Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Síða 11
V
ið munum reyna að flytja
bara eins og áætlunin segir
til um. Það ræðst ekki endi
lega af garðinum sem slík
um heldur frekar af því að allt sé
komið eins og það á að vera á deild
inni,“ segir Sigurður Páll Pálsson,
yfirlæknir á réttargeðdeildinni að
Sogni. Til stendur að flytja starf
semina á Sogni yfir á Klepp og gera
áætlanir ráð fyrir að því verði lok
ið fyrir 1. mars næstkomandi. Nú
standa yfir framkvæmdir á Kleppi
til að undirbúa flutninginn en at
hygli vekur að engin öryggisgirðing
er komin upp fyrir utan Klepp líkt og
er á Sogni.
Aðspurður segir Sigurður að til
standi að reisa girðinguna en að
aláherslan sé á að innrétta deild
ina sem slíka. „Við erum með fal
lega baklóð og munum hafa garð
þar samkvæmt teikningum. Það
verður gerður garður inni í fallega
garðinum sem snýr á móti suðri á
Kleppslóðinni. Þetta verður innri og
ytri garður þannig að þetta verður
smekklegt og fallegt,“ segir Sigurður
og bætir við að yfir vetrarmánuðina
sé garðurinn á Sogni jafnan lítið
notaður. „Þörfin fyrir garð er nátt
úrulega mest á vorin á sumrin. En
það má hins vegar ekki gleyma því
að þegar við náum fólki inn í bata
ferli hefur okkar fólk á Sogni feng
ið að fara í ferðir með starfsmönn
um og á Kleppi verður nákvæmlega
sama fyrirkomulag,“ segir hann. Þá
fari enginn vistmaður út úr húsi
nema í fylgd starfsmanns og þeir
allra veikustu fari ekki einu sinni
út í garð. Þannig þurfi íbúar ekki
að kvíða því þó ekki verði búið að
reisa öryggisgirðingu á Kleppi áður
en deildin á Sogni flytur. Sigurð
ur segir að deildin verði flutt í einu
lagi og segist hann vona að hægt
verði að ljúka því fyrir tilsettan tíma.
„Við vonum að það muni ekki skeika
mörgum dögum.“
Átti að vera
um borð í
Hallgrími
Fréttir 11Mánudagur 6. febrúar 2012
n „Maður spyr sjálfan sig hvort þetta hefði farið öðruvísi“
H
afþór Þórðarson, sjómað
ur í Reykjanesbæ, átti að
vera um borð í skipinu
Hallgrími SI, sem fórst á
miðvikudaginn í síðustu
viku á leið til Noregs. Hann segist
hins vegar hafa verið hlaðinn verk
efnum og því ekki komist í sigl
inguna örlagaríku. Í hans stað var
því kallaður annar maður í áhöfn
ina. „Málið er að ég og skipstjór
inn sem fór með skipið, Magnús
Daníelsson, höfðum verið að taka
að okkur að sigla svona skipum
frá Íslandi. Við erum búnir að fara
með nokkuð mörg úr landi. Í þetta
skiptið var ég bara hlaðinn verk
efnum og komst ekki, afhendingin
á skipinu var búin að tefjast. Það
var byrjað að semja um þetta í des
ember og ég bara komst ekki út af
því að ég hafði bara nóg annað að
gera,“ segir Hafþór í samtali við DV.
Blendnar tilfinningar
Þrír þaulreyndir sjómenn fórust þeg
ar Hallgrímur SI sökk undan strönd
um Noregs á miðvikudaginn í síðustu
viku. Einn komst lífs af, Eiríkur Ingi
Jóhannsson, sem var í sjónum í um
þrjár klukkustundir áður en honum
var bjargað af norsku strandgæslunni.
Hafþór og Magnús skipstjóri höfðu
verið að vinna saman í Noregi og
kynnst þar útgerðarmönnum. Í gegn
um þá eða skipasölur höfðu þeir ráðið
sig til þess að sigla skipum til Noregs.
Þó að Hafþór hafi ekki sjálf
ur verið um borð í skipinu í sigl
ingunni örlagaríku leita á hann
spurningar eftir þennan voveiflega
atburð. „Það eru blendnar tilfinn
ingar. Við Magnús höfðum siglt
áfallalaust yfir hafið og átt gott
samstarf. Hann var minn besti vin
ur og maður spyr sjálfan sig hvort
þetta hefði farið öðruvísi hefði
maður farið sjálfur eða ekki, en
maður fær víst ekki nein svör við
því. Það er svolítið erfitt að hugsa
þessi mál.“
Hafþór var úti á sjó á Kristínu
sem útgerðarfélagið Vísir í Grinda
vík gerir út, þegar DV ræddi við
hann. „Þetta er verkefni sem kom
upp með stuttum fyrirvara og það
var ekki hægt með nokkru móti af
aflýsa því. Það var bara að drífa sig
af stað aftur.“
Skipið í góðu standi
Hallgrímur SI var að sigla sína síð
ustu ferð yfir hafið þegar það sökk,
en skipið átti að fara í brotajárn í
Noregi. Skipið var með gilt haffær
isskírteini sem Siglingastofnun gaf
út í ársbyrjun. Til þess að skip fái
skrírteinin þurfa þau að standast
skoðun og öryggismál vera viðun
andi í skipinu.
Formaður rannsóknarnefndar
sjóslysa hefur sagt að skipið hafi
verið í góðu ástandi og að enginn
aukafarmur hafi verið um borð,
einungis troll og vírar. Samkvæmt
frétt Vísis er stýrisbúnaður talinn
hafa bilað. Sjór hafi safnast fyrir í
skipinu og dælur skipsins slegið
út. Tveir mannanna komust ekki í
björgunargalla, þar sem atburða
rásin var mjög hröð, en Eiríkur og
annar sjómaður náðu því. Hinn
sjómaðurinn náði hins vegar ekki
að loka búningnum almennilega
þegar hann fór í sjóinn.
Skipið fór á hliðina og komust
skipverjar ekki í björgunarbát. Af
takaveður var á svæðinu og öldu
hæð 10 til 15 metrar.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Hann
var minn
besti vinur
Hallgrímur SI Var í sinni síðustu ferð yfir hafið þegar hann sökk.
Ekki búið að reisa girðingu
n Undirbúningur að flutningi réttargeðdeildarinnar á Sogni í fullum gangi
Undirbúa flutning Sigurður segist vonast til þess að flutningnum verði lokið fyrir 1. mars.
Þáðu boðsferðir
og keyptu svo
n Starfsfólk lífeyrissjóða þáði boðsferðir frá fyrirtækjum og fjárfesti svo í þeim
ugir, faglega reknir og dæmi um
svið þar sem okkur Íslendingum
hefur tekist sérlega vel til í saman
burði við aðrar þjóðir.“ Í sömu yfir
lýsingu kemur einnig fram að „…
fjárfestingarstefna lífeyrissjóða á
ábyrgð Samtaka atvinnulífsins og
verkalýðsfélaganna er ákveðin á
faglegum grunni sem byggist á því
sem best er vitað á sviði fjármála
fræði og reynslu innan lands sem
utan. Fagfólk er fengið til að reka
sjóðina sem tekur langflestar ein
stakar ákvarðanir um fjárfestingar
á grunni markaðrar stefnu.“ Engu
að síður hefur það komið á dag
inn að sjóðirnir töpuðu samtals
um 500 milljörðum króna.
Haukur Hafsteinsson Starfsmenn
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins fóru í
30 boðsferðir og framkvæmdastjórinn
svarar ekki fyrirspurnum um þær.