Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Side 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 245,9 kr. 253,5 kr.
Algengt verð 245,5 kr. 253,1 kr.
Höfuðbsv. 245,4 kr. 253,0 kr.
Algengt verð 245,7 kr. 253,3 kr.
Algengt verð 247,5 kr. 253,3 kr.
Melabraut 245,6 kr. 253,3 kr.
14 Neytendur 6. febrúar 2012 Mánudagur
Stóðu við
stóru orðin
n Eirvík fær lofið að þessu sinni
fyrir góða þjónustu en DV fékk eft-
irfarandi sent: „Ég vil þakka Eirvík,
umboðsaðila Miele-þvottavéla,
fyrir að standa við stóru orðin um
endingu vélanna. Þegar mótorinn
hrundi í sex ára vél minni
sendu þeir hann til fram-
leiðandans og gerðu við
vélina mér að kostnað-
arlausu. Stórkostlegt
fyrirtæki, takk,“ segir
viðskiptavinurinn
þakkláti.
Komst ekki
út í hléi
n Lastið fær Kringlubíó en bíógest-
ur er afar ósáttur við að komast
ekki út í hléinu. „Í Kringlubíó er
maður læstur inni þar til myndin
er búin og ekki hægt að fara neins
staðar út í hléi. Við fengum þau til
að opna fyrir okkur aðaldyrnar um
daginn til að fara að reykja en svo
þegar við komum aftur til baka
þurftum við að banka og bíða svo-
lítið lengi eftir að einhver tæki eftir
okkur,“ segir bíógesturinn.
DV hafði samband við skrif-
stofu Sambíóanna og fékk þau
svör að það sé aðstaða fyrir reyk-
ingafólk sem vilji fara út hléi.
„Þetta hefur líklega verið einhver
misskilningur því það er hægt að
fara út að reykja í hléinu en dyrnar
eru rétt hjá klósettunum. Það er
fín aðstaða á svölum og stubba-
hús og allt. Við lokum alltaf á
meðan á sýningum stendur inn
í Kringluna en það er til þess að
Kringlugestir séu ekki að ana inn
á sýningar. Hafi bíógesturinn farið
út um aðaldyrnar gæti hann hafa
lent í vandræðum en
ef hann var með mið-
ann á sér hefði það
ekki átt að vera neitt
vesen,“ sagði Alfreð
Ásberg Árnason,
framkvæmdastjóri
Sambíóanna.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last Ódýrari sÓlarferðir á netinu
n Þú getur sparað töluvert ef þú leitar að ferðum á netinu n Gefðu þér góðan tíma við leitina n Íslenskar pakkaferðir ekki dýrastar
Þ
ú getur sparað allt að 50 pró-
sent á sólarlandaferðum ef
þú nennir að eyða smátíma
á netinu. DV lagðist í könn-
unarleiðangur á netinu og
bar saman verð á sólarlandapökk-
um íslenskra ferðaskrifstofa, erlendra
ferðaskrifstofa og flugfargjaldi og hót-
elverði á þessum stöðum sem finna
má á netinu. Fyrir valinu urðu þrír
áfangastaðir; Tenerife, Alicante og
Tyrkland, og tekið var saman verð á
4 stjörnu hótelum. Tímabilið var fyrri
hluti júnímánaðar og einnig voru
skoðuð verð hjá Icelandair og Iceland
Express í sumar en þau geta verið
breytileg eftir dögum og tíma svo þau
eru einungis til að fá verðhugmyndir.
Það skal ítrekað að um óformlega
könnun var að ræða og ómögulegt að
skoða alla ferðamöguleika á netinu. Í
fljótu bragði virðist munurinn vera
lítill en með þolinmæðina að leið-
arljósi geta sólardýrkendur sjálfsagt
fundið hagstæðari kosti.
Aukakostnaður
Þegar sólarlandaferðir eru skipulagð-
ar er ýmislegt sem þarf að hafa í huga.
Panti maður pakka frá erlendri ferða-
skrifstofu þarf að gera ráð fyrir kostn-
aði við að koma sér til landsins sem
viðkomandi ferðaskrifstofa er í. Fari
maður þá leið að panta einungis hótel
þarf að huga að öllu ferðalaginu. Fólk
þarf því að spyrja sig hversu mikið það
er tilbúið til að leggja á sig til að kom-
ast á áfangastað.
