Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Síða 2
Ætla sér ekki að
skila peningunum
2 Fréttir 11. febrúar 2013 Mánudagur
n Steinunn og Páll undirbúa andsvör n Fimm lífeyrissjóðir vilja að þau skili 482 milljónum króna
S
teinunn Guðbjartsdóttir lög-
maður sem situr í slitastjórn
Glitnis, segir að hún og Páll
Eiríksson ætli sér ekki að
skila þeim tæplega 482 millj-
ónum króna sem nokkrir lífeyris-
sjóðir telja þau hafa oftekið sér í laun
út úr búi bankans. Lífeyrissjóðirnir
hafa sent bréf með þessari kröfu til
Héraðsdóms Reykjavíkur. „Nei, nei,
það er alveg ljóst. Við munum ekki
fallast á þessa kröfu. Við teljum að
hún eigi ekki rétt á sér. Þetta er mjög
stórt og umfangsmikið verkefni,
þetta eru eignir upp á 850 til 900
milljarða og skuldir upp á 3.600
milljarða. Þetta er tíunda stærsta
gjaldþrot í heimi þannig að það
er alveg ljóst að umfang búsins
kallar á mikið vinnuframlag.
Að öðru leyti munum við svara
þessu eftir bestu samvisku til
héraðsdóms, rétt eins og við
gerum með aðra hluti,“ segir
Steinunn.
DV hefur bréfið undir
höndum en það var unnið af
Reimari Péturssyni hæsta-
réttarlögmanni sem var
einn af lögmönnunum í
lögfræðiteymi Íslands í
Icesave-málinu. Heildar-
greiðslur þrotabúsins
til þeirra Steinunnar og
Páls, frá því þau voru skip-
uð í slitastjórn Glitnis árið 2009,
námu í fyrra 842 milljónum króna.
Kröfur Reimars í bréfinu eru þær
að Steinunn og Páll endurgreiði
umræddar 482 milljónir til búsins,
til vara er þess krafist að dómarinn
ákvarði upphæð endurgreiðslunnar,
auk þess sem farið er fram á að Hér-
aðsdómur Reykjavíkur víki þeim
Steinunni og Páli úr slitastjórn Glitn-
is ef þau endurgreiða ekki peningana
til búsins.
Umræðan hefur ekki áhrif
Þessar launagreiðslur til Páls og
Steinunnar hafa verið mjög um-
deildar í íslensku samfélagi síðast-
liðin ár. Aðspurð hvort þessi um-
ræða fari fyrir brjóstið á þeim Páli,
og kunni að hafa áhrif á það hvern-
ig þau bregðist við kröfunni, segir
Steinunn: „Þetta er nú bara vinna.
Það eru engar deilur um árangur-
inn af starfi okkar. Nei, þessi umræða
mun ekki hafa áhrif á það hvernig við
svörum kröfubréfinu.“
Sjóðirnir sem um ræðir eru í
kröfu hafahópi Glitnis en þeir eru:
Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
Gildi lífeyrissjóður, Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn, Söfnunarsjóður líf-
eyrisréttinda og Festa lífeyrissjóður.
Steinunn segir aðspurð að þau Páll
eigi að svara kröfu lífeyrissjóðanna á
þriðjudaginn kemur.
Geta farið í mál
Steinunn segir að þau Páll séu að
skoða kröfuna frá lífeyrissjóðunum
og undirbúi nú svör sín við henni.
„Við erum að skoða kröfuna, það er
ekki búið að taka þetta fyrir í hér-
aðsdómi. Þegar við svörum þessu til
héraðsdóms þá mun það bara koma
í ljós,“ segir Steinunn. DV hefur ekki
náð í Pál Eiríksson til að spyrja hann
um málið.
Eftir að Steinunn og Páll hafa
svarað bréfinu frá lífeyrissjóðunum
munu þeir taka rökstuðning þeirra
fyrir launagreiðslunum til skoðunar
og væntanlega taka ákvörðun um
það í kjölfarið hvort þeim verður
stefnt eða ekki. Ein af kröfunum sem
Reimar gerir fyrir hönd lífeyrissjóð-
anna er að Páll og Steinunn verði
látin greiða málskostnað vegna með-
ferðar málsins fyrir héraðsdómi ef
þau mótmæla kröfunni.
Verja launagreiðslurnar
Kröfuhafar Glitnis fengu upplýs-
ingarnar um heildargreiðslurnar
til Steinunnar og Páls í fyrra eftir að
slitastjórnin hafði neitað að upplýsa
kröfuhafana um þær. Kröfuhafarnir
höfðu hótað að fara í mál til að fá
þessar upplýsingar en á endan-
um veitti slitastjórnin þær í sept-
ember á síðasta ári. Í kjölfarið var
heilmikið rætt um þessar þóknanir
í fjölmiðlum en 842 milljónir þótti
ansi há tala.
