Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Qupperneq 16
Varastu Verðbólguna
Algengt verð 260,5 kr. 263,3 kr.
Algengt verð 260,3 kr. 263,1 kr.
Höfuðborgarsv. 260,2 kr. 263,0 kr.
Algengt verð 260,5 kr. 265,3 kr.
Algengt verð 262,9 kr. 263,3 kr.
Melabraut 260,3 kr. 263,1 kr.
Eldsneytisverð 10. febrúar
Bensín Dísilolía
Einn besti
staðurinn í
Reykjavík
n Lofið að þessu sinni fær nýopn-
aður Stúdentakjallari við Háskóla-
torg í Reykjavík. Ánægður við-
skiptavinur vill lofa ódýran mat og
gott andrúmsloft. „Þessi staður er
frábærlega innréttaður, matur-
inn er ljúffengur en fyrst og fremst
ódýr,“ segir viðskiptavinurinn. „Ég
hef gert mér ferð þangað nokkrum
sinnum eftir að hann var opnað-
ur. Alltaf kemur á óvart hversu frá-
bær dagskrá er á kvöldin,
en alltaf er ókeypis inn.
Bjórinn er mjög ódýr
og góður og maturinn
líka. Ég get ekki
annað sagt en
að þetta sé einn
besti staðurinn í
Reykjavík, ef ekki
sá besti.“
Fékk gamla
köku
n Óánægður viðskiptavinur hafði
samband við DV en hann hafði
keypt kökusneið í Hámu á Há-
skólatorgi. Þegar hann beit í kök-
una reyndist hún vera þurr og ein-
kennileg á bragðið, líkt hún væri
gömul. „Ég hef smakkað þessa
köku áður og það er engum vafa
undirorpið að þessi sneið var að
minnstu dagsgömul ef ekki eldri,“
sagði viðskiptavinurinn.
Rebekka Sigurðardóttir, upp-
lýsingafulltrúi hjá Félagsstofnun
stúdenta, segir atvikið leiðinlegt
en ólíklegt sé að gamalt bakkelsi
sé á boðstólum í
Hámu: „Ef svo hef-
ur verið þá er það
mjög leiðinlegt
og óvenjulegt,
því þetta er lítil
veitingasala með
mikið rennsli. Það
fer mikið af vörum þarna
í gegn. Það er eiginlega
enginn staður til þess að
geyma gamlar kökur.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
16 Neytendur 11. febrúar 2013 Mánudagur
n Verðbólgan étur upp sparnaðinn n Fimmtíu þúsund króna rýrnun eða sjötíu þúsund króna ávöxtun eftir reikningum
E
f þú geymir fjármuni inni á
veltureikningi skaltu endur-
skoða þá ákvörðun. Það getur
munað rúmum sjötíu þúsund
krónum að geyma fjármunina
inni á réttum reikningi frekar en
röngum yfir tveggja ára skeið, eins
og dæmi hér síðar sýnir. Samkvæmt
verðbólguspá Seðlabankans, sem
þó gerir ráð fyrir hóflegri verðbólgu,
munu fjármunirnir bókstaflega gufa
upp inni á óverðtryggðum reikning-
um með lágum vöxtum. Ferlið verð-
ur enn hraðara ef verðbólgan reynist
hærri. Vextir bankanna eru slappir
og því þarf að varast verðbólguna.
ein milljón á sparireikningi
Dæmið sem hér verður notað til út-
reikninga á hagkvæmni reikninga
er ein milljón króna sem lögð er
inn á sparireikning eða sjóð og fjár-
munirnir ávaxtaðir yfir tvö ár. Inn í
dæmið er tekin verðbólga, verðbæt-
ur og umsýslugjöld bankanna ásamt
árlegum vöxtum. Upphæðirnar sem
hér sjást eru ekki tölulegar upphæð-
ir heldur upphæðir að raunvirði, þær
byggja á kaupmætti dagsins í dag.
