Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Side 38
30 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
I
ngólfur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp til 1949 en síðan
í Mosfellsbæ. Hann stundaði
nám við Iðnskólann í Reykja-
vík, lauk sveinsprófi í rafvirkjun
1964, lauk meistaranámi í rafvirkjun
í Danmörku 1967 og öðlaðist lands-
löggildingu 1968.
Ingólfur lærði rafvirkjun hjá Raf-
geisla 1964, Sigurði Kjartanssyni,
starfaði í Leomotor A/S í Kaup-
mannahöfn 1964–65, Axel Aker-
mann A/S í Óðinsvéum 1966, hjá
Gunnari Jónssyni 1967, Fosskrafti,
Búrfellsvirkjun 1967–69 og hefur
stundað eigin atvinnurekstur í Mos-
fellsbæ frá 1969, Mosraf ehf.
Ingólfur stofnaði fyrirtækið Nano-
tækni ehf. árið 2005, sem sérhæfir sig
í innflutningi á efnum til yfirborðs-
meðhöndlunar á steinsteypu, gleri
og ýmsum öðrum efnum.
Ingólfur hefur verið formaður
Landssambands íslenskra rafverk-
taka, hefur setið í byggingarnefnd
Mosfellsbæjar, í byggingarnefnd
íþróttahúss Mosfellsbæjar, verið
varamaður í hreppsnefnd Mosfells-
bæjar og formaður handknattleiks-
deildar Aftureldingar og formaður
Ungmennafélagsins Aftureldingar.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 20.9. 1964 Kristjönu
E. Friðþjófsdóttur, f. 20.1. 1945, skrif-
stofumanni. Hún er dóttir Friðþjófs
Björnssonar, f. 1.9. 1920, d. 31.8. 2001,
og Ingibjargar Jónu Marelsdóttur, f.
29.8. 1925, d. 8.11. 1994.
Dætur Ingólfs og Kristjönu eru
Ingibjörg Bryndís, f. 3.12. 1965, dag-
vistarráðgjafi en maður hennar er
Haraldur Magnússon, f. 4.8. 1964 og
eru börn þeirra Árni Gunnar Har-
aldsson, f. 18.11. 1983, rafvirki, Silja
Haraldsdóttir, f. 27.10. 1989, nemi og
Signý Haraldsdóttir, f. 28.8. 1993 nemi,
en dóttir Silju er Sandra Guðbjarts-
dóttir, f. 19.5. 2008; Hlín Ingólfsdóttir,
f. 10.8. 1968, skrifstofumaður en sonur
hennar er Ingólfur Örn Sigurbjörns-
son, f. 9.6. 1994.
Systkini Ingólfs eru Auður Árna-
dóttir, f. 26.6. 1936, d. 13.10. 1910, var
verslunarmaður í Hafnarfirði, gift Her-
manni Þórðarsyni; Svala Árnadóttir, f.
1.12. 1939, húsmóðir á Kjalarnesi, gift
Birni Kjartanssyni; Hlín Árnadóttir,
f. 15.8. 1945, íþróttakennari, búsett í
Garðabæ, gift Katli Árnasyni; Einar
Árnason, f. 26.6. 1948, erfðafræðingur
í Reykjavík, kvæntur Katrínu Halldórs-
dóttur; Páll Árnason, f. 18.6. 1951, raf-
tæknifræðingur í Danmörku, kvæntur
Kristínu Önnu Einarsdóttur.
Foreldrar Ingólfs eru Árni Yngvi
Einarsson, f. 17.1. 1907, d. 5.4. 1979,
framkvæmdastjóri Reykjalundar
1948–1977 og Hlín Ingólfsdóttir, f.
20.9. 1909, d. 8.11. 1993.
Ingólfur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Þ
orbjörg fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hún lauk
gagnfræðaprófi, lauk síðan
prófi sem snyrtifræðingur
og prófum frá Póstskólan-
um.
Þorbjörg starfaði við snyrtiversl-
unina Hygea, var yfirpóstafgreiðslu-
maður í Póststofunni í Reykjavík,
gjaldkeri við Landsbanka Íslands,
Múlaútibú, og hefur síðan stundað
skrifstofu- og sölustörf hjá XCO ehf.
Þorbjörg hefur verið gjaldkeri,
ritari og forseti málfreyjufélagsins,
hefur verið ritari og formaður Hvíta-
bandsins, varaformaður Vinafélags
Blindrabókasafnsins og verið forseti
og setið í stjórn Inner Wheel Reykja-
vík í Breiðholti.
