Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Page 34
34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
S
igríður fæddist í
Reykjavík en ólst
upp í Grundarhverfi
á Kjalarnesi en flutti
átján ára til Reykja-
víkur. Hún var í Klébergsskóla,
stundaði nám við Fjölbrauta-
skólann í Ármúla og lauk
þaðan stúdentsprófum 2002,
stundaði síðan nám í félags-
ráðgjöf við Háskóla Íslands og
lauk þaðan BA-prófi 2008 og
MA-prófi 2010.
Sigríður sinnti ýmsum
aðhlynningarstörfum á
námsárunum og starfaði við
framreiðslu. Hún var félags-
ráðgjafi við þjónustumið-
stöð Reykjavíkurborgar frá
2010 og hefur verið félags-
ráðgjafi á fjölskyldusviði
Mosfellsbæjar frá ársbyrjun
2011.
Sigríður situr í stjórn
ADHD-samtakanna.
Fjölskylda
Maki Sigríðar er Árni Björn
Guðmundarson, f. 2.9. 1977,
vaktformaður við Búðar-
hálsvirkjun.
Sonur Sigríðar og Árna
Björns er Unnar Karl Steph-
ensen Árnason, f. 9.7. 2004.
Systkini Sigríðar eru Pét-
ur Valgarð Pálsson, f. 5.9.
1984; Aldís Bára Pálsdóttir, f.
15.4. 1990.
Foreldrar Sigríðar eru Páll
Ægir Pétursson, f. 16.7. 1959,
skipstjóri, og Helga Bára
Karlsdóttir, f. 10.4. 1960,
verslunarstjóri.
B
irna fæddist á Akureyri,
ólst upp á Ólafsfirði frá
því á fyrsta ári og til
1965, síðan á Akureyri
til 1970, þá að Illuga-
stöðum í Fnjóskadal þar sem
faðir hennar var umsjónarmað-
ur orlofshúsa, og síðan að Efri-
mýrum í Engihlíðarhreppi þar
sem foreldrar hennar stunduðu
búskap á árunum 1974–80, er
þau brugðu búi og fluttu fyrst til
Blönduóss en síðan í Grindavík
1981.
Birna var í barnaskóla á Ak-
ureyri, að Skógum í Fnjóskadal,
í Stórutjarnarskóla og Húna-
vallaskóla. Hún hefur síðan
sótt ýmis námskeið og stund-
aði nám við öldungadeild
Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
stundaði síðan fjarnám í við-
skiptafræði við Háskólann á Ak-
ureyri og lauk viðskiptafræði-
prófi árið 2010.
Fjölskylda
Birna giftist 26.12. 1981 Jóhanni
Þresti Þórissyni, f. 22.11. 1962,
vélstjóra, frá Blönduósi. Hann
er sonur hjónanna Þóris Heið-
mars Jóhannssonar, f. 23.12.
1941, d. 9.2. 2010 og Ingibjarg-
ar Kristjánsdóttur, f. 26.6. 1942.
Þórir er kjörsonur Jóhanns
Teitssonar og k.h., Ingibjarg-
ar Sigfúsdóttur en þau bjuggu
lengst af á Refsteinsstöðum í
Víðidal. Ingibjörg er dóttir Krist-
jáns Benediktssonar og k.h.,
Þorbjargar Björnsdóttur. Þau
bjuggu að Hæli í Torfalækjar-
hreppi.
Börn Birnu og Jóhanns
Þrastar eru Þórir Ingi, f. 3.4.
1982, sjómaður en börn Þór-
is eru Emma Lív f. 15.6. 2004,
móðir hennar er Valgerður
Jennýjardóttir og Jakob Hrafn,
f. 18.4. 2011 en móðir hans er
Hanna Agla Ellertsdóttir; Anna
Lilja, f. 22.2. 1983, grunnskóla-
kennari, gift Einari Gunnarssyni
f. 10.2. 1981, en börn þeirra eru
Jóhann Sverrir, f. 21.5. 2008 og
Klara María, f. 15.9.2009; Björn
Ólafur, f. 25.7.1991, nemi í sam-
búð með Öldu Maríu Almars-
dóttur f. 21.11.1988.
Systkini Birnu eru Ragna
Árný, f. 1963, búsett á Blöndu-
ósi, gift Birgi Ingólfssyni og eiga
þau eina dóttur auk þess sem
Ragna missti son af slysförum,
Björn Ingvar Pétursson, f. 9.3.
