Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Page 16
Sandkorn
Þ
að er samþykki fyrir því að þeir
sem bera mesta ábyrgð í samfé-
laginu fái hærri laun en aðrir.
Framkvæmdastjóri einn
tapaði 41 milljarði króna af
peningum almennings. En hann missti
ekki vinnuna. Ekki aðeins hélt hann
vinnunni, heldur fékk hann hærri laun
en en Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri og Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra árið 2010.
Yfir Lífeyrissjóði starfsmanna rík-
isins er stjórn, sem hefur ákveðið að
Haukur Hafsteinsson framkvæmda-
stjóri beri ekki ábyrgð á 41 milljarðs tap-
inu. Stjórnin hefði ekki haldið honum í
starfi ef hún teldi að hann bæri ábyrgð-
ina. Að því leyti fær framkvæmdastjór-
inn há laun, án þess þó að bera ábyrgð.
Allir helstu bankastjórar landsins
hafa verið látnir fara. Stjórnendur helstu
fjármálafyrirtækja líka. Ástæðan var að
þeir þóttu bera hluta af ábyrgðinni fyrir
því hvernig fór. Þeir reyndu þó og reyna
enn að réttlæta störf sín með því að
vandinn hafi verið utanaðkomandi og
handan þeirra ábyrgðar.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra er ósáttur við Ríkisútvarpið.
Ástæðan er að sagt var frá því í fréttum
að hann hefði verið stjórnarformað-
ur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins,
sem tapaði rúmlega hundrað milljörð-
um króna. Ögmundi þótti fréttaflutn-
ingurinn „fráleitur“. Því Ögmundur var
stjórnarformaður árið 2007 og sjóð-
urinn græddi þá 16 milljarða, eins og
hann sagði sjálfur frá. Það var ekki fyrr
en árið eftir sem eignabólan sprakk og
eignirnar, sem sjóðurinn græddi áður
á, urðu verðlausar. Eins og Ögmundur
sagði þegar hann útskýrði skammir sín-
ar: „Ég er einfaldlega að benda á hve frá-
leitur fréttaflutningur Sjónvarpsins var...
að tengja tap LSR í hruninu frá haustinu
2008, stjórnarsetu minni á árinu 2007.“
Hann var að vísu í stjórn 2008 líka
og fékk fyrir það 1,2 milljónir í laun yfir
árið, þótt honum þyki fráleitt að vera
tengdur við sjóðinn nema árið áður.
Á sama hátt mætti segja að það sé
fráleitt að tengja saman góða stöðu rík-
issjóðs í góðærinu, sem var hluti af sjúk-
dómseinkennum bólunnar, og hrunið
sem kom sem afleiðing af bólunni.
„Staðreyndin er náttúrlega sú að
heimur kapítalismans er heimur breyti-
leika,“ útskýrði Ögmundur. Geir Haarde
hefur líka bent á að þetta hafi verið al-
heimsvandi og „fjárhagslegur fellibyl-
ur“ sem hann réð ekkert við. En sú stað-
reynd að það komi vond veður kemur
ekki í veg fyrir að hópur fólks hefur þá
ábyrgð að passa að veðrið skaði okkur
ekki; að hús hrynji ekki, skip sökkvi ekki
og flugvélar hrapi ekki.
Útþynning ábyrgðarinnar er út-
breidd vörn. Framkvæmdastjóri lífeyr-
issjóðs ber ekki ábyrgð, stjórnarmenn
ekki heldur og stjórnarformaður ekki
heldur. Á endanum ber enginn ábyrgð.
Það mætti færa rök fyrir því að banka-
stjórarnir hefðu átt að fá að halda áfram
sínum störfum, vegna þess að bank-
arnir féllu vegna lausafjárskorts sem
átti upptök sín í Bandaríkjunum. Hvers
vegna hefur verið skipt um alla banka-
stjóra, en framkvæmdastjóri sem tapaði
41 milljarði af almannafé situr ennþá?
Sömu stjórnendur eru í flestum
þeim lífeyrissjóðum sem töpuðu mestu.
Þeir skulda okkur að lágmarki að segja
allan sannleikann um það sem þeir
gerðu eða gerðu ekki þegar þeir töpuðu
peningunum okkar.
