Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Page 12
C
hristopher Dorner, fyrrver-
andi lögreglumaður í Los
Angeles, er eftirlýstur vegna
þriggja morða sem framin
voru í síðustu viku. Dorner
hefur gefið út yfirlýsingu á Facebook
þar sem hann fullyrðir að hann hafi
verið rekinn úr starfi vegna þess að
hann er blökkumaður. Í hefndar-
skyni ætli hann að myrða lögreglu-
menn og ástvini þeirra, en hann er
nú þegar grunaður um að hafa myrt
lögregluþjón, dóttur fyrrverandi lög-
regluforingja og unnusta hennar. Þá
hefur hann skotið að fleiri lögreglu-
mönnum og sært tvo þeirra illa.
Dorner hefur hlotið þjálfun í skæru-
hernaði. Hann keyrir um á vöru-
flutningabíl og er sagður búa yfir
miklu vopnasafni.
„Ill nauðsyn“
„Líklega finnst ykkur þessi hegðun
stórundarleg af þeim manni sem þið
tölduð ykkur þekkja, sem alltaf brosti
hvar sem sást til hans,“ segir í yfirlýs-
ingu Dorners. „Ég veit að mér verður
lýst sem ófreskju af lögreglunni í Los
Angeles og fjölmiðlum. En því miður
eru verk mín ill nauðsyn sem ég hef
enga ánægju af heldur verð að inna
af hendi til að endurheimta mann-
orð mitt og stuðla að raunverulegum
breytingum innan lögreglunnar.“
Hafin er rannsókn á brottrekstri
Dorners en að sögn Charlie Beck,
lögreglustjóra í Los Angeles, er það
ekki gert til að verða við kröfum hins
eftirlýsta. Í yfirlýsingu sagði lög-
reglustjórinn að hann óttaðist að
draugar fortíðar yrðu vaktir upp með
ásökunum Dorners um kynþátta-
hatur. Því væri brýnt að sýna fram
á að lögregluyfirvöld hefðu gegnsæi
og sanngirni að leiðarljósi. Svo virð-
ist sem nokkur stefnubreyting hafi
orðið hjá lögreglunni um helgina,
en á föstudaginn kvað við allt annan
tón á blaðamannafundi. Aðspurð-
ur um ásakanir Dorners gegn lög-
reglunni sagði Beck: „Þú ert að tala
um mann sem grunaður er um að
hafa framið svívirðileg morð. Ef þú
vilt gera þvaðri hans á internetinu
hátt undir höfði, þá gjörðu svo vel.
Ég kæri mig hins vegar ekki um það.“
Lögreglan sökuð um
kynþáttahatur
Christopher Dorner var sagt upp
árið 2008 fyrir að bera ljúgvitni gegn
samstarfsmanni sínum og saka
hann um að hafa sparkað í vitni.
Dorner kærði þá lögregluyfirvöld,
tapaði málinu og tapaði aftur eftir að
hafa áfrýjað til efra dómstigs.
Lögreglan í Los Angeles var ára-
tugum saman þekkt fyrir spillingu
og kynþáttahatur. Það eru ekki nema
rúmlega tuttugu ár síðan óeirðir
brutust út í borginni eftir að blökk-
umaðurinn Rodney King var laminn
til óbóta af lögregluþjónum. Atvikið
náðist á myndband og var sýnt um
allan heim en maðurinn hafði það
eitt til saka unnið að keyra of hratt.
Beck fullyrðir að vinnubrögð lög-
reglunnar og samband hennar við
borgarbúa hafi breyst til hins betra
á síðustu árum en óttast að ásakanir
Dorners um kynþáttahatur setji strik
í reikninginn.
Gömul kona skotin í bakið
Lögreglunni urðu á hræðileg mistök
á fimmtudaginn þegar hún hóf skot-
hríð á sjötuga konu og dóttur henn-
ar sem óku um á sams konar flutn-
ingabíl og Dorner. Gamla konan var
skotin í bakið en er ekki í lífshættu og
dóttir hennar særðist á hendi.
Aukinn kraftur hefur færst í
leitina að Dorner og sérstakt lög-
reglulið hefur verið stofnað til að
sinna henni. Það samanstendur af
lögregluþjónum frá Los Angeles,
Irvine og Riverside auk manna úr
alríkislögreglunni.