Dönsku dýrastar
Fyrir hjón með börn er líklega örugg-
ast að panta sér pakkaferð með ís-
lenskri ferðaskrifstofu en pakkarnir
innihalda flug, gistingu og flutning
á milli flugvallar og hótels. Með því
að kaupa slíkan pakka er fjölskyld-
an örugg með ferðalagið og það er
einungis eitt flug á áfangastað. DV
skoðaði mun á verði slíkra pakka og
pökkum hjá breskum og dönskum
ferðaskrifstofum. Kom í ljós að þær
dönsku eru yfirleitt töluvert dýrari en
þær íslensku að því gefnu að fjölskyld-
an þurfi að kaupa sér flugfar til Kaup-
mannahafnar aukalega. Þær bresku
eru hins vegar mun ódýrari og getur
það borgað sig að kaupa sólarland-
apakka með þeim þrátt fyrir að þurfa
að kaupa flug frá Íslandi til London.
Tímasetning mikilvæg
Fólk sem er ekki bundið við ákveðnar
dagsetningar og setur ekki bið á flug-
völlum fyrir sig gæti fundið töluvert
ódýrari sólarlandaferðir ef það skoð-
ar ferðasíður vel og vandlega, gefur
sér góðan tíma og heldur þolinmæð-
inni. Netið er yfirfullt af ferðasíðum
sem auglýsa sólarlandaferðir en hér
er einnig bent á nokkrar þeirra. Þeg-
ar kemur að leitinni er tímasetningin
mikilvæg, bæði hvað varðar flug og
hótel. Flugfélögin bjóða upp á ýmis
tilboð og það gera hótelin líka eins og
blaðamaður komst að. Fyrir hádegi
var verð á gistingu fyrir fjóra í fjór-
tán nætur á Club Blue Dream hótel-
in í Torba á Tyrklandi 449.375 krón-
ur. Nokkrum tímum síðar var búið að
lækka verðið í 346.000 krónur.
Ótal valmöguleikar á netinu
Það eru ýmsir valmöguleikar þeg-
ar kemur að því að velja ferðina. Til
eru síður sem finna fyrir þig ódýr-
asta flugið og ódýrustu gistimögu-
leikana. Ein þessara síðna er dohop.
is sem leitar hjá hund ruðum flug-
félaga og ferðaskrifstofa að verðum
og lággjaldatengingum fyrir þig.
Með því að setja inn óska áfangastað
og -dagsetningu færðu upp fjölda
valmöguleika. Á öðrum síðum, svo
sem booking.com og hotelopia.
com, getur þú leitað að því hóteli
sem hentar best fyrir þig. Þá er vert
að benda á síður eins og holidays.
lastminute.com en þar er að finna
mikið lækkað verð fyrir þá sem geta
stokkið út með stuttum fyrirvara.
Flug
Tenerife – Hvorki Icelandair né Ice-
land Express fljúga til Tenerife svo
það er ekkert beint flug þangað fyrir
utan leiguflug með ferðaskrifstofum.
Leiti maður eftir ódýrasta fluginu hjá
dohop.com kemur í ljós að hagstæð-
asta verðið er 263.464 krónur fyr-
ir hjón með tvö börn. Flogið er með
Icelandair til Hamborgar og þaðan á
áfangastað með Condor. Á leið heim
er flogið með Ryan Air til London Lu-
ton og með Easy Jet til Íslands.
Tyrkland – Eina beina flugið til Bo-
drum í Tyrklandi er með Heimsferð-
um en hjá þeim er hægt að kaupa ein-
ungis flugið. Það kostar 94.400 fyrir
fullorðna og 88.900 fyrir börn og ger-
ir því í heildina 367.600 krónur. Sam-
kvæmt Dohop er ódýrasta flugið með
Iceland Express til London, EasyJet
frá London til Bodrum, Transavia frá
Bodrum til London og að lokum með
Icelandair til Íslands. Fyrir þetta borg-
ar fjölskyldan 485.000 krónur.
Alicante – Iceland Express flýgur
beint til Alicante og fjölskyldan greiðir
257.000 krónur fyrir flugið dagana 13.
til 27. júní. Ákveði hún að fljúga með
Icelandair kostar það hana 326.000
krónur.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Panti maður
pakka frá erlendri
ferðaskrifstofu þarf að
gera ráð fyrir kostnaði við
að koma sér til landsins
sem viðkomandi ferða-
skrifstofa er í.