Fjölskylda
Þorbjörg giftist 19.9. 1968 Sigtryggi
Rósmar Eyþórssyni, f. 8.7. 1941,
framkvæmdastjóra. Hann er son-
ur Eyþórs Magnúsar Bæringssonar
kaupmanns og Fjólu Jósefsdóttur
húsmóður.
Börn Þorbjargar og Sigtryggs eru
Fjóla Guðrún, f. 22.8. 1969, verk-
fræðingur, gift Eggert Vilberg Val-
mundssyni, f. 24.5. 1969, verkfræð-
ingi og eru börn þeirra Þorbjörg
Gróa, f. 9.12. 2009, og Valmundur
Rósmar, f. 9.12. 2009; Magnús
Rósmar, f. 6.3. 1972, flugmaður,
kvæntur Helenu Gylfadóttur, f.
19.10. 1969, leikskólastjóra og eru
dætur þeirra Margrét Rósa, f. 22.1.
1998, og Ásta Halldóra , f. 2.1. 2002;
Guðmundur Rósmar, f. 14.11. 1974,
sölustjóri en kona hans er Brynja
Stephanie Swaan, f. 4.11. 1975, lög-
fræðingur og eru börn þeirra Þor-
björg, f. 15.5. 2001, og Edward Dag-
ur, 13.8. 2004.
Systkini Þorbjargar eru Mar-
grét Guðmundsdóttir, f. 16.8. 1945,
fyrrv. skrifstofustjóri hjá Ríkisút-
varpinu, búsett í Kópavogi; Sigríð-
ur Björg Guðmundsdóttir, f. 25.10.
1948, starfsmaður við hjúkrunar-
og dvalarheimilið í Búðardal, bú-
sett í Búðardal.
Foreldrar Þorbjargar: Guð-
mundur Kristjánsson, f. 21.11.
1909, d. 29.3. 1998, skipamiðlari í
Reykjavík, og Gróa Ólafsdóttir, f.
5.7. 1916, d. 31.10. 2007, verslunar-
maður.
Ætt
Guðmundur var bróðir Helgu, móð-
ur Gerðar G. Bjarklind útvarpskonu.
Bróðir Guðmundar var Magnús
skrifstofustjóri, faðir Jóns Hákonar,
framkvæmdastjóra, fjölmiðlamanns
og fréttaritara Financial Times um
árabil. Guðmundur var sonur Krist-
jáns, verslunarstjóra Ásgeirsverslun-
ar og síðar Sameinuðu verslananna á
Flateyri Ásgeirssonar, b. á Skjaldfönn
í Nauteyrarhreppi við Djúp Ólafs-
sonar og Steinunnar Jónsdóttur, b.
í Grænanesi, bróður Daða fróða og
Sveins, prófasts á Staðastað, föð-
ur Hallgríms biskups og afa Sveins
Björnssonar forseta, Ólafs Björns-
sonar, ritstjóra Morgunblaðsins, og
Haralds Níelssonar prófessors.
Móðir Guðmundar var Þorbjörg
kennari Guðmundsdóttir, b. í Höll í
Dýrafirði Eggertssonar sem var ætt-
aður frá Ingjaldssandi, og Elínborgar
Jónsdóttur, b. á Sveinseyri Hákon-
arsonar, prófasts á Eyri í Skutuls-
firði Jónssonar, hreppstjóra, dbrm.
og ættföður Deildartunguættar Þor-
valdssonar.
Gróa var systir sr. Eggerts Ólafs-
sonar, pr. á Kvennabrekku í Dölum.
Gróa var dóttir Ólafs Kristins, báts-
manns á bv. Skallagrími og síðar
Reykjaborginni Teitssonar, útvegsb.
á Vatnsleysuströnd Þorleifssonar.
Móðir Ólafs Kristins var Gróa Árna-
dóttir. Móðir Gróu Ólafsdóttur var
Vilborg Magnúsdóttir, b. á Innri-
Ásláksstöðum á Vatnsleysuströnd
Magnússonar, b. þar Sigurðsson-
ar. Móðir Magnúsar Magnússonar
var Þorbjörg Sigurðardóttir, b. að
Suðurkoti á Vatnsleysuströnd Guð-
mundssonar, b. á Reynivöllum í
Kjós Jónssonar. Móðir Sigurðar var
Margrét Þóroddsdóttir, b. á Ingunn-
arstöðum í Brynjudal Sigurðssonar,
og Guðrúnar Jónsdóttur, ættföður
Fremra-Hálsættar Árnasonar. Móð-
ir Þorbjargar var Helga Jónsdóttir.
Móðir Vilborgar var Ingibjörg, dóttir
Jóns Teitssonar, og Vilborgar Eiríks-
dóttur.
Þorbjörg Guðmundsdóttir
Skrifstofumaður í Reykjavík
Ingólfur Árnason
Rafverktaki í Mosfellsbæ
70 ára á laugardag
70 ára á laugardag
K
ristín fæddist í Grísatungu í
Borgarfirði og ólst þar upp
til 1926 en síðan í Akurholti
á Snæfellsnesi.
Kristín og eiginmaður
hennar starfræktu gróðrarstöðina
Sólvang í Fossvogi um árabil frá því
á stríðsárunum og fram yfir 1970 og
voru þá búsett í Fossvoginum. Gróðr-
arstöðin var lögð niður er Kringlu-
mýrarbrautin var lögð. Þau stofnuðu
síðan blómabúðina Dögg í Álfheim-
um og starfræktu hana til margra ára
auk þess sem þau ráku blómabúð í
Hafnarfirði í nokkur ár.
Kristín hefur starfað mikið með
St. Georgs-skátum.
Fjölskylda
Kristín giftist 12.12. 1942 Jónasi Sig-
urði Jónssyni, f. 9.7. 1917, d. 30.5.
1987, garðyrkjumanni og fram-
kvæmdastjóra. Hann var sonur Jóns
Jónassonar, bónda á Vestra-Miðfelli á
Hvalfjarðarströnd, og k.h., Ingveldar
Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Kristínar og Jónasar eru
Magnús Jónasson, f. 15.7. 1944, fram-
reiðslumaður og garðyrkjumað-
ur, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur
Sigur björgu Kristjánsdóttur verslun-
armanni og eru börn þeirra Anton, f.
19.3. 1966, Jónas, f. 24.10. 1968, Krist-
ján, f. 4.2. 1970, Rut, f. 21.4. 1971 og
Jónas Trausti, f. 26.9. 1965; Kristján
Jónasson, f. 4.5. 1947, bókagerðar-
maður, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Kristínu Brynjólfsdóttur skrifstofu-
manni og eru börn þeirra Kristín
Halldóra, f. 28.5. 1966, Bryndís Björk,
f. 17.7. 1968 og Elmar Freyr, f. 25.5.
1974; Ásmundur Jónasson, f. 21.12.
1948, blómaskreytingarmeistari og
framkvæmdastjóri, búsettur í Hafn-
arfirði, kvæntur Halldóru Hermanns-
dóttur húsmóður og eru börn þeirra
Hermann Smári, f. 7.3. 1970, Marín,
f. 21.12. 1972, og Bjarki Reyr, f. 6.9.
1975; Jón Ingvar Jónasson, f. 25.7.
1958, skrúðgarðyrkjumeistari, bú-
settur á Seltjarnarnesi, kvæntur Hall-
dóru Gröndal hjúkrunarfræðingi og
eru börn þeirra Þóra Hrund, f. 22.11.
1988, og Kristinn Ingi, f. 18.6. 1993,
auk þess sem dóttir Halldóru er María
Kristín, f. 29.10. 1980, og sonur Jóns
Ingvars er Gunnar Ingi, f. 26.5. 1981.
Sambýlismaður Kristínar var
Þórður Sigurðsson, f. 2.9. 1920, d.
6.11. 2006, útgerðarmaður og stýri-
maður á Akranesi.
Systkini Kristínar; Guðmundur
Kristjánsson, f. 5.6. 1924, fyrrv. bóndi
í Hofgörðum í Staðarsveit; Narfi
Kristjánsson, f. 8.4. 1926, fyrrv. bóndi
í Hoftúnum í Staðarsveit; Þuríður
Kristjánsdóttir, f. 19.5. 1929, húsmóð-
ir í Ólafsvík; Guðbjartur Kristjáns-
son, f. 26.2. 1932, d. 18.3. 1992, bóndi
á Lækjamóti í Miklaholtshreppi;
Oddný Kristjánsdóttir, f. 2.2. 1935,
d. 2.4. 2009, húsfreyja í Rauðanesi í
Borgar hreppi; Gunnar Kristjánsson, f.
4.12. 1936, bóndi á Fáskrúðarbakka í
Miklaholtshreppi; Sigurvin Kristjáns-
son, f. 4.12. 1936, d. 22.6. 2007, bóndi
á Fáskrúðarbakka; Jóhanna Sigríður
Kristjánsdóttir, f. 11.12. 1939, d. 2.2.
1943; Jóhann Sigurður Kristjánsson, f.
29.4. 1943, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Kristínar voru Kristján
Guðmundsson, f. 16.11. 1892, d. 1.2.
1961, bóndi í Akurholti og á Fáskrúð-
arbakka, og k.h., Veronika Narfadóttir,
f. 1.1. 1899, d. 30.4. 1985, húsfreyja.
Ætt
Kristján var sonur Guðmundar Þór-
arinssonar, í Kolviðarnesi og Hauka-
tungu, og k.h., Oddnýjar Kolbeins-
dóttur húsfreyju.
Veronika var dóttir Narfa Jóns-
sonar, b. í Grísatungu, og k.h., Þuríð-
ar Jónsdóttur húsfreyju.
Kristín Halldóra Kristjánsdóttir
Húsmóðir og fyrrv. verslunarmaður
90 ára á sunnudagE
inar fæddist á Seyðisfirði. Að
loknu barna- og unglinga-
námi stundaði hann iðn-
skólanám og lauk sveins-
prófum í vélvirkjun og
rafsuðu frá Iðnskólanum á Seyðis-
firði.
Einar hefur stundað verkamanna-
störf, sjómennsku, verið verslunar-
maður, vélvirki og rafsuðumaður.
Hann var lagermaður hjá Varnarlið-
inu og síðan vagnstjóri hjá Hagvögn-
um til 2010.
Einar hefur verið búsettur á Seyð-
isfirði, Egilsstöðum, í Reykjavík, á
Akranesi og er nú búsettur í Reykja-
nesbæ.
Fjölskylda
Eiginkona Einars er Mariena Mar-
grét Einarsson, f. 1.10. 1952, hús-
móðir. Hún er dóttir Gregorio Oyod
og Cenalitu Sarchez Siney Oyod sem
eru bændur.
Börn Einars eru Rúdolf Franc-
is Einarsson, f. 13.4. 1974, búsettur í
Reykjanesbæ en kona hans er Aileen
Einarsson og eru börn hans Helgi
Francis, Rodielen Rós og Rúdolf
Francis; Einar Mark Einarsson, f. 12.7.
1976, búsettur í Garðinum, kvæntur
Kalayaan G. Mercado, f. 21.12. 1972
og eru börn þeirra Niel Einar Christi-
an Troy Einarsson, Tómas og Einar-
ína Angela Elisabeth; Aiddy Krist-
ín Einarsdóttir, f. 18.9. 1979, búsett
í Reykjanesbæ en sambýlismaður
hennar er Eyj-
ólfur Leos Leos-
son, og eru börn
hennar Hafrún
Ólöf Karlsdóttir,
Sebastian Freyr
Karlsson, Karl
Diego Karlsson
og Mariena Mist
Eyjólfsdóttir;
Vala Grand Gregory Einarsdóttir, f.
19.4. 1986, búsett í Kópavogi en sam-
býlismaður hennar er Eyjólfur Krist-
insson.
Bræður Einars eru Hallgrímur
Már Einarsson, f. 4.3. 1943, búsettur
á Seyðisfirði en kona hans er Stein-
unn Eldjárnsdóttir, f. 15.8. 1950 og
er sonur þeirra Eldjárn Már Hall-
grímsson, f. 16.4. 1977; Guðmundur
Örn Einarsson, f. 7.8. 1945, búsettur í
Reykjanesbæ en sambýliskona hans
er Jóhanna Guðmundsdóttir og eru
börn hans Einar Sveinn Guðmunds-
son, f. 27.1. 1967, og María Guð-
mundsdóttir, f. 11.7. 1971.
Foreldrar Einars: Einar Sveinn
Pálsson, f. 8.8. 1916, d. 27.7. 1984,
vélstjóri í Keflavík, og Margrét Hall-
grímsdóttir, f. 21.8. 1918, d. 19.8.
2005, húsmóðir í Keflavík.
Ætt
Einar var sonur Páls Sigurðssonar
bónda og Jónu Sigurbjargar Guð-
mundsdóttur.
Margrét er dóttir Hallgríms Óla-
sonar, útvegsb. á Skálanesi á Seyðis-
firði, og Maríu Guðmundsdóttur.
Einar Valur Einarsson
Járnsmiður í Reykjanesbæ
60 ára á föstudag