Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Page 8
8 Fréttir 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað • Michael Chekhov tækni • Senuvinna • Textagreining • Undirbúningur fyrir áheyrnarprufur • Hugleiðsla og slökun • og margt fleira... Leiktækniskólinn er á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar. Skráning og fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com. Aldurtakmark 18 ára. "Frábært námskeið, ég lærði helling" - Steindi jr. Nýtt námskeið frá 28. janúar - 3. mars. 2012. Kennsla fer fram á laugardögum frá kl. 13.00 - 16.30 Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara sinnar kynslóðar með áratuga reynslu af vinnu við leikhús, kvikmyndir og sjónvarp. Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist • Michael Chekhov tækni Senuvinna • T xtagreining Undirbúningur fyrir áheyrnarprufur • Hugleiðsla og slökun og margt fleira... Leiktækniskólinn er á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar. Skráning og fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com. Ald rtakmark 18 ára. "Frábært námskeið, ég lærði helling" - Steindi jr. Nýtt námskeið frá 28. janúar - 3. mars. 2012. K nnsla fer fram á laugardögum frá kl. 13.00 - 16.30 Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara si nar kynslóðar með áratuga reynslu af vinnu við l khús, kvikmyndir og sjónv rp. Námskeið í hagnýtri g skapandi leiklist tt námskeið frá 5. mars – 9. apríl 2012 Kennsla fer fra á mánudögu frá kl. 19.30 – 23.00 Í hrakningum á hálendinu: Hringdi í pabba sinn eftir aðstoð Alex Hibbert, 25 ára Breti sem lenti í hrakningum á Vatnajökli á mið- vikudag, hringdi í föður sinn til að biðja um aðstoð þegar hann lenti í vandræðum. Alex var á ferð um jökulinn ásamt Finn McCann en tjaldið þeirra fauk og tjaldsúlurnar brotnuðu. Í samtali við breska dag- blaðið The Daily Mail lýsir Hibbert tjaldi þeirra sem lítilli gröf. Eftir að tjaldið eyðilagðist fóru þeir að óttast um öryggi sitt. Raf- hlaðan á gervihnattasíma þeirra var nánast tóm og ákvað Hibbert því að hringja í föður sinn í Portsmouth á Englandi. Faðir hans hafði sam- band við bresk yfirvöld sem komu skilaboðunum áleiðis til Íslands.  „Þegar hann hringdi var hann afar rólegur. Hann hefur upplifað ýmislegt á ferðalögum sínum og er því afar reyndur. Ég sagði honum að við myndum kalla eftir hjálp,“ segir faðir hans í samtali við The Daily Mail. Alex sagði við The Daily Mail að þeir hefðu ferðast um fimmtíu kíló- metra um Vatnajökul og var hann vonsvikinn að geta ekki klárað ferð- ina. Hann vonast til að geta farið aftur sem fyrst.  Jón Gnarr setti vetrarhátíð Jón Gnarr borgarstjóri setti Vetrar hátíð í gærkvöldi. Setn- ingin fór fram á Skólavörðu- holti í Reykjavík en í kjölfarið tók við Rafmögnuð náttúra, verk arkitektsins Marco Zotes. Hann hefur umbreytt Hallgrímskirkju í „stórbrotna upplifun ljóss, lita og hreyfingar við lifandi flutning hljómsveitarinnar For a Minor Reflection“, eins og segir í tilkynn- ingu. Verkið er byggt á frumefn- unum fjórum – vatni, jörð, eldi og vindi. Hluti verksins inniheldur upptökur frá geimskipi NASA, SDO, og af sólargangi dagana rétt fyrir Vetrarhátíðina. Verkið mun standa út Vetrarhátíð eftir að rökkva tekur. Á tta milljarða króna viðskipti eignarhaldsfélags Pálma Har- aldssonar, Fons, við Glitni árið 2008 voru afgreidd án löglegr- ar heimildar með tölvupóst- um og í símtölum hans eða fjármála- stjóra Fons, Guðnýjar Reimarsdóttur, við starfsmenn bankans. Um var að ræða afleiðusamninga um framvirk hlutabréfaviðskipti sem Fons gerði við Glitni upp á samtals umrædda upphæð. Engar undirskriftir af þeirra hálfu lágu fyrir sem staðfestu viðskipt- in. Afleiðusamningarnir voru fram- lengdir sjö sinnum með þessum hætti á árinu 2008. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að því með dómi að hvorki Pálmi Haraldsson né Guðný hafi haft heimild til að skuldbinda félagið með þessum hætti þar sem ekki liggi fyr- ir að stjórn félagsins hafi veitt þeim heimild til þess. Glitnir höfðaði mál á hendur þrotabúi Fons þar sem bank- inn krafðist þess að kröfur hans í bú Fons vegna samninganna yrðu við- urkenndar sem almennar kröfur í bú Fons. Skiptastjóri Fons, Óskar Sigurðs- son, hafði áður hafnað kröfum Glitnis á þeim forsendum að skort hefði gögn um samþykki Fons í viðskiptunum. Pálmi og Glitnir Dómurinn í málinu sýnir fram á þann mun sem virðist hafa verið á reglum Glitnis um slík viðskipti fyrir hrunið 2008 og svo aftur framkvæmd þessara reglna, að minnsta kosti í til- felli einstakra viðskiptamanna eins og Pálma og Fons. Dómurinn sýnir enn betur fram á hversu óeðlileg við- skipti Pálma Haraldssonar voru við Glitni, en áður hefur komið fram, í svokölluðu Aurum-máli, að Pálmi hafi í reynd lagt línurnar í milljarða- viðskiptum sínum og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar við Glitni árið 2008. Tölvupóstar sem birtir eru í stefnu slitastjórnar Glitnis í Aurum-málinu sýna fram á þetta. Dómurinn sýnir fram á að Glitn- ir braut í raun skilmála sem bankinn setti sjálfur um viðskiptin við Fons áður en þau hófust árið 2007. Starfsmenn Glitnis voru í vondri trú Í dómnum segir að skilmálar bank- ans vegna viðskiptanna við Fons frá árinu 2007 hafi ekki verið undirrit- aðir af stjórn Fons og því hafði Pálmi og Guðný í reynd ekki haft heimild til að skuldbinda félagið. Um þetta seg- ir í dómsorðunum: „Þá er jafnframt til þess að líta að samkvæmt hinum almennu skilmálum vegna markaðs- viðskipta sóknaraðila og Fons hf. frá 12. september 2007, sem undirritaðir eru af hálfu sóknaraðila, var af hálfu sóknaraðila gerð sú krafa að stjórn Fons hf. myndi undirrita skilmálana og undirrita umboð til handa starfs- mönnum Fons hf. til að eiga viðskipti við sóknaraðila um markaðsviðskip- in og rita undir samningana fyrir hönd félagsins. Það var ekki gert.“ Hvorki Pálmi né Guðný höfðu því þetta umboð til að skuldbinda félagið með þeim hætti sem þau gerðu með tölvupóstum og símtölum. Í dómn- um segir að starfsmenn Glitnis hafi því átt að vita betur – þeir hafi verið „grandsamir“ – en að heimila Pálma og Guðnýju að skuldbinda félagið án heimildar og með áðurnefndum tölvupóstum og símtölum eingöngu. Símtölin spiluð fyrir dómi Í dómnum er rakið hvernig afleiðu- samningarnir voru endurnýjað- ir á árinu 2008. Samtals var um að ræða sjö samninga. Einungis einn af samningunum var undirritaður af Pálma. Hinir sex samningarnir voru framlengdir með tölvupóstum þann 29. ágúst 2008. Pálma hafði verið sendur tölvupóstur þar sem hann var spurður hvort hann vildi framlengja samningana. Pálmi svaraði því til um hluta samninganna að hann vildi endurnýja þá, „framlengja“ sagði hann í tölvupósti. Þann 17. septem- ber 2008 svaraði hann tölvupósti starfsmanns Glitnis um framleng- ingu á hluta samninganna með orð- inu „ok“. Þann 2. október 2008, í banka- hruninu, þurfti að endurnýja samn- ingana aftur og sá Guðný um að gera það í tveimur símtölum sem vitnað er til í dómnum. Orðrétt segir um þetta í dómnum þar sem sjónarmið lögmanns þrotabús Fons eru tíund- uð af dómaranum: „Í þessu sam- bandi skuli á það bent að af gögn- um málsins verði í raun ekki ráðið að samskipti Guðnýjar og starfsmanna Glitnis hf. hafi verið venjubundin. Raunar sé í gögnum málsins ein- göngu að finna hljóðritun úr tveim- ur símtölum þar sem Guðný ræði um slík viðskipti sem hér sé tekist á um.“ Inntakið í dómnum er bæði það að dómarinn gagnrýnir Glitni harka- lega fyrir að heimila starfsmönn- um Fons að skuldbinda fyrirtækið án þess að hafa til þess heimild auk þess sem samningarnar voru fram- lengdir með nokkuð léttúðugum hætti miðað við þá stórfelldu fjár- hagslegu hagsmuni sem voru undir í viðskiptunum. Heildartap Fons af viðskiptunum nam nærri 10 millj- örðum króna. Glitnir mun að sama skapi ekki fá greiddar þær kröfur sem bankinn telur sig eiga á hendur Fons vegna viðskiptanna. Milljarða viðskipti afgreidd símleiðis n Höfðu ekki heimild til að skuldbinda Fons n Glitnir í vondri trú Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Það var ekki gert Enn eitt málið Dómurinn í málinu er enn eitt dæmið sem sýnir að Pálmi Haraldsson hafi átt í óeðlilegum við- skiptum við Glitni á árunum fyrir hrunið. Kexfélag Eggerts í þrot n Skilaði einum ársreikningi í sögu sinni K ex ehf., eignarhaldsfélag í eigu Eggerts Magnússonar, fyrrverandi formanns Knatt- spyrnusambands Íslands (KSÍ) og stjórnarformanns West Ham, hefur verið tekið til gjald- þrotaskipta. Eggert er einna þekkt- astur fyrir tengsl sín við KSÍ og West Ham en hann var einnig forstjóri kexverksmiðjunnar Fróns á sínum tíma. Gjaldþrotið var auglýst í Lög- birtingablaðinu í vikunni. Kex ehf. tengdist þó ekki kex- framleiðslu heldur var tilgang- ur þess skilgreindur sem fasteign- arekstur, kaup og sala, lánastarfsemi og annað slíkt. Félagið var stofnað árið 2005. Á rekstrarárum sínum skilaði félagið aðeins einu sinni árs- reikningi, árið 2009. Þar kom fram að hlutafé félagsins væri 500 þús- und krónur og að engin starfsemi hefði verið í félaginu það árið. Kex var því ekki mjög aðsópsmikið fé- lag. Lítið hefur frést af Eggerti í fjöl- miðlum eftir að Björgólfur Guð- mundsson sá til þess að hann lét af störfum hjá West Ham árið 2007 eftir nokkuð dræmt gengi og rekst- ur liðsins. Eggert seldi þá 5 pró- senta hlut sinn í knattspyrnuliðinu til Björgólfs. ingi@dv.is Kex gjaldþrotaEignarhaldsfélag í eigu Eggerts Magnússonar hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.