Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Qupperneq 20
Róttæk hönnum hjá Ferrari
n Alonso ánægður með áhættuna
F
ernando Alonso, ökuþór Ferr-
ari-liðsins í Formúlu 1, segist
styðja sitt lið fullkomlega hvað
varðar róttæka hönnun nýja
keppnisbílsins fyrir árið 2012. Segir
Alonso að hann geti alveg talist fal-
legur. Nýi bíllinn hefur vakið upp
mikið umtal og eru langflestir sam-
mála um að aldrei hafi Ferrari hann-
að jafnljótan bíl. Formúlublaða-
menn breska blaðsins The Guardian
komu sér beint að efninu þegar þeir
skrifuðu um nýja bílinn eftir að hann
var opinberaður í höfuðstöðvum
liðsins síðasta föstudag og sögðu
hann hreinlega ljótan.
Bíllinn í ár er mikið breyttur frá
fyrri árum en Alonso er ánægður með
breytingarnar. „Mér leið vel með bíl-
inn alveg frá því ég sá hann fyrst. Mér
líkar lögun hans og hvernig hann
er hannaður. Maður fær smá sjokk
fyrst þegar maður sér hann, sem mér
finnst jákvætt. Mér finnst hann flottur
og vonandi er hann bara hraðskreið-
ur líka,“ sagði Alonso við kynninguna.
Liðsfélagi Alonsos, Felipe Massa,
er einnig ánægður með bílinn og er
feginn því að Ferrari hjakki ekki í sömu
hjólförum og aðrir þegar kemur að því
að smíða nýja bíla. „Útlitið á bílnum er
mjög agressíft. Mér finnst frábært að
við verðum með öðruvísi bíl og séum
ekki eins og allir aðrir á brautinni. Við
þurfum samt að venjast nýja nefinu.
Það er svolítið sérstakt vegna nýju
reglnanna. En að nefinu fráskildu er
bíllinn mjög flottur og við vonumst til
þess að hann verði samkeppnishæfur
frá byrjun,“ segir Massa sem verður
að standa sig í ár því annars fær hann
ekki nýjan samning á næsta ári.
20 Sport 6. febrúar 2012 Mánudagur
G
ylfi Sigurðsson, landsliðs-
maður í fótbolta, hefur
margoft ítrekað hversu vel
honum líður á Bretlands-
eyjum og hversu vel hann
kann við enska boltann. Hann hefur
heldur betur verið að sanna það eft-
ir endurkomu sína í enska boltann
með Swansea. Áður en Gylfi hélt til
Hoffenheim í Þýskalandi hafði hann
skorað nánast að vild í Champions-
hip-deildinni og nú hefur það tek-
ið hann mettíma að aðlagast ensku
úrvalsdeildinni. Um helgina skor-
aði hann eitt og lagði upp sigurmark
Swansea sem vann aðeins sinn ann-
an útisigur á leiktíðinni er Wales-
verjarnir lögðu West Brom á útivelli.
Þjálfari Gylfa, Brendan Rodgers, er
í skýjunum með sinn mann sem
og stuðningsmenn liðsins sem létu
heyra í sér eftir leikinn.
Velska Barcelona
WBA komst yfir á heimavelli á laug-
ardaginn með marki Marcs Antoine-
Fortune á 53. mínútu. Það voru ekki
liðnar tvær mínútur þegar Gylfi jafn-
aði metin fyrir Swansea með sínu
fyrsta marki í ensku úrvalsdeildinni.
Fjórum mínútum síðar lagði Gylfi
svo upp sigurmarkið fyrir Swansea
og tryggði aðeins annan útisigur liðs-
ins á leiktíðinni. Það var ekki bara að
Gylfi ætti þátt í báðum mörkunum
heldur drottnaði hann yfir miðjunni
og átti varla feilsendingu. Hann var
valinn maður leiksins á Sky og fékk
9 fyrir sína frammistöðu, hæstu ein-
kunn allra.
