Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Side 56
Þórhallur safnar stuðningi n Ljóst er að baráttan um biskups- stólinn verður hörð en sem kunn- ugt er mun Karl Sigurbjörnsson láta af embætti í sumar. Meðal þeirra sem tilkynnt hafa um framboð er Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði. Þórhallur mun á næstu dögum leggja upp í tveggja vikna fund- arherferð um landið. Hyggst Þórhallur ræða við kjósendur í biskupskjöri og alla þá sem vilja ræða málin um framtíð kirkj- unnar. Fundarherferðin hefst Í Hafnarfjarðarkirkju á sunnudag en henni lýkur í Hólmavík þann 29. febrúar. Í millitíðinni mun Þórhallur meðal annars koma við á Selfossi, Eskifirði, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum, Akureyri og á Vest- fjörðum. Ljóst er að Þórhallur er verð- ugur keppinautur um embættið því hann er afar vin- sæll; enda alþýð- legur og ófeiminn prestur. Félagsheimili landsins Sími 554-2166 Velkomin Veitingahúsið Cafe Catalina býður ókeypis aðstöðu; til félags- funda- mannlífs- og menningarstarfs n Cafe Catalina verði þannig með tímanum Félagsheimili landsins n Stendur öllum félögum til boða hvar svo sem uppruninn liggur Akureyri Svalbarðseyri Grenivík Flatey Húsavík Reykjahlíð Kópasker Raufarhöfn Þórshöfn Bakkafjörður Vopnafjörður Borgarfjörð- ur Fellabær Egilsstaðir Seyðisfjörður Mjói- fjörður Neskaup- staður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Breiðdalsvík Djúpivogur Höfn Kirkju- bæjarklaustur Vík Vestmannaeyjar Hvolsvöllur Þykkvibær Hella Flúðir Laugarás Skálholt Reykholt Laugar- vatn Selfoss Hveragerði Stokkseyri Eyrarbakki Þorlákshöfn Grindavík Hafnir Sandgerði Garður Keflavík Njarðvík Vogar Hafnar- fjörður Álftanes Garðabær Kópavogur Seltjarnarnes Viðey Reykjavík sveitir landsins erlendis Mosfellsbær Akranes Hvann- eyri Bifröst Borgarnes Arnarstapi Hellissandur Rif Ólafsvík Grundar- fjörður Stykkishólmur Búðardalur Króks- fjarðarnes Reykhólar Flatey Breiðavík Patreksfjörður Tálknafjörður Bíldu- dalur Þingeyri Ingjaldssandur Flateyri Suðureyri Bolungarvík Hnífsdalur Ísafjörður Súðavík Grunnavík Aðalvík Hesteyri Eyri Djúpavík Drangsnes Hólmavík Borðeyri Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðár- krókur Varmahlíð Hofsós Hólar Siglu- fjörður Grímsey Ólafsfjörður Hrísey Dalvík Dagverðareyri Árskógssandur Hauganes Hjalteyri Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is Tökum að okkur þorra-blót fyrir stærri og minni hópa d v e h f. / d av íð þ ó r Margir vildu Lilju kveðið hafa! „Lilja alltaf verið heiðarleg“ n „Ég talaði um það við vini mína að ég myndi aldrei nota nafnið og að ég vonaði að Lilja Móses tæki það bara að sér. Það var svo fyndið að klukkutíma seinna hringdi Lilja og spurðist fyrir um nafnið,“ segir Bjarni Bergmann Vilhjálmsson, stofnandi Samstöðu-Þjóðarflokks, sem meðal annars kærði Alþingi vegna Icesave. Fjallað hefur verið um deilur Sam- stöðuflokks Lilju og félags á Patreks- firði sem ber sama nafn. Bjarni stofn- aði árið 2010 flokk með nafninu og segir samskipti sín við Lilju og félaga í tengslum við nafnaskráninguna hafa verið til fyrirmyndar. „Lilja hef- ur alltaf verið heiðarleg við mig og komið til dyranna eins og hún er klædd. Ég skil þessa Pat- reksfirðinga ekki. Þeir eru ekki einu sinni elsta stjórnmálaaflið með þetta nafn.“ Nýr fótboltavefur n Nýr fréttavefur um fótbolta, 433.is fer í loftið á næstunni. Meðal þeirra sem standa að vefnum eru tveir lykilmenn hjá Ölgerðinni, Frið- jón Hólmbertsson og Óttar Angantýs- son. Þá eru tveir markaðsmenn hjá Vert markaðsstofu tengdir við vef- inn, auk þeirra Sigurjóns Jónssonar bílasala og Ágústs Þórs Ágústssonar fótboltamanns í Fjölni. Ýmsir hafa orðið til að tengja Ölgerðina við vef- inn, enda er hún aðalstyrktaraðili Pepsi-deildarinnar í fótbolta. Vefsíðan fotbolti.net hefur hingað til verið eina sérhæfða fót- boltasíða landsins, en tveir af starfs- mönnum síðunn- ar hafa ráðið sig á nýja vefinn. J ú, þetta er búið að vera erfitt. En við erum svo grjótharðir hérna, við strákarnir að við höldum bara áfram,“ segir kokkurinn Gústav Alex Gunnlaugsson sem opn- aði á fimmtudag staðinn sinn, Sjáv- argrillið á Skólavörðustíg, á ný. Þegar DV náði tali af honum var hann óða- önn að undirbúa enduropnun stað- arins en tvö óhöpp hentu staðinn í janúar, vatnstjón og bruni. „Þetta er töluvert mikið tjón eftir brunann. 16– 17 dagar í lokun, þurfti að sparsla og mála allt upp á nýtt, skipta út pípu- lögnum, rafmagnstöflu og klósetti. Í vatnstjóninu þá lak úr uppþvottavél yfir parketið og það þurfti að skipta um gólfefni á stórum hluta. Þetta gerðist hvort tveggja í janúar þannig að þetta er búið að vera svolítið mik- ið,“ segir Gústav sem gefst ekki upp þó á móti blási. Þrátt fyrir að Gústav sé aðeins 24 ára hefur hann starfað á mörgum af betri veitingastöðum landsins og hefur unnið til fjölda verðlauna og var valinn matreiðslumaður ársins 2010. Sjávargrillið opnaði hann í apríl í fyrra ásamt Guðmundi Hans- syni og tengdaföður sínum þar sem hann var farið að langa til þess að eiga sinn eigin stað. Staðurinn hef- ur verið rekinn við góðan orðstír. „Þetta hefur gengið miklu betur en maður þorði að vona. Maður er allt- af búinn undir það að fyrsta árið sé rólegt en það hefur ekki verið hjá okkur. Við erum til dæmis í fyrsta sæti yfir veitingastaði á Íslandi inni á vefsíðunni Tripadvisor og það eru margir ferðamenn sem koma til okkar,“ segir hann en trip advisor. com er ein mest lesna ferðasíða í heiminum. viktoria@dv.is „Við erum svo grjótharðir“ n Veitingamaðurinn Gústav Alex opnar Sjávargrillið á ný eftir bruna og vatnstjón Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 10.–12. FeBrúAr 2012 17. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Opnar á ný Á fimmtudag opnaði Gústav á ný veitingastaðinn Sjávargrillið en hann hafði verið lokaður í rúmlega tvær vikur vegna bruna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.