Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Blaðsíða 25
Fólk 25Mánudagur 11. febrúar 2013
Betri apótekin og Lifandi markaður www.sologheilsa.is
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Fræg í Suður-Kóreu
n Litla systir Lindsay Lohan er flott fyrirsæta
L
itla systir Lindsay Lohan er
orðin fræg í Suður-Kóreu.
Aliana starfar sem fyrirsæta
og hefur nýlokið stóru verk-
efni þar í landi. Þessa dagana
dvelur hún hjá mömmu sinni í New
York en er aftur á leiðinni til Suður-
Kóreu í myndatöku fyrir kóreska út-
gáfu Elle-tímaritsins.
Mamma hennar og umboðsmað-
ur, Dina Lohan, segist ekki ætla með
dóttur sinni að þessu sinni. „Hún
er orðin 19 ára. Módelskrifstofan
hennar er yndisleg. Ég veit að hún
er örugg,“ sagði Dina en Aliana er á
samningi hjá Next Models sem upp-
götvaði meðal annars Milly Sims og
Petru Nemcovu. n
Samrýmdar systur Systurnar
hafa alltaf verið góðar vinkonur
þótt Aliana sé jarðbundnari.
Aliana Aliana er 19 ára
og stígur nú út úr skugga
stóru systur.
H
versu hárra launa myndir
þú krefjast fyrir að bera far-
angur Lady Gaga, panta
fyrir hana tannbursta á jap-
anskri vefsíðu, passa upp
á að sápan hennar sé í hárréttum
lavender-lit og jafnvel að sofa í sama
rúmi og hún?
Jennifer O´Neill, fyrrverandi að-
stoðarkona Lady Gaga, stendur nú
í málaferlum við hana vegna atriða
eins og þeirra sem upp eru talin að
framan.
Jennifer voru greiddar 75 þús-
undir dollarar á ári og hún átti að
vera til taks allan sólarhringinn.
New York Post gerði úttekt á
dögunum á högum aðstoðarfólks
stjarnanna og komst að ýmsu.
Fyrrverandi aðstoðarkona Naomi
Campbell, Rebecca White, varð að
ganga úr skugga um að nákvæmlega
25 ilmkerti væru staðsett á tilteknum
stöðum í hótelsvítum Naomi. Þá
þurfti hún að taka allt áfengi úr
mínibar hótelherbergisins og setja í
sinn. Fljótlega myndi Naomi þó færa
sig í herbergi aðstoðarkonunnar og
hefja þar stífa drykkju.
Hin óheppna Rebecca White var
einnig aðstoðarkona Claire Danes
um tíma þegar hún var í skóla. „Starf
mitt fólst í því að keyra hana í skól-
ann og kyssa hana bless. Ég vann við
það að vera vinur hennar, sorglegt
en satt,“ segir Rebecca.
Það er engin ástæða til að vor-
kenna þrælum stjarnanna enda
þéna þeir allt frá 50 þúsund dollur-
um á ári og að auki fylgir alls kyns
lúxus starfinu. Á meðan White vann
fyrir Claire Danes bjó hún til að
mynda í glæsilegri SoHo-þakíbúð og
fékk allt uppihald greitt. n
Þrælar
stjarnanna
n Lifa í lúxus
Jennifer O´Neill
Stendur í málaferl-
um við Lady Gaga.
T
yra Banks, þáttastjórnandi og
fyrrverandi ofurfyrirsæta, lét
sjá sig í Grammy Gala-partíi á
laugardaginn. Tyra sem nálg-
ast fimmtugsaldurinn var ungleg að
vanda, búin að lita lokkana ljósa og
klæddist svörtum síðkjól úr smiðju
Roberto Cavalli.
n Ungleg að vanda
Með ljósa
lokka