1981, d. 20.1. 1998; Áshildur
Eygló, f. 1966, búsett í Njarðvík,
hún á fimm syni; Björn Hall-
dór, f. 1969, búsettur í Reykjavík,
hann á dóttur og tvö stjúpbörn;
Aðalheiður Hanna, f. 1976, bú-
sett í Njarðvík, gift Halli Krist-
mundssyni og eiga þau þrjú
börn; Gestur Gunnar, f. 1978,
búsettur á Akureyri.
Foreldrar Birnu: Björn
Gunnarsson, f. 6.7. 1942, nudd-
fræðingur, búsettur á Akureyri,
og Klara Gestsdóttir, f. 27.11.
1942, d. 4.2. 1993, húsmóðir.
Sambýliskona Björns er Sig-
ríður Olgeirsdóttir, f. 14.1. 1954,
húsmóðir.
Ætt
Björn er sonur Gunnars, á
Ólafsfirði Björnssonar, frá
Skeggjabrekku í Ólafsfirði Frið-
björnssonar. Móðir Gunnars
var Sigfríður Björnsdóttir, b.
á Ytri-Gunnólfsá í Ólafsfirði
Baldvinssonar, og Kristínar
Bjarnadóttur.
Móðir Björns er Birna Krist-
björg Björnsdóttir, b. í Vík í
Héðinsfirði Ásgrímssonar, b. í
Hólakoti í Fljótum Björnsson-
ar. Móðir Björns í Vík var María
Eiríksdóttir, b. á Felli í Sléttu-
hlíð Jónssonar. Móðir Birnu
var Anna Lilja Sigurðardótt-
ir, b. á Vatnsenda í Héðinsfirði
Guðmundssonar, b. á Þrasa-
stöðum Ásgrímssonar. Móðir
Önnu Lilju var Halldóra Guð-
rún, systir Ásgríms í Hólakoti.
Klara var dóttir Gests,
rennismiðs Halldórssonar, b.
á Bakka í Öxnadal Jóhanns-
sonar. Móðir Gests var Jónína
Jónsdóttir, b. á Króksstöðum
Jónssonar, og Rósu Sigurðar-
dóttur.
Móðir Klöru var Hansína
Jónsdóttir, skipstjóra Hall-
dórssonar og Clöru Bjarna-
dóttur, skipasmiðs frá Geirs-
hlíð í Flókadal í Borgarfirði
Einarssonar. Móðir Clöru var
Hansína Zophoníasardóttir, í
Hvammi í Eyjafirði Ólafssonar.
S
veinn fæddist á Selfossi
en ólst upp á Drumb-
oddsstöðum í Bisk-
upstungum. Hann var
í Grunnskólanum í
Reykholti, stundaði nám við
Iðnskólann í Reykjavík og lauk
þaðan sveinsprófi í rafeinda-
virkjun 2008.
Sveinn ólst upp við öll al-
menn sveitastörf á Drumb-
oddsstöðum, starfaði hjá Öss-
uri á árunum 2002–2005, var á
námssamningi hjá Marel 2007
en hefur starfað hjá Saga Sys-
tem ehf frá 2008.
Sveinn hefur sungið með
kórum frá tíu ára aldri, fyrst
með Barnakór Biskupstungna,
síðan með Kammerkór Bisk-
upstungna, með Skálholts-
kórnum, með Karlakórnum
Þröstum í Hafnarfirði og loks
með Vox Academica um skeið.
Fjölskylda
Kona Sveins er Vigdís Rut And-
ersen, f. 12.7. 1980, verslunar-
maður.
Systur Sveins eru Jórunn
Svavarsdóttir, f. 18.3. 1971,
bóndi á Drumboddsstöðum;
Anna Svavarsdóttir, f. 24.10.
1973, húsasmíðameistari í
Reykjavík; Dóra Svavarsdóttir,
f. 9.3. 1977, matreiðslumeistari
í Reykjavík.
Foreldrar Sveins eru Svav-
ar Ásmundur Sveinsson, f. 6.5.
1942, fyrrv. bóndi á Drumb-
oddsstöðum og járnsmiður,
búsettur að Gilbrú í Reykholti,
og Laufey Eiríksdóttir, f. 16.11.
1944, fyrrv. bóndi á Drumb-
oddsstöðum og starfar við hús-
hjálp.
Ætt
Sveinn er sonur Kristjáns, b. í
Langholtsparti í Flóa Diðriks-
sonar, b. í Kjarnholtum Dið-
rikssonar, hreppstjóra í Laug-
arási, bróður Þorláks, langafa
Önnu, ömmu Björns Bjarna-
sonar, fyrrv. ráðherra, Val-
gerðar Bjarnadóttur alþm. og
Markúsar Arnar Antonsson-
ar sendiherra. Annar bróðir
Diðriks var
Þorsteinn,
langafi
Sigurðar,
föður Egg-
erts Hauk-
dal fyrrv.
alþm. Dið-
rik var son-
ur Stefáns,
b. í Neðradal Þorsteinssonar,
b. í Dalbæ Stefánssonar, pr.
