Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 23
Erlent 23Helgarblað 6.–8. janúar 2012 n Japanskur hryðjuverkamaður gaf sig fram við lögreglu eftir 17 ár á flótta N ú um stundir reyta margir gyðingar, jafnvel strangtrú- aðir, í Ísrael eflaust hár sitt og skegg. Í það minnsta hef- ur fjöldi gyðinga sem lifðu af helförina og pólitískir leiðtogar látið í ljósi forundran og reiði vegna aðgerða öfgasinnaðra, strangtrúaðra gyðinga (e. ultra-orthodox Jews) sem gripu til þess ráðs í nýlegum mótmælum að klæðast fatnaði sem líkist þeim sem gyðingar í útrýmingarbúðum nasista klæddust og flagga davíðsstjörnu í anda sama tíma. Mótmælin, sem þúsundir öfgas- innaðra gyðinga tóku þátt í, fóru fram um áramótin og tilgangur þeirra var að sögn þátttakenda að mótmæla lífsstíl gyðinga í Ísrael og berjast fyrir ströngum reglum varðandi aðskilnað kynja – skoðun sem á ekki upp á pall- borðið hjá meginþorra ísraelskra gyð- inga. Í tímaritinu Newsweek er sagt frá konu að nafni Rachel Weinstein sem upplifði nýlega það sem hún nefnir Rosu Parks-andartakið sitt með skír- skotun til Rosu Parks, bandarískrar blökkukonu sem neitaði að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni í Montgomery í Alabama árið 1955. Þá voru fremstu sætin ætluð hvítu fólki og þeldökkum farþegum var gert að færa sig aftar í strætisvagna ef þörf krafði. Rosa var ákærð og dæmd til að greiða sekt, en málið hratt af stað öldu mótmæla og blökkumenn sniðgengu strætisvagna í Montgomery. Húðskömmuð fyrir virðingarleysi En áðurnefnd Rachel steig, einu sinni sem oftar, upp í strætisvagn og hugð- ist fara í verslunarmiðstöð í heimabæ sínum. Vissi hún ekki fyrr en maður vatt sér að henni og benti henni á að fara aftur í vagninn þar sem hún sá að sátu konur eingöngu. „Reyndar beindi hann máli sínu að eiginmanni mínum, sem var með mér,“ segir Rachel í viðtali við News- week. Í stað þess að verða við fyrir- mælunum tók Rachel sér sæti rétt fyrir aftan bílstjórann og varð ekki hnikað. Reyndar gerði ein kona sér ferð fram í vagninn og húðskammaði Rachel fyrir virðingarleysi. Það er kaldhæðnislegt að Rachel, sem telur sig hófsaman strangtrúar- gyðing, er upprunnin í New York-borg en flutti til Ísrael fyrrihluta síðasta árs til að vera í samfélagi við gyðinga sem væru „líkt þenkjandi“ og hún. Atvikið hafði mikil áhrif á Rachel sem yfirgaf strætisvagninn eftir nokkrar mínútur og brast í grát. Háðsglósur og hrákar Öfgasinnaðir gyðingar hafa gengið svo langt að veitast að stúlkum með háðsglósum ef þeir telja klæðnað þeirra blygðunarlausan. Sá háttur öf- gasinnaðra gyðinga hefur ekki orð- ið málstað þeirra til framdráttar og þeir fengið bakslag í seglin fyrir til- raunir sínar til að koma á aðskilnaði kynjanna í strætisvögnum og á opin- berum stöðum. Í einum bæ gengu þeir svo langt að láta ekki nægja að svívirða stúlk- ur á leið til skóla með orðum heldur létu hráka rigna yfir þær. Sök stúlkn- anna var að klæðnaður þeirra fór fyr- ir brjóstið á hinum öfgasinnuðu gyð- ingum. Fyrrnefnd mótmæli áttu sér stað á síðasta degi nýliðins árs og sagði talsmaður Yad Vashem, sem heldur minningu fórnarlamba helfararinn- ar í síðar heimsstyrjöldinni á lofti, að aðferðir öfgasinnaðra gyðinga væru „smánarlegar“. Aðferðin sem skírskot- að er til var notkun minna frá valdatíð nasista og fannst mörgum sem lifðu helförina af og stjórnmálamönnum að þeir sem stóðu að mótmælunum hefðu lagst helsti lágt; börn með hefð- bundna hárlokka voru íklædd rönd- óttum fötum sem tíðkuðust í útrým- ingarbúðum nasista. Til að bæta gráu ofan á svart var eitt barn með upprétt- ar hendur sem tákn um uppgjöf og var þar skírskotað til einnar frægustu ljósmyndar þeirra myrku tíma – sem sýnir skelfdan gyðingadreng á götu