Fréttablaðið - 14.12.2015, Page 40

Fréttablaðið - 14.12.2015, Page 40
Mögulegir árfestar: Leigufélög eða aðilar sem hyggjast byggja upp leigufélög, þar sem stór hluti eignanna er nú þegar í útleigu. Aðilar sem nýtt geta íbúðarhúsnæði í tengslum við atvinnustarfsemi sína. Byggingaverktakar, en hluti eignanna þarfnast lagfæringa. Sveitarfélög sem vilja auka framboð félagslegra íbúða í sveitarfélaginu. Til sölu: 504 eignir um allt land 569 6900 8–16www.ils.is Íbúðalánasjóður býður til sölu 504 eignir í 15 eignasöfnum í öllum landshlutum í opnu söluferli. Markmið með sölunni er að losa um eignarhald á stórum hluta eignasafns sjóðsins. Markmið Íbúðalánasjóðs Fækka fasteignum í eigu sjóðsins. Efla leigumarkað um land allt. Auka framboð um allt land. Nánari upplýsingar um söluferlið og eignasöfnin verða aðgengilegar á www.ils.is frá og með 14. desember. Upplýsingafundur fyrir árfesta: Mánudaginn 14. des. kl. 14.00 á Grand Hótel í Reykjavík. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á www.ils.is/sala. Skráning á www.ils.is/sala fyrir kl. 13.00, samdægurs. • • • • • • • Ufc Síðasta för Gunnars Nelson til Las Vegas var mikil frægðarför fyrir hann og vin hans og æfingafélaga, Conor McGregor. Hlutskipti þeirra var þó ólíkt að þessu sinni. Á meðan McGregor tryggði sér heimsmeistaratitilinn á ótrú- legan hátt þá tapaði Gunnar gegn Demian Maia á dómaraúrskurði. McGregor gerði sér lítið fyrir og rotaði heimsmeistarann Jose Aldo á þrettán sekúndum. Það er fljót- asti sigur í titilbardaga í sögu UFC. McGregor sló meira að segja sjálfri Rondu Rousey við Það sem gerir þennan sigur hans enn ótrúlegri er sú staðreynd að Aldo hafði ekki tapað í tíu ár og hafði verið eini fjaðurvigtameistar- inn í UFC. Ótrúlegur Írinn. Maia stórkostlegur á gólfinu Bæði Gunnar og Maia eru frá- bærir gólfglímumenn. Þeir bestu að margra mati og áhugamenn um glímu og jiu jitsu fengu fyrir allan peninginn í þessum bardaga. Þeir voru í gólfinu nánast allan tímann. Þó svo Gunnar sé frábær í gólfinu þá kom í ljós að Maia er stórkostlegur. Maia óð strax í Gunnar og náði honum niður. Gunnar var oft sleip- ur þar en Maia alltaf með yfirhönd- ina. Þetta var eins og köttur að stríða mús. Er Gunnar hélt hann væri að sleppa kom Maia með nýtt tak. Gunnar kom varla höggi á Maia allan bardagann á meðan Maia lét höggin dynja inn á milli þess sem hann vafði sig í kringum hann eins og slanga. Ótrúlegur íþróttamaður Maia og honum var eðlilega dæmd- ur yfirburðasigur. Gunnar náði ekkert að nýta boxið sitt í bardaganum og þó svo hann hafi látið Maia hafa virki- lega fyrir hlutunum var aldrei spurning hvernig færi. Miðað við frammistöðu Maia gerði Gunn- ar hreinlega vel að lifa af þrjár lotur í búrinu með honum. „Ég upplifði sjálfan mig lélegan í þessum bardaga og þetta er ömur- legt,“ sagði Gunnar eðlilega hunds- vekktur eftir bardagann. Hann var illa leikinn í framan eftir þá útreið sem hann fékk. Aldrei áður hefur sést eins mikið á honum eftir bar- daga. „Þetta var ekki minn dagur. Mér leið ekki vel og fannst ég ekki vera almennilegur allan bardagann. Ég fékk nokkur skot við og við þar sem mér leið eins og ég gæti hreyft mig almennilega en síðan ekki söguna meir,“ segir Gunnar en var hann orðinn bensínlaus í lokalotunni. „Ég veit ekki hvað skal segja. Mér fannst ég bara vera lélegur frá byrjun og var orðinn þreyttur og slappur. Líka standandi. Takturinn var ekki í lagi og bara allt. Þetta var bara einfaldlega ekki minn dagur að þessu sinni. Ég held að Maia hafi verið eins og ég bjóst við. Hann var drullugóður og einfaldlega betri maðurinn að þessu sinni.“ Missti af risatækifæri Gunnar missti af risatækifæri í þess- um bardaga að stökkva í hóp þeirra bestu en Maia gerði það í staðinn. Hann bað um titilbardaga eftir rimmuna við Gunnar og gæti hæg- lega fengið þá ósk sína uppfyllta. „Ég get tekið helling út úr þessum bardaga. Það má alltaf læra af svona og ég þarf að setjast yfir þetta með mínum þjálfurum og greina þetta. Það er ekkert annað að gera en að halda áfram og koma aftur til baka. Þetta er greinilega minn vegur og ég verð að taka hann alla leið.“ Brasilíumaðurinn Demian Maia var í miklum ham í bardaganum á móti Gunnari Nelson um helgina og lék sér oft að íslenska víkingnum eins og köttur að mús eins og sést á þessari mynd. FréttaBlaðið/Getty Maia var Henry Birgir Gunnarsson frá Las Vegas Martröðin númeri 45-2Demien Maia reyndi 193 högg á móti 7 frá Gunnari en lokastaðan var 45-2 í góðum högg- um í bardaganum. Mér fannst ég bara vera lélegur frá byrjun og var orðinn þreytt- ur og slappur Gunnar Nelson of stór Gunnar Nelson sá aldrei til sólar í bardaga sínum gegn Brasilíumanninum reynda Demian Maia. Gunnar viðurkenndi að hafa verið lélegur en ætlar sér að koma sterkari til baka eftir þetta tap. 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r20 s p o r t ∙ f r É t t A b L A ð i ð 1 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A C -A 4 3 4 1 7 A C -A 2 F 8 1 7 A C -A 1 B C 1 7 A C -A 0 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.