Í nýrri úttekt á fjárfestingarstefnu og
ákvarðanatöku lífeyrissjóðanna er samt
ekkert fjallað um hvaða áhrif boðs-
ferðir höfðu á fjárfestingarstefnu og
ákvarðanatöku lífeyrissjóðanna. Þegar
DV spurði Hauk framkvæmdastjóra út
í boðsferðir í apríl árið 2008 sagði hann
að reglan væri sú að starfsmenn lífeyris-
sjóðsins þægju ekki boðsferðir. Á dög-
unum kom í ljós á Alþingi að boðsferð-
irnar voru þrjátíu hjá sjóðnum hans.
Fyrir mánuði sendi DV aftur fyrirspurn
á Hauk, þar sem hann var beðinn um
lista yfir ferðirnar. Hann hefur ekki svar-
að.
Við vitum í það minnsta að í kapítal-
ískum heimi breytileika hefur þetta ekki
breyst.
Þakka dómaranum
n Umfjöllun DV um ráð-
gjafarstörf Róberts Spanó,
lagaprófessors við HÍ, fyrir
Baldur Guðlaugsson vakti at-
hygli. Róbert fjallar um mál
Baldurs í nýrri
lögfræðibók
sinni. Í for-
mála þakkar
hann fjöl-
mörgum fyrir
aðstoð við
vinnslu henn-
ar. Meðal þeirra er Benedikt
Bogason hæstaréttardómari
en hann er einn af þeim sem
mun dæma í máli Baldurs.
Hafa margir af því áhyggjur
að mál Baldurs fái ekki hlut-
lausa meðferð í Hæstarétti þar
sem bæði Benedikt og Ólafur
Börkur Þorvaldsson, náfrændi
Davíðs Oddssonar aldavinar
Baldurs, dæma í máli hans.
Faldi fréttina
n Aðkoma Ólafs Barkar Þor-
valdssonar að innherjasvika-
máli Baldurs Guðlaugssonar í
Hæstarétti hefur rifjað upp
fyrir mönnum afskipti Dav-
íðs Oddssonar af opinberri
umræðu um
málið. Blaða-
menn Mogg-
ans voru fyrst-
ir til að þefa
uppi rann-
sóknina á sín-
um tíma og
unnu frétt um málið, sem var
þó ekki birt í blaðinu í marga
daga þar sem Davíð mun hafa
talið að hún væri röng. Stöð 2
sagði fréttina um Baldur viku
síðar. Davíð virðist hafa ætlað
sér að þegja um rannsóknina
á lögbrotum vinar síns.
Bingi frímúrari
n Sú saga gekk í síðustu viku
að Björn Ingi Hrafnsson eigandi
Vefpressunnar væri genginn
í Frímúrara-
regluna. Björn
Ingi hefur átt í
miklum erfið-
leikum með
rekstur fjöl-
miðla sinna
og gjaldþrota
félag hans Caramba skilur
eftir sig mörg hundruð millj-
óna króna skuldir. Vitað er
að félagar í Frímúrareglunni
aðstoða gjarnan reglubræður
þegar á móti blæs. Þegar DV
spurði Björn Inga um málið
kom í ljós að hann hefur verið
meðlimur í Frímúrararegl-
unni um margra ára skeið.
Póstur á vergangi
n Brynjar Níelsson lögmaður
gengur mjög langt í störfum
sínum fyrir umbjóðendur sína
og fer gjarnan mikinn á bloggi
og í blaðagreinum. Lögmann-
inum er sérstaklega uppsigað
við þá sem fjalla um helstu
gerendur hrunsins enda starf-
ar hann fyrir margra þeirra.
Eitt sinn mun Brynjar hafa
verið sérlega ánægður með
að Sigurður Einarsson Kaup-
þingsmaður hafi skotið á Sölva
Tryggvason fjölmiðlamann í
blaðagrein vegna umfjöllunar
hans um bankann. Brynjar
sendi Sigurði tölvupóst með
skensinu og göntuðust þeir
sín á milli. Póstarnir lentu
óvart á röngu netfangi og fékk
viðkomandi þar innsýn í hug-
arheim þeirra félaganna.
Drengirnir eru orðnir
svo litaðir af klámi
María Lilja Þrastardóttir um fyrstu kynlífsreynslu ungra kvenna. – DV
Hann hefur ekki svarað
Á
síðasta ári fór fram undir-
skriftasöfnun þar sem for-
setinn var hvattur til að vísa
Icesave-samningi Buchheits
til þjóðarinnar. Slíkur nafna-
listi gæti auðvitað talist vera góð og
gild röksemd hjá forsetanum ef þetta
verk hefði verið unnið af heilindum,
en slíku var ekki til að dreifa í þessu
tilfelli.
Þegar farið var á netið sást hvernig
tölur hækkuðu dag frá degi, en engar
upplýsingar fengust um hverjir væru
á listanum og því var ógjörningur að
ganga úr skugga um hvort fjöldi þátt-
takenda væri réttur. Auk þess gat hver
sem er hlaðið inn nöfnum og kenni-
tölum fjölskyldumeðlima sinna, vina,
kunningja og vinnufélaga án þeirra
samþykkis og vitneskju, því að leyndin
sem umlukti listann var algjör.
Þessi torkennilegi nafnalisti var
kærður til Persónuverndar, sem úr-
skurðaði að aðstandendur hans hefðu
brotið lög um persónuvernd. Aðferðin
við undirskriftasöfnunina var því
dæmd ólögleg og þar af leiðandi var
þessi undirskriftalisti ógildur. Rök-
semd Ólafs Ragnars forseta til stuðn-
ings hinum meingallaða lista stóðst
þannig engan veginn.
Skýlaust brot
Nú er komin í gang undirskriftasöfn-
un, þar sem skorað er á forsetann að
bjóða sig fram á nýjan leik í sumar.
Ekki er að sjá að stuðningsmenn Ólafs
Ragnars hafi leitast á nokkurn hátt
við að betrumbæta vinnubrögðin frá
Icesave-málinu 2011, því að hér er ná-
kvæmlega sama leynibruggið á ferð-
inni: Engar upplýsingar eru gefnar um
aðstandendur listans, engin vitneskja
fæst um hverjir eru skráðir og því er
alls óvíst hvort tölur um fjölda undir-
skrifta séu réttar. Og vegna hinnar al-
gjöru leyndar getur hver sem er sett
inn nöfn og kennitölur annarra án
þeirra vitundar og vilja. Leynibrallið
er sem sagt alltumlykjandi þennan
nafnalista, sem þýðir aðeins eitt: Þetta
er skýlaust brot á lögum um pers-
ónuvernd. Þessi undirskriftalisti er af
þessum sökum jafn ólöglegur og list-
inn í Icesave-málinu á síðastliðnu ári.
Ætlar forsetinn að taka við þessum
löglausa nafnalista og setja á laggirnar
símhringingarþjónustu á vegum emb-
ættisins í samstarfi við þá aðila sem
standa að gerð listans, og taka nokkrar
sýndar- stikkprufur á kolólöglegum
leynilista, eins og átti sér stað fyrir
síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu? Þjóð-
höfðinginn var þá kominn í bullandi
hagsmunagæslu í eigin háttvirta þágu.
Ætlar Ólafur Ragnar að endurtaka
þann fáránlega skrípaleik um nafna-
lista sem fer gegn lögum landsins?
Og það má forsetinn vita, að sýndar-
mennsku-kattarþvottur breytir engu
um ólögmæti undirskriftalistans.
Best geymdir á öskuhaugunum
Í þessari stöðu virðist ráðlegast fyrir
forsetann að hafa samband við léns-
menn sína og skipa þeim að leggja
þegar í stað af vinnslu þessa nafna-
lista, sem er auðvitað ekkert annað
en löglaus bastarður fyrir sakir hinna
óheiðarlegu vinnubragða, er huldu-
vinir Ólafs Ragnars hafa auðsjáanlega
beitt eftir sinni bestu getu. Slíkir und-
irskriftalistar eru best geymdir á ösku-
haugunum. Persónuvernd þarf að fara
í saumana á þessu máli.
Þetta undirskriftasöfnunarmál
tengist almannahag. Ráðamenn sam-
félagsins mega ekki komast upp með
bellibrögð og blekkingar til að gæta
eigin valdahagsmuna.
„Ætlar Ólafur
Ragnar að endurtaka
þann fáránlega skrípaleik
um nafnalista sem fer
gegn lögum landsins?
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 6. febrúar 2012 Mánudagur
Aðsent
Tryggvi Gunnarsson
kennari
Ólöglegur undirskriftalisti
Gróðursetti ást-
ina í hjarta mér
Leikkonan Guðrún Ásmundsdóttir um þriðja eiginmann sinn. – DV
„Á dögunum kom
í ljós á Alþingi að
boðsferðirnar voru þrjátíu.
Leiðari
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is