í Varsjá. Um sex milljónir gyðinga voru drepnar af þýskum nasistum og sam- verkamönnum þeirra í síðari heims- styrjöldinni og um 200.000 þeirra sem lifðu helförina af búa í Ísrael. Tíu prósent ísraelsku þjóðarinnar Greinarhöfundur Newsweek, Dan Ephron, telur að áhrif þeirrar þróun- ar sem á sér stað í Ísrael muni með tíð og tíma teygja anga sína upp fyrir ná- grannaþrætur um aðskilnað í strætis- vögnum eða klæðnað stúlkna. Í heimabæ Rachel Weinstein, Beit Shemesh, og víðar í Ísrael hafa öf- gasinnaðir, strangtrúaðir gyðingar reynt að koma á laggirnar samfélög- um guðsótta – ströngum hegðunar- reglum sem meðal annars taka til að- skilnaðar kynja á opinberum stöðum. Þessi áform, segir Ephron, ganga í bága við þær hugmyndir sem stofn- endur Ísraelríkis höfðu. Þeir voru ver- aldlega sinnaðir og sáu fyrir sér ríki sem byggði á nútímalegum þanka- gangi og jafnrétti, segir Ephron. Ísra- el býr að því sama og önnur frjálslynd ríki; framsæknum lögum, framúr- skarandi háskólum, bikiníklæddum konum á ströndinni og konum í stjórnmálum og viðskiptum. En þeim hefur farið fjölgandi sem hugnast ekki það sem nýmóðins er og öfgas- innaðir gyðingar – haredi-gyðingar – eru nú um tíu prósent þjóðarinnar og tuttugu og eitt prósent allra grunn- skólanema. Að mati lýðfræðinga mun fimmtungur ísraelsku þjóðar- innar teljast til þessa hóps árið 2034 og byggist matið á þeirri staðreynd að tíðni barneigna innan þessa hóps er þreföld miðað við aðra ísraelska gyð- inga. Sem dæmi má nefna Modiin Il- lit, þar sem búa um 60.000 haredi- gyðingar, sem liggur miðja vegu milli Jerúsalem og Tel Aviv. Sú borg er ein þeirra sem stækka örast í Ísrael og talsmaður samfélagsins, Yehiel Sever, segir: „Í fjölskyldum hér eru að með- altali tíu börn, eða fleiri.“ Sami þriðjungurinn Í grein Ephrons segir að flesta öfga- trúaða gyðinga skorti hæfileika til að starfa í nútímasamfélagi, þá skorti stærðfræði- og vísindaþekkingu um- fram það sem kennt er í grunnskól- um. Af því leiðir að 60 prósent haredi- gyðinga eru undir fátæktarmörkum samanborið við tólf prósent annarra gyðinga. Flestir haredi-gyðinga kjósa að sleppa herþjónustu, sem öðrum Ísra- elum er skylt að sinna, og fyrir vikið hvíla byrðar herkvaðningar og skött- unar á sífellt færri herðum. Frelsi ha- redi-gyðinga undan herskyldu má rekja til stofnunar Ísraelsríkis þegar David Ben-Gurion tryggði sér stuðn- ing rabbína með heilmikilli tilslök- un sem heimilaði átján ára haredi- gyðingum að halda áfram trúarlegu námi í stað þess að sinna herskyldu. Þá var fjöldi þeirra haredi-gyð- inga sem kusu nám umfram her- þjónustu einhver hundruð en hefur nú margfaldast og þeirri þróun getur reynst erfitt að breyta. Í stað launaðr- ar vinnu sitja haredi-gyðingar með augun límd við Tóra-fræði á styrk frá hinu opinbera. Að sögn Ephrons hafa veraldlegir gyðingar ástandið í flimtingum, en þó ekki án gremju; þriðjungur þjóðar- innar sinnir herskyldu, þriðjungur er á vinnumarkaði og þriðjungur greiðir skatta – en það er allt sami þriðjung- urinn. Öfgar valda ólgu í ísrael n Öfgasinnaðir, strangtrúaðir gyðingar í Ísrael valda reiði n Vilja hertar reglur um samgang kynjanna á opinberum stöðum n Hrákum og háðsglósum rignir yfir „ósiðlega“ klæddar skólastúlkur Kolbeinn Þorsteinsson blaðamaður skrifar kolbeinn@dv.is „ Í einum bæ gengu þeir svo langt að láta ekki nægja að sví- virða stúlkur á leið til skóla með orðum heldur létu hráka rigna yfir þær. Mótmæli haredi-gyðinga Íklæddust fangabúningum í anda helfararinnar. Í uppgjöf Skírskotun til frægrar myndar sem tekin var í Varsjá í síðari heimsstyrjöldinni. Aðskilnaður Haredi-gyðingar vilja meðal annars aðskilnað kynjanna í strætisvögnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.