Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Side 9
Fréttir 9Mánudagur 6. febrúar 2012
Sitja þrátt fyrir risatap
Svona skiptist tapið
Tap lífeyrissjóðanna á hluta- og skuldabréfum nam á árunum 2008 og 2009 389
milljörðum króna. Lauslega áætlað samsvarar það þeirri upphæð sem fimmtíu þúsund
einstaklingar í fullri vinnu á meðallaunum greiða í lífeyrissjóð alla sína ævi, miðað við
núverandi verðlag. Fram kemur í skýrslunni að tap sem rekja má til félaga tengdum
Exista nam 171 milljarði króna og Baugi Group 77 milljörðum. Tapið á þessum viðskipta-
blokkum vegi langþyngst í heildartapi lífeyrissjóðanna.
Grafið sýnir á hvaða hlutabréfum lífeyrissjóðirnir töpuðu mest, stjórnendur félaganna
og hvað upphæðin jafngildir ævi-lífeyrisgreiðslum margra launamanna.
Forsendurnar útreikninganna miðast við launamann sem hefur 350 þúsund krónur í
laun á mánuði. Hann greiðir um 170 þúsund í lífeyrissjóð á ári. Á 47 ára starfsævi greiðir
hann rétt liðlega 8 milljónir í lífeyrissjóð.
Kaupþing banki
95 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
11.900 manns
Forstjóri: Hreiðar Már Sigurðsson
Glitnir banki
48 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
6.000 manns
Forstjóri: Lárus Welding
Bakkavör Group
39 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
4.900 manns
Stjórnendur: Lýður og Ágúst Guðmundssynir
Exista
37 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
4.600 manns
Aðaleigendur: Lýður og Ágúst Guðmundssynir
Landsbanki Íslands
30 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
3.800 manns
Bankastjórar: Sigurjón Þ. Árnason og
Halldór J. Kristjánsson
Straumur-Burðarás
26 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
3.300 manns
Aðaleigandi: Björgólfur Thor Björgólfsson
Landic Property
12 milljarðar
Ævilífeyrisgreiðslur
1.500 manns
Aðaleigendur: Jón Ásgeir Jóhannesson
(FL Group) og Pálmi Haraldsson (Fons)
Þ
etta þýðir mesta skerðingu
til þeirra sem eru komnir
á eða fara fljótlega á eftir-
laun. Sjóðirnir hafa verið að
skera niður lífeyrisgreiðslur
og það kæmi mér ekki á óvart ef það
væri að jafnaði 20 til 30 prósenta
skerðing,“ segir Ingólfur H. Ingólfs-
son, fjármálaráðgjafi og stjórnar-
formaður Sparnaðar. Hvað varð-
ar yngra fólk segir Ingólfur að það
þurfi að bæta upp skaðann og það
sé tíminn sem vinni það upp. „Því
yngri sem menn eru því minni áhrif.
Þeir sem eru hins vegar að fara á líf-
eyrinn á næstu tíu árum munu ekki
fá eins mikinn lífeyri og þeir hefðu
fengið ef lífeyrissjóðirnir hefðu ekki
tapað þessum fjárhæðum.“
Tefur um 10 til 15 ár
Hann segir að menn hafi talað um
að sjóðirnir yrðu fullburða og gætu
uppfyllt ýtrustu kröfur um lífeyris-
greiðslur þegar inngreiðslur yrðu
jafnar lífeyrisgreiðslunum. „Þetta
áfall mun tefja þetta um 10 til 15 ár
frá því sem reiknað var með fyrir
hrun. Það mun því taka miklu lengri
tíma fyrir fólk að ná fullum lífeyris-
réttindum.“ Auk þess gera útreikn-
ingar lífeyrissjóðanna ráð fyrir að
ávöxtun þeirra sé 3,5 prósent um-
fram verðbólgu. Nái þeir því ekki yfir
ákveðinn tíma verði þeir að grípa til
aðgerða, eins og að skerða lífeyris-
réttindi.
Höggvið í sjóðinn
Ingólfur segir að lífeyrissjóðunum
hafi aldrei verið ætlað að greiða elli-
lífeyrisþegum meira en 56 prósent af
fyrri tekjum þeirra. „Þess vegna var
viðbótarlífeyrissjóðinum komið á til
þess að brúa bilið. Með því gæti fólk
komist jafnvel upp í 80 prósent af
fyrri launum. Nú hefur aldeilis verið
höggvið í þann sjóð.“ Sjóðirnir ættu
þó að geta unnið þetta upp með tím-
anum en það muni líklega taka 10
til 15 ár.
Allir finna fyrir þessu
Aðspurður hvort þeir sem eru með
viðbótarlífeyrissparnað hjá bönk-
um eða tryggingarfélögum muni
Eldri maður fær 80 þúsund á mánuði:
Helmingurinn
hefur gufað upp
Margrét Tryggvadóttir birti frásögn á
bloggsíðu sinni sem bar yfirskriftina
„Hvað varð um peningana hans afa“.
Þar segir kona frá þeirri stöðu sem afi
hennar er í og hve lítið hann fær í lífeyris-
greiðslur þrátt fyrir að hafa borgað í líf-
eyrissjóð í 59 ár. Um er að ræða sjötugan
mann sem hefur greitt í lífeyrissjóð frá
því hann var 11 ára. Fram kemur að hann
þurfi að verða 103 ára til að fá alla upp-
hæðina, en meðal lífslíkur karlmanna
á Íslandi eru 79 ár. Ef maðurinn félli frá
núna fengi eiginkona hans 7 milljónir
fyrir skatt.
Maðurinn gæti fengið eingreiðslu núna
upp á 11 milljónir króna, en af þeim færu
tvær milljónir í skatt. Ef hann hefði lagt
upphæðina inn á lágvaxtabók ætti
hann 48 milljónir króna. Hann hefur því
með öðrum orðum tapað stórlega á því
að leggja peninginn í lífeyrissjóð.
Hefur greitt
31 milljón
Á inni
14,4 milljónir
Fær á mánuði
80 þúsund
Gamla fólkið verst úti
sleppa við skerðingu segir Ingólf-
ur að allir muni finna fyrir þessu.
„Það hefur verið það sama. Hvort
sem vörsluaðilinn er lífeyrissjóð-
ur eða banki þá hafa menn orðið
fyrir skerðingu á viðbótarlífeyris-
sparnaði, bara í mismiklum mæli.“
Hann bendir á að þeir einu sem hafi
ekki orðið fyrir neinum áföllum séu
þeir sem greiddu í erlendu sjóðina,
til dæmis Allianz. Hann hafi alltaf
mælt með því að fólk borgi í erlenda
sjóði. „Maður á aldrei að leggja allan
sparnaðinn í sömu körfuna. Þar sem
innlendi lífeyrissparnaðurinn er í ís-
lenskum krónum hef ég ráðlagt fólki
að hafa viðbótarlífeyrissparnaðinn í
erlendri mynt.
Ingólfur H. Ingólfsson Segir að því yngri
sem þú ert því minna finnir þú fyrir tapinu.
Skerðing Líf-
eyrisgreiðslur munu
skerðast í kjölfar taps
lífeyrissjóðanna.
Árni Guðmundsson
Gildi
Tap: 75,5 ma.kr.
Laun 2009: 19,6 milljónir
Árni hefur framkvæmdastjóri frá stofnun
sjóðsins.
Gunnar Baldvinsson
Almenni lífeyrissjóðurinn
Tap: 29,7 ma.kr.
Laun og hlunnindi 2010: 15,8 milljónir
Gunnar hefur verið framkvæmdastjóri frá
árinu 1990.
Ólafur Sigurðsson
Stafir
Tap: 29,4
Laun 2009: 17,2 milljónir
Ólafur hefur verið framkvæmdastjóri
sjóðsins frá stofnun.
n Framkvæmdastjórar þeirra fimm sjóða sem töpuðu mest unnu allir hjá sjóðunum fyrir hrun n Eru með um fjórföld laun meðalmanns