Fréttablaðið - 14.12.2015, Qupperneq 35
Bókina Atvinnumaðurinn sem
fjallar um knattspyrnumanninn
Gylfa Sigurðsson rituðu þeir Ólaf-
ur Þór Jóelsson og Viðar Brink.
„Við byrjuðum að vinna bókina
fyrir um ári og lögðum upp með
að sýna hversu góð fyrirmynd
Gylfi er. Hann er íþróttamað-
ur sem hefur þurft að hafa fyrir
öllum sínum skrefum frá því hann
var lítill gutti. Gylfi hefur haft
metnað og vinnusemi að leiðarljósi
í gegnum allan ferilinn og það er
það sem gerir hann að góðri fyrir-
mynd fyrir unga knattspyrnuiðk-
endur, bæði stráka og stelpur,“ út-
skýrir Ólafur.
Bókin lifnar
við
Í bókinni má
finna QR kóða
sem hægt er að
taka mynd af
með snjallsíma
eða spjaldtölvu
og þá koma upp
YouTube-mynd-
bönd en ýmiss
konar mynd-
efni var tekið
sérstaklega upp
fyrir bókina.
„Meðal annars
erum við með
myndbönd af
þessum æfing-
um sem Gylfi stundar. Við fengum
frænda Gylfa til að fara í gegn-
um helstu æfingarnar og sýna
hvernig þær eru gerðar. Krakkar
geta þannig séð einhvern á sínum
aldri taka þessar æfingar eins og
Gylfi gerir þær. Einnig eru viðtöl
við aðila sem eru tengdir Gylfa,
til dæmis Guðjón Þórðarson og
fleiri. Þau hafa ekki birst áður og
voru sérstaklega tekin fyrir bók-
ina. Auk þess er hægt að sjá mörk
Gylfa með landsliðinu og einnig
myndir sem teknar voru af fjöl-
skyldu hans á æfingum með FH og
Breiðabliki þegar hann var lítill.
Það er gaman að þessu og bókin
lifnar við með myndböndunum,“
segir Ólafur.
Á persónulegum nótum
Í Atvinnumanninum má lesa
allt um feril Gylfa, allt frá fyrstu
skrefunum með FH yfir í glæst-
an feril með íslenska landslið-
inu og Swansea. „Það er sérstak-
ur kafli um veru Gylfa hjá hverju
liði fyrir sig, tölur og staðreyndir
um það hvernig hann
stóð sig. Í kjölfarið
kemur svo kafli þar
sem Gylfi kemur
með sitt innlegg um
tímann hjá liðinu, til
dæmis hverjir voru
bestu vinir hans,
hvernig þjálfarinn
var, hvað var gott
við veruna þar og
svo framvegis.“
Í bókinni má líka
finna Hinar gullnu
reglur Gylfa en þar
gefur hann upp hvað
þarf að gera til að
auka líkurnar á því
að verða atvinnumaður. Einnig
er þar kafli sem heitir Hin hlið-
in þar sem lesendur fá að kynn-
ast honum á persónulegri hátt, til
dæmis hvað honum finnst best að
borða, hver sé uppáhalds tölvu-
leikurinn hans og besta tónlistin.
Gylfi gefur einnig upp drauma-
liðið sitt, hverjir séu hans erf-
iðustu andstæðingar og hverj-
ir bestu meðspilararnir en hann
hefur spilað með mörgum þekkt-
ustu knattspyrnumönnum heims.
Ólafur segir að hægt sé að
mæla með bókinni fyrir alla þá
sem vilja kynnast Gylfa Sigurðs-
syni. „Í bókinni kynnumst við
Gylfa sjálfum sem manneskju
og ferli hans. Í henni er mikið af
punktum sem hafa ekki komið
fram áður, allar staðreyndir um
hann og hans álit á öllum þeim
liðum sem hann hefur spilað með.
Bókin er fyrir alla þá sem hafa
áhuga á enska boltanum. Og fót-
bolta yfirhöfuð.“
Allt sem þú vilt vita um Gylfa Sig
Gylfi Þór Sigurðsson er einn besti knattspyrnumaður þjóðarinnar. Hann er lykilmaður í íslenska landsliðinu og mikil fyrirmynd fyrir aðra
íþróttamenn á öllum aldri. Út er komin bókin Atvinnumaðurinn þar sem lesendur geta kynnst Gylfa betur, bæði innan vallar og utan.
