Fréttablaðið - 14.12.2015, Blaðsíða 10
Munið
gjafabréfin!
DEVOLD ACTIVE SAMFELLA
Stærðir 74–98
5.890 KR.
DEVOLD DUO ACTIVE KID
Blátt og rautt, stærðir 2–8
6.890 KR.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
Fiskislóð 1
Sími 580 8500
Tryggvabraut 1–3
Sími 460 3630
REYKJAVÍK AKUREYRI
DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR
Blátt og rautt, stærðir 10–16
7.890 KR.
Jólagjöfin fæst
í Ellingsen
Hlýjar
jólagjafir
Miði fyrir tvo á
ABBA söngleikinn sem
enginn má missa af
Mamma Mia
12.900 kr.
Miði fyrir tvo á Njálu
og eitt eintak af
Brennu-Njáls sögu.
Njála
12.200 kr.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gjafakort fyrir tvo
og ljúffeng leikhúsmáltíð
Leikhúskvöld fyrir sælkera
12.500 kr.
Sérstök
jólatilboð
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn,
matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
GEFÐU
GEIT
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
• 102985
Viðskipti Fjórða hverjum Norð-
manni finnst erfiðast að finna réttu
jólagjöfina handa makanum, að því
er fram kemur í könnun sem norska
raftækjaverslunin Elkjøp lét gera fyrir
sig.
„Viðskiptavinir leita helst ráða hjá
okkur vegna þessara gjafa,“ er í til-
kynningu Elkjøp haft eftir Atle Bakke
framkvæmdastjóra. „Sem er kannski
skiljanlegt, því maður vill jú að gjöfin
til mannsins, eða konunnar, í lífi
manns hitti í mark.“
Í könnuninni, sem fyrirtækið You-
Gov gerði fyrir Elkjøp, kemur líka
fram að 17 prósentum finnist erfiðast
að gefa foreldrum sínum gjöf, meðan
12 prósentum finnst erfiðast að finna
gjöf handa börnum sínum.
„Vel heppnuð gjöf undirstrikar
gott samband við þann sem tekur
við henni, en misheppnuð gjöf getur
vakið efasemdir um sambandið.
Tengingin er sterkari eftir því sem
sambandið er nánara,“ er haft eftir
Anitu Borch hjá SIFO, norsku neyt-
endarannsóknastofunni. „Það er því
meira undir þegar maður kaupir
gjafir handa maka.“
Hún segir engu að síður hægt að
komast yfir slys vegna misheppnaðra
gjafa. „Sumir taka þetta nærri sér og
aðrir ekki. Ef hugsunin er góð að baki
gjöfinni, eða sá sem gefur virðist hafa
lagt bæði tíma og orku í hana, þá
vegur það upp á móti hættunni á að
gjöfinni verði illa tekið,“ segir Borch.
Könnun Elkjøp sýnir hins vegar
að níu af tíu aðspurðum var áfram
um að gjafir frá þeim falli að smekk
þess sem við þeim tekur. Borch segir
hins vegar allan gang á því hvað falli
í kramið hjá fólki, þetta sé persónu-
bundið og fari eftir sambandi fólks.
„Karlar ættu samt að velta fyrir sér
hvort konan verði í alvörunni ánægð
með baðvog undir jólatrénu.“ – óká
Erfiðast er að velja jólagjöf handa makanum
Á eftir maka eru foreldrarnir erfiðastir.
Hvaða jólagjafir er
erfiðast að kaupa?
Viðtakandi Hlutfall
Maki 24%
Foreldri 17%
Eigin börn 12%
Systkini 8%
Aðrir í fjölskyldunni 8%
Vinir/kunningjar 8%
Afi eða amma 4%
Aðrir 2%
Veit ekki/kaupi ekki gjafir 16%
Heimild: YouGov/Elkjøp
Rússland Rússneskt herskip skaut
viðvörunarskoti í átt að tyrknesku
fiskveiðiskipi í Eyjahafi í gær. Fjöl-
miðlar ytra greina frá þessu og eru
á einu máli um að þetta muni koma
til með að gera samskipti Rússa og
Tyrkja enn stirðari en ríkin hafa
deilt hart undanfarið allt frá því að
tyrkneski flugherinn skaut niður
rússneska orrustuþotu yfir Sýrlandi
í nóvember.
Í yfirlýsingu frá varnarmála-
ráðuneyti Rússlands segir að her-
skipið hafi skotið viðvörunar-
skotinu til að koma í veg fyrir að
skipin skyllu saman. Þá segir að
eftirlitsskipið Smetlviy hafi ítrekað
sent sjónrænar viðvaranir til tyrk-
neska skipsins áður en skotið var.
Þá hafi Rússar reynt að ná tal-
stöðvarsambandi við skipið þegar
það var í um kílómetra fjarlægð en
án árangurs. Þegar engin skilaboð
höfðu borist frá skipinu og það var
komið í um sex hundruð metra fjar-
lægð hafi rússneska skipið skotið í
átt að því svo að það breytti um
stefnu. Sendinefnd tyrkneska hers-
ins í Moskvu var kölluð saman í gær
vegna málsins.
Það hefur andað köldu á milli
Rússa og Tyrkja allt frá því að hinni
rússnesku SU-24 orrustuþotu var
grandað þann 24. nóvember síðast-
liðinn. Tyrknesk stjórnvöld hafa
haldið því statt og stöðugt fram
að vélin hafi flogið inn í lofthelgi
landsins þegar flugherinn ákvað
að granda henni. Þessu hafa ráða-
menn í Moskvu vísað á bug og segja
vélina hafa verið yfir Sýrlandi þegar
hún var skotin niður. Atvikið er litið
alvarlegum augum í Rússlandi og
hefur Vladimír Pútín, forseti lands-
ins, sagt það vera sem hnífstungu í
bak þjóðar sinnar.
nadine@frettabladid.is
Rússar skutu
á tyrkneskan
veiðiskip
Rússneskt herskip skaut viðvörunarskoti í átt að
tyrknesku fiskveiðiskipi í Eyjahafi í gær. Samskipti
ríkjanna hafa verið stirð undanfarið. Í yfirlýsingu frá
varnarmálaráðuneytinu í Mosku segir að skotið hafi
verið til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman.
Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að herskipið hafi skotið við-
vörunarskotinu til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman. NoRdicPHotos/AFP
Andað hefur köldu á
milli Rússa og Tyrkja frá því
að rússnesku SU-24 orrustu-
þotunni var grandað 24.
nóvember síðastliðinn.
1 4 . d e s e m b e R 2 0 1 5 m Á n U d a G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
1
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
C
-C
1
D
4
1
7
A
C
-C
0
9
8
1
7
A
C
-B
F
5
C
1
7
A
C
-B
E
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K