Jesús aldrei kallaður „nigger“
Yfirlýsing Dorners er afar löng og
virðist honum hafa verið mikið niðri
fyrir þegar hann skrifaði hana. Segir
hann frá ýmsum atvikum úr lífi sínu,
meðal annars því þegar skólabróðir
hans í grunnskóla kallaði hann
„nigger“ og Dorner sló hann. Báðir
máttu þola hirtingu og var Dorn-
er sagt að að góðir kristnir menn
ættu að bjóða hinn vangann en
ekki hefna sín. „Ég er ekki kristinn,
fjandinn hafi það, og þessi gamla
skrudda sem samanstendur af
skáldskap og takmörkuðum sann-
leika og kallast Biblían segir hvergi
að Jesús hafi nokkurn tímann verið
kallaður „nigger“. Hvernig dirfistu
að slá mig fyrir að standa upp og
krefjast þess að komið sé fram við
mig eins og manneskju?“ segir hann
í yfirlýsingunni. Er honum tíðrætt
um að „hreinsa nafnið sitt“ og virð-
ast morðin vera einhvers konar til-
raun til þess. n
Hatursglæpur
amish-biskups
Amish-biskupinn Samuel Mullet
í Ohio var á föstudaginn dæmdur
í 15 ára fangelsi fyrir hatursglæpi.
Mullet, sem er 67 ára, fékk meðlimi
trúarhóps síns til að ráðast að and-
stæðingum þeirra og klippa hárið
og skeggið af mönnunum. Það að
skera hárið telst vera niðurlægj-
andi innan trúarinnar en skegg
og sítt hár eru heilög tákn Amish-
fólks. Saksóknarar telja að trúarleg-
ur ágreiningur hafi verið ástæðan
fyrir því að Mullet fyrirskipaði árás-
irnar. 15 aðrir meðlimir safnaðar-
ins voru einnig dæmdir í allt frá
eins árs fangelsis til sjö ára.
Saksóknarar segja að árás-
irnar hafi verið gerðar á meðlimi
amish-samfélaga í nágrenninu sem
veittu honum mótstöðu eða þá á
fyrrverandi meðlimi safnaðarins,
sem yfir gáfu hann vegna ágrein-
ings. Þeir segja að Mullet hafi beitt
ógnarvaldi innan safnaðarins og til
að mynda neytt konur innan safn-
aðarins til kynmaka við sig eftir að
hafa fengið eiginmenn þeirra til að
leyfa sér það. „Konur voru neydd-
ar til að fara frá börnum sínum og
búa í húsi Mullets til að hann gæti
þvingað vilja sínum upp á þær,“
sagði saksóknari.
Pútín læsir
andstæðing inni
Leiðtogi Vinstrifylkingarinnar í
Rússlandi, Sergei Udaltsov, hefur
verið úrskurðaður í stofufangelsi.
Hann var sakaður í október um að
hafa skipulagt óeirðir og óspektir
í mótmælunum gegn Vladimír
Pútín Rússlandsforseta í maí í fyrra.
Udaltsov neitar sök og segir að þetta
sé ein af tilraunum Pútíns til þess að
koma óorði á stjórnarandstöðuna.
Udaltsov á yfir höfði sér allt að
tíu ára fangelsi en verður að dúsa
í íbúð sinni í Moskvu þar til rann-
sókn á máli hans lýkur, sem verð-
ur líklega í apríl. Mun þetta vera
í fyrsta skipti sem stjórnarand-
stæðingur í Rússlandi er úrskurð-
aður í stofufangelsi.
Ritstuldur
ráðherra
Menntamálaráðherra Þýska-
lands, Annette Schavan, sagði
af sér á laugardag eftir að há-
skólinn í Düsseldorf svipti hana
doktorsgráðu vegna meints
ritstuldar. Nafnlausa vefsíðan
schavanplag vísar í fjölmörg til-
vik í doktorsritgerð Schavan þar
sem hún er sögð ekki hafa vísað
nógu vel í heimildir eða sleppt
því alfarið.
Þrátt fyrir að háskólinn hafi
fundið tilefni til að svipta hana
gráðunni ber Schavan af sér allar
sakir. Hún segist ætla að höfða
mál gegn háskólanum og krefj-
ast skaðabóta. Schavan er annar
ráðherrann í ríkisstjórn Ang-
elu Merkel sem sakaður er um
ritstuld en fyrir tveimur árum
sagði þáverandi varnarmálaráð-
herra, Karl-Theodor zu Gutten-
berg, af sér en sannað þótti að
hann hefði stolið stórum hlutum
doktorsritgerðar sinnar.
MORÐINGI Í STRÍÐI
GEGN LÖGREGLUNNI
Mikill viðbúnaður Stofnað
hefur verið sérstakt lögreglulið til
að elta Dorner uppi.
Hættulegur Dorner
hefur fengið þjálfun í
skæruhernaði og býr yfir
miklu vopnasafni.
n Segist vilja hreinsa mannorð sitt n Lítur á sig sem fórnarlamb kynþáttaníðs
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Greindist á eftirlitsmyndavél Leitað
er logandi ljósi að Christopher Dorner um
þessar mundir.
12 Erlent 11. febrúar 2013 Mánudagur
„Ég veit að mér verður
lýst sem ófreskju af
lögreglunni í Los Angeles
og fjölmiðlum.