Ólafur Þór Jóelsson ritaði bókina Atvinnumaðurinn, sem fjallar um Gylfa Sigurðsson knattspyrnumann, ásamt Viðari Brink.
MYND/GVA
Nýstárleg og falleg barnabókar-
plata eftir Braga Valdimar Skúla-
son, flutt af Memfismafíunni,
er nú komin í verslanir. Karni-
valía er sprellfjörug
og léttkolsýrð mynd-
skreytt barnaplata.
„Mér finnst mjög
mikilvægt að krakkar
fái að kynnast því að
plata geti verið grip-
ur sem maður getur
skoðað og velt fyrir
sér um leið og hlustað
er á tónlistina. Lesið
textana og fengið eitt-
hvað aukalega þegar
hún er keypt,“ segir
höfundurinn, Bragi
Valdimar, og heldur
áfram. „Þess vegna
ákváðum við að fara
þessa óvenjulegu leið með Karni-
valíu. Hverju lagi fylgir lítil saga,
nokkurs konar hugvekja – auk
þess sem textarnir fá að njóta sín
vel. Bókin er líka með glás af lit-
ríkum og skemmtilegum teikning-
um eftir þá félaga Þorvald Gunn-
arsson á Brandenburg og Ágúst
Kristinsson, sem myndskreyttu
hvert lag.“
Karnivalía er í raun sjálfstætt
framhald Gilligill og Diskóeyjunn-
ar, sem Bragi Valdimar gerði með
Memfismafíunni 2008 og 2010.
„Það er meira og minna sama
gengið sem flytur lögin og á fyrri
plötunum. Magga Stína og Egill
Ólafs eru þarna, Sigtryggur Bald-
urs, Páll Óskar,
Siggi Guðmunds,
Sigga Thorlacius
og Ágústa Eva —
og svo auðvitað
Óttarr Proppé í
hlutverki prófess-
orsins, en hann
gerði með okkur
Diskóeyjuna á
sínum tíma.
Jón Gnarr
fer
Myndskreytt barnaplata – eða
söngskreytt ljóðabók fyrir börn?
Karnivalía er ellefu laga barnaplata. En hún er um leið glæsilega myndskreytt bók. Hún er eiginlega laumufarþegi í jólabókaflóðinu — þó
hún sé flokkuð sem hljómplata. Platan, sem er flutt af Memfismafíunni, er eftir Braga Valdimar Skúlason.
Við höfum haft að
leiðarljósi að gera
metnaðarfulla og
skemmtilega tón-
list fyrir börn.
Karnivalía er sjálfstætt framhald af Gilligill og Diskóeyjunni.
svo á algerum kostum í lagi um
mannanafnanefnd, enda eru
mannanafnalögin honum mikið
hjartans mál,“ segir hann.
Yrkisefnin á plötunni eru
allavega. Allt frá því að fylgj-
ast með ferðalagi kúka frá kló-
settskálinni upp í
ádeilu á ógnvæn-
lega snjallsíma-
væðingu mæðra.
Þarna er lag um
súkkulaðisjúkan afa,
lag um mannanöfn
og meira að segja
lag um gormdýr-
in í bókunum um
Sval og Val. „Við
Guðmundur Kristinn,
Kiddi hjálmur, sem sá
um upptökustjórn, höfum
alltaf haft það að leiðar-
ljósi að gera metnaðar-
fulla og skemmtilega tón-
list fyrir börn, sem fullorðnir
geta haft allavega jafn gaman
af og þau, ef ekki meira. Það á
alls ekki að gefa neinn afslátt af
gæðum þó að um „barnatón-
list“ sé að ræða. Nema síður sé.
Það er flakkað milli stíla í tónlist-
inni og spilagleðin er allsráð-
andi. Þarna er diskó, fönk,
skandinavískar ballöður og
rokk og ról. Eitthvað fyrir
alla!“
Hverju lagi
fylgir lítil saga.
Kynningarblað BÓKAJÓl
14. desember 2015 3
1
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
C
-D
0
A
4
1
7
A
C
-C
F
6
8
1
7
A
C
-C
E
2
C
1
7
A
C
-C
C
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K