hún er ekki rétt,“ segir Steinunn að-
spurð um fullyrðinguna en hún kveðst
þó ekki geta upplýst hvað málaferlin í
New York kostuðu. Hún viti þó að það
var hvergi nærri 18 milljónum dala.
New York-málið til Íslands
Það er gríðarlega kostnaðarsamt að
reka svona stór dómsmál í Bandaríkj-
unum og með undirbúningsvinnu og
öðru er ljóst að þrotabúið hefur varið
talsverðum fjármunum í málið sem
engu skilaði. „Það hefur verið kynnt
fyrir kröfuhöfum hvað þetta kostaði
og aldrei neinar athugasemdir verið
gerðar við það,“ segir Steinunn. Að-
spurð hvort „veiðiferðin“ njóti stuðn-
ings kröfuhafa segir hún þá gera sér
grein fyrir því að ein af skyldum slit-
astjórnarinnar sé að rannsaka og
endurheimta eftir bestu getu. Slit-
astjórnin virðist þó hvergi nærri hætt
að sækja málið því næsta skref er að
fara með það fyrir íslenska dómstóla
að sögn Steinunnar. „Það hefur alltaf
legið fyrir. Við erum bara að undir-
búa það,“ segir Steinunn.
16 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
Innritun stendur yfir
Á skrifstofutíma mánudag-
fimmtudag kl. 14:00-18:00
Kennslan hefst
17. janúar 2012
Nánari upplýsingar í síma:
564 1134 og 564 1195
og á heimasíðu skólans
www.myndlistaskoli.is
Minnst ár í að
veislunni ljúki
n Tólf mánaða tímalína kynnt kröfuhöfum Glitnis n Slitastjórnin telur sig geta
klárað nauðasamninga á þeim tíma n „Veiðiferðin“ í New York færð til Íslands
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Ofurlaunin eru umdeild
n Fengu 287 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins
Þ
eir sem sitja í slitastjórnum
hafa engan hag af því að
ljúka vinnu sinni hratt og
vel,“ skrifaði hæstaréttarlög-
maðurinn Jón Magnússon á blogg-
síðu sína í nóvember síðastliðnum.
„Þvert á móti hefur slitastjórna-
fólkið hag af því að draga þetta sem
lengst af því að meðan svo er getur
það haldið áfram að skammta sér
starfskjör eins og ekkert hafi í skor-
ist,“ bætti Jón við. Þessi skoðun lög-
mannsins er lýsandi því laun slit-
astjórnarmanna hafa frá upphafi
verið afar umdeild eftir að fyrstu
fréttir bárust af þeim upphæðum
sem þar er um að ræða. Jón og fleiri
hafa líkt greiðslunum við sjálftöku.
Samkvæmt ársreikningi Glitnis
fyrir árið 2010 fengu skilanefnd og
slitastjórn bankans, sem á þeim
tíma taldi fimm manns, samtals 348
milljónir króna í þóknanir það ár. Sé
meðaltalið skoðað var hver þeirra
með tæplega 70 milljónir króna
í árslaun, eða tæpar 6 milljónir á
mánuði. Þó voru eflaust formenn-
irnir á hærri launum en hinir. Sam-
kvæmt uppgjöri Glitnis fyrir þriðja
ársfjórðung 2011 námu laun sama
hóps 287 milljónum króna fyrstu 9
mánuði ársins. Að því gefnu að síð-
asti ársfjórðungur hafi verið svip-
aður fengu fimmmenningarnir hátt
í 380 milljónir á síðasta ári. Launa-
greiðslur sem þessar eru fáheyrðar
á Íslandi eftir hrun og hafa oftar en
einu sinni orðið til þess að Stein-
grímur J. Sigfússon, þáverandi fjár-
málaráðherra, hefur, meðal ann-
arra, gagnrýnt þær opinberlega og
talað um að þessu yrði að breyta.
Ekkert hefur þó orðið af því.
Í dag heyrir skilanefnd Glitnis
sögunni til í kjölfar lagabreytinga.
Eftir standa Steinunn og Páll Eiríks-
son í slitastjórninni sem hefur tek-
ið yfir verkefni nefndarinnar. Þau
munu þiggja sambærileg ofurlaun
út næsta árið hið minnsta.
Formaðurinn Steinunn Guðbjartsdóttir er formaður slitastjórnar Glitnis.
Minnst ár í viðbót Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, hefur kynnt
þau markmið fyrir kröfuhöfum að nauðasamningar bankans verði kláraðir á næstu 12–18
mánuðum.
„Veiðiferðin“ ekki búin Jón Ásgeir er
meðal sjömenninganna sem stefnt var fyrir
dómstól í New York af slitastjórninni. Hann
mun krefjast bóta en slitastjórnin mun
reyna aftur fyrir íslenskum dómstólum.
MYNd SiGTrYGGur Ari