Í samtali við DV í september síð-
astliðinn sagði Páll að greiðslurnar til
þeirra Steinunnar væru uppi á borð-
um gagnvart kröfuhöfunum: „Þetta er
bara uppi á borðum; þetta hefur verið
kynnt kröfuhöfunum og þeir hafa ekki
gagnrýnt þetta. […] Það er eðli rekstr-
ar að hann skili hagnaði. En eins og
ég segi þá þarf maður að gæta hófs,
ég viðurkenni það.“ Páll sagði einnig
að hann teldi að þau Steinunn hefðu
gætt hófs og að kröfuhafarnir hefðu
ekki lýst yfir óánægju með launakostn-
aðinn: „Já, mér finnst það vera vegna
þess að þetta hefur alltaf legið fyrir og í
samskiptum við kröfuhafa hefur þetta
alltaf komið fram og þeir hafa aldrei
lýst yfir óánægju með þetta.“ Steinunn
og Páll verja því bæði launagreiðslurn-
ar.
Steinunn segir enn fremur að
enginn annar kröfuhafi en lífeyris-
sjóðirnir hafi fett fingur út í launa-
greiðslurnar og að mikil vinna hafi
farið í undirbúning nauðasamninga
Glitnis. Hún ítrekar að hún telji að
Kröfur
lífeyris-
sjóðanna
n Steinunn Guðbjartsdóttir á að
endurgreiða: 234.146.605 kr.
n Páll Eiríksson á að
endurgreiða: 159.185.455 kr.
n Steinunn Guðbjartsdóttir og
Páll Eiríksson: 88.331.920 kr.
Samtals er gerð krafa um að þau
endurgreiði búinu 481.663.980 kr.
„Við
munum
ekki fallast á
þessa kröfu
Hafna kröfunni Steinunn
segir að þau Páll ætli sér að
hafna kröfu lífeyrissjóðanna
fimm um endurgreiðslu á
nærri hálfum milljarði vegna
meintra oftekinna launa.
Jeppafólk
með börn fast
í átta tíma
Tveir jeppar sátu fastir í nágrenni
við Skjaldbreið aðfaranótt sunnu-
dags. Björgunarsveitin Tintron úr
Grímsnes- og Grafningshreppi
aðstoðaði fólkið við að losa sig en
það hafði setið fast í meira en átta
klukkustundir.
Tveir fullorðnir og fjögur börn
voru þar stödd í tveimur jepp-
um. Sveitin var kölluð út um
ellefuleytið laugardagskvöld og
var mætt á vettvang með snjó-
bíl rúmum tveimur tímum síðar.
Hins vegar fundust bílarnir ekki
strax þar sem lélegt símasam-
band var á svæðinu. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var því kölluð út
en þurfti hún síðan að snúa við
vegna slæms skyggnis.
Stuttu síðar náði fólkið aftur
sambandi og gat gefið upp ná-
kvæmari staðsetningu en bílarnir
fundust um klukkan hálf fjögur
um nóttina. Björgunarsveitum
tókst síðan að losa þá stuttu fyrir
klukkan sjö á sunnudagsmorgni.
Vítisenglum
sleppt
Þremur liðsmönnum glæpasam-
takanna Hells Angels sem voru
handteknir voru í höfuðstöðvum
samtakanna á laugardag var
sleppt að loknum yfirheyrslum.
RÚV greindi frá því að þeir hafi
verið handteknir vegna alvarlegrar
líkamsárásar á laugardagsmorgun.
Sá sem fyrir árásinni varð rotað-
ist og var fluttur á slysadeild með
alvarlega áverka á höfði, en hefur
verið úrskrifaður af sjúkrahúsi.
Vítisenglarnir komu sér nýver-
ið fyrir með höfuðstöðvar sínar í
húsnæði í Síðumúla en þar er rek-
inn ólöglegur veitingastaður. Þar
voru vel á þriðja tug manna þegar
lögregla kom til húsleitarinnar en
lagt var hald á fíkniefni og áfengi.
Mennirnir hafa allir komið við
sögu lögreglu áður.
Slasaðist við að
skemma bíl
Aðfaranótt sunnudags barst lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
tilkynning um að átök hefðu brot-
ist út í Teigahverfi. Þar hafði ungur
karlmaður brotið rúðu í bíl með
berum höndum en nokkur fjöldi
manna var á staðnum þegar lög-
reglan mætti á vettvang. Maður-
inn var handtekinn og færður á
slysadeild þar sem hann var mjög
sár á höndum. Þegar hann var
færður í fangageymslu fundust
fíkniefni á honum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is