í Steinsholti Þorsteinssonar.
Móðir Þorsteins var Ingibjörg
Jónsdóttir, pr. á Ólafsvöllum
Erlingssonar, bróður Gísla, afa
Eiríks Vigfússonar, dbrm. á
Reykjum, ættföður Reykjaætt-
ar. Móðir Diðriks í Laugarási
var Vigdís Diðriksdóttir, b. á
Önundarstöðum Bjarnason-
ar og Guðrúnar Högnadóttur,
prestaföður á Breiðabólstað í
Fljótshlíð Sigurðssonar, langafa
Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Stefáns
var Guðríður Guðmundsdóttir,
b. á Kópsvatni Þorsteinssonar,
ættföður Kópsvatnsættar, lang-
afa Magnúsar Andréssonar,
ættföður Langholtsættar, lang-
afa Ásmundar Guðmunds-
sonar biskups. Móðir Sveins á
Drumboddsstöðum var Guð-
ríður Sveinsdóttir.
Móðir Svavars var Magn-
hildur, dóttir Indriða, b. í Arn-
arholti Guðmundssonar, b. í
Kjarnholtum, bróður Diðriks
í Kjarnholtum. Móðir Indr-
iða var Vilborg, systir Gísla,
afa Ingveldar, konu Ágústs
Þorvaldssonar, alþm., föður
Guðna, fyrrv. ráðherra. Systir
Vilborgar var Guðrún, amma
Vilhjálms skálds frá Skáholti.
Vilborg var dóttir Guðmundar,
b. á Löngumýri Arnbjörnsson-
ar, bróður Ögmundar, föður
Salvarar, langömmu Tómas-
ar Guðmundssonar skálds.
Móðir Vilborgar var Ingibjörg
Gísladóttir, b. í Útverkum á
Skeiðum Jónssonar. Móðir
Magnhildar var Theodóra Ás-
mundsdóttir.
Laufey er dóttir Eiríks, b. á
Eyvindarstöðum í Eyjafjarðar-
sveit Elíassonar, og Jórunnar
Hrólfsdóttur húsfreyju.
S
teinar fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp í Breiðholtinu
og í Vesturbænum.
Hann var í Granda-
skóla og Hagaskóla, stund-
aði nám við Menntaskólann
í Hamrahlíð, stundaði nám á
blokkflautu og síðar trompet
við Tónskóla Sigursveins og
síðar við Tónlistarskóla Sel-
tjarnarness, stundaði síðan
trompetnám við Tónlistar-
skóla Reykjavíkur og lauk
þaðan 8. stigs prófi árið 2006,
stundaði síðan framhalds-
nám við Boston Conservatori
of Music, Theater and Dance
og lauk MA-prófi þaðan árið
2008.
Steinar starfaði við sumar-
búðirnar við Ástjörn í Keldu-
hverfi á unglingsárum, vann
auk þess í byggingarvinnu
með námi á unglingsárun-
um, var vagnstjóri hjá Strætó
bs í fjögur ár og ók auk þess
langferðabílum og leigubif-
reiðum.
Steinar er tónlistarkennari
við Tónlistarskólann í Garða-
bæ og við Tónlistarskólann
í Reykjanesbæ. Hann hefur
leikið með ýmsum tónlistar-
hópum, lék með Lúðrasveit
Seltjarnarness á æsku- og
unglingsárunum, lék með
Lúðra-
sveit
verka-
lýðsins í
mörg ár
og hef-
ur virkur
einleikari
við ýmis
tækifæri
um jól og páska, lék með Stór-
hljómsveit Seltjarnarness í
eitt ár, leikur með Málblást-
urssveit Reykjavíkur, er með-
limur í Sinfónínuhljómsveit
áhugamanna og aukamaður
með Sinfónínuhljómsveit Ís-
lands, auk þess sem hann hef-
ur tekið þátt í margvíslegum
tónlistarviðburðum, s.s. upp-
töku á afmælislagi RÚV og á
jólatónleikum Fíladelfíu.
Fjölskylda
Bræður Steinars eru Stefán
Helgi Kristinsson, f. 6.4. 1979,
orgelleikari Njarðvíkurkirkju;
Guðbjörn Már Kristinsson, f.
14.5. 1983, nemi í guðfræði við
Háskóla Íslands; Gunnlaugur
Þór Kristinsson, f. 19.10. 1988,
nemi í fjölmiðlafræði við Há-
skóla Íslands.
Foreldrar Steinars eru
Kristinn L. Matthíasson, f.
4.12. 1950, leigubifreiðar-
stjóri í Reykjavík, og Droplaug
G. Stefánsdóttir, f. 5.1. 1953,
hjúkrunarfræðingur.
G
eir Magnússon fædd-
ist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk
prófi frá Samvinnu-
skólanum 1961.
Geir starfaði hjá Fjármála-
deild SÍS 1961–84 og var fram-
kvæmdastjóri Fjármáladeildar
1976–84. Hann var bankastjóri
Samvinnubanka Íslands hf.
1984–91 og forstjóri Olíu-
félagsins hf 1991–2001 og síð-
an forstjói Kers hf. 2002–2003.
Geir hefur átt sæti í fjölda
stjórna og félagasamtaka, s.s.
Samvinnusjóðs Íslands hf; Vá-
tryggingarfélags Íslands hf. og
tengdra félaga, Vinnslustöðv-
arinnar hf, stjórnarformaður;
Samskipa hf, stjórnarformað-
ur; Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna; Lindar hf;
Kreditkorta hf; Sambands ís-
lenskra viðskiptabanka; Sam-
vinnulífeyrissjóðsins, stjórn-
arformaður, Stjórnunarfélags
Íslands; Framsóknarfélags
Reykjavíkur og ýmissa félaga á
vegum flokksins; Iðnrekstrar-
sjóðs; Íslensra aðalverktaka;
Sameinaðra verktaka; Starfs-
mannafélags Sambandsins;
Deildar samvinnustarfsmanna
í VR og Ungmennafélagsi-
ins Breiðabliks. Þá sat hann í
bankaráði Seðlabankans og
skólanefnd Samvinnuskólans
á Bifröst o.fl.
Fjölskylda
Geir kvæntist 19.10. 1963 Krist-
ínu Björnsdóttur, f. 25.10. 1943,
húsmóður. Hún er dóttir Sig-
ríðar Rósu Þórðardóttur, f.
28.1. 1915 d. 31.10. 2003, hús-
móður, og Björns Markússon-
ar, f. 12.4. 1910, d. 26.6. 1991,
húsasmíðameistara.
Börn Geirs og Kristínar eru
Erla Geirsdóttir, f. 23.4. 1964,
verslunarmaður, gift Gunn-
ari Gunnarssyni framkvæmda-
stjóra og eiga þau þrjú börn,
Geir Gunnarsson, f. 9.1. 1984
viðskiptafræðingur en sam-
býliskona hans er Berglind
Guðmundsdóttir, f. 29.7. 1983,
Gunnar Gunnarsson, f. 22.9.
1993 og Kristín Eva Gunn-
arsdóttir, f.1.1. 1997; Krist-
inn Þór Geirsson, f. 27.7. 1966,
framkvæmdastjóri, kvæntur
Thelmu Víglundsdóttur, þau
eiga tvær dætur, Brynju Krist-
insdóttur, f. 28.7. 1996, og Krist-
jönu Birtu Kristinsdóttur, f. 7.4.
1998; Gunnsteinn Geirsson, f.
2.10. 1980, viðskiptafræðing-
ur, kvæntur Gunnhildi Evu
Arnoddsdóttur, f. 19.1. 1980,
en þau eiga tvær dætur, Júlíu
Líf Gunnsteinsdóttur, f. 14.12.
2004, og Ragnheiði Lovísu
Gunnsteinsdóttur, f. 30.7. 2007.
Systkini Geirs eru: Helgi
Magnússon f. 1.11.43, tann-
læknir, kvæntur Guðlaugu Guð-
jónsdóttur húsmóður og eiga
þau fjögur börn; Sigrún Magn-
úsdóttir, f. 17.2. 1951 d. 14.4.
2006, lyfjafræðingur, var gift Jó-
hannesi Halldórssyni húsasmið
og eignuðust þau fjögur börn.
Foreldrar Geirs voru Kristín
Þóra Gunnsteinsdóttir, f. í Vest-
mannaeyjum 13.8.1919, d. 17.9.
2011, húsmóðir, og Magnús Sig-
urvin Magnússon, f. í Hvamms-
vík í Kjós 11.3.1918, d. 8.1. 2006,
verslunarmaður.
Geir Magnússon
Fyrrv. forstjóri
Sigríður Stephensen Pálsdóttir
Félagsráðgjafi, búsett í Reykjavík
Birna Kristbjörg Björnsdóttir
Viðskiptafræðingur í Grindavík
Sveinn Svavarsson
Rafeindavirki í Reykjavík
Steinar M. Kristinsson
Trompetleikari og tónlistarkennari
70 ára á laugardag
30 ára á laugardag
50 ára á sunnudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag