Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Síða 38
Hvað er að gerast? Laugardagur Föstudagur Sunnudagur 11 FEB 10 FEB 12 FEB Mið-Ísland á stóra sviðinu Mið-Ísland hópurinn stendur fyrir uppistandi á stóra sviði Þjóðleik- hússins í kvöld. Uppselt hefur verið á allar fyrri sýningar hópsins sem fram hafa farið í Þjóðleikhús- kjallaranum. Tvær sýningar verða þetta kvöld, klukkan 20 og 23. Reiðmenn vindanna á Akranesi Hinn eini sanni Helgi Björnsson ásamt Reiðmönnum vindanna skemmta í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og aðgangseyrir er 2.900 krónur. Amma er best Geir Ólafsson og Furstarnir verða með barnatónleika í Ráð- húsi Reykjavíkur í tengslum við Vetrarhátíð. Frítt inn fyrir alla. Tónleikarnir hefjast klukkan 13. Norðurljósaleit Ævintýralega sjóferð sem farin verður frá Reykjavíkurhöfn og leitað að norðurljósunum frá sjó. Sérferðir bjóða í ferðina á bátnum Rós, farið verður af stað kl. 21 og ferðin tekur um 2,5–3 klukkustundir. Fríir kuldagallar og heitir drykkir til staðar. Ókeypis er í ferðina. White Signal í sundi Unglingahljómsveitin White Signal heldur tónleika á sundlaugarbakk- anum í Árbæjarlaug. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Djass á Haiti Djasskvartettinn Ferlíki leikur djassperlur og dægurlög á Café Haiti ásamt Jóni Svavari Jósefs- syni. Frítt er á tónleikana sem hefjast klukkan 21.30. Órafmagnað myrkur Jón Þór Sigurleifsson heldur tónleika í Höfða, Borgartúni. Á tónleikunum mun hann spila sínar eigin endurútsetningar á þunga- rokkslögum. Hefst klukkan 14 og aðgangur er ókeypis. 38 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað „Virkilega skemmtilegt“ „Gott leikaralið í frábærri mynd“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Hundur í óskilum: Saga þjóðar The Descendants D agana 10. mars til 9. apríl munu leikararnir Magnús Jónsson og Þorsteinn Bachmann standa fyrir námskeiði í leiklist fyrir 18 ára og eldri. Námskeiðið er haldið undir merkjum Leiktækniskólans sem þeir stofnuðu í septem- ber 2011. Á námskeiðinu ætla þeir Magnús og Þorsteinn að styðj- ast við aðferðafræði Stanis- lavskis, Michaels Chekhov og Lees Strasberg í bland við nýja strauma og stefnur. Einnig munu þeir sækja nokkuð í brunn Helga Skúlasonar leikara sem rak eigin leiklistarskóla um árabil en þar lágu leiðir Magn- úsar og Þorsteins saman fyrst. Þeir voru svosamferða í gegn- um Leiklistarskóla Íslands og útskrifuðust þaðan vorið 1991. Kenndu Rikku leiklist „Það er bara einn dagur á milli okkar, við erum báðir sporð- drekar,“ segir Þorsteinn og horf- ir til Magnúsar sem situr við hliðina á honum. Það er merkilegt hvernig sporðdrekar heilsa hver öðrum. Jafnvel þótt þeim komi stjörnu- speki lítt við. Það kemur skond- ið mafíósalegt blik í augun. Það kemur svo í ljós að þeir eru þrír sporðdrekarnir sem sitja á 101 hóteli og ræða um leiklist og umræðurnar fara vítt og breitt. Nokkur tími fer í að sýna blaðamanni leiklistaræf- ingar sem er seinna um dag- inn sendur upp á ritstjórn DV með ákveðið heimaverkefni. Þá segja þeir frá því að leiklistin hafi komið einum nemanda þeirra í gegnum atvinnuviðtal og til þeirra hafa komið sjón- varpsstjörnur á borð við Rikku, Steinda jr. og fleiri til að bæta færni sína. „Á námskeiðin til okkar kemur fólk með mörg og mis- munandi markmið. Við leggj- um upp með að hlúa að ein- staklingnum en styðjumst við aðferðir sem við höfum mikla trú á,“ segir Magnús. „Námið er opið öllum og við gerum enga kröfu um einhverja sérstaka menntun eða reynslu. Sumir eru að undirbúa sig undir frekara nám, aðrir eru farnir að vinna við fagið en vilja bæta við kunnáttu sína. Tónlist- armenn, sjónvarpsfólk og aðrir listamenn. Þá kemur líka fólk sem hefur einfaldlega áhuga á því að læra leiklist af ýmsum ástæðum. Við leggjum upp með það að það sé 18 ára ald- urstakmark. Það er vegna þess að við viljum vinna með sjálf- stæða einstaklinga sem hafa mótað sér markmið og hafa aga til að vinna að þeim með þess- um aðferðum sem við leggjum upp með.“ Ritstjórn heilans rekin á einu bretti Blaðamanni er spurn hvort leiklist megi einfaldlega nýta í hversdaginn. Hvort fólk geti komið með sértæk markmið, eins og að bæta félagsleg sam- skipti eða efla stjórnunarfærni sína? „Já, að sjálfsögðu,“ svarar Þorsteinn. „Leiklistin getur hjálpað þér að losna við dóm- arann í sjálfum þér, og fara þess í stað að vinna með sjálfan þig eins og þú ert í raun og veru. Aðferðirnar hjálpa þér að kom- ast nær kjarnanum í þér. Fólk er oft hrætt við að kynnast sjálfu sér. Við erum með svo mikið af grímum og vörnum úti í samfé- laginu að við vitum varla hver við erum. Þegar við erum gagn- vart þér hér í viðtali þá erum við í ákveðnu hlutverki. Og þú líka. Dómarinn í okkur sjálfum sem er að verja egóið er oft helsta hindrun í veginum þegar kemur að því að skapa eitthvað nýtt. Dómarinn er sífellt að segja: hvernig kemur þetta út fyrir mig? hvað heldur fólk um mig? hvað finnst fólki? þetta er gott hjá mér núna, nei nú er ég lélegur og svo framvegis. Til þess að gera það þá þarf hugurinn að vera upptekinn við eitthvað annað því að dómar- inn er frekur og vill sífellt troða sér að og hugurinn er jú sífellt vinnandi. Þannig að við förum að vinna með það að gera hug- ann upptekinn við að gera eitt- hvað þrennt annað. Eins og að hlusta, hvíla í hlustuninni, veita hinum eftirtekt og yfirleitt að hætta að pæla í sjálfum sér. Þetta er mjög frelsandi. Strax í fyrsta tíma förum við að tala um það að það sé markmið í sjálfu sér að geta bara verið hér og nú; að losna undan þörfinni til að sýna heldur leyfa öllu að gerast án þess að vera bundinn af þessum dómara.“ Sálrænar pósur Þær aðferðir sem Þorsteinn og Magnús hafa ákveðið að vinna með spretta úr aðferðum Stan- islavskis og Michaels Chekhov sem var einn aðalleikari hans í Moskvuleikhúsinu. „Michael Chechov er ef- laust þekktastur fyrir sálfræði- lega pósu karaktersins. Eða „pshycologigal gesture“,“ út- skýrir Magnús. „Þessi pósa eða stelling er unnin eftir ákveðn- um aðferðum og einföldum æfingum. Leikarinn skoðar uppbyggingu karaktersins og spyr sig spurninga eftir að hafa kynnt sér verkið eða senuna. Er hann opinn, er hann lok- aður, er hann orkusuga? Svona vinnurðu þig áfram með þessar æfingar í því að búa til þessa pósu sem mun hjálpa þér að komast nær hinum sálræna eiginleika persónunnar og síðan er þetta líkamnað í eina stellingu eða pósu. Svo geturðu notað þessa aðferð fyrir leik- verkið og hverja senu fyrir sig að auki. Síðan eru sjö spurn- ingar Stani slavskis sem við spyrjum okkur líka: Hver erum við, hvaðan erum við að koma, hver er vilji okkar og hverjar eru hindranirnar? Þorsteinn heldur áfram. „Stanislavski stofnaði tilrauna- leikhús í Moskvu og fór að brjóta upp svokallað príma- donnuleikhús sem þá var við lýði og gekk fyrst og fremst út á að sýna sig. Leikarar voru mikið í því að sýna sig eða reyna við áhorfendur,“ segir hann og hlær. „Þetta var svona félagsleg kvöldskemmtun meira en hrein listsköpun. Stanislavski vildi breyta leikhúsinu úr innan- tómri kvöldskemmtun í list- sköpun sem væri drifin áfram af sannleiksleit. Aðferðafræði hans ferðaðist yfir hafið til Bandaríkjanna gegnum sýn- ingar tilraunaleikhússins. Lee Strasberg, Stanford Meisner og fleiri tóku upp aðferðir hans. Lee Strasberg ákvað til dæmis að helga lífi sitt frekari rann- sóknum á þeim galdri sem hann varð vitni að eina kvöld- stund hjá Moskvuleikhúsinu í New York einhvern tímann á miðjum þriðja áratug síðustu aldar og stofnaði meðal annars The Actors Studio í New York. En það var einmitt þar sem Marilyn Monroe, Meryl Streep, Marlon Brandon, Al Pacino, Dustin Hoffman og fleiri nafn- togaðir leikarar vestanhafs lærðu. Það er eiginlega alltaf hægt að rekja leiklist okkar daga með einhverjum hætti til Stanislavskis.“ Gerði sér upp flogaveiki kast á Lækjartorgi Þátttakendur í námskeiði Magnúsar og Þorsteins fá heimaverkefni. Hvað er það sem fólki finnst erfiðast? „Fyrsta hindrunin er kvíði yfir að takast á við nýtt verkefni. Um leið og fólk er komið yfir þann kvíða sem gerist eigin- lega bara á fyrstu mínútunum eru aðrar hindranir leikandi léttar og skemmtilegar,“ segir Magnús. „Við sendum fólk til dæmis út í lífið að stúdera fólk. Biðjum það að setjast niður á kaffi- húsi og vera svona einkaspæj- arar. Skoða fas og athafnir fólks og greina það sem fram fer. Lærifaðir okkar hann Helgi Skúlason var mjög mikið í því að senda okkur út í alls kyns leiðangra. Það mátti ekki vera neinn fíflaskapur heldur voru þetta verkefni unnin í fullri al- vöru. Þú áttir að búa til aðstæð- ur, verja þig í aðstæðunum og koma þér út úr aðstæðunum. Allt án þess að segja: Ég er bara í leiklistarskólanum að gera verkefni.“ „Ég man eftir því að ég þurfti að komast inn í ókunnugt hús. Ég ákvað að fara og og biðja um að fá lánaðan bolla af sykri. Markmiðið náðist ég komst inn í húsið en það var erfitt af því að í dyrum stóð hrædd eldri kona sem var ekkert endilega á því að hleypa mér inn,“ segir Þor- steinn. Magnús er með nokkuð enn betra. Hann þurfti að gera sér upp flogaveikikast á Lækj- artorgi. „Ég þurfti að hætta þegar löggan var á leiðinni og kona var við það að setja skó upp í mig til að verja mig meiðslum,“ segir hann með bros á vör. „En þetta var verk- efni fyrir lengra komna,“ segir Þorsteinn og hlær. „Þitt verk- efni verður ekki svona erfitt.“ Heimaverkefni blaðamanns Þá er komið að því að verk- efni blaðamanns er útlistað. „Þú átt að fá ritstjórann, Reyni Traustason, til þess að gefa þér stólinn sinn og þiggja þinn í staðinn. Þú átt að nota viljann og fá þínu framgengt en mátt ekki gefa upp hvers vegna,“ segir Þorsteinn. „Eða bílinn hans. Þú getur líka beðið um að fá bílinn hans lánaðan en mátt ekki gefa upp hvers vegna,“ bendir Magnús á. „Segjum að þú gerir það. Þá gætir þú farið inn á skrifstofu hans og sagt við hann. Komdu með bíllyklana. Núna strax. Ég þarf að fá jeppann lánaðan. Ef hann hikar, þá segir þú bara ákveðin við hann: Á stundinni, Reynir. Ég þarf að fara núna. Ef hann biður um ástæðu þá gæt- ir þú bara hrist höfuðið og sagt: Ekki vera með þessa vitleysu. Ég hef engan tíma til að standa í rökræðum.“ „Ég held við ættum að halda okkur við stól- inn,“ leggur Þorsteinn til. „Hitt gæti endað illa.“ Þeir hlæja. „Ekki gera neitt sem kemur þér í vandræði,“ leggur Þor- steinn til. Magnús er ekki sam- mála. „Maður veit nú aldrei hverju vandræði skila, það gæti vel verið að svona valdboð gæti skilað þér óvæntum yfir- ráðum.“ Það er ljóst að þeir eru dottnir í óskrifað handrit eftir því að dæma hvernig þeir skiptast á augngotum. Þorsteinn útskýrir verk- efnið: „Verkefnið leiðir í ljós að ef markmiðið er nógu skýrt þá verða til alls konar tilfinningar. Í staðinn fyrir að þú leikir þig reiða eða ágenga hefur þú í staðinn bara mjög skýrt mark- mið. Til dæmis að þú þurfir að fá launin þín í dag. Því fylgja þá alls kyns tilfinningar og ein af þeim getur verið reiði ef mót- staðan er mikil. Enginn sem er reiður er beinlínis að reyna að vera reiður. Hann verður það bara af því hann þarf svo mikið á einhverju að halda.“ Allir geta lært leiklist Geta allir lært leiklist? „Já,“ segir Magnús. „Hver einstaklingur er einstakur og það eru engir tveir eins í heiminum. Það hafa allir eitthvað fram að færa. Við trúum því að allir geti leikið.“„Ef þeir vilja læra það. Þá geta þeir leikið,“ bætir Magnús við. „Eitt af því sem nemendur læra er að þekkja gryfjurnar. Ein af þeim er til að mynda að dæma ekki Geta allir lært leiklist? Og má nota leik- list á jafn hversdagslegan máta og til þess að bæta félagsleg samskipti eða verða betri stjórnandi? Leikararnir Þorsteinn Bachmann og Magnús Jónsson kenna öllum þeim sem vilja leiklist. Þeir Þorsteinn og Magnús sögðu Kristjönu Guðbrands- dóttur frá aðferðum sínum og lögðu fyrir hana heimaverkefni. Að fá ritstjórann til að gefa sér skrifborðsstólinn sinn. Ritstjórn heilans rekin Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Þú átt að fá ritstjórann, Reyni Traustason, til þess að gefa þér stólinn sinn og þiggja þinn í staðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.