Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Blaðsíða 25
Fólk 25Mánudagur 11. febrúar 2013 Betri apótekin og Lifandi markaður www.sologheilsa.is www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur Fræg í Suður-Kóreu n Litla systir Lindsay Lohan er flott fyrirsæta L itla systir Lindsay Lohan er orðin fræg í Suður-Kóreu. Aliana starfar sem fyrirsæta og hefur nýlokið stóru verk- efni þar í landi. Þessa dagana dvelur hún hjá mömmu sinni í New York en er aftur á leiðinni til Suður- Kóreu í myndatöku fyrir kóreska út- gáfu Elle-tímaritsins. Mamma hennar og umboðsmað- ur, Dina Lohan, segist ekki ætla með dóttur sinni að þessu sinni. „Hún er orðin 19 ára. Módelskrifstofan hennar er yndisleg. Ég veit að hún er örugg,“ sagði Dina en Aliana er á samningi hjá Next Models sem upp- götvaði meðal annars Milly Sims og Petru Nemcovu. n Samrýmdar systur Systurnar hafa alltaf verið góðar vinkonur þótt Aliana sé jarðbundnari. Aliana Aliana er 19 ára og stígur nú út úr skugga stóru systur. H versu hárra launa myndir þú krefjast fyrir að bera far- angur Lady Gaga, panta fyrir hana tannbursta á jap- anskri vefsíðu, passa upp á að sápan hennar sé í hárréttum lavender-lit og jafnvel að sofa í sama rúmi og hún? Jennifer O´Neill, fyrrverandi að- stoðarkona Lady Gaga, stendur nú í málaferlum við hana vegna atriða eins og þeirra sem upp eru talin að framan. Jennifer voru greiddar 75 þús- undir dollarar á ári og hún átti að vera til taks allan sólarhringinn. New York Post gerði úttekt á dögunum á högum aðstoðarfólks stjarnanna og komst að ýmsu. Fyrrverandi aðstoðarkona Naomi Campbell, Rebecca White, varð að ganga úr skugga um að nákvæmlega 25 ilmkerti væru staðsett á tilteknum stöðum í hótelsvítum Naomi. Þá þurfti hún að taka allt áfengi úr mínibar hótelherbergisins og setja í sinn. Fljótlega myndi Naomi þó færa sig í herbergi aðstoðarkonunnar og hefja þar stífa drykkju. Hin óheppna Rebecca White var einnig aðstoðarkona Claire Danes um tíma þegar hún var í skóla. „Starf mitt fólst í því að keyra hana í skól- ann og kyssa hana bless. Ég vann við það að vera vinur hennar, sorglegt en satt,“ segir Rebecca. Það er engin ástæða til að vor- kenna þrælum stjarnanna enda þéna þeir allt frá 50 þúsund dollur- um á ári og að auki fylgir alls kyns lúxus starfinu. Á meðan White vann fyrir Claire Danes bjó hún til að mynda í glæsilegri SoHo-þakíbúð og fékk allt uppihald greitt. n Þrælar stjarnanna n Lifa í lúxus Jennifer O´Neill Stendur í málaferl- um við Lady Gaga. T yra Banks, þáttastjórnandi og fyrrverandi ofurfyrirsæta, lét sjá sig í Grammy Gala-partíi á laugardaginn. Tyra sem nálg- ast fimmtugsaldurinn var ungleg að vanda, búin að lita lokkana ljósa og klæddist svörtum síðkjól úr smiðju Roberto Cavalli. n Ungleg að vanda Með ljósa lokka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.