Það er ekki að ástæðulausu að
sumir hafa grínast með að Swan-
sea sé hið velska Barcelona. Brend-
an Rodgers, stjóri liðsins, lætur sína
menn spila boltanum á milli sín all-
an leikinn til að reyna að lokka and-
stæðinginn úr stöðu. Þessi spila-
mennska hentar Gylfa vel enda er
Gylfi bestur þegar boltinn er á jörð-
inni og liðið hans spilar fótbolta. Til
marks um það hafa yfir 80 prósent
sendinga Gylfa á samherja heppnast
í fyrstu fjórum leikjum hans í úrvals-
deildinni.
Leikstíll Swansea kristallaðist í
sigurmarkinu því liðið hafði haldið
boltanum í tæpar tvær mínútur og
var sendingin sem Gylfi fékk sú átj-
ánda í röð á milli liðsmanna Swan-
sea. Sú nítjánda var svo stoðsending
Gylfa á Danny Graham sem skoraði
sigurmarkið. Sambabolti í snjónum.
Þurfti ekki að sannfæra Gylfa
Það er engin tilviljun að Gylfi end-
aði í Swansea en þjálfari liðsins er
Brendan Rodgers, sá hinn sami og
gaf Gylfa sitt fyrsta tækifæri hjá Read-
ing. Rodgers var himinlifandi eftir
sigurinn á WBA og hrósaði íslenska
landsliðsmanninum í hástert. „Gylfi
er virkilega hæfileikaríkur leikmað-
ur. Ég hef haldið sambandi við hann
alveg síðan hann spilaði fyrir mig hjá
Reading. Ég vissi að hann yrði frábær
viðbót fyrir þennan klúbb og að hann
myndi smellpassa í liðið,“ sagði Rod-
gers á vefsíðu Swansea eftir leikinn.
Hann bætti við: „Ég gaf honum
tækifærið hjá Reading þannig að ég
vissi allt um hann. Mér fannst við
þurfa á sóknarsinnuðum miðju-
manni að halda fyrir seinni hluta
tímabilsins og hann er maðurinn
sem okkur vantaði,“ sagði Rodgers
sem þurfti ekki að sannfæra Gylfa
um að ganga til liðs við Swansea.
„Það þurfti ekkert að tala hann til.
Hann veit hvernig ég starfa. Ef ég sé
hæfileika vil ég nota þá í liðið. Eftir
að ég setti hann í liðið hjá Reading
skoraði hann rúmlega tuttugu mörk.
Lífið hefur verið honum erfitt í Hof-
fenheim að undanförnu því hann er
búinn að vera með þrjá þjálfara þar.
En Gylfi er klár strákur. Hann elsk-
ar breska boltann og veit hvernig ég
vinn,“ sagði Rodgers.
Frábærar umsagnir
„Gylfi Sigurðsson leiðir Swansea
til aðeins annars útisigurs liðsins,“
var fyrirsögnin á leikskýrslu The
Sunday Mirror um sigur Swansea á
West Brom. Það var ekki þverfótað
fyrir góðum umsögnum um Gylfa
í leiknum enda ekkert annað hægt
eftir frammistöðu hans. „Svalur Sig-
urðsson heldur Swansea á siglingu,“
var fyrirsögnin í leikskýrslu blaðsins
The Independent en Swansea hefur
gengið vel eftir komu Gylfa. Í fyrsta
leik sínum spilaði hann seinni hálf-
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Hannaður fyrir
enska boltann
n Gylfi Sigurðsson var maður leiksins í sigri Swansea á WBA um helgina n Twitter logaði
Sérfræðingarnir
n Adrian Durham, útvarpsmaður hjá
talkSPORT: „Sigurðsson – bestu kaupin í
félagaskiptaglugganum? Hver segir svo að
það sé ekki að hægt að kaupa nein gæði í
janúar? Gylfi hefur alltaf haft hæfileika.“
n Matt Law, fótboltapenni hjá The Daily
Express: „Sigurðsson er virkilega góður.
Flott hjá Swansea að fá hann á láni.
Rodgers þjálfari er virkilega að hugsa út
fyrir kassann.“
n John Bradley, fótboltalýsandi á ESPN:
„Er mjög hrifinn af Gylfa Sigurðssyni.
Var frábær í hvert einasta skipti sem ég
sá hann hjá Reading. Virkilega góður á
boltann.“
n Robert Lancaster, íþróttafréttamaður
hjá Sky Sports: „Er mikill aðdándi stráksins
Sigurðssonar eftir að hafa fylgst með
honum hjá Swansea. Hann verður frábær
kaup fyrir Swansea.“
Stuðningsmenn Swansea
n Callum Barlow: „Ég vil fá Sigurðsson
til frambúðar hjá Swansea. Teiknaðu upp
samning EINS OG SKOT herra Rodgers.“
n Emily Lewis: „Vildi óska þess að við
gætum fengið Sigurðsson til frambúðar.
Svo fallegur.“
n Joe Grandon: „Við ÞURFUM að semja
við Sigurðsson til frambúðar. Algjör topp-
maður.“
n Adam Benito Galdo: „Gylfi Sigurðsson
er búinn að vera frábær fyrir Swansea. Hef
hann í miklum metum. Flottur strákur.“
n Liam Kiely: „Ég væri til í að Tólf dagar
til jóla-lagið um Cantona væri fært yfir á
Gylfa Sigurðsson. Hversu flott yrði það?“
Aðrir
n S.P. Reilly: „Gylfi Sigurðsson gæti endað
með því að verða bestu félagaskiptin í
janúarglugganum.“
n Martyn Coffey: „Sigurðsson verður
betri leikmaður en Gerrari að mínu mati.
Besti leikmaður sem ég hef séð í Reading-
treyjunni. Verður ekki lengi hjá Swansea.“
n Simon Charles: „Hoffenheim rétt nær
að vinna Augsburg í þýsku deildinni en
svo lána þeir leikmenn eins og Obasi og
Sigurðsson sem skora mörk. Úthugsað.“
n Ricky Bent: „Var að horfa á Match of
the day. Eins og ég hef sagt áður þá er Gylfi
Sigurðsson í allt öðrum klassa en aðrir
og mun spila fyrir eitt af toppliðunum
bráðlega.“
Talað um Gylfa á Twitter
Ekki gaman Gylfi var inn og út úr liðinu hjá
Hoffenheim og vildi því komast burt.
Umdeild hönnum Ekki finnst öllum nýi Ferrari-bíllinn flottur. MynD REUtERS
Ronaldo
vill aftur til
Englands
Enn einn ganginn er því slegið
upp í breskum blöðum að Cris-
tiano Ronaldo vilji fara aftur í
ensku úrvalsdeildina. Um helgina
greindi Sunday Express frá því að
27 ára gamli Portúgalinn hefði
sagt vinum og vandamönnum frá
því að hann saknaði United og
væri óánægður með stuðnings-
menn Real eftir að þeir efuðust
um metnað hans fyrr á tímabilinu.
Manchester City og Chelsea eru
sögð vera tilbúin að slá félaga-
skiptametið fyrir hann þó endur-
koma til United sé ekki ólíkleg.
Ronaldo spilaði með United frá
2003–2009 og vann deildina þrí-
vegis.
„Gerið mig að
píslarvotti“
Breski ríkissaksóknarinn hefur
staðfest að færslur vandræða-
gemsans Joeys Barton á Twitter,
sem hann ritaði um John Terry
eftir að fyrirliðabandið var tekið
af honum hjá enska landsliðinu,
séu nú til rannsóknar. Barton fór
ófögrum orðum um fyrirliðann
en Barton er alveg sama. „Ég skal
glaður fara í fangelsi í einn mánuð
í nafni málfrelsis. Ég hef ekkert út
á það að setja. Gerið mig að píslar-
votti,“ ritaði Barton á Twitter eftir
að hann heyrði fréttirnar. Barton
hefur verið að gera allt vitlaust á
Twitter síðan hann skráði sig þar
og staðið í rifrildum við nánast
alla blaðamenn á Englandi.
Ekki á eftir Bale
Andoni Zubizarreta, fyrrverandi
markvörður Barcelona og núver-
andi yfirmaður fótboltamála hjá
félaginu, neitar því staðfastlega
að Katalóníurisinn sé í viðræðum
við Tottenham um kaup á Gareth
Bale. „Það er ekki satt að ég hafi
verið í Lundúnum að semja við
nokkurn mann. Ég hef sagt það
þúsund sinnum að níutíu prósent
þeirra leikmanna sem við viljum
í aðalliðið okkar eru annaðhvort í
því eða hluti af unglingastarfi okk-
ar,“ sagði Zubizarreta við spænska
fjölmiðla.