Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Síða 15
EiturEfnin lEynast víða
Neytendur 15Mánudagur 20. febrúar 2012
Andlitsmálning fyrir börn
n Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga fyrir öskudaginn
Þ
að líður að öskudegi en þeim
degi fylgja búningar og and-
litsmálning. Andlitsmálning-
in getur þó verið varasöm og
mikilvægt að nota hana af varkárni.
Á taenk.dk eru nokkur ráð sem vert
er fyrir foreldra að hafa í huga áður
en andlit barnanna eru skreytt og
máluð:
n Veldu málningu án ilmefna og
án parabena.
n Fjarlægðu vel og vandlega
málninguna af húðinni. Notaðu vatn
og sápu ef málningin er vatnsheld
en annars hreinsikrem.
n Verði húð barnsins þurr er
mikilvægt að fjarlægja málninguna
strax. Gott er að gera prufu á húð-
inni með því að láta hana liggja á
litlum bletti í stuttan tíma og athuga
hvort húðin verði rauð.
n Varastu að setja málninguna á
varir og nálægt augum. Einnig skal
varast að setja hana á mjög þurra
húð, rifna húð eða þar sem eru sár
og skrámur.
n Andlitsmálning fyrir börn skal
vera merkt CE-merkinu.
n Kaupið einungis málningu sem
er með innihaldslýsingu og lesið
hana. Innihaldslýsingin á að vera á
umbúðunum, með þeim eða hægt
að fá þær í búðinni.
n Fleygið málningunni þegar
fyrningardagsetning er liðin.
Eiturefni
í umbúðum
Á heimasíðu danska ríkissjónvarpsins,
dr.dk, er fjallað um rannsókn þar sem
Xenia Trier, efnafræðingur við tækni-
skólann í Danmörku, rannsakaði 74
mismunandi pappa- og pappírsumbúðir
utan um mat og fann hún heilsuskaðleg
flúorkolefni í yfir helming þeirra.
Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni
hennar og hefur danska matvælastofn-
unin í kjölfarið ákveðið að framkvæma
nákvæmari og ýtarlegri rannsóknir á því
hvort og hvernig skaðleg efni berast frá
umbúðum í matvælin.
„Pappi og pappír eru mikið notaðir í
umbúðir utan um þurr matvæli en einnig
utan um frosin matvæli og þau sem eru
ætluð til hitunar í örbylgjuofni,“ segir
Trier við TV Avisen.
Hlutir sem innihalda PFC
n Pítsukassar
n Pappadiskar
n Örbylgjupoppkorn
n Regnföt
n Vatnsheldir skór
n Sófar
Nokkur dæmi
n Poki utan um smákökur á Subway
n Popz Poppkorn
n Bakki undir franskar kartöflur á
McDonald’s
n Pappír utan um kjúkling á McDonald’s
n Örbylgjupopp frá Estressa
n Servíettur á McDonald’s
n Haframjöl Ota Solgryn Økologisk
n Kassi utan um Big Mac á McDonald ś
n Múslí frá Kellog’s Müsle, extra fruit
n Kassi utan um ostborgara á
McDonald’s
n Dós undir McFlurry á McDonald’s
n Umbúðir um V6 tyggigúmmí
n Pönnukökur frá Daloon
n Umbúðir utan um eplaböku á Subway
n Þrávirk efni safnast saman í náttúrunni og mælast í mönnum n „Komin á ansi tæpt vað,“ segir Vilhjálmur Ari Arason læknir
Þalöt varasöm
fyrir börn
Hvað eru þalöt? Þalöt eru efnasambönd
sem hafa þá eiginleika að gefa plasthlutum
mýkt og er algengast að þau séu notuð með
PVC-plasti. Þalöt hafa verið notuð í efnaiðnaði
síðan snemma á 20. öld og sem mýkingarefni
í plast fljótlega eftir að það fór að koma á
markað upp úr 1950. Vitað er að viss þalöt geta
dregið úr frjósemi manna og verið skaðleg
ófæddum börnum í móðurkviði. Þalöt eru afar
lík hormónum í líkamanum og geta því haft
hormónatruflandi áhrif. Sérstaklega er þetta
varasamt fyrir börn þar sem þau eru að vaxa og
þroskast og hormónatruflanir geta haft áhrif á
vöxt og þroska þeirra í framtíðinni.
Fyrir örfáum árum fengu framleiðendur PlaySta-
tion á sig gagnrýni fyrir að í stýripinnunum var
að finna ýmisleg eiturefni og þar á meðal þalöt
þó svo að leikjatölvurnar sjálfar væru fram-
leiddar samkvæmt lögum. Þalöt eru bönnuð í
leikföngum en samkvæmt reglum Evrópusam-
bandsins teljast stýripinnar ekki til leikfanga.