Ríkisskuldabréf – og þá sérstak-
lega verðtryggð – eru langhagkvæm-
asti kosturinn sem býðst hjá íslensku
bönkunum. Bankarnir fara með um-
sýslu á kaupum bréfanna en auðvelt
er að nálgast skuldabréfin þannig. Þó
skal athuga að bankarnir eru með
sjóði sem eru blanda af ríkisskulda-
bréfum, bæði verðtryggðum og
óverðtryggðum, íbúðarlánabréfum
og innlánum og bankarnir eru með
mismunandi sjóði. Ríkisskuldabréfin
eru traustasta fjárfesting sem býðst
enda er ríkið traustasti skuldarinn.
Séu þau verðtryggð ertu að tryggja
þig gegn verðbólgunni.
Bankinn tekur þóknun
Umsýslugjöld bankanna eru mis-
munandi, Landsbankinn tekur 0,8
prósent, Arion banki eitt prósent og
Íslandsbanki 0,9 prósent. Allir bank-
arnir leggja eitt prósent aukalega á
vegna gengismunar eða viðskipta-
kostnaðar á skuldabréfareikninga.
Þessi kostnaður er tekinn inn í reikn-
inginn hér.
Skammtímasveiflur á ríkisskulda-
bréfum geta þó verið allnokkrar, enda
hefur ávöxtunin verið frá um fimm
prósentum og upp í sextán á ári síð-
ustu þrjú árin. Fer það til að mynda
eftir gengissveiflum en til langs tíma
eru ríkisskuldabréf besti kosturinn.
Verðtryggðir reikningar skjólið
Einnig eru verðtryggðir reikn-
ingar bankanna hagstæðir, en helsti
ókostur þeirra er að innistæðan er
læst í þrjú ár hið minnsta. Þú munt
ávaxta fjármunina verr en með rík-
isskuldabréfum inni á verðtryggðum
reikningi og þú hefur ekki aðgengi að
þeim yfir þennan tíma, ríkisskulda-
bréf getur þú hins vegar leyst með
eins dags fyrirvara hjá bankanum
þínum. Þar sem neyðarlögin eru enn í
gildi eru þessir reikningar jafn tryggir
og ríkisskuldabréf, enda tryggir ríkið
allar innistæður. Aðrir reikningar, svo
sem vaxtabótareikningar, eru ekki
eins hagkvæmir og skuldabréfasjóð-
urinn og ávöxtun háð verðbólgu. Sé
hún 3,7 prósent eða meira ávaxtar þú
fjármunina betur inni á verðtryggðu
reikningunum.
Ýmsir sjóðir eru í boði hjá bönkun-
um en hér eru teknir einn hlutabréfa-
sjóður og einn skuldabréfasjóður
hjá þremur stærstu bönkunum sem
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Tugþúsundir Það munar um 75 þúsund krónum
á óhagstæðasta reikningi og þeim hagstæðasta,
séu vextir yfir tveggja ára tímabil reiknaðir.
Fituríkar kaloríubombur
n skoðaðu næringarinnihald á vefsíðu Matís
Á
vefsíðu Matís; hvaderimatn-
um.is má finna tölur um inni-
hald matvæla. Upplýsingar á
síðunni er fengnar úr ÍSGEM-
gagnagrunninum sem geym-
ir tölur um efnainnihald matvæla á
íslenskum markaði, útflutt matvæli
og hráefni. Þar er að finna upplýs-
ingar um rúmlega 1.100 fæðutegund-
ir. Nefna má fitu í matvælum, prótein,
kolvetni og viðbættan sykur.
Nú er engin afsökun lengur. Þeir
sem huga að heilsunni geta litið á inn á
síðuna á bolludag og sprengidag. Í ljós
kemur að í 100 grömmum af vatndeigs-
bollu með rjóma eru 409 kaloríur og
í 100 grömmum af gerdeigsbollu 342
kaloríur. Fituinnihaldið er feikihátt –
100 gramma vatndeigsbolla inniheld-
ur 67 prósent fitu.
orka í 100g:
n kJ: 1.702
n kcal: 409
orkudreifing:
n Prótein 5%
n Fita 67%
n Kolvetni 26%
n Trefjar 0%
orka í 100g:
n kJ: 1.430
n kcal: 342
orkudreifing:
n Prótein 5%
n Fita 48%
n Kolvetni 44%
n Trefjar 1%
Rjómabolla
vatnsdeigsbolla, með sultu
Rjómabolla
gerdeigsbolla, með sultu