Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2012, Blaðsíða 22
Nýtt ofurpar
n Halldór Helgason snjóbrettakappi er byrjaður með Stefaníu Ingadóttur
Tæmir fataskápinn
n Stílistinn Alda B. þarf að koma nýjum fötum fyrir og heldur fatamarkað
É
g eiginlega þarf að gera
þetta til að koma nýju fyr-
ir,“ segir Alda B. Guðjóns-
dóttir stílisti þegar hún
er spurð af hverju hún ætli að
tæma fataskápinn sinn með
því að halda fatamarkað. Alda
er líklega einn þekktasti stílisti
landsins og ætlar að selja fötin
sín, föt sem hún hefur sankað
að sér vegna vinnunnar og föt
allrar fjölskyldunnar á mark-
aðnum.
„Við eigum alveg fullt af
dóti og þarna inni á milli er
mikið af gersemum,“ segir
Alda og bætir við að til sölu
verði meðal annars föt, skart,
skór, töskur og jakkar. „Það
ættu allir að geta fundið sér
eitthvað því þetta er í öllum
stærðum. Sjálf hef ég flakkað
úr stærðum 10 og 14 og svo á
ég fjögur börn svo þarna verða
barnaföt á nýfædd alveg upp
að unglingsaldri. Konufötin
eru mikið „second hand“ en
svo eru þarna dýrir hönnuðir
inni á milli eins og Marjan Pe-
joski, Marc Jacobs, Vivienne
Westwood, Sonia Rykiel, Aft-
ur, Steinunn, Threeasfour og
auk þess fullt af Boss-herra-
skyrtum.“
Aðspurð um verðið segist
hún ætla að vera sanngjörn.
„Það verður bara Kolaports-
verð á þessu. Ég hef tvisvar
haldið svona áður og þeir sem
mættu þá voru bæði ánægðir
með það sem þeir fengu og á
hvaða verði þeir fengu það.“
Alda segist varla geta valið
sína uppáhaldsverslun. „Ég
kaupi mér alltaf mjög mikið af
fötum, bæði heima og úti. Ég
geymi alltaf einhverja klass-
ík sem ég veit að ég get not-
að ár eftir ár en mér finnst fínt
að leyfa öðrum að njóta þess
sem maður er hættur að nota.
Annars liggur þetta bara uppi
í skáp og safnar ryki. Ég skoða
mikið „second hand“ búðir og
markaði þegar ég er í útlönd-
um og svo finnst mér líka bara
fínt að fara í Urban Outfitters
og jafnvel Topshop.“
Markaður Öldu B. verður
haldinn á fimmtudaginn milli
17 og 20 í portinu hjá Smur-
stöðinni Klöpp, Suðurlands-
braut 16.
22 Fólk 6. febrúar 2012 Mánudagur
Leita að íbúð
í miðbænum
Fjölmiðlakonan Tobba
Marinósdóttir er að missa
leiguhúsnæði sitt í Kópavogi.
Hún leitar því logandi ljósi
að annarri íbúð í miðbæ
Reykjavíkurborgar þar sem
hún hyggst flytjast inn með
kærasta sínum, borgar-
fulltrúanum Karli Sigurðs-
syni. Tobba segir Karl eiga
litla íbúð í miðbænum sem
rúmi ekki skóna hennar, því
leita þau að tveggja til þriggja
herbergja íbúð fyrir
barnslaust par og gullfisk.
Tobba og Kalli hafa skoðað
fjölda íbúða. „Þetta er eins
og að vera í biðröð eftir
strætó þegar það er opið hús,
það fyllist allt,“ segir hún.
Helgi og
límmiðinn
Límmiðamál Já.is vakti
tölvuverða athygli í síðustu
viku. Fyrirtækið lét hanna
límmiða fyrir notendur
símaskrárinnar sem vildu
hylja Egil Einarsson sem
prýðir forsíðuna ásamt fim-
leikastúlkunum úr Gerplu.
Þessi límmiðaframleiðsla
Já.is fór svo sannarlega ekki
fram hjá fréttamanninum
Helga Seljan sem ákvað að
setja gulan kassa yfir andlit
sitt sem prýðir forsíðumynd
hans á samskiptasíðunni
Facebook. Minnti þetta svo
sannarlega á þann gula miða
sem Já.is framleiddi til að
líma yfir Egil á forsíðu síma-
skrárinnar.
Alda B. Alda býður upp á notuð föt auk dýrari merkja á borð við Marjan
Pejoski, Marc Jacobs, Vivienne Westwood, Sonia Rykiel og Aftur.
Tók viðtal
á Tenerife
Silfurkappinn Logi Geirs-
son er staddur á Tenerife
þessa dagana í æfinga- og
viðskiptaferð. Á Facebook-
síðu sinni sagði hann frá
áhugaverðum manni sem
hann kynntist. „Kynntist
manni sem var á himn-
um, sagði mér frá öllu og
hvernig hann kom inn í
gufuhvolfið sem rafeind,“
ritaði Logi. Logi hefur
sjálfur farið í mörg viðtölin
á lífsleiðinni en nú snéri
hann blaðinu við. „Ég er
að fara í sundlaugargarð-
inn að taka við-
tal við hann.
