Fréttablaðið - 14.12.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.12.2015, Blaðsíða 10
Munið gjafabréfin! DEVOLD ACTIVE SAMFELLA Stærðir 74–98 5.890 KR. DEVOLD DUO ACTIVE KID Blátt og rautt, stærðir 2–8 6.890 KR. PI PA R\ TB W A • S ÍA – FULLT HÚS ÆVINTÝRA Fiskislóð 1 Sími 580 8500 Tryggvabraut 1–3 Sími 460 3630 REYKJAVÍK AKUREYRI DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR Blátt og rautt, stærðir 10–16 7.890 KR. Jólagjöfin fæst í Ellingsen Hlýjar jólagjafir Miði fyrir tvo á ABBA söngleikinn sem enginn má missa af Mamma Mia 12.900 kr. Miði fyrir tvo á Njálu og eitt eintak af Brennu-Njáls sögu. Njála 12.200 kr. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gjafakort fyrir tvo og ljúffeng leikhúsmáltíð Leikhúskvöld fyrir sælkera 12.500 kr. Sérstök jólatilboð Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. GEFÐU GJÖF SEM GEFUR www.gjofsemgefur.is GEFÐU GEIT P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985 Viðskipti  Fjórða hverjum Norð- manni finnst erfiðast að finna réttu jólagjöfina handa makanum, að því er fram kemur í könnun sem norska raftækjaverslunin Elkjøp lét gera fyrir sig. „Viðskiptavinir leita helst ráða hjá okkur vegna þessara gjafa,“ er í til- kynningu Elkjøp haft eftir Atle Bakke framkvæmdastjóra. „Sem er kannski skiljanlegt, því maður vill jú að gjöfin til mannsins, eða konunnar, í lífi manns hitti í mark.“ Í könnuninni, sem fyrirtækið You- Gov gerði fyrir Elkjøp, kemur líka fram að 17 prósentum finnist erfiðast að gefa foreldrum sínum gjöf, meðan 12 prósentum finnst erfiðast að finna gjöf handa börnum sínum. „Vel heppnuð gjöf undirstrikar gott samband við þann sem tekur við henni, en misheppnuð gjöf getur vakið efasemdir um sambandið. Tengingin er sterkari eftir því sem sambandið er nánara,“ er haft eftir Anitu Borch hjá SIFO, norsku neyt- endarannsóknastofunni. „Það er því meira undir þegar maður kaupir gjafir handa maka.“ Hún segir engu að síður hægt að komast yfir slys vegna misheppnaðra gjafa. „Sumir taka þetta nærri sér og aðrir ekki. Ef hugsunin er góð að baki gjöfinni, eða sá sem gefur virðist hafa lagt bæði tíma og orku í hana, þá vegur það upp á móti hættunni á að gjöfinni verði illa tekið,“ segir Borch. Könnun Elkjøp sýnir hins vegar að níu af tíu aðspurðum var áfram um að gjafir frá þeim falli að smekk þess sem við þeim tekur. Borch segir hins vegar allan gang á því hvað falli í kramið hjá fólki, þetta sé persónu- bundið og fari eftir sambandi fólks. „Karlar ættu samt að velta fyrir sér hvort konan verði í alvörunni ánægð með baðvog undir jólatrénu.“ – óká Erfiðast er að velja jólagjöf handa makanum Á eftir maka eru foreldrarnir erfiðastir. Hvaða jólagjafir er erfiðast að kaupa? Viðtakandi  Hlutfall Maki 24% Foreldri  17% Eigin börn 12% Systkini  8% Aðrir í fjölskyldunni 8% Vinir/kunningjar 8% Afi eða amma 4% Aðrir 2% Veit ekki/kaupi ekki gjafir 16% Heimild: YouGov/Elkjøp Rússland Rússneskt herskip skaut viðvörunarskoti í átt að tyrknesku fiskveiðiskipi í Eyjahafi í gær. Fjöl- miðlar ytra greina frá þessu og eru á einu máli um að þetta muni koma til með að gera samskipti Rússa og Tyrkja enn stirðari en ríkin hafa deilt hart undanfarið allt frá því að tyrkneski flugherinn skaut niður rússneska orrustuþotu yfir Sýrlandi í nóvember. Í yfirlýsingu frá varnarmála- ráðuneyti Rússlands segir að her- skipið hafi skotið viðvörunar- skotinu  til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman. Þá segir að eftirlitsskipið Smetlviy hafi ítrekað sent sjónrænar viðvaranir til tyrk- neska skipsins áður en skotið var. Þá hafi Rússar reynt að ná tal- stöðvarsambandi við skipið þegar það var í um kílómetra fjarlægð en án árangurs. Þegar engin skilaboð höfðu borist frá skipinu og það var komið í um sex hundruð metra fjar- lægð hafi rússneska skipið skotið í átt að því svo að það breytti um stefnu. Sendinefnd tyrkneska hers- ins í Moskvu var kölluð saman í gær vegna málsins. Það hefur andað köldu á milli Rússa og Tyrkja allt frá því að hinni rússnesku SU-24 orrustuþotu var grandað þann 24. nóvember síðast- liðinn. Tyrknesk stjórnvöld hafa haldið því statt og stöðugt fram að vélin hafi flogið inn í lofthelgi landsins þegar flugherinn ákvað að granda henni. Þessu hafa ráða- menn í Moskvu vísað á bug og segja vélina hafa verið yfir Sýrlandi þegar hún var skotin niður. Atvikið er litið alvarlegum augum í Rússlandi og hefur Vladimír Pútín, forseti lands- ins, sagt það vera sem hnífstungu í bak þjóðar sinnar. nadine@frettabladid.is Rússar skutu á tyrkneskan veiðiskip Rússneskt herskip skaut viðvörunarskoti í átt að tyrknesku fiskveiðiskipi í Eyjahafi í gær. Samskipti ríkjanna hafa verið stirð undanfarið. Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneytinu í Mosku segir að skotið hafi verið til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman. Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að herskipið hafi skotið við- vörunarskotinu til að koma í veg fyrir að skipin skyllu saman. NoRdicPHotos/AFP Andað hefur köldu á milli Rússa og Tyrkja frá því að rússnesku SU-24 orrustu- þotunni var grandað 24. nóvember síðastliðinn. 1 4 . d e s e m b e R 2 0 1 5 m Á n U d a G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð 1 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 A C -C 1 D 4 1 7 A C -C 0 9 8 1 7 A C -B F 5 C 1 7 A C -B E 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.