Á heimasíðu Umhverfis-
stofnunar má finna
þessar ráðleggingar
n Ekki kaupa leikföng með sterka lykt því
ilmefnin geta valdið ofnæmi.
n Veldu leikfang merkt CE sem er yfirlýsing
framleiðandans um að leikfangið uppfylli
grunnkröfur Evrópu um öryggi leikfanga.
n Gott er að þvo leikföng upp úr í heitu
vatni og mörg leikföng passa jafnvel í upp-
þvottavélina, þannig er hægt að lágmarka
áhrif innihaldsefnanna á barnið.
n Forðastu að kaupa óvönduð leikföng eða
eftirlíkingar. Þó þau séu oftast ódýrari þá
eyðileggjast þau fljótt og enda í ruslinu.
Skaðleg efni í nýjum bílum
Það er ekki einungis mengun sem bílar gefa frá sér sem er skaðleg
fyrir okkur. Bandarísk rannsókn sýnir að í mörgum nýjum bílum er
að finna efni svo sem bróm, blý og kvikasilfur. Efni þessi má finna í
hlutum eins og mælaborði, gírstöng og í stýri. Þetta kemur fram á
vef Heilsubankans. Því eru þeir sem kaupa sér nýjan bíl hvattir til
að lofta vel út og þrífa bílinn vel að innan. Eins er ráðlagt að leggja
nýjum bílum í skugga, þar sem hitinn frá sólinni getur leyst skaðlegu
efnin úr læðingi en það getur gerst allt að þremur árum eftir fram-
leiðslu bílsins.
Lesið innihaldslýsingar
Margar algengar snyrtivörur og hreinsiefni
til heimilisnota innihalda kemísk eða tilbúin
efni sem geta valdið ofnæmi. Þar sem bæði
börn og fullorðnir geta verið viðkvæm fyrir
þessum efnum er ekki úr vegi að hafa augun
opin og lesa innihaldslýsingar á vörunum
áður en þær eru keyptar. Leiðbeiningastöð
heimilanna er með lista yfir þessi efni á
heimasíðu sinni og þar segir að efni þessi
séu mjög algeng í snyrtivörum og í hreinsi-
efnum. Efnin eru lögleg í snyrtivörum sam-
kvæmt reglugerðum Evrópuráðsins þar sem
ekki hefur verið sannað að þau hafi skaðleg
áhrif á fólk þar sem magnið sé yfirleitt lítið.
Á hinn bóginn er heldur ekki sannað að þau
séu skaðlaus að öllu leyti. Neytendum er
ráðlagt að kynna sér listann á heimasíðu
Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
Paraben
Paraben er rotvarnarefni hannað til
þess að lengja sölutíma vöru og er eitt
mest notaða rotvarnarefni í snyrti-
vörum í dag. Það er paraben í flestum
vörum sem konur nota við persónulega
umhirðu. Það er í sjampóinu, hárnær-
ingunni, húðkreminu, tannkreminu,
farðanum, dagkreminu, næturkreminu
og nánast öllu því sem er að finna í
snyrtiskápnum. Þátt fyrir að þetta
sé eitt mest notaða rotvarnarefni í
snyrtivörum í dag þá hafa fjölmargar
rannsóknir sýnt fram á að paraben
tengist brjóstakrabbameini. Paraben
hefur fundist í æxlum fjarlægðum úr
brjóstavef. Þá eru sterk tengsl milli
paraben-efna og ófrjósemi og horm-
ónaójafnvægis. Vísindamenn eru einnig
uggandi yfir þeim skaðlegu áhrifum sem
efnið hefur á ófædd og ung börn.
Æskilegt að þvo ný föt
Ný föt geta valdið ofnæmisviðbrögðum og
útbrotum þar sem í þeim má finna litarefni,
formaldehýð og önnur skaðleg efni. Það er
því mikilvægt að þvo ný föt áður en þau eru
notuð. Þetta á einnig við um sængurver og
handklæði.
Bisfenól A í niðursuðudósum
Vísindamenn við við Harvard-háskóla rannsökuðu dósamat. Fengnir voru 75 þátttakendur
til að borða súpu úr dós í morgunmat í fimm daga. Eftir það var magn hins skaðlega efnis,
bisfenól A mælt í þvaginu en efnið hefur áhrif á hormónastarfsemi okkar. Rannsóknin sýndi
að fimma daga neysla á 340 grömmum af dósasúpu leiddi til 12 sinnum meira magns af
efninu í þvagi þátttakenda en þeirra sem neyttu súpu sem ekki kom úr dós. Bisfenól A er
notað í plast sem sett er innan á flestar niðursuðudósir. Þar til rannsóknin var gerð, héldu
framleiðendur því fram að efnið næði ekki að berast í matvælin en niðurstöður rannsóknar-
innar benda sterklega til annars. Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós að bisfenól A líkir
eftir estrógeni í líkamanum og getur því truflað hormónastarfsemi. Það valdi meðal annars
röskun á innkirtlastarfsemi, ófrjósemi, skemmdum á æðakerfi og auki líkur á brjóstakrabba-
meini og snemmbærum kynþroska.
Öskudagur Mörg börn eru
máluð á öskudag en mikilvægt
er að velja rétta málningu.