Hann gekk
með Jesú
í Nasaret,
spáði heims-
endi og fleira
skemmtilegu,“
skrifaði
Logi.
S
njóbrettakappinn ungi
og efnilegi Halldór
Helgason og Stefanía
Ingadóttir hafa opin-
berað samband sitt á Fa-
cebook-síðum sínum og heyrst
hefur að hér sé næsta ofurpar Ís-
lands á ferðinni. Halldór er einn
mesti afreksíþróttamaður Ís-
lendinga og orðinn vel þekktur
á heimsvísu þótt íþróttin sé ekki
sú þekktasta hér á landi. Það
má því segja að Halldór sé einn
efnilegasti íþróttamaður Íslands
og hefur hann náð lengra í sinni
grein en margir aðrir. Stefanía
tók þátt í Ungfrú Norðurlandi
árið 2009 og lenti í öðru sæti.
Þau eru bæði fædd árið 1991 og
búa saman í Mónakó.
Með bestu snjóbrettamönn-
um heims
Halldór hefur verið búsettur í
Mónakó ásamt bróður sínum
Eika sem einnig er mikill snjó-
brettakappi. Þeir bræðurnir
hafa tekið snjóbrettaheiminn
með trompi og eru einir allra
bestu snjóbrettamenn heims.
„Stefanía og Halldór hafa alltaf
vitað hvort af öðru þar sem þau
eru jafnaldrar og bæði frá Akur-
eyri,“ segir Snædís Malmquist,
vinkona Stefaníu. Hún segir að
Stefanía hafi flutt til Mónakó til
þess að vera með Silju, mágkonu
Halldórs, á meðan þeir Eiki voru
að ferðast út af snjóbrettabrans-
anum en Stefanía og Silja eru
vinkonur. Halldór og Stefanía
hafi byrjað saman í kjölfar þess.
„Þau byrjuðu saman í nóvem-
ber, umboðsmanni Halldórs til
mikils ama, þar sem Halldór er
mjög dáður af kvenfólkinu. Um-
boðsmaðurinn taldi því sam-
bandið ekki vera gott fyrir frama
Halldórs. Stefanía er búin að fá
nokkur „hótunarbréf“ síðan þau
gerðu sambandið opinbert á
Face book í síðustu viku en hún
tekur nú bara létt í það.“
Krúttlegt par
Svo virðist sem fjölskyldur og
vinir parsins séu ánægð með
ráðahaginn en það má sjá á
hamingjuóskum sem rignir yfir
þau á Facebook. „Fjölskylda
Halldórs og Eika fóru í heim-
sókn til þeirra í Mónakó og tóku
Stefaníu mjög vel enda eru þau
mjög krúttlegt par,“ segir Snæ-
dís og bætir við að Stefanía
búi nú með Halldóri í Mónakó
ásamt Silju og Eika.
Atvinnumaður í þrjú ár
Eins og fyrr segir hafa þeir
bræður vakið athygli í snjó-
brettaheiminum með frammi-
stöðu sinni. Þeir eru úr Hörg-
ársveit í Eyjafirði og ólust upp
á bænum Sílastöðum. Eftir
grunnskóla fór Halldór til Sví-
þjóðar og gekk í snjóbretta-
skóla og eftir þrjú ár þar fékk
hann sinn fyrsta styrktarað-
ila. Hann hefur verið atvinnu-
maður í íþróttinni síðan þá.
Hann er á leið á heimsmeist-
arakeppnina sem fram fer í
Osló í mánuðinum. Halldór er
einn af fjórum sem fá boð um
að taka þátt án þess að hafa
unnið rétt til þess á fyrri mót-
um. Aðrir keppendur hafa þurft
að vinna sér inn keppnisrétt.
Hann vann einnig gullverð-
laun í Big Air á Vetrar X-leikun-
um árið 2010 og er hann fyrsti
Íslendingurinn sem vinnur til
verðlauna á þessum leikum.
Reka saman
nokkur fyrirtæki
Bræðurnir eru nú staddir í
Japan vegna viðtals við tíma-
rit en snjóbrettaiðkun er ekki
það eina sem þeir hafa vakið
athygli fyrir heldur reka þeir
nokkur fyrirtæki saman. Þar má
nefna Hoppipolla Headwear
sem selur ýmiss konar höfuð-
fatnað, Lobster Snowboarding
sem framleiðir snjóbrettalínu
og Sevennine13. Nýjasta fyrir-
tæki bræðranna heitir Switch-
backbindings og reka þeir það
í samvinnu við ýmsa aðra úr
snjóbrettaheiminum.
„Stefanía og
Halldór hafa
alltaf vitað hvort af
öðru þar sem þau eru
jafnaldrar og bæði
frá Akureyri.
Halldór og Stefanía
Myndarlegt ungt par.
Eiki og Silja Silja er vinkona Stefaníu og mágkona Halldórs.
Halldór með verðlaunin Hann
gerði sér lítið fyrir og sigraði á einu
stærsta jaðaríþróttamóti heims,
Winter X Games, árið 2010.