Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 6. febrúar 2012 Mánudagur
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
S
tarfsmenn og stjórnendur
lífeyrissjóðanna þáðu boðs-
ferðir í boði banka og fjár-
málafyrirtæki. Fjölmörg
dæmi sýna fram á að slíkar
ferðir hafi verið farnar. Um er að ræða
bæði kynningarferðir og boðsferð-
ir. Þær fyrri eru þá borgaðar af sjóð-
unum sjálfum en boðsferðir af þeim
sem bjóða. Í nýútgefinni skýrslu um
lífeyrissjóðina kemur fram að flestir
sjóðir hafi sett sér siðareglur um slík-
ar ferðir, eftir hrun, en það sé áber-
andi að einungis örfáir sjóðir hafi sett
slíkar reglur fyrir hrun. Í tengslum
við það eru nefndir Lífeyrissjóður
verslunarmanna, Gildi og Sameinaði
lífeyrissjóðurinn.
800 milljónir færðar eftir ferð
Í Kastljósi Sjónvarpsins á föstudags-
kvöld sagði Hrafn Bragason, einn
skýrsluhöfunda, að ákveðið hefði ver-
ið að fjalla ekki um boðsferðir í skýrsl-
unni. Hann svaraði því til að ekki hefði
þótt þörf á því þar sem lífeyrissjóðirn-
ir hefðu í flestum tilfellum sjálfir sett
sér nýjar siðareglur sem sneru að þess
konar ferðum. Með því hefðu stjórn-
endur sjóðanna sjálfir tekið afstöðu
til þessara ferða og viðurkennt að þær
væru ekki í lagi. Töldu skýrsluhöfund-
ar þar af leiðandi óþarft að rannsaka
ferðirnar frekar. „Bæði fannst okkur
að þetta væri ekki mikilvægt fyrir það
verkefni sem okkur var fengið. Líka
hafði rannsóknarnefnd Alþingis verið
á þessum nótum. Við töldum að okk-
ar kraftar væru betur settir í því sem
við vorum að gera,“ sagði Hrafn í Kast-
ljósinu.
„Hljómar auðvitað ekki vel“
Margt er þó á huldu varðandi boðs-
ferðirnar og hvort þær hafi haft áhrif
á ákvarðanir þeirra sem stjórnuðu
sjóðunum. Í Kastljósinu kom einn-
ig fram að fengist hefði staðfest hjá
framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins að tveir starfs-
menn á vegum sjóðsins hefðu farið
til Tékklands í september árið 2008
í boði Straums. Þar kom fram að
heimildir hermdu að stuttu eftir að
starfsmennirnir hefðu komið heim
úr boðsferðinni hefðu þeir skipt bréf-
um úr bönkunum fyrir bréf í Straumi
fyrir nærri 800 milljónir króna.
Hrafn lýsti grunsemdum um við-
skiptin í Kastljósinu. „Að þeir geri
þetta strax eftir þessa ferð hljómar
auðvitað ekki vel... Þegar við komum
að þessu þá eru þeir búnir að setja
þessar reglur þannig að við töldum
þá bara að þetta væri viðurkenning
á því að þeir teldu þetta hafa verið
óeðlilegt.“
Tvísaga forstjóri
Og þetta er ekki eina dæmið. Árið
2009 varð talsverð umræða um boðs-
ferðir lífeyrissjóðanna. Í frétt DV frá
október 2009 var Sævar Helgason,
forstjóri Íslenskra verðbréfa, spurð-
ur hvort mönnum á vegum lífeyris-
sjóðanna hefði verið boðið í laxveiði
í Ytri-Rangá. Forstjórinn neitaði í
fyrstu og sagði að þeim hefði ekki
verið boðið heldur hefðu þeir borg-
að fyrir ferðina sjálfir. Seinna um
daginn leiðrétti hann sig og játaði
að fyrirtækið hefði kostað ferðina.
Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
verkfræðinga sagðist hafa þegið slíka
ferð ásamt öðrum starfsmanni sjóðs-
ins. Fleiri lífeyrissjóðstarfsmenn
staðfestu að þeir hefðu þegið slíkar
boðsferðir í boði Íslenskra verðbréfa
fyrri ár en þeir hefðu borgað fyrir
ferðina í þetta skiptið.
Þáði boð í laxveiðiferð
Í samtali við Fréttablaðið í mars
árið 2009 staðfesti Sigrún Braga-
dóttir, framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar,
að hún hefði farið í fjögurra daga
ferð til Moskvu árið 2007 á vegum
Glitnis. Í þessa sömu ferð fór einnig
starfsmaður frá Lífeyrissjóði bænda
og framkvæmdastjóri Almenna líf-
eyrissjóðsins ásamt tveimur stjórn-
armönnum.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Stafa lífeyrissjóðs, staðfesti
einnig í þessari sömu grein að starfs-
menn á vegum sjóðsins hefðu farið
í fjórar utanlandsferðir og eina inn-
anlandsferð árið 2007 og þrjár ferð-
ir 2006. Hjá Stöfum hefðu verið tekn-
ar upp nýjar siðareglur árið 2008 og
eftir það gilti sú meginregla að Stafir
borguðu kostnað við þess konar ferð-
ir en dæmi væru um að sá sem byði
í ferðina borgaði ferðir og uppihald.
Sjálfur þáði framkvæmdastjórinn
boð í laxveiðiferð innanlands árið
2006 áður en lögin tóku gildi og eft-
ir að lögin tóku gildi hafði hann þeg-
ið boð í allavega tvær ferðir, tveggja
daga ferð á vegum verðbréfafyrir-
tækis 2008 og dagsferð í boði erlends
fyrirtækis.
Ferðir í boði íslenskra banka
Stjórn lífeyrissjóðsins Stapa sendi frá
sér yfirlýsingu þar sem sagt var frá
því að árið 2005 hefðu starfsmenn
sjóðsins farið sjö sinnum til útlanda,
ein þeirra ferða hefði verið boðsferð
á vegum íslensks banka. Árið eftir
var sömu sögu að segja, ein boðsferð
greidd af banka. Árið 2007 þáði sjóð-
urinn þrjár boðsferðir á vegum ís-
lenskra banka. Árið á eftir voru tvær
boðsferðir þegnar, ein á vegum ís-
lensks banka og hin á vegum íslensks
fyrirtækis. Í yfirlýsingunni tóku þeir
fram að stjórnarmenn í sjóðnum
hefðu ekki farið í þessar boðsferðir.
Gefa ekki upplýsingar
Fram kom í DV þann 23. janúar síð-
astliðinn að starfsmenn Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins hefðu samtals
farið í alls 30 boðsferðir til útlanda á
árunum 2004–2008. Þær voru greidd-
ar af öðrum en sjóðnum sjálfum, svo
sem útgefendum verðbréfa eða sölu-
aðilum þjónustu. Þeir sem fóru í
ferðirnar voru sex núverandi og fyrr-
verandi starfsmenn við eignastýr-
ingu hjá sjóðnum. Þessar ferðir voru
farnar í samstarfi við fjórtán fyrirtæki
og sum þeirra voru með starfsstöðv-
ar í fleiri en einu landi. Heimildir
eru fyrir því að starfsmenn sjóðsins
hafi farið í ferðir í boði Landsbank-
ans og Straums-Burðaráss. Haukur
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri líf-
eyrissjóðsins, svaraði ekki fyrirspurn
DV, þar sem beðið var um upplýsing-
ar um ferðirnar. Óskað var eftir dag-
setningu hverrar ferðar, hvert var far-
ið og hverjir fóru fyrir hönd sjóðsins.
Þá var spurt um í hversu mörgum
tilfellum LSR fjárfesti í fyrirtækjum
sem buðu starfsmönnum sjóðsins í
slíkar ferðir. Haukur hefur enn ekki
svarað fyrirspurninni, mánuði eftir
að hún var send.
Í apríl árið 2008 fjallaði DV um
boðsferðir lífeyrissjóða. Aðspurð-
ur sagði Haukur þá að stefna sjóðs-
ins væri að þiggja ekki boðsferðir.
„Varðandi vinnuferðir starfsmanna
þá er meginreglan sú að lífeyris-
sjóðurinn stendur að fullu straum
af kostnaði við þær. Í undantekn-
ingartilfellum getur verið um aðra
kostnaðarskiptingu að ræða í sam-
bandi við kynningar á vegum fyrir-
tækja sem lífeyrissjóðurinn er hlut-
hafi í eða á í viðskiptum við,“ sagði
hann þá.
„Faglega reknir“
Í kjölfar umræðunnar sem fór af
stað um boðsferðirnar árið 2009
sendi Vilhjálmur Egilsson, formað-
ur Samtaka atvinnulífsins, frá sér
yfirlýsingu þar sem hann sagði að
lífeyrissjóðirnir væru „… í senn öfl-
Þáðu boðsferðir
og keyptu svo
n Starfsfólk lífeyrissjóða þáði boðsferðir frá fyrirtækjum og fjárfesti svo í þeim „Að þeir geri þetta
strax eftir þessa
ferð hljómar auðvitað
ekki vel.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Vilhjálmur Egilsson Sagði fjárfestingar
lífeyrissjóðanna byggjast á því sem „best er
vitað á sviði fjármálafræði“.
Hrafn Bragason Skýrsluhöfundar töldu
ekki vera þörf á að skoða boðsferðirnar
nánar þar sem flestir lífeyrissjóðirnir hefðu
sett sér siðareglur er sneru að þeim.
Fóru í laxveiði Íslensk verðbréf buðu
stjórnendum lífeyrissjóða í laxveiði